Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1995, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 17.06.1995, Blaðsíða 6
 SÓL ogsumaryfir Eyjafirði, Svalbarðsströndinni handan fjarðarins og Galmarsströndinni að vestanverðu. Útsýnið er úr Reistarárskarði. Á Galmarsströnd ján og síðan Jóhann og loks Elín og maður hennar Guðmundur Guðlaugsson, en þau fluttust að Haga á Árskógsströnd 1867. Síðust þessarar ættar voru í Fagraskógi Áslaug, dóttir þeirra Guðmundar og Elín- ar, og maður hennar, Þorsteinn Vigfússon. Þau settust að á Rauðuvík þar sem Þor- steinn var lengi útvegsbóndi. Dóttir þeirra var Elín, amma mín. Eftir þau bjuggu um skeið í Fagraskógi hjónin Sigfús Jónsson Bergmann og Þór- unn Jónsdóttir, en þau fluttust að Auð- brekku í Hörgárdal 1878 og þaðan til Ameríku. Þá kom til bús í Fagraskógi fyrsti ættingi Davíðs skálds, en það var Stefanía Stefánsdóttir, dóttir sr. Stefáns á Hálsi í Fnjóskadal, og maður hennar, Magnús Baldvinsson, ættaður af Siglunesi. Skipti þá mjög um í Fagraskógi. Magnús var mikill bóndi og að auki smiður og útgerðar- maður. Hann varð hreppstjóri sveitarinnar og hefur sá titill fylgt þessari ætt í Fagra- skógi lengst af síðan og fram á þennan dag. Magnús eignaðist nærbýlið Ytra- Kambhól þar sem hann bjó síðar uns hann lést árið 1899. Þá náði hann ítökum í landn- ámsjörðinni Galmarsstöðum, sem liggur neðar en Fagriskógur og byggði þar upp. Guðrún, dóttir hans, bjó þar um skeið ásamt manni sínum, Bjarna Einarssyni smið, en þau fluttust til Akureyrar og urðu þar merkir borgarar. Árið 1890 komu í Fagraskóg hjónin Stefán Baldvin, bróðir Stefaníu, og kona hans, Ragnheiður Davíðsdóttir frá Hofí í Hörgárdal, en neðsti hluti dalsins tilheyrir sama sveitarfélagi og Galmarsströndin. Sú saga sem þama hófst er mörgum kunn. Stefán var afburðamaður til flestra verka, hreppstjóri lengi og alþingismaður í tvo áratugi. Hann eignaðist Galmarsstaði og lagði til Fagraskógar er síðustu ábúendur fluttust þaðan árið 1922. Ragnheiður kom AGALMARSSTRÖND sem liggur nær miðjum Eyja fírði að vestanverðu hefur lengi verið . þéttbýlt, enda ströndin grasgefin og gjöfull sjór á aðra hlið en há fjöll á hina með góða af rétt. Þegar ég var að alast upp á þessari Kotum og hjáleigum fækkaði ört um miðbik aldarinnar og lögðust síðan af. Nokkur býli voru reisulegri en önnur og bar hæst stórbýlið Fagraskóg. Eftir JÓN FRÁ PÁLMHOLTI strönd nokkru fyrir miðja öldina, voru flest býlin fremur smá. Umhverfis'bændabýlin voru allvíða kot og hjáleigur en höfðu þó fyrr verið fleiri. Þeim fækkaði ört um mið- bik aldarinnar og lögðust síðan af. Heims- kreppan teygði arma sína þangað og hafði lamað þrek manna og fækkað möguleikum og sjósókn aflögð að mestu, en kotbændur lifðu mest af sjó og margir bændur einnig. Nokkur býli voru þó reisulegri en önnur og bar hæst stórbýlið Fagraskóg, sem stendur nokkuð hátt nyrst á ströndinni, en þar bjuggu á þessum tíma Stefán Stef- ánsson, hreppstjóri og alþingismaður, og kona hans, Þóra Magnúsdóttir úr Reykja- vík, en Stefán var bróðir Davíðs skálds. Fagriskógur hafði þó ekki verið stórbýli fyrrum, enda bújörðin ekki stór og þétt- býlt nágrenni. Forlögin höguðu því svo að forfeður mínir og formæður bjuggu um skeið í Fagraskógi. Eru þar fyrst til sögu hjónin Sigfús Eyjólfsson og Valgerður Jónsdóttir sem bjuggu þar árin 1816- 1847. Valgerður var úr nágrenninu, en VIÐ Freyjulund á Galmarsströnd. Sigfús var sonur Eyjólfs á Skútum á Þela- mörk, en hann var bróðir Þorvalds í Skóg- um föður Þorvalds Skógalín. Þeir voru því bræðrasynir Skógalín og Sigfús í Fagra- skógi. Börn Sigfúsar og Valgerðar bjuggu í Fagraskógi eftir foreldra sína, fyrst Krist- frá einu merkasta menningarheimili lands- ins að Hofi, dóttir sr. Davíðs og frú Sigríð- ar Briem og systir þess kunna menningar- manns Ólafs Davíðssonar náttúrufræðings. Á Hofi bjuggu lengi tvö yngstu börn prests- hjónanna, þau Valgerður f. 1874 og Hann- Islenskir embættismenn á ferð árið 1908 EIR prúðbúnu og sællegu góðborgarar sem hér hafa stillt sér upp fyrir ljósmyndara, eru sex af sjö íslenzku full trúunum í „milli landa nefnd- inni“ frá 1908. Að störfum loknum í Kaup- mannahöfn þá um vorið héldu þeir heim á leið EftirBERGSTEINN JÓNSSON. með póstskipi Sameinaða gufuskipa- félagsins (DFDA) Lauru og komu til Reykjavíkur 27. maí. Sjöundi nefndarmaðurinn, Skúli Thor- oddsen (1859-1916, alþingismaður 1890 til dauðadags), lenti eins og alkunna er einn í minnihluta í nefndinni og féllst ekki á niðurstöður hennar. Hann var veikur þegar nefndin lauk störfum, og komu þau frú Theódóra til íslands hinn 23. júní með póstskipinu Ceres. Ekki er þarna heldur ritari íslenzka nefndarhlutans, Magnús Jónsson (1878- 1934) lögfræðingur og hagfræðingur, síð- ar prófessor við lagadeild Háskóla íslands og ráðherra 1922-23. Hann var búsettur í Kaupmannahöfn til 1920. Vel mætti gera sér í hugariund að mynd- in sé tekin um borð í Lauru, þar sem hún liggur við hafnarbakka, rétt áður en hún lét úr höfn. Það er eftirtektarvert að allir karlarnir, átta talsins, sem á myndinni sjást, hafa skegg á efri vör. Ennfremur að sjö þeirra eru með harða hatta. Ráðherrann einn, Hannes Hafstein, hefur á höfði einhvers konar skyggnishúfu. Undirritaður minnist þess, að einn þess- ara manna, Jóhannes Jóhannesson bæjar- fógeti, gekk ævinlega með harðan, svartan hatt. Mátti oft á árunum kringum 1940 sjá þá á gangi saman á götum miðbæjar- ins og í námunda við Tjörnina, jafnaldrana og skólabræðurna Jóhannes og Jón Helga- son biskup. Þetta voru sérlega virðulegir öldungar, snjóhvítir fyrir hærum, dökk- klæddir á svörtum klæðisfrökkum, biskup- inn með dökkan hatt, linan, Jóhannes svaitan harðkúluhatt. Mér er næst að halda að sonur Jóhannesar, Lárus hæsta- réttarlögmaður, alþingismaður og dómari, hafi manna síðastur hér í Reykjavík dag- lega borið slíkt höfuðfat. Hann dó 1977. Sexmenningarnir í forgrunni myndar- innar eru, taldir frá vinstri: Jón Magnússon (1859-1926) alþingis- maður 1902-19 og 1922-26. Forsætisráð- herra í þremur ráðuneytum, 1917-22 og 1924-26. Hann var heimastjórnarmaður og frá 1924 íhaldsmaður. Lárus H. Bjarnason (1866-1934) al- þingismaður 1900-1913. Sýslumaður 1894-1908. Forstöðumaður Lagaskólans meðan hann starfaði, 1908-1911. Prófess- or í lögfræði við Háskóla íslands 1911-19. Hæstaréttardómari 1919-31. Heima- stjórnarmaður. Hannes Hafstein (1861-1922) al- þingismaður 1900-1901 og 1903-17 (eða 1922). Sýslumaður og bæjarfógeti 1896- 1904. Ráðherra 1904-1909 og 1912-14. Bankastjóri við íslandsbanka 1909-12 og 1914—17. Heimastjórnarmaður.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.