Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 19
F erðafréttir Vinalegt gistiheimili í Bretlandi. höfn. Sýningargripimir koma frá Bandaríkjunum. Risadýrin eru mótuð í eðlilegri stærð, hreyfa sig, gefa frá sér óhugnanleg hljóð og líta mjög ógnvelqandi út! Sýn- ingargestir ganga í gegnum aðal- inngang, en í miðrjum garði er búið að koma fyrir stóru tjaldi er hýsir dýrin. Sýningin stendur fram yfir páska. Einkunnir fyrir Kastrup- og Kennedy-flugfvöll Það er ekki eins erfitt og áður að fara um Kennedy-flugvöll í New York að sögn erlends ferða- blaðs. Núna eru það aðeins um 45 mínútur frá því að þú yfírgef- ur flugvélina þangað til þú ert kominn í rútu eða bíl. Áður gat það tekið um 2-3 klukkutíma! Ameríska tímaritið Time gengst fyrir árlegum rannsóknum, hvaða alþjóðlegu flugvallaverslanir em bestar. Að þessu sinni fær danski flugvöllurinn á Kastrup hæstu einkunn. Útsölur í Frankfurt Frankfurt er stöðugt að verða vinsælli borg hjá íslendingum, sem flestir koma þangað til að njóta lífsins eða í verslunarerind- um. Vetrarútsölur hefjast form- lega í Frankfurt síðasta mánudag í janúar og standa f tvær vikur. Algengt er að verð lækki þá frá 30% og allt niður í 50-60%. Aðal- verslanahverfíð er við Hauptwac- he-torg og á göngugötunni Zeil. Aigengustu spumingar hjá íslensku ferðamönnunum eru: Hvaða verslanir taki greiðslukort — hvaða bankar láti af hendi reiðufé út á kort og hvemig á að fá söluskatt endurgreiddan? Stór- verslanimar KAUFHOF, HERTIE, OTT UND HEINEM- ANN við Zeil viðurkenna bæði Euro og Visa. Flestir bankar og öll pósthús iáta af hendi reiðufé út á Euro-kort, en aðeins tveir bankar í miðbænum, CC-Bank og KKB-Bank taka við Visa-kortum. Banki á aðaljámbrautarstöð (op- inn til kl. 22 á kvöldin) tekur við báðum kortum. Leiðbeiningar um endurgreiðslu söluskatts eru í dálkinum „Hinn hagsýni ferða- maður". Til fróðleiks fyrir ferða- menn til Bretlands, þá heijast útsölur þar yfírleitt síðustu dag- ana í desember, rétt eftir jól og standa fram eftir janúar. Árleg víkingahátíð Jórvíkur Hin árlega víkingahátíð í enska bænum York hefst 27. janúar og stendur til 25. febrúar. Þar verður margt á dagskrá að venju, allt frá víkingabardaga til hefðbundinnar bálfarar á langbát. Jórvík er nafn- ið á hinni gömlu víkingabyggð í sögubænum og Jórvíkur-víkinga- safnið hefur dregið til sín fjórar milljónir ferðamanna, síðan það var opnað í apríl 1984. Bærinn York, sem liggur 193 mílur norð- ur af London, var eitt aðalaðsetur víkinga og hluti af víkingabyggð- inni í Jórvík endurfæddist, þegar ferðamönnum var gefínn kostur á að ferðast 1000 ár aftur í tímann með rafknúnum „tímabílum"! Að geta eldað sjálfur í skoskum stíl Hús á friðsælli eyju; íbúðir í gömlum, sögulegum húsum; end- umýjuð lítil mylluhús eru á meðal Frá víkingasafiiinu i Jórvík. meira en 30 friðaðra húseigna, sem „National Tmst for Scotland" hefur látið útbúa sem orlofshús með eldunaraðstöðu fyrir ferða- menn, frá mars til októberloka. íbúðir em í Leith Hall og Haddo House í Aberdeen-skíri; orlofshús í Ross-skíri og Dumfries-skíri og stórt íbúðarhús á eyjunni Canna, suður af Skye. Nánari upplýsingar hjá Alison Rankin, Dept. HS, National Trast for Skotland, 5 Charlotte Square, Edinburgh EH2 4DU. Á skíðum í Skotlandi Eitt af tilboðunum í bæklingn- um„Ski Holidays Scotland" hljóð- ar upp 50 pund á mann fyrir fimm gistinátta orlofsdvöl á skíðasvæði í hjarta Skotlands. Boðið er upp á gistingu í lúxushótelum, gisti- heimilum og litlum húsum með eldunaraðstöðu í bæjunum Ca- imgorm, Glenshee, Lecht og Glen- coe. Fjöldi skíðafólks í Skotlandi hefur tvöfaldast síðustu 10 árin og gistinætur vom um 670.000 í fyrra. 19 skíðaskólar em til- greindir í bæklingnum. Nánari upplýsingar hjá Scottish Tourist Board eða í síma (0349) 63434. „Travelodge“ við breska þjóðveginn Gistiheimili meðfram þjóðveg- um í Bretlandi hafa hingað til verið undir nafninu „Little Chef Lodge“, en heita nú „Trave- lodge". Gistihúsakeðjan „Tmstho- use Forte" var áður með 29 slík gistiheimili við veginn, en frá árs- byijun era þau komin upp í 40. Travelodge er með ódýra gistingu og sama verð hefur gilt síðustu þijú ár; eins manns herbergi 1400 krónur, tveggja manna herbergi 1750 krónur. Öll herbergin em með sérsnyrtiherbergi, litasjón- varpi og aðstöðu til að hita sér kaffi eða te. Yfir Eyrarsund með „þotuhraða“ Milli Kaupmannahafnar og Helsingjaborgar þjóta nú nýtísku þotubátar á 80 km hraða á klukkustund. Ferðin frá Kaup- mannahöfn til Helsingjaborgar tekur um 40 mínútur. Brottför í báðar áttir er níu sinnum á sólar- hring. Bátamir em með lúxus- farrými fyrir þá sem óska, veiting- ar og sölu á tollfijálsum varningi. Risaeðlur til sýnis í Kaupmannahöfh Fyrsta desember var opnuð sýning á risaeðlum og öðmm fom- aldardýmm í Tívolí í Kaupmanna- Hinn hagsýni ferðamaður Margs þarf að gæta á ferðalögum og oft er hægt að spara sér ótaldar upphæðir, ef rétt er að málum staðið. íslending- ar eru kaupglaðir erlendis, enda vöruverð oft freistandi lægra en vöruverð hér heima. Mörgum vex I augum að fá söluskatt í viðkomandi landi endurgreiddan vegna útfyllingar á eyðu- blöðum og fleira, en við skulum líta á hvað það er í rauninni einfalt. i Atriði til athugunar: 1. Söluskattur fæst ekki endur- greiddur nema keypt sé fyrir ákveðna lágmarksupphæð, þess vegna er oft betra að gera inn- kaup í stórverslunum. 2. Farið að upplýsingaborði við- komandi verslunar og spyijið hvar „service center" sé. 3. Takið eyðublað vegna sölu- skatts í hverri deild um leið og þið borgið. 4. Þegar þið emð búin að kaupa allt sem þið ætlið ykkur í viðkom- andi stórverslun, þá farið þið með öll eyðublöðin að „service center“ — takið númer þar, látið stimpla á eyðublöðin og hjálpa ykkur til að fylla þau út. 5. Hafíð með ykkur vegabréf, oftast er beðið um vegabréfsnúm- er. 6. Oft getur verið upp í klukk- utíma biðröð við „service center", sérstaklega síðdegis — betra að Það getur munað um minna en að fá endurgreiddan söluskatt af dýrum varningi. vera á ferð snemma dags. 7. Hafið allan varning, sem þið ætlið að fá endurgreiddan sölu- skatt á, í sérstakri, handhægri tösku, þegar þið komið á flugvöll- inn, en þið þurfið að vera viðbúin að sýna hann, eftir að komið er í gegnum innritun. 8. Flestar flughafnir endur- greiða söluskattinn í beinhörðum peningum — aðrar senda ávísun seinna. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. JANÚAR 1989 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.