Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1994, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1994, Blaðsíða 4
Jökullinn inn og eld- fj allið Litið yflr og undir Mýrdalsjökul Gömlu munnmælin um Kötlu eru skemmtilegt dæmi um hvernig náttúra og þjóðtrú ná saman. Par segir frá göldróttu flagði sem átti töfrabrók. Brókin gerði þann þind- arlausan á hlaupum sem í hana fór. Smali notaði gripinn að kerlu forspurðri en hún drekkti honum þá. Þegar upp komst hljóp Katla, en svo hét kerlingin, upp á Mýrdalsjök- ul og þar ofan í gjá mikla. Síðan sendir hún vatnshlaup yfir byggðir neðan undir jöklinum. Nútíma Islendingurinn veit betur; og þá helst vegna þess að þekking á náttúrunni og ný mælitæki hafa afhjúpað megindrætti eld- fjallsins undir Mýrdalsjökli og þess sem und- ir því er í jarðskorpunni. Lega Kötlu og næsta regluleg gos í henni, ásamt voldugum flóðum frá eldfjallinu, fá margan íslendinginn til þess að hugsa til Kötlugosa oftar en annarra eldsumbrota í stóru eldfjöllum landsins. Og nú eru mörg ár liðin umfram meðaltalshlé milli gosa í Kötlu. Fáfarnar Slóðir Mýrdalsjökull er ekki mjög stór, tæpir 600 ferkílómetrar eða eins og ferhymingur með tæplega 20 og 30 kílómetra hliðarlengd. Fyrr- um var byggð a.m.k. á þrjár hliðar hans. Samt virðist hann hafa verið afar fáfarinn. Það vek- ur upp spurningu, sem reyndar er jafn auðvak- in þegar menn virða fyrir sér aðra hveljökla Eftir ARA TRAUSTA GUÐMUNDSSON lándsins, um hvort fyrri tíðar íslendingar hafi í raun og veru forðast jöklana og þá af hverju. Fáeinar sagnir eða heimildir um jökulgöngur duga skammt til svara. Líklega voru þeir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson, er unnu að úttekt á landi og landshög- um, með allra fyrstu mönnum til þess að kanna efri hluta Mýrdalsjökuls og líta inn á hvel hans. Það var árið 1755, örfáum mánuðum fyrir ofsafengið Kötlugos. Ekki er unnt að ráða leið þessara hugrökku könnuða en svo sýnist sem þeir hafi a.m.k. komist í efstu drög Kötlujökuls (Höfðabrekkujökuls); skriðjökuls- ins sem fellur fram úr Kötlukverk niður á Mýrdalssand og sést þaðan sem kolsvartur bunki neðantil. Nokkru hærra, líklega upp á jökulþakta hnjúkaröðina norðan Kötlu (Aust- mannsbungu, 1375 m), komst séra Jón Aust- mann við fjórða mann, árið 1823, að nýloknu Kötlugosi. Segir hann svo í skýrslu sinni: „Fýsi nokkurn til að njósna frekar um Kötlugjá er ég, Jón Austmann prestur, falur til að fylgja þeim þangað í eindreignu heið- skýru veðri, þó með því móti að þeir hinir sömu séu hvorki lífhræddir né framhalda mikl- ir.“ En væntanlega steig engin fæti á hábung- una (um 1500 m), þótt ótrúlegt sé, fyrr en árið 1874. Þar voru á ferð Bretamir William Lord Watts, duglegur landkönnuður sem gekk yfir þveran Vatnajökul, og enn einn prestur- inn, séra Wynne, og íslendingurinn Jón Magn- aldsson. Um hughrif sín þarna uppi á víðáttum jökulsins skrifar Watts: „Hin kaldranalega snævarkvos [Kötludæld- in, innsk. A.T.G.], er virtist ná inn í sjálfan Efst á Mýrdalsjökli (Háubungu) 1937; Guðmundur Einarsson frá Miðdal og Lýdía Pálsdóttir í skíðaferð. I bókinni „Lífsganga Lydiu“ sem Helga Guðrún Johnson skráði, stendur undir þessari mynd: „iVið Guðmundur nutum þess að vera saman á fjöllum - þar blómstraði ástin; þar vorum við frjáls." Fjarvíddarmyndir af yfirborði (efri myndin) og botni Mýrdalsjökuls, samkvæmt hæðarmælingvm úr rannsóknarferðum vísindamanna Raunvísindastofnunar til þykktarmælinga á jöklinum. Á myndinni af botninum sést Kötlueldfjallið með öskju í miðju en þar eru nokkrir smáhnúkar á botninum og alldjúp skörð, t.d. undir Sól- heimajökli. í að gera öræfaferðir að dægradvöl. Þótti mörgum það fásinna og vitlaus tímaeyðsla. Um tíma starfaði deild í Ferðafélaginu sem hét Fjallamenn (stofnuð 1939). A þessum árum, nánar tiltekið 1937, fóru þau tvö úr fámennum hópi fjallamanna á skíð- um frá Fimmvörðuhálsi (sem tengir Eyja- fjalla- og Mýrdalsjökul saman) upp á hábungu Mýrdalsjökuls; þau Guðmundur Einarsson frá Miðdal og Lýdía Pálsdóttir. Þau minntust erfiðra sprungusvæða á leiðinni, stórkostlegs útsýnis ofan af jöklinum og nálægðar Kötlu einhvers staðar undir ísbreiðunum. Ferðin þótti fremur glæfraleg og var frá henni sagt í blöðum þess tíma. A ljósmynd sem þau Guðmundur tóku með sjálfvirka lokubúnaði vélarinnar sjást þau brosandi með íslenska fánann á lofti, á hábungunni. Á liðnu sumri réðst Lýdía, þá 82 ára að aldri, enn til farar upp á hábungu jökulsins, m.a. til þess að standa í sömu sporum og fyrr; rúmri hálfri öld síðar. Að þessu sinni tók ferð- in tvær klukkustundir frá jökuljaðri upp á hábunguna og til baka, í stað nærri sólar- hrings í fyrra sinnið. Og fórunauturinn fyrr- um, eiginmaðurinn, var látinn fyrir 30 árum en í hans stað komnir tveir yngstu synirnir og sonardóttir, átta ára gömul. Þarna uppi steig Lýdía af vélsleðanum og eitt sérkenni- legt augnablik tengdi saman tvenna gjörólíka tíma og minningarbrot nærri heillar mann- sævi. Og aftur var tekin mynd og aftur glaðst yfir útsýninu og spáð í Kötlu gömlu undir ísfeldinum. Ævintýraferðir Á JöKUL Með tilkomu vélsleða og sérútbúinna jeppa hafa stóru jöklamir opnast fólki enn betur en áður. Nú eru reknar sleðaleigur á Vatna- jökli, Snæfellsjökli og Langjökli, auk leigufyr- irtækisins Snjósleðaferða sem gepir út á Mýr- dalsjökli. Þar er unnt að fínna ævintýrið í alvöru jökláferð á nokkrum klukkustundum. Liggur fólksbílafær vegur frá þjóðvegi 1 (Hringveginum), rétt hjá Sólheimum, upp að skála fyrirtækisins við jökulrönd, skammt Kötlugosið 1918; myndina tók Kjarlan Guðmundsson (frá Vík) úr suðri, líklega 2. nóvember. Gosmökkurinn er margra kílómetra hár og gosefnin, auk vatns- gufu og lofttegunda, eingöngu gjóska. skrokk jökulsins, blasti nú við, hrífandi fögur í birtubrigðum skins og skugga. Hinar svörtu gjár sýndust ennþá kolsvartari í samanburði við sindrandi mjallhvítuna. En hvað aðstæð- urnar geta breytt lit og yfirbragði landins!" JÖKULFERÐIR 1937 OG1993 Á fyrstu áratugum þessarar aldar voru fannir Mýrdalsjökuls enn afar fáfarnar. Mýr- dælingar fóru á hájökulinn skömmu eftir Kötlugosið 1918 en afar fáir menn, ef nokkr- ir, fram á fjórða áratuginn. Þá þegar voru komnir til sögu bæði karlar og konur, sem leituðu til jöklanna í skemmtiferðir. Ferðafé- lag íslands hafði þá verið stofnað fyrir nokkr- um árum og úr röðum þess komu fjallamenn; menn sem höfðu lært til verka við kletta- og ísklifur, jöklaferðir á skíðum og áttu sinn þátt — Með tilkomu vélsleðaleigu við Mýrdalsjökul er unnt að kynnast sérstæðu umhverfi Kötlu á auðveldan hátt. Samanlagður aldur ökumanns og farþega er 124 ár! (Ljósm. Ari T. Guðmundsson.) 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.