Alþýðublaðið - 23.01.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.01.1987, Blaðsíða 1
alþýðu Föstudagur 23. janúar 1987 15. tbl. 68. árg. Skólamál á Austurlandi: Sérkeimslunám heim í hérað Menntamálaráðherra hefur ákveðið að 20—30 kennarar á Austurlandi geti næstu tvö sumur stundað framhalds- nám á Hallormsstað, sem gefi þeim réttindi á við 1 árs sérkennslunám við Kennaraháskóla íslands í Reykjavík. „Þetta er stórmerkilegt mál, og ég minni á að rifja upp að ég er þeirrar skoöunar að mesta og besta landsbyggðarstefnan sé að færa framhaldsnám út á landsbyggðina. Þetta er sérkennsla á vegum Kenn- araháskóla íslands sem stjórnað verður af sérkennslufulltrúa á Austurlandi og verður á Hallorms- stað í tvö sumur. Þar ná þeir því eina ári sem boðið er upp á hér í Reykjavik“, sagði Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra í samtali við Alþýðublaðið í gaer. AÐIÐ, FIMM Tek ekki við tillögu] fræðsluráðs á meðan! •ráinn er formaður [— segir menntamálaráðherra _Ég fæ ekki séð að ég geti skeyti með tiljjj í gær þar sem hann er spurður á á málflutningi Sverris á AlþinJ Haraldur Baldursson hjá Öryggisnefnd FÍA: Nýbúið er að leyfa í myrkri „Þetta er bara byrjunin, ég fékk fjárveitingu fyrir þessu og er af- skaplega glaður yfir því. Þetta kem- ur í önnur kjördæmi Iíka. Við erum með þessu að undirbúa kennara undir sérkennsluna og færum þeim menntunina heim í hérað, sem ég tel vera meginmál“ Að sögn Sverris er gert ráð fyrir að mennta 20—30 kennara á Austurlandi með þessum hætti og kennsla hefst strax næsta sumar. Fræðslustjóri á Austurlandi hefur þegar sent út gögn og um- sóknareyðublöð til kennara á Aust- urlandi. Loftferðaeftirlitið og Flugráð veittu leyfið eftir að flugfélagið Ernir hafði sótt málið fast. „Við höfum alltaf talið að tals- vert mikið vanti á til að fá flugör- yggismál í eðlilegt horf hér á Is- landi. Nýlega var ísafjarðarflug- völlur til umfjöllunar sérstaklega, þar sem fram komu mjög eindregn- ar óskir frá flugfélaginu Erni um að fá að fljúga inn yfir ísafjarðarflug- völl og lenda þar í myrkri, en það var ekki leyfilegt áður. Sú umræða endaði með því að Flugráð gaf þeim leyfi til að fljúga frá ísafirði í myrkri. Þessu vorum við á móti í öryggisnefnd FÍA vegna þess að þetta er ekki venjan, og ekki það sem flug snýst um í rauninni", sagði Haraldur Baldursson sem á sæti í öryggisnefnd Félags íslenskra at- vinnuflugmanna í samtali við Al- þýðublaðið í gær. „Það hafa staðið deilur um ísa- fjarðarflugvöll og hvaða reglur cigi að gilda um aðflug að vellinum. Aðflug á þennan völl er afar þröngt og við því er í sjálfu sér ekkert hægt að gera. Sannleikurinn er sá að það eru engin tæki til sem geta gert eitt- hvað fyrir aðflug að ísafjarðarflug- velli að neinu marki því að hann er staðsettur þannig. Hann er skásett- ur í þröngum firði. Brautin er alveg nógu löng, en aðstæður eru þess eðlis að það er ekkert sem bjargar þessum firði að neinu marki með tækjum. Þó eru ljós á vellinum sem hjálpa til þegar skyggni er slæmt eða þegar farið er að rökkva. Hins vegar eru nánast engin ör- yggissvæði þarna, þannig að flugvél Framh. á bls. 3 Jón Baldvin Hannibalsson: Ósætti innan ríkisstiórnar „Það er Ijóst að ágreiningur er milli stjórnarflokkanna um það hvernig staðið skal að því atriði að taka upp staðgreiðslukerfi skatta. Ég hef eftir traustum heimildum í kerfinu að málið er afar skammt á veg koinið og er því mjög óvíst hvort ríkisstjórninni tekst að standa við fyrirheit sín til aðila vinnu- markaðarins sem gefin voru í tengslum við jólaföstusamningana, en það fyrirheit var á þann veg að taka upp staðgreiðslukerfið utn næstu áramót“, sagði Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðu- flokksins. í sambandi við þau ummæli Þor- steins Pálssonar fjármálaráðherra, að Alþýðuflokkurinn hafi í hyggju að beita málþófi á Alþingi til að tefja framgang málsins, sagði Jón Baldvin að slíkt væri heimatilbúinn skrekkur fjármálaráðherra og með öllu ástæðulaust að hafa áhyggjur af því. Nánar verður fjallað uin þetta vandamál rikisstjórnarinnar í Al- þýðublaðinu á morgun. 3ja millj. kr. bíll undir borgarstjóra? Ekki er ein báran stök hjá Sverri Hermannssyni. Sú spurning gerist nú áleitin hvort menntamálaráðherra hafi hugsað sér að slíta sam- bandi við alla þá sem opna munninn út af fræðslustjóramálinu? I frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar undir lið Véla- miðstöðvar, er gert ráð fyrir að keyptur verði 3ja milljón króna bíil undir Davíð Oddsson borgarstjóra. Minnihlutinn í borgarstjórn lagði fram breytingartillögu í gær og taldi borgarstjóra ekki þurfa dýrari bíl en forsætisráðherra. Bifreiðar og tæki borgarinnar eru færðar á Vélamiðstöð. Þegar eignabreytingaliður er skoðaður er gert ráð fyrir því að bíll borgar- stjóra verði seldur og fáist fyrir hann 1,2 milljónir króna og í stað- inn verði keyptur kádilják fyrir 3 milljónir króna. Minnihlutinn flutti í gær breyt- ingatillögu um, að borgarstjóri geti verið fullsæmdur af því að ferðast urn í bíl sem ekki kostar meira en bíll forsætisráðherra. Bíll forsætis- ráðherra kostaði 1,4 milljón, án að- flutningsgjalda, þannig að sams- konar bíll með aðflutningsgjöldum handa borgarstjóra þyrfti ekki að kosta meira en 1,9 milljón krónur. Minnihlutinn lagði til að mismun- inum yrði varið til að kaupa bifreið fyrir fatlaða svo þeir megi ferðast greiðlegar um götur borgarinnar. Bíllinn yrði í umsjá Vélamiðstöðvar eins og bíll borgarstjóra. Lýðrœðishlutinn í Borgarstjórn: Áhersla á félags- og kjaramál í stað gæluverkefna íhaldsins Minnihlutinn í borgarstjórn lagði fram sameiginlegar breytingartillögur við frum- varp að fjárhagsáætlun íhaldsins. Merkilegt samstarf tókst með minnihlutanum í Reykja- vík við afgreiðslu fjárhags- áætlunar Reykjavíkurborgar. Minnihlutinn lagði fram sam- eiginlegar breytingartillögur sem var i raun nýtt frumvarp að fjárhagsáætlun. í tillögun- um kemur skýrt fram sá áherslumunur sem er milli stefnu íhaldsins í borgarstjórn og lýðræðishluta borgar- stjórnarinnar. Alþýðublaðið ræddi við Bjarna P. Magnús- son borgarfulltrúa Alþýðu- flokksins. „Það fer ekki á milli mála, að það hefur ríkt mikið góðæri hjá Reykjavíkurborg. Tekjuaukning hefur verið mikil, sem er mikið til að þakka þeirri fólksfjölgun sem verið hefur í Reykjavík undanfar- ið. Fólk hefur flykkst utan af landi til Reykjavíkur og útsvars- greiðendum fjölgað. Ef marka má tölur Hagstofunnar um fólks- fjölgunina, þá má reikna með að þróunin haldi áfram og frekari aukning verði milli ára. Við not- um því sömu útsvarsálagningu, 10,2% en gerum ráð fyrir aðeins meiri fjölgun, þeir eru með 1,2%, við með 2,5%. Það gefur okkur örlítið meiri tekjur“, sagði Bjarni P. Magnússon. „En það er mikill áherslumun- ur í þessu frumvarpi. Þeir ætla t.d. að leggja til 118 milljónir til öldr- unarmála meðan við leggjum til 218 milljónir. Við sýnum þarna áherslumuninn, meðan þeir t.d. búa til sjóð í góðærinu sem þeir kalla ráðhússjóð, sem þeir geti gengið í síðar meir. Þá segjum við, allt í lagi við skulum gera slíkt hið sama, nýta góðærið, en í staðinn fyrir ráðhússjóð gæluverkefni fyrir svona minnisvarðapólitík, þá búum við til öldrunarsjóð. Þarna er bara verið að færa til sömu peninga", sagði Bjarni. I breytingartillögum sínum Kemur minnihlutinn einnig inn á 4% af útsvari, þar er komið inn á dagvistunarmálin, þar eru 47 milljónir umfram tillögur íhalds- ins til þess málaflokks. í sam- bandi við leiguíbúðir eru 27 mill- jónir umfram þeirra tillögur. Borgarstjórn hafði einróma samþykkt að endurskoða hefð- bundin kvennastörf hjá borginni. Borgarstjórn hafði ályktað ein- róma að nauðsynlegt væri að hækka laun í þessum einkennandi kvennastörfum. Bjarni sagði að meirihlutinn gerði ekki ráð fyrir krónu til þess að ná þessu mark- miði, en breytingartillögur minni- hlutans gera ráð fyrir 30 milljón- um“ Það sést hve félagsmálin og kjaramálin vega miklu þyngra í okkar hugmyndum. Eins má nefna smærri mál en stór, eins og t.d. með Laugardalshöllina þar sem við leggjum til að kostað verði 6 milljónum svo aðbúnaður verði þannig að fólk í hjóiastólum geti farið þar um. Einnig má BjarniP.* netna neiisugæslu i Breiðholti. Það eina sem sker á milli minni- hlutans varðandi tillögugerðina eru tillögur Framsóknarflokksins varðandi Borgarspítalann. Bjarni sagði að aðrir fulltrúar minni- hlutaflokkanna leggi til að Borg- arspítalinn verði enn stjórntæki fyrir Reykjavíkurborg til að ákveða um betri þjónustu til handa borgurunum en ríkið vill. „Við teljum brýnt að því verði haldið sem var. Ríkið hefur ákveðið að Ieggja 9 milljónir fram og þá verðum við að leggja fram okkar á móti. Auk þess leggjum við til, að sett verði upp lyfta þannig að hægt verði að nýta það sem er komið á sem bestan hátt svo og nýta fjórðu hæðina þegar hún kemst í gagnið. Við erum hógvær i fjárframlögum hvað varðar Borgarspítalann, en stefnumörkunin er afgerandi", sagði Bjarni. Hann sagði að í heild mætti segja, þegar tölur minnihlutans og meirihlutans væru bornar saman, væri munurinn ekki ýkja mikill. „Breytingarnar sjást ekki svo mikið í þessum tölum, en það er spurningin um áherslur sem kemur skýrt fram. Við höfum hafnað sumum framkvæmdum og lagt til aðrar. Við erum í alla staði ábyrg í okkar tillögugerð, það er ekki halli á okkar fjárlög- um, en áhersluþættirnir eru allt aðrir“, sagði Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýðuflokksips.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.