Alþýðublaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 01.10.1986, Blaðsíða 1
Bj í Alþýðuflokkinn: „Við vitum að við getum unnið saman“ „Það er mergur málsins“, segir Guðmundur Einarsson alþingismaður í samtali við Alþýðu- blaðið „Það sem við erum að gera upp við okkur er hlutskipti þessara stjórnmála. — Við áttum okkur nokkuð víst hlutskipti smáflokks, að halda áfram með 2—4 þing- menn. Við hefðum vafalaust getað haldið þvi fram enn um sinn. Hins vegar áttum við að okkar mati möguleika á að taka þátt á breiðari grundvelli þar sem Alþýðuflokkur- inn er“, sagði Guðmundur Einars- son alþingismaður i samtali við Al- þýðublaðið í gær vegna þeirra sögu- legu tíðinda er tekin var ákvörðun um það á fundi landsnefndar Bandalags jafnaðarmanna i fyrra- kvöld að stofna Félag frjálslyndra jafnaðarmanna og ganga til liðs við Alþýðuflokkinn. Beiðni um slíka inngöngu var lögð fyrir flokks- stjórn Alþýðuflokksins í gærkvöldi og hún samþykkt. Félagið mun síð- an eiga fulltrúa á flokksþinginu í Hótel Örk Hveragerði um næstu helgi og þar verður væntanlega formlega gengið frá inngöngunni. „Það hafa orðið talsverðar breyt- ingar á Alþýðuflokknum núna á síðustu árum, bæði pólitískar svo og hefur flokkurinn eflst og stækk- að og staðfesti það með sveitar- stjórnarkosningunum“, sagði Guð- mundur. „Það er það sem við erum einmitt að horfa á, að þarna er öfl- ug stjórnmálahreyfing sem hefur nálgast okkur og við höfum áhuga á að taka þátt í“. Nei, við teljum ágreininginn ekki svo stórkostlegan“, sagði Guð- mundur aðspurður. „Hins vegar er auðvitað einhver ágreiningur. Við höfum ekki leyst ágreiningsmál eins og þau leggja sig. Við höfum hins vegar farið í sameiningu yfir stefnu þessara stjórnmálahreyfinga og trúum, treystum og vitum það að við getum unnið saman. — Það er mergurinn málsins“ Það virtist koma mörgum á óvart að af þessu samstarfi gat orðið. Ekkert kvisaðist út eins og oft vill verða i pólitik? „Það er nú kannski mótsögn í stjórnmálastarfi sem á að vera opið, að ýmsir hlutir verða að fara hljótt og þetta er einmitt þess eðlis“, sagði Guðmundur." Þá má t.d. nefna önnur mál sem gjarnan mega fara hljótt s.s. gengisfellingar, og þegar verið er að leggja niður banka svo dæmi séu tekin. Þetta gerist snöggt og menn standa frammi fyrir þessu sem næstum því orðnum hlut, því miður, en þetta er ekki hægt öðru- vísi. — Menn standa síðan á nýjum punkti og ákveða að láta allt ganga upp og treysta hver öðrum“ Frá fundi flokksstjórnar Alþýðuflokksins sem haldinn var í gærkvöldi. Ljósm.: G.T.K. „Án ægi ulegustu tíðindi á for- mannsferli mínum“ — segir Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins um inn- göngu Bandalags jafnaðarmanna í Alþýðuflokkinn. „Þessi tíðindi um að bandalags- menn ganga nú til liðs við Alþýðu- flokkinn eru það ánægjulegasta sem gerst hefur á stuttum for- mannsferli mínum í Alþýðuflokkn- um“, sagði Jón Baldvin Hannibals- son formaður Alþýðuflokksins í samtali við Alþýðublaðið í gær í til- efni þeirrar ákvörðunar sem tekin var á landsfundi Bandalags jafnað- armanna sem haldinn var í fyrra- kvöld og stóð fram á nótt. En þar var ákveðið að BJ gengi til liðs við Alþýðuflokkinn og starfi innan Reagan og Gorbachev ræðast við í Reykjavík Ákveóið hefur verið að leiðtogar stórveldanna, Reagan og Gorbachev haldi fund í Reykjavík dagana 11. og 12. október n.k. — Forsætisráðherra og utanríkisráð- ■herra tilkynntu þessa ákvörðun á blaðamannafundi í gær nokkru eft- ir að fréttaskeyti þess efnis höfðu borist frá erlendum fréttastofum. Aðdragandinn er sá að sögn for- sætisráðherra, Steingríms Her- mannssonar, að sendiherra Sovét- ríkjanna kom til fundar við hann í stjórnarráðinu árla mánudags- morguns og stuttu síðar sendiherra Bandaríkjanna og fóru þeir þess á leit við forsætisráðherra að fundur leiðtoganna gæti farið fram hér á landi. Forsætisráðherra taldi að með þessu væri íslendingum mikill heiður sýndur og mikið traust og væri ekki ástæða til annars en verða við þeirri bón. Stuttu síðar bárust skeyti þess efnis að leiðtogarnir þægju boð íslenskra stjórnvalda. Þegar er allt farið af stað til und- irbúnings fundinum og ljóst að hingað til lands komi a.m.k. 1500 manns vegna hans. Sendiráðin telja að hvorum leiðtoganna fylgi a.m.k. 200 manns. Fundurinn mun vera liður í fundaröð leiðtoganna til undirbún- ings fundar í Washington. flokksins sem sérstakt félag. Þing- menn flokksins munu síðan sitja flokksþingið í Hótel Örk um næstu helgi, og þar mun verða formlega gengið frá inngöngunni. „Mig langar af þessu tilefni að rifja upp“, sagði Jón Baldvin, að áður en ég ákvað að gefa kost á mér til formennsku í flokknum í nóvem- ber 84 þá birti ég stefnuyfirlýsingu þar sem ég lýsti grundvallarsjónar- miðum, stefnumálum og kröfum. í þessari stefnuyfirlýsingu byrj- aði ég meðal annars á þá leið að Al- þýðuflokkurinn ætti að skilgreina sig sem forystu og sameiningarafl jafnaðarmannatil vinstri við miðju í íslenskum stjórnmálum. í annan stað að undir minni forystu mundi Alþýðuflokkurinn leita samstarfs um að mynda forystuafl jafnaðar- manna og frjálslyndra afla. í þriðja lagi þyrftum við að taka af öll tví- mæli um að værum ekki gamaldags kerfisflokkur, heldur róttækur um- bótaflokkur. Á flokksþinginu gerðist það að þessi grundvallarsjónarmið voru Framh. á bls. 2 alþýöu- blaöiö I Miðvikudagur 1. október 1986 187. tbl. 67. árg. Erlendar langtímaskuldir Um 74 milljarðar Þó er bjartara framundan í þjóðarbúskapn- um en verið hefur um alllangt skeið, segir í riti Þjóðhagsstofnunar sem kom út í gœr. Það er bjartara framundan í ís- lenskum efnahagsmálum en verið hefur um alllangt skeið, segir í riti þjóðhagsstofnunar sem kom út i gær. En þar eru birtar niðurstöð- ur endurskoðaðar þjóðhagsspár fyrir árið ’86, en helstu niðurstöð- ur hennar hafa áður verið kynnt- ar. Auk þess er fjallað um efna- hagshorfur næstu misseri, innan- lands og utan. í ritinu segir m.a. að miðað við horfur varðandi ytri og innri skil- yrði megi ætla að búast megi við 2,5—3% hagvexti á næsta ári. Þar segir ennfremur að fyrirsjáanlegt sé að vaxta- og greiðslubyrði af er- lendum skuldum verði ennþá þungur baggi á þjóðarbúskapn- um, því sé mikilvægt að nýta sér hagstæð ytri skilyrði til að koma á jafnvægi í viðskiptum við útlönd. í því felist, að vöru- og þjónustu- viðskiptin, að vaxtagreiðslum frá- töldum, þurfi að skila umtals- verðum afgangi til þess að borga hallann á vaxtareikningum. Til að það takist þurfi að stilla vexti þjóðarútgjalda í hóf, þannig að hann verði innan við aukningu þjóðarframleiðslu. Ennfremur segir að ekki verði með öðru móti hamlað gegn þenslu í þjóðarbú- skapnum og stuðlað að áfram- haldandi hjöðnun verðbólgu. Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir verulega breyttum horfum um hagvöxt á þessu ári frá því sem reiknað var með á fyrstu mánuð- um ársins. Þannig er því spáð að nú verði hagvöxtur á mælikvarða landframleiðslu um 5% saman- borið við 3,5% í fyrra. Og vegna batnandi viðskiptakjara muni þjóðartekjur aukast mun meira, eða um allt að 7%, en í fyrri spá var reiknað með rúmlega 5% aukningu. Þessar spár benda til þess að hagvöxtur hér á landi verði meiri en í flestum löndum Evrópu. Jafnframt muni þjóðar- tekjur á mann verða með hæsta móti, eða svipaðar og jafnvel hærri en þær voru við upphaf þessa áratugar. Sem fyrr segir er spáð að hag- vöxtur verði ekki jafnör á næst- unni og spáð er á þessu ári. En af- ar hagstæð þróun það sem af er árinu hafi þó skapað skilyrði til þess að koma á betra jafnvægi í efnahagsmálum hér á landi. Helstu óvissuþættirnir varð- andi framvindu á næsta ári eru taldir af erlendum toga. Nefnd er þróun gengismála, sérstaklega gengi Bandaríkjadollars, fiskverð á erlendum mörkuðum, olíuverð og vextir á alþjóðamarkaði. — Af innlendum toga eru nefndir kjarasamningar, sem flestir gildi aðeins til næstu áramóta. Enn- fremur séu aflahorfur sem endra- nær óvissar, þótt fiskveiðistefna hafi í aðalatriðum verið mörkuð og ástand fiskistofna virðist yfir- leitt heldur batnandi. Áætlað er að í lok þessa árs verði erlendar skuldir til lengri tíma en eins árs, um 74 milljarðar króna, ef fari fram sem horfi í skuldasöfnun erlendis. Þetta svarar til tæplega 52% af lands- framleiðslu og er nokkuð hærra hlutfall en spáð var fyrr á árinu, enda hafa erlendar lántökur farið langt fram yfir það sem ætlað var. Segir að rekja megi þetta fyrst og fremst til aukinnar lántöku einka- aðila, einkum til endurbóta og kaupa á fiskiskipum. Greiðslubyrði af erlendum lán- um á árinu er áætluð um 19% af útflutningstekjum, sem er nokk- uð svipað hlutfall og i fyrra. Greiðslubyrðin skiptist nokkurn veginn jafnt milli vaxta og afborg- ana. Vaxtabyrðin hefur nokkuð lést undanfarið, en á móti koma meiri afborganir en á síðasta ári.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.