Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1995, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1995, Blaðsíða 7
„EKKERT jafnast á við landið sjálft, sem er einstakt þegar hafðir eru í huga útivistarmöguleikar og fjölbreytileiki í landslagi Kerlingarfjöll og víðar, sundlaugar- og bátsferðum, skoðunarferðum umhyerfis landið með bændagistingu o.s.frv. A ve- turna í skíða- og snjósleðaferðum, jeppa- ferðum upp á jökla, og hvíldargistingu á heilsustöðum víðs vegar um landið. Sumur jafnt sem vetur væri hægt að skipuleggja hér hin fjölbreytilegustu mót í brids og skák enda hérlendis að finna fjölmarga af bestu brids- og skákmönnum í heimi. Hér væri líka hægt að byggja fyrsta flokks sundlaugar fyrir keppnisfólk sem kæmi hingað til að stunda æfingar og láta fylgj- ast með heilsunni eða keppa á sundmótum. Ennfremur væri hægt að markaðssetja ísland sem ráðstefnuland allan ársins hring með því að byggja ráðstefnumiðstöð með öllum tilheyrandi útbúnaði í Reykjavík. Heilsulindin ísland hefur komið sér upp heilbrigðis- kerfi sem stenst fullkomlega gæðakröfur annarra vestrænna ríkja og vel menntaðir læknar eru hér færri en mögulegt væri ef farið væri að selja útlendingum íslenska læknisþjónustu. Með því að byggja hér- lendis hátæknisjúkrahús og sjúkdóma- rannsóknastofnun á heimsmælikvarða væri sannarlega stigið stórt skref í átt til aukinna gjaldeyristekna og aukinna at- vinnutækifæra innan byggingamarkaðar- ins og síðan innan sjúkraþjálfunar, hjúkr- unar- og læknastéttanna. Hvort tveggja væri hægt að reka sem sjálfseignarstofn- anir en samt innan ijárlaga ríkisins. Með öflugu markaðsstarfi væri hægt að aug- lýsa Island sem heilsufriðland; land sem byði upp á náttúrukyrrð, ómengað drykkj- arvatn og andrúmsloft, ósnortinn hrein- leika öræfa og aukaefnalaust heilsufæði, einstaklings-uppbyggjandi heilsueftirlit og líkamsrækt; land hinnar eftirsóknarverðu líkamshreysti og stælandi útivistar. Einnig væri mögulegt í framtíðinni að markaðs- setja erlendis íslenskar rannsóknir á ýms- um sjúkdómum og læknismeðferð þeirra hérlendis. Áfengismeðferð SÁÁ gæti t.d. orðið ágætis söluvara vegna hins góða árangurs sem náðst hefur innan samtak- anna. ÚTFLUTNINGUR Sá hópur fólks um allan heim fer stækk- andi sem hallast að mikilvægi hollustu neysluvara eða lífrænt ræktaðra matvæla á borð við landbúnaðarafurðir. Hægt er að búast við að framundan sé mikill vöxt- ur í lífrænum matvælaiðnaði og ísland getur þar átt sinn væna skerf ef rétt er haldið á spilunum og miklir tekjumöguleik- ar eru í framleiðslu eftirsóttra, hollra há- gæðamatvæla. En lífræn ræktun kemur einnig landinu sjálfu til góða því meiri kröfur eru gerðar til umhverfisverndar í lífrænum búskaparháttum; gæðaeftirlit er á öllum framleiðslustigum enda fæst 20-45% hærra verð fyrir lífrænt ræktaðar búvörur. Fyrir utan útflutning á lífrænt ræktuðu kjöti, grænmeti og kryddi væri e.t.v. hægt að flytja út drykkjarvatn, lyf framleidd úr fjallagrösum og snyrtivörur unnar úr heilnæmum jurtum; ennfremur bleikjur ef vel tekst til með bleikjueldið og jafnvel auka enn meira útflutning á reiðhrossum. Þá er hægt að ímynda sér að .ylrækt eigi hér mikla framtíð fyrir sér vegna jarðhitans, ódýrara rafmagns en annars staðar og birtu allan sólarhringinn á sumrin: Hver veit nema hægt verði í framtíðinni að flytja út íslenska ávexti og blóm. Betra Ísland En það er ekki nóg að koma meiri skrið á atvinnu- og afkomumál landsmanna, beina verður sjónum að almennu, bættu mannlífi eða andlegri og líkamlegri um- hverfisvernd..Efst á blaði þar er launajafn- rétti, lífskjarajöfnun og barnsburðarleyfi fyrir báða foreldra, en það er ein af for- sendum þess að hægt sé að láta foreldra njóta sömu mannréttinda í þjóðfélaginu og um leið fjölskylduverndar. Launajafn- rétti veitir í raun mæðrum þá réttmætu starfsviðurkenningu og virðingu sem þær hafa farið á mis við allt of lengi - barns- burðarleyfi beggja foreldra er börnum nauðsynlegt tækifæri til þess að njóta heilbrigðis og öryggis fyrsta æviárið í faðmi fjölskyldunnar. Þá má nefna nauð- syn sveigjanlegs vinnutíma foreldra með börn á skólaskyldualdri. Einnig möguleik- ann á að báðir foreldrar geti sótt um 3/4 og 1/2 starf á meðan börn þeirra eru yngri en 6 ára og lengur ef þeir óskuðu þess. Ennfremur sumartíma á vinnustöðum frá maí til september líkt og tíðkast í ná- grannalöndunum, þannig að fólk ynni einni klukkustund skemur þann tíma og gæti betur notið hins skammvinna íslenska sum- ars. Síðast en ekki síst breytt barnsburðar- leyfi mæðra í eitt ár að viðbættu eins mánaðar sumarfríi og föðurleyfi í einn mánuð við fæðingu og aftur í tvo mánuði þegar móðirin færi út í atvinnulífið á ný. Með því móti gætu mæður haft börn sín á bijósti í heilt ár og um leið komið í veg fyrir alls kyns ofnæmissjúkdóma og veik- indi sem oft hijá börn þegar mæður þeirra geta ekki af atvinnu- og fjárhagslegum ástæðum haft þau á bijósti og verið hjá þeim fyrsta árið. Fjölskylduvernd af þessu tagi er að sumu leyti hægt að líta á sem heilsuvernd eða sjúkdómsfyrirbyggjandi aðgerðir. Langvarandi áhyggjur, streita og þreyta virka heilsuspillandi á foreldra - ótímabær aðskilnaður, sífelldur flæking- ur og of lítil samvera breytir hraustum börnum í veik og kvíðin börn. Það er þann- ig beinn efnahagslegur ávinningur fyrir þjóðarbúið að taka á þessum mikilvægu fjölskyldumálum því þau skila sér aftur sem bætt heilsa, vellíðan og minni kostnað- ur til heilbrigðismála í velferðarsamfélag- inu. Betra ísland felst bæði í því að gæta að hagsmunum landsins sjálfs og þjóðarbú- skapsins sem og hagsmunum fjölskyldulífs fólksins vegna þess að fjölskyldan er horn- steinn samfélagsins í landinu. Óhætt er að fullyrða að blómlegt mannlíf verði fyrst og fremst að veruleika þegar lögð er rækt við ungviðið og nýbakaða foreldra þess og áherslur dags daglega í fjöl- skyldulífinu fremur miðaðar við innri en ytri fullnægju fullorðna fólksins. Reykja- vikurskáldið vissi þetta: “...Og meðan ljósið lyftir ungu blómi og líf og æska syngur einum rómi og vors míns birta úr ungum augum skín, við eigum samleið, ég og þjóðin mín.“ HEIMA á HLAÐI Niðurstaðan er sú að íslendingar hafa þó nokkrar auðlindir staðsettar við bæjar- dyrnar og þurfa ekki að fara yfír lækinn til að sækja vatn. Með samstilltu átaki er enginn vafi á því að þjóðin getur látið drauma sína um betra og réttlátara ísland rætast og fundið fleiri smugur en þær sem gefa fisk. Það getur hins vegar þýtt að Islendingar verði í auknum mæli seljendur ferðamanna-paradísar og útflytjendur sjávar- og heilsuafurða, en í minna mæli kaupendur og innflytjendur. ísland getur jafnframt orðið fyrirmynd annarra ríkja hvað viðkemur skynsamlegri nýtingu auðlinda og náttúrulegum hreinleika, fjölskyldu- og umhverfisvernd, heilsusamlegu fæði og heilbrigðu líferni og ekki minnst friði og mannkærleika. Pakkað inn í neytendaumbúðir er hér á ferðinni atvinnuuppbyggingar-og átaksverkefni á sviði markaðs- og vöruþró- unar sem aflað getur íslensku þjóðinni geysilega mikilla gjaldeyristekna og skapað hið eftirsóknarverða fyrirmyndarsamfélag náist almenn samstaða landsmanna um málið. En eins og gefur að skilja er virk landssöfnun nauðsynleg forsenda þess að byggingar- draumarnir sem fram komu hér að ofan geti orðið að veruleika. Það yrði verðugt samstarfsverkefni hinna ýmsu fjölmennu félagasamtaka og líknarfélaga á landinu og sjálfsagt að koma jafnhliða á fót „Land- slottói“ sem óskipt rynni í byggingasjóði hátæknispítala, rannsóknastofnunar, ráð- stefnumiðstöðvar og sundhallar. Framtíðarsýn Hvaða Islendingur gæti ekki hugsað sér að svífa yfir landið sitt í “Frúnni" með Ómari Ragnarssyni, taka smá dýfur og hlusta um leið á Diddú og Björgvin syngja „...þetta fagra land hefur fóstrað þig og mig...“, Egil og Guðrúnu syngja saman ...fagra ísland, ísland er landið þitt“ eða Höllu Margréti og Kristján taka saman eins og eina kraftmikla aríu? En hvers vegna upplifunin er svona sterk skilur bara sá sem hefur þetta land í blóð- inu. Þú skynjar allt í einu að landið sem áður fóstraði þig sem barn er orðið barn- ið þitt ísland. Umhverfisverndun íslands ijaílar blátt áfram um það að sýna þessu barni tilhlýðilega umhyggju og virðingu. Forréttindi þín í flugvélinni með Ómari snúast þannig um að geta virt fyrir þér ánægt, fallegt, og heilbrigt barnið þitt; að upplifa stoltið og gleðina sem fylgir því að hafa náð góðum árangri sem upp- alandi og uppgötva órjúfanleg tengslin í hjartanu. Framtíð Islands snýst að miklu leyti um það að Iandsmenn gangist við barninu sem þeir allir eiga saman og gerist ábyrgir foreldrar þess. Ennfremur að þjóðin kjósi fremur að blása sér frum- kvæðis- og sjálfstæðisanda í brjóst heldur en láta kúgast af breyttum og erfiðum aðstæðum í atvinnulífinu; horfa opnum og jákvæðum huga í kringum sig; og að ríkisvaldið komi til móts við þjóðina með því að skapa nauðsynlegan grundvöll fyr- ir aukinn einkarekinn atvinnurekstur og margs konar nýsköpun: í stuttu máli sagt, að Islendingar „stæli kjarkinn, treysti bræðralag“. Höfundur er arkitekt og formaöur Lífs og lands. JÓNAS GÍSLASON Aldrei hefég slíkt séð! Drottinn Guð! Sköpunarverk þitt vekur mér undrun. Ég furða mig á fjöibreytileika sköpunar þinnar. Ég horfi á lögun handa minna, virði fyrir mér andlit mitt í spegli. Öll er sköpun þín góð, Drottinn, allt skapað á tilgang, sem þú hefur gefið því, - gróðurinn og dýrin, - einnig vér, sem sköpuð erum eftir þinni mynd. Allt fær lífskraft frá þér. Oss sundlar, er vér reynum að meta verk þitt með orðum. Þú sparar ekki, er þú skapar. jafnvel á eyðimörkinni dafna þyrnar og þistlar. Hver skilur uppruna lífsins? Drottinn Guð! Hver lífvera er leyndardómur og vizka þín birtist, jafnt í hinu smæsta, sem hinu stærsta. ÖII sköpunin ber vott um vizku þína og kærleika. Jafnvel fiskunum gafst þú fegurð, þótt þeir lifi í sjávardjúpunum. Þú stráir skrúði á stöðum, er auga vort aldrei lítur. Mig gleður allt, er grær og vex, - hvert blað, er grænkar eftir þurrkatíð. Sköpun þín er einstæð. Upp! Sköpun Guðs, þér fíflar og sóleyjar, aspir og birkitré. Upp! Þér menn á valdastólum veraldar. Rísið upp, þjóðir jarðar. Maður! Rís upp fyrir Guði þínum - syng skapara þínum lof og dýrð. Tindrandi stjörnur lofa þig. Grængresið syngur og mosinn í hrauninu, - fiskiflugan og mýbitið, - laufblöðin bærast í lofgjörð, - blómin kunngjöra dýrð Guðs. Smáfuglar loftsins og dýr merkurinnar syngja af gleði og bera þér vitni sem skapara sínum. Engar tvær lífverur eru eins. Vér erum einstæð - sköpuð til ákveðins lífs, sem enginn annar getur að fullu gengið inn í. Því aðeins erum vér lifandi, að vér getum glaðzt yfir sköpun Guðs. ' Höfundur er vígslubiskup. 4- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. SEPTEMBER 1995 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.