Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1989, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1989, Blaðsíða 16
; B I L A R ISUZU íburðarlaus - en kemur á óvart Mælaborðið minnir á Citroen í sumu tilliti og er ekki verra fyrir það. Enginn íburður Gemini er fáanlegur sem venjulegur fernra dyra fólksbíll eða tvennra dyra, örlítið minni bíl en þá með stórri hurð að aftan og ekki ýkja stóru farangursými. Fólksbíll- inn er 4,07 m langur en styttri bíllinn 3,99 m. Hæð er 1,38 m, breiddin 1.615 m, lengd milli hjóla 2,4 m og þyngd minni bílsins er 825 kg en þess stærri 840 kg. En það var sem sagt Gemini tvennra eða öllu heldur þrennra dyra „hatchback" sem var til skoðunar og verður því §allað um hann hér á eftir. Vélin er 1471 rúmsentimetra og 76 he- stöfl en til er einnig 1297 rúmsentimetra vél og þá 72 hestöfl. Framleiðendur bjóða bílinn einnig með dísilvél en ekki hefur þótt ástæða til að flytja þá gerð hingað enda sýnt að slík útgerð myndi ekki borga sig miðað við núverandi bensínverð og þunga- skatt. Gemini er framdrifinn og rennur áfram á 13 þumlunga börðum. Gemini er þægilegur og bjartur bíll að umgangast. Ymislegt við stýrið og sæti ökumanns minnir á lausnir Citroen þar sem rofar sitja á bretti rétt við hendur öku- manns þegar hann heldur um stýrið „klukk- an tíu mínútur yfir tíu“ eins og ökukennslu- bókin sagði. Það á við um stjómtæki eins og ljós og þurrkur en nokkrir rofar eru á hefðbundnum stað í mælaborði eins og til dæmis miðstöðvarkerfið. Hér er enginn sérstakur íburður á ferð- inni enda verðlagið ekki slíkt. Að innan er að finna allt það sem ökumaður og far- þegar þarfnast í bíl sem þessum; ágæt sæti, öryggisbeltin á sínum stað, hliðarhólf fyrir smádót fram í og aftur í og útsýni er gott. Skuthurðin opnast mjög vel og þótt farang- ursýmið sé ekki stórt í þessari gerð Gemini ætti það að duga fyrir alla venjulega notkun í borgarbíl og þótt lengra væri farið með ekki alltof marga farþega. Bíllinn er með Hann heitir fullu nafni Isuzu Gemini hatchback og kemur á óvart. samlæsingu á hurðum, hann er búinn dag- ljósabúnaði eins og flestir nýir bílar nú til dags, útispeglar eru á báðum hliðum og bílnum fylgir líka útvarp og segulbandstæki. Það sem helst má telja hvimleitt í tvennra dyra bílnum er umgangurinn í aftursætið. Framsætið gengur fram um leið og sætis- bakinu er hallað fram og þarf því að stilla sætin í á ný hvert sinn og einhveijum hefur verið hleypt aftur í. Hins vegar hefur verið reynt að koma öryggisbeltum framsæta þannig fyrir að þau trufli sem minnst þenn- an umgang. Aksturinn Aksturinn kemur skemmtilega á óvart og hann þarf ekki að skammast sín fyrir viðbragðið. Það er leikur einn að rífa sig af stað eftir langa bið á rauðu ljósi og það er líka auðvelt að drífa sig fram úr lestar- stjórunum á leið í Mosfellsbæ eða á Suður- nesin. Gemini á lengi vel kraft í þá snerpu sem ökumaður þarf í slíkum tilfellum. Og oft dugir fjórði gírinn til þess arna en ef færið er knappt er vitanlega vissara að skipta í þriðja. Fimmti gír er einnig fyrir hendi og hann er eins og alltaf góð viðbót, sérstaklega fyrir þá sem hafa hann ekki dags daglega í heimilisbílnum. Snerpan er það sem kemur þægilega á óvart í þessum bíl. Eins og getið var í upp- hafi sest ökumaður undir stýri Gemini í fyrsta sinn án þess að gera sér háar hug- myndir um gott viðbragð en það er vissu- lega fyrir hendi. Og raunar má segja það um hvaðeina sem akstrinum viðkemur: Bílvangur Sambandsins hefiir umboð fyrir Isuzu bílana frá Japan en auk þeirra býður fyrirtækið bíla fi'á Op- el og Chevrolet eins og kunnugt er. Innflutn- ingur á bílum frá Isuzu hófst fyrir allmörgum árum en segja má að á liðnu hausti hafí fólksbílar firá Isuzu fyrst náð fótfestu hér enda þá fáanlegir á góðu verði og bíllinn orðinn breyttur og bættur frá því sem verið hafði. Isuzu Gemini verður skoðaður hér nokkuð í dag en hann er fáanlegur í nokkrum gerðum, með 1300 eða 1500 vél, 76 hestöfl, tvennra eða fernra dyra og kostar frá 638 þúsund krónum upp í 835 þúsund krónur. Isuzu Gemini kemur nokkuð á óvart af ýmsum ástæðum. Kannski fyrst þeirri að þetta er bara lítið þekktur bíll og menn hafa ekki gert til hans neinar sérstakar kröfur. Hér er um léttan og lipran bíl að ræða, snaggaralegan í borgarumferð og þægilegan í umgengni. Og trúlega er óhætt að gera til hans ýmsar kröf- ur án þess að verða fyrir vonbrigðum. Á stærri bílnum er hólf á baki 6-am- sæta og ágæt hólf í hurðum líka. Gemini er bíll sem þolir ýmsar kröfur öku- manns, hann er snöggur, lipur og rúmgóður hið innra. Stýrið er mjög létt enda aflstýri og það er nákvæmt. Það er auðvelt að hafa full- komna stjóm á bílnum, hann rásar ekki óvænt út undan sér eins og það er annars auðvelt nú orðið á borgarmalbikinu með hinum sífellt dýpkandi skomm sínum. Heml- ar fá líka plús og sömuleiðis gírskiptingin. Að endingu Isuzu Gemini kostar 638 þúsund krónur hið ódýrasta og er óhætt að segja að menn fá talsvert mikið fyrir þá upphæð. Eins og fyrr segir hefur hann verið fluttur inn frá því á liðnu hausti og við uppherslu og fyrstu yfírferð hefur hann verið laus við öll vanda- mál og í því efni staðið sig betur en ýmsir dýrari bílar. Gemini hlýtur því að koma til álita þegar menn leita að smábíl - og jafn- vel miðlungsstórum - og í verði keppir hann við ýmsa landa sína með góðum árangri. Nokkrar tölur: Lengd 3,995 m breidd 1,615 m hæð 1,38 m lengd milli hjóla 2,4 m þyngd 825 kg gírar 5 hestöfl 76 verð frá 638 þús. kr. GEMINI ný útgáfa Tveir nýir frá Alfa Romeo Alfa Romeo 164 coupé væntanleg á þessu ári. Nýr Alfa Romeo, byggður á Fíat tipo, en í útliti eins og Alfa 164. Alfa Romeo hefur átt vaxandi fylgi að fagna, einkum eftir að glæsiútgáfan Alfa Romeo 164 kom til skjalanna. Sá er raunar náfrændi þeirra Fiat Croma og Saab 9000 og upp runninn í samvinnuverkefni Svía og ítala. Alfa er raunar útibú frá Fiat. Nú er í ráði að fylgja eftir velgengninni með Alfa 164 og snemma á næsta áratugnum mun hlaupa af stokkunum nýr millistærðarbíll, sem tekur að því er virðist algerlega mið af Alfa 164 og sést teikning af honum hér. Raunar mun ætlunin að byggja á Fiat Tipo, sem síðla þessa vetrar var kynntur í bíla- þætti Lesbókar, en vélin verður mun líflegri, eða 170 hestöfl og 12 ventla. Líka er mögu- leiki, að hann verði fáanlegur með aldrifi. A leiðinni mun það einnig vera á þessu ári, að Alfa Romeo 164 komi á markað í coupé-útgáfu og keppir þá við meiri bóga en áður, enda verður hann með 3 lítra, V-6 vél og hámarkshraðinn ekki undir 230 km á klst. 16 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.