Lesbók Morgunblaðsins - 13.02.1993, Blaðsíða 10
F inngálknað
Myndin af finngálkninu er úr ritinu Fysiologus, sem er einskonar dýrafræði -
um hvað dýrin tákni andlega.
Eftir ÖRN ÓLAFSSON
Lesendur þessa pistils munu
kannast við furðuskepnur
syo sem skuggabaldur,
skoffín og fínngálkn. En
um það síðasttalda segir
m.a. í Þjóðsögum Jóns
Árnasonar (I, 611):
Finngálkn er það dýr
kallað sem köttur og tófa geta saman.
Er það grimmt mjög og öllum vargi skað-
legra fyrir sauðfé manna og skotharðast
allra dýra. Vinnur engin kúla á finngálkn-
ið og verður það ekki skotið nema með
silfurhnapp eða silfurkúlu. Það er og
styggt mjög og ákaflega frátt á fæti.
í íslenskri orðsifjabók eru auk orðmyndarinn-
ar fínngálkn taldar upp myndimar: „finng-
álkan, finngálpn, finngalprt og þingálp(n)“,
„einhverskonar töfra- og furðuskepna, mann-
hestur eða elgfróði". Þar eru raktar nokkrar
kenningar um uppmna orðsins, og ályktað:
„Allt vafasamt". „Uppruni öldungis óviss“,
En finngálkns er einnig getið í íslenskum
fomsögum, m.a. í Örvar-Oddssögu (19,-
20.k.). En hún er svo víða til, að hér skal
vitnað í torgætari texta, riddarasöguna
Blómsturvallasögu frá 14. öld. Lýsingin er
svipuð þeirri í Örvar-Oddssögu, en yfirgengi-
legri (bls. 17):'
...en er þeir voru komnir á skóginn, komu
í móti þeim tvö dýr rennileg og furðulega
mikil, er fingálptar heita. Þau em með
þess háttar sköpun, að þau hafa manns
hendur og mannshöfuð og alla mannssköp-
un ofan að lendum, en brjóst og klær sem
á óargadýrum. Tvo spena höfðu þau sem
konubijóst væri. Aftari hlutur dýrsins er
bæði digur og langur, og lendar sem á
hesti og hófa á á aftari fótum, hala lang-
an og digran og klepp á endanum. Þeirra
ásjóna var hræðileg, tennur mjög stórar,
ginið mikið úr máta, úr augunum þótti sem
eldur brynni. Karldýrið hafði skegg sítt
og svart sem bik, þau höfðu skjöldu og
sverð.
í Styrbjarnar þætti Svíakappa segir frá
undri miklu (bls. 71), „að í díki þvi er um
var gert borgina kom upp finngálkn mikið
og kvað“ vísu. En í ritinu „Stjörnumörk",
sem útgefandinn Konráð Gíslason (bls. viii)
segir vera frá miðri 14. öld er orðið haft um
stjömumerkið sem nú er kaliað Bogmaðurinn
(bls.478);
Caprieomus stendur í sunnanverðum zo-
diaco þar er hann kemur við veturhring
nær sagittario (fmngálkn) og aquila (ara).
Enda er það fornt, að sýna stjömumerkið
bogmanninn sem kentár, þ.e. maður niður
að mitti, en þá tekur við hestsskrokkur,
mannsbolurinn í stað háls hestsins. Hér fylg-
ir með mynd úr ritinu Physiologus, sem er
einskonar dýrafræði - um hvaða andlega
eiginleika manna dýrin tákni. Handritið og
þar með myndin er talið vera frá því skömmu
eftir 1200. Eins og síðasti útgefandi ritsins,
Jonna Louis-Jensen bendir á, hefur skepnan
klær, ólíkt hestmennum Grikklands. Satt að
segja sýnist mér vera ljónsskrokkur undir
manninum, en hann í kyrtli sem hólkast upp
á mótunum - nema það séu þá húðfellingar.
Með myndinni fellum við skrímslatal þetta.
Af því má sjá að menn hafa gert sér nokkuð
mismunandi hugmyndir um finngálkn, en
sameiginlegt er, að þetta sé samsett furðu-
skepna, að hálfu maður en að hálfu dýr. Um
það eru og fleiri orð, svo sem áður var rakið.
Skáldskaparfræði
Sum þeirra merkisrita, sem íslendingar
sömdu á miðöldum, eru lítt þekkt jafnvel á
íslandi, enda hafa þau sjaldan eða aldréi
verið fáanleg á prenti. Það á við um mörg
fom kirkjuleg rit, en einnig um fræðirit. Þau
eru þó mörg og fjölskrúðug. Sum eru þýdd,
svo sem þau er vitnað var í hér að framan,
dýrafræði og alfræði, þ. á m. landafræði.
Ónnur eru frumsamin af Islendingum, og er
þar frægust Snorra-Edda, sem gerir grein
fyrir goðafræði og bragfræði fornri. Henni
fylgja oft í handritum fjórar málfræðiritgerð-
ir. Sú fyrsta er eldri en Edda, talin vera frá
miðri 12. öld eða skömmu síðar, stórmerkileg
greinargerð fyrir íslenskri tungu á þeim tíma.
En hér skal vikið að þriðju málfræðiritgerð-
inni, þ. e. Málskrúðsfræði eftir Ólaf Þórðar-
son Hvítaskáld (d. 1259), bróðurson Snorra.
Hún byggist á erlendum ritum, en jafnframt
á skólahaldi Ólafs í Stafaholti um miðja 13.
öld. Ritið fjallar framanaf um Islenska tungu,
en fer síðan út í stílfræði. Og þar sem fjallað
er um stílgalla, kemur m.a. fyrsta sinni fram
mér vitanlega orðið sem er fýrirsögn þessar-
ar greinar (bls. 80):
Sá löstur heyrir og cacenphaton, er vér
köllum nykrað eða finngálknað, og verður
það mest í nýgörvingum sem hér:
Hringtælir gaf hálu
hlýrsólar mér dýra
oss kom hrund til handa
hræpolls drifrn golli
sút þá er Heijans hattar.
Hér er öxin kölluð í öðrum helmingi tröll-
kona skjaldar eða valkyija, en í öðrum
helmingi sút hjálmsins, og er þar svo skipt
líkneskjum á hinum sama hlut, sem ny-
krinn skiptist á margar leiðir.
Hér er greinilega vísað til þess sem Snorri
Sturluson segir um nýgervingar í Eddu sinni
(bls. 282, í þeirri gerð, Trektarbók heitir
þetta nýgjömingar):
Það era nýgjömingar að kalla sverðið orm
og kenna rétt, en slíðrimar götur hans,
en fetlana og umgjörð hams hans. Það
heldur til ormsins náttúra að hann skríður
úr hamsi, svo að hann skríður mjög til
vatns. Hér er svo sett nýgjörning, að hann
fer leita blóðs bekkjar að, þá er hann skríð-
ur hugar stigu, það eru bijóst manna. Þá
þykja nýgjömingar vel kveðnar, ef það
mál, er upp er tekið, haldi um alla vísu-
lengd, svo sem [þ.e.: en ef] sverð sé orm-
ur kallaður, fiskur eða vöndur eða annan
veg breytt, það kalla menn nykrað, og
þykir það spilla.
Framangreind klausa úr Málskrúðsfræði
Óiafs er eina dæmið sem ég þekki úr fornu
máli um orðið finngálknað, nema hvað vísað
er til hans í Fjórðu málfræðiritgerðinni (bls.
131):
Hér er kylfan kennd eður merkt með þeim
tilfellum sem af henni mættu gjörast, og
hefir ýmsar líkingar í einni vísu, og kallar
Ólafur það finngálknað, er lík[ing]um2 er
skipt á einum hlut í hinni sömu vísu og
ber best að hinn sami háttur sé haldinn
um alla vísu, allra helst í einstaka vísum
en eigi hæfir sá háttur í stórkvæðum.
Þegar orðið finngálknað kemur fyrir á
seinni öldum (í lok átjándu aldar og um miðja
19. öld), er greinilega vísað til Málskrúðs-
fræðinnar, berum orðum í elsta dæminu3.
En allstaðar er þetta lagt að jöfnu, finngálkn-
að merkir hið sama og nykrað, slíkum kveð-
skap er líkt við furðuskepnu. Nykur var skv.
þjóðtrú ek. hestur sem lifði í vötnum og ám,
steingrár á lit, og hófar hans og eyra snera
aftur.
NÚTÍMAUÓÐ
Sagan sýnir, að engin þörf hefur verið
fyrir orðið fínngálknað, allt frá því að það
fyrst kemur fyrir, um miðja 13. öld. Þá sára-
sjaldan að það hefur verið notað, hefur það
eingöngu verið sem samheiti við nykrað. En
orðið nykrað er svo fast í sessi um það að
breyta um líkingar í miðjum klíðum, eða
blanda saman líkingum, að það væri hið
mesta óráð að fara að ragla með það. Hins-
vegar skortir orð um nálægt fyrirbæri, sem
er þó eðlisólíkt. Það er að tengja saman and-
stæður í einni ljóðmynd eða lýsingu, ósamrýn-
anlega hluti. Þetta fylgir módemisma í bók-
menntum, sem er talinn hefjast um 1870.
En það er einkum frá því um aldamót, sem
ýmsir boðberar hans4 leggja áherslu á að ljóð-
mynd verði því áhrifaríkari sem hún tengi
saman sundurleitari atriði. Við getum tekið
dæmi úr ljóði eftir Halldór Laxness frá 1927,
„Nótt á tjamarbrúnni":
á sælum vörum sorgarinnar
sofa tumar borgarinnar...
Hér er sorgin persónugerð þannig, að hún
sýni andstæðu sína, sælu, og í þessum síð-
ustu tveimur línum er önnur óskiljanleg
mótsögn. Um hvað er yfírleitt sagt, að það
sofí á vörum? Bros eða koss, eitthvað sem
mælanda finnst að ætti að fara að birtast á
vörunum, en er þar ekki enn. Hitt væri hefð-
bundið, að segja turna borgarinnar sofa í
speglun tjarnarinnar. Hvort orðalagið um sig
er kunnuglegt, og því má lesanda finnast,
að hann ætti að skilja setningu þar sem þetta
tvennt er fléttað saman. En það er ómögu-
legt. Er þetta ekki á sinn hátt eins og finng-
álknin? Sett saman úr hlutum sem eru ekki
bara óskyldir, heldur ósamræmanlegir. Út-
koman verður eitthvað alveg nýtt, nánast
óhugsanlegt. Þetta er í rauninni annað fyrir-
bæri en nykrað, þar sem bara er flökt á
milli líkinga. Ýmsar mótsagnir í ljóðum Hall-
dórs eru af sama tagi og í dæminu hér að
frarnan, einkum í ljóðum hans á árinu 1927.
Fleiri dæmi og umQöllun eru í nýrri bók
minni: Kóralforspil hafsins (1992).
Þetta er allt annað fyrirbæri en langsótt
eða óvenjuleg líking. Dæmi um slíkt má sjá
í „Vetrarmyndir úr lífi skálda“. En þar líkir
Hannes Sigfússon sól og skuggum við fugla,
en landsvæðinu við deyjandi mann (bls. 90):
Við risum úr velktum hvflum
með vængstýfðri sól er flaug lágt ySr borgina
lyfti sér naumlega yfir veiðibráða reykbáfana
og féll brennandi í hafið -
og vængbreiðir skuggar flugu
yfir stirðnaða jörð
og augu vatnanna brustu
Þetta er sérkennileg mynd, en þó skiljan-
leg. Hinsvegar hefst ljóðabálkurinn á svo
undarlega samsettri mynd, að kenna má við
finngálkn. Hér er talað um kvöldskin - ekki
sólar, heldur blóðs. Og það leggur snörur í
djúpin til að ná viðmælanda (bls.87):
Djúpt sefur þú í djúpi mínu
Og dumbrautt kvöldskin blóðs míns sveiðar geislasnörum
í gegnum auð og barkarlituð fískinetin
Þau ná of grunnt, þú sefur dýpra
Mótsagnir setja einnig sterkan svip á Tím-
ann og vatnið eftir Stein Steinar og síðustu
ljóð hans, eins og ég rek í fýrrgreindri bók.
I þessum ljóðum ber mest á hlutgervingu,
þ.e. að talað er um sértæk hugtök sem hlut-
ir væra, og gjarnan er þetta þá gert mynd-
rænt. Þetta era óskiljanleg orðasambönd,
gerð úr liðum sem eiga ekki saman. Hér
má telja: „úr hafsaltri rigningu eilífðarinnar"
(bls.255), „þung angan hins óskiljanlega"
(bls.277), „í holspegli tímans“ og „húsvörður
eilífðarinnar" (bls.276). „Undir hálfþaki
dagsins" (bls. 272), „undir tvöföldum himni
tveggja heima“ og „tvísáinn akur tveggja
heirna" (bls. 273). Endum þetta á óprentuðu
ljóði Steins:
liðinn dngur
um mitt dulráða andlit
fer dimmblár skuggi
dagsins í gær
ég sé hönd mína bærast
í blóðstokknu Ijósinu
eins og blóm sem grær
meðan draumur minn felst
undir drúpandi vængjum
dagsins í gær
Hér er margt sem lesendur kannast við,
en ljóðið er saman sett úr svo óskyldum hlut-
um, að heildin gengur ekki upp röklega. Því
virðist tilvalið að kenna slíkan skáldskap við
finngálkn. Nú mun einhver spyija til hvers
skáldin séu að þessu. Svo mikið er víst, að
ekki kemur slíkt orðalag neinum boðskap á
framfæri, né annarri lífsvisku, enda er það
óskiijanlegt venjulegum röklegum skilningi.
Það er í besta lagi hægt að láta það orka á
sig eins og mótsagnir Zen-búddista, sjá
óvæntar sýnir opnast í nýjum orðasambönd-
um. En það er heldur ekki ónýtt, því það
hefur löngum verið talið aðal skáldskapar.
Finngálknið má virðast sett saman úr manni
og fugli eða hesti, en verður þó hvorki brúk-
legt sem dráttarklár né sem matfugl, það
er bara hægt að undrast og skoða.
Þessi samtenging andstæðna í mynd hefur
verið kallað meginatriði módernismans, þ.e.
sundruð framsetning, órökleg og myndræn.
En þessa gætir sérstaklega í surrealískri list,
og því sýnist mér tilvalið að kalla hana fínng-
álknaða. Við tölum þá um finngálknuð ljóð
og sögur í stað þess að segja surrealísk.
Kannski finnst fólki fara verr á því að tala
um finngálknastefnu í stað surrealisma5, eða
að kalla surrealísk skáld finngálknara. Köll-
um þau þá bara fínngálknuð skáld, segjum
t.d. að Steinn Steinarr hafi verið ansi finng-
álknaður siðustu árin eða ort býsna finng-
álknað þá. En annars sýnist mér augljós
ávinningur að því að nota orð af íslenskum
stofni frekar en frönskum; það er eins og
vant er, gagnsærra, við sjáum af orðinu bet-
ur megineinkenni stefnunnar.
Höfundur er bókmenntafræðingur og starfar í
Kaupmannahöfn.
Ritaskrá:
Blómstrvallasaga. Leipzig 1855.
Den tredje og fjærde grammatiske afhandling i
Snorres Edda [... ] Khöfn 1884.
Faksimile af de islandske Physiologus-fragmenter. Rom-
anske stenarbejder 2 - 1984 (teikning á bls. 61).
Halldór Laxness: Kvæðakver. 2. útg. Rvík 1949.
Hannes Sigfússon: Ljóðasafn. Rvík 1982.
íslensk orðsifjabók. Rvík 1989.
J.J.: Islanz-vaka eða Kvæði af draum-vitrun fslands 1779
um byijun Bókmennta-felagsins, er rættist árinu eptir.
Rit þess íslenska Lærdóms-Lista Felags (I, 201-252)
Khöfn 1780.
Rit eftir Jónas Hallgrímsson I-V. Rvík 1929-37.
Snorra-Edda. Reykjavík 1975.
Steinn Steinarr: Ljóðasafn. Rvík 1991. og handrit í Lands-
bókasafni (Lbs. 770 fol.)
Stjörnumörk. Fire og fyrretyve [... ] prover af oldnor-
disk sprog og litteratur [... ] (bls. 476-9) Khöfn 1860.
Styrbjarnar þáttur Svíakappa. Flateyjarbók (n, 70-73),
Christiania 1862. #
Þjóðsögur Jóns Árnasonar I-VI. Rvík 1954-61.
Æfisaga Gísla Konráðssonar ens fróða skrásett af sjálf-
um honum. Rvík 1911-14.
Örvar-Odds saga. Fornaldarsögur Norðurlanda (U, bls.
199- 363), Akureyri 1954.
1 Stafsetningu færi ég jafnan að nútíðarhætti.
2 Þetta er leiðrétting mín, í textaútgáfunni stendur:
„likvm".
3 J.J. [Jón Jónsson (Johnsonius) sýslumaður (1794-
1826)]: Islanz-vaka, bls. 230. Annað dæmi er í bréfi Jónas-
ar Hallgrímssonar til Konráðs Gíslasonar í mars 1844 (sjá
Rit. J.H. II, 169, en hið þriðja er í kvæði í Æfisögu Gísla
Konráðssonar, bls. 275. Það er þó vafasamt, útgefandi
les: „mál þó risi fmngálkn að“. Ekki er kvæðið ársett, en
æfisagan skráð um 1852 skv. útgefanda, bls. iii. Ég þakka
Gunnlaugi Ingólfssyni á Orðabók Háskóla íslands fyrir að
senda mér dæmin.
4M.a. skáldin Marinetti, Tzara, Reverdy og Breton. Því
voru surrealistar einatt að vitna til klausu úr Söngvum
Maldorors eftir Lautréamont (frá árinu 1869): „Fagurt
eins og þegar saumavél og regnhlíf hittast af tilvi[jun á
líkskurðarborði."
SÞetta orð ber að skrifa og bera fram með u, því það er
komið úr frönsku „surrealisme", frb. [syrrealismj, u er nær
því en ú.