Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1995, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 13.05.1995, Blaðsíða 1
O R G U N L A Ð S Stofnuö 1925 18. tbl. 13. maí 1995 — 70. árg. KLEMENZ Kr. Kristjánsson á hafraakriá Kornvöllum 1956. KLEMENZ Kristjánsson fæddist 14. maí 1895 í Aðalvík á Hornströndum. Foreldrar hans voru Hornstrendingar. Hann missti móður sína, Júditi Þorsteinsdóttur, þegar hann var þriggja ára. Klemenz ólst upp á ýmsum stöð- SÁMSSTAÐIR í Fljótshlíð í tíð Klemenzar Kr. Kristjánssonar. Klemenz Kr. Kristjánsson var merkur forystumaður í íslenskum ræktunarmálum. Um 40 ára skeið var hann tilraunastjóri á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Eftir MAGNÚS ÓSKARSSON um, ýmist hjá föður sínum, Bárði Kristjáni Guðmundssyni, eða hjá öðrum. Bárður kvæntist aftur árið 1904, Guðrúnu Vigdísi Guðmundsdóttur, frá Ánanaustum. Sonur Bárðar Kristjáns og Guðrúnar var Sverrir Kristjánsson, sagnfræðingur. Bárður Krist- ján átti fleiri börn, sem komust til fullorðins- ára. Þau voru; Ingibjörg Amelía, Þóra og Guðmundur. Þegar Klemenz var 11 ára fluttu þeir feðgar til Reykjavíkur. Hann hlaut stutta skólagöngu og fór strax að vinna og hann hafði getu til. Árið 1916 fór Klemenz til Danmerkur og fór að vinna á herragarði. Um þetta segir Klemenz í ævisögu sinni, sem Siglaugur Brynleifsson skrifaði (1978) : „Fyrstu kynni mín af landbúnaðarstörfum í Danmörku ollu mér undrunar og furðu, reglusemin og þrifn- aðurinn var allt annar en heima á Islandi, vinnubrögðin önnur og skipting manna eftir störfum ákveðin. Sem sé, stéttaskiptingin eins og hún var þarna var mér nýnærni." Haustið 1917 fór Klemenz í búnaðarskól- ann að Tune á Sjálandi. Um búfræðinámið segir hann í ævisögunni: Allt var „nýtt fyr- ir mér og var sem ég væri kominn í annan heim. Mér þótti mikið til þeirrar þekkingar koma, sem danskur búskapur byggðist á. Sjóndeildarhringur minn víkkaði og ég öðl- aðist skilning á þeim verkefnum, sem mér virtust liggja framundan." Eftir búnað- arnámið starfaði Klemenz í Danmörku við jarðræktartilraunir og framræslu. í maí 1919 lést faðir hans. Þá varð honum ljóst, að hann kæmist ekki til náms í Land- búnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn, eins og hann hafði hugsað sér. Hann fór því heim til Islands og gerðist fyrirvinna stjúpu sinnar og bróður. Um haustið 1921 fór Klemenz út til frek- ara náms. Hann innritaðist í Visborggárd Græsmarksskole - túnræktarskóla - og var þar í verklegu og bóklegu námi í eitt ár. Næsta ár dvaldist Klemenz við Landbúnað- arháskólann að Ási í Noregi, sem óregluleg- ur nemandi. En fjárhagurinn leyfði ekki lengri dvöl. Vorið 1923 kom Klemenz heim. Hann segir í ævisögunni: „Sultur var í búi hjá fjölskyldu minni og skuldir, svo að einhvern veginn varð að bægja vandræðum frá dyrum.“ Hann fékk sumarvinnu við Gróðrarstöð Búnaðarfélags íslands við Laufásveg, sem stjórnað var af Metúsalem Stefánssyni og Ragnari Ásgeirs-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.