Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1994, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 14.05.1994, Blaðsíða 1
ORGUNBLAÐS S tofnuð 19 2 5 18. tbl. 14-MAÍ1994 — 69.árg. Nýtt menningarhlut- verk bókasafna INNGANGUR llum er kunn sú menningarstafsemi, sem fram hefur farið í bókasöfnum. Undanfarnar vikur hefur verið töluverð umræða í fjölmiðlum um nýtt hlutverk gamla safnahússins við Hverfis- götu, og ýmsar merkar hugmyndir komið Aðalhlutverk Safnahússins gæti orðið allt í senn, lesstofa, leitarstöð eða bókasafn, sem með lítilli fyrirhöfn mætti breyta í opinn sal fyrir opinberar móttökur. Eftir ÞORSTEIN MAGNÚSSON fram. Mig langar til að leggja þar orð í belg. Á seinustu árum hafa bókasöfn víða erlend- is tekið að sér ýmiss konar nýtt menn-ingar- hlutverk. Bæði stafar það af auknum fjárveit- ingum til slíkrar starfsemi í mörgum menn- ingarlöndum, og eins vegna áhrifa menntaðra bókavarða. Svipuð þróun hefur og átt sér stað í öðrum tegundum safna. Markvisst hefur verið unnið að því í seinni tíð hér á landi að auka við og útvíkka hið hefbundna hlutverk bókasafna. Þröngt og óhentugt húsnæði hefur þó verið flestum eldri söfnum fjötur um fót, en ný kynslóð menntaðra bókavarða hefur vegið þar upp á móti, og eins hefur stundum nokkru fé verið varið til þess háttar hluta. Víða í byggðum landsins hefur vaknað nokkur metnaður fyr- ir rekstri slíkra stofnana, sem sveitarfélögin reka. Með sameiningu sveitarfélaga ættu að skapast skilyrði í viðkomandi byggðum til átaks í þessum efnum. Margir bókamenn sjá fyrir sér þá þróun, að sjálfar bækurnar skipti minna máli í bóka- söfnum framtíðarinnar, en margs konar ann- að menningarstarf komi inn í söfnin í auknum mæli í staðinn, jafnvel starfsemi, sem við í dag getum ekki gert okkur grein fyrir. Flest ný bókasöfn eru því hönnuð með einhvers konar miðrými, þar sem nokkur fjöldi fólks getur safnast saman eða þar sem unnt er að setja upp rúmfrekari mynda- eða bókasýn- ingar. Víða er slík aðstaða eftirsótt í tengslum við ýmiss konar ráðstefnur, eða til fundar- halda fyrir minni hópa, ekki síst um málefni sem tengjast bókum og listum. Eins og kunnugt er, þá er nú aðeins Lands- bókasafnið eftir í Safnahúsinu fallega við Hverfisgötu, en áður voru þar líka Þjóð- skjalasafn og Náttúrugripasafn, og jafnvel fleiri söfn um tíma. Þau söfn hafa nú fengið sjálfstæða aðstöðu og njóta mörg góðs aðbún- aðar. Húsið er samt alltof lítið fyrir Lands- bókasafnið nú, og er heil bókhlaða að verða tilbúin vestur á Melum til að bæta aðstöðu þess merka safns, og sameina það Háskóla- bókasafninu. Það eru þessar tvær bókhlöður, sem mig fýsir aðallega að ræða um hér, þá gömlu og litlu, sem okkur þykir öllum svo vænt um, og þá nýju og stóru, sem við væntum svo mikils af. Safnahúsið Safnahúsið við Hverfisgötu hefur minnst þrjú atriði til síns ágætis sem framtíðarhús- næði. Það er mjög falleg og sérstök bygging og stílföst í allri hönnun, og hún hefur yfir sér sérstakan höfðinglegan blæ. Þá er Safna- húsið líka inni í miðbæ borgarinnar, á áber- Lestrarsalurinn í Landsbóka- safninu. Húsið er friðlýst - einnigað innan - en greinarhöf- undurinn bendir á að ef til vill gæti þessi fagra bygging tekið við nýju menningarhlutverki til viðbótar við það sem nú er. Ljósm./Lesbók: Kristinn. andi stað og í næsta nágrenni við helstu stjórnarstofnanir ríkisins; miðborgin væri óneitanlega fátækiegri án Safnahússins. Loks á Safnahúsið sér merka sögu sem upphaf og eins konai- miðstöð safnastarfs í landinu, því flest söfn landsins eiga sér upphaf eða fyrir- mynd í þessu húsi, sem er því eins konar ungamamma safnanna okkar. Þó ekki væri nema af þessum þrem ástæð- um ætti að sýna Safnahúsinu fyllstu virð- ingu, og varðveita sess þess sem merkisstofn- unar í samfélagi okkar um alla framtíð. Sumum finnst nú sem safnahlutverki þess hljóti að vera lokið, þegar öll söfnin, sem þar voru fyrrum, hafa fengið rúmgóða og hent- uga aðstöðu vítt og breitt um borgina. Þá dettur mönnum helst í hug að nota það sem dómshús eða samkomuhús fyrir móttökur og fundi á vegum ríkisstjórnar og ráðuneyta, sem hvort tveggja er í sjálfu sér verðugt hlutverk fyiir gamla veglega-byggingu. En þar sem Hæstiréttur á að fá sitt eigið dóms- hús fljótlega, er sá möguleiki út úr mynd- inni. Rúgbrauðsgerðin og Ráðherrabústaður- inn henta aftur á móti naumast lengur sem móttökuaðstaða fyrir hið opinbera. Það var fyrst í tíð síðustu ríkisstjórnar, sem maður heyrði því fleygt, að Steingrímur Hermannsson hefði augastað á Safnahúsinu fyrir móttökur ríkisstjórnai-innar, því þá var Ráðherrabústaðurinn einmitt lokaður um tíma vegna enn einnar viðgerðarinnar. Oneit- anlega sótti þá beygur að mörgum safnaunn- andum. En sannleikurinn er sá, að það getur farið vel saman að reka einhvers konar bókasafn eða sýningarsal í Safnahúsinu annars vegar og móttökuaðstöðu fyrir opinbera aðila hins vegar. Mjög auðvelt væri að skapa þar virðu- legt, þjóðlegt og menningarlegt umhverfi, með bókum, handritum og listmunum í veg- legu og traustu húsnæði, með glæsilegri að- komu og uppgangi. Svipmót húsins er að mörgu leyti keimlíkt yfirbragði Alþingishúss- ins og Bessastaða, þykkir traustú veggir, smáar vistarverur og virðulegar innréttingar með hálfdönskum svip gamla tímans. Opinberir aðilar mundu því vera vel sæmd- ir af slíku umhverfi í Safnahúsinu, hvort heldur væri forseti lýðveldisins, ríkisstjórnin eða einstakar ríkisstofnanir, og gætu tekið þar á móti töluvert stórum hópi gesta, eða haldið þar minni ráðstefnur og mót. Aðrir aðilar gætu e.t.v. leigt aðstöðuna í svipuðum tilgangi. Ekki er endilega þörf fyrir matseld í húsinu vegna slíkra mannamóta, né heldur mikinn hljómbúnað. Unnt yrði þó að koma einhverju slíku fyrir, enda þótt húsið sé írið- að gegn meiriháttar rasld. Hugmyndaríkt listafólk og hönnuðir, sem við eigum orðið gnótt af, verða ekki í vandræðum með að útfæra þessa hugmynd svo vel fari. Og hún þarf alls ekki að vera kostnaðarsöm. Aðalhutverki hússins yrði samt sem áður annaðhvort eða allt í senn; sýningarsalur, lesstofa, leitarstöð eða bókasafn, sem með lítilli fyrirhöfn mætti breyta í opinn sal, sem hentar opinberri móttöku. Almenningur mundi þá eiga erindi á safnið til að skoða nýjar uppstillingar listaverka, til að lesa

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.