Alþýðublaðið - 14.10.1987, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.10.1987, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 14. október 1987 3 FRÉTTIR í landbúnaðarráðuneytinu eru menn hreint ekki tilbúnir að gefa sjávarútvegsráðuneytinu fiskeldið eftir. Með vaxandi fiskeldi hérlendis hef ur komið upp umræða um það hvort ráðuneytið eigi aö fara með þessi mál og hefur þar hverjum sýnst sitt. Landbúnaðarráðuneytið kynnti sín sjónarmið í þessu efni á sérstökum kynningarfundi i gær. Á fundinum voru kynntar ýmsar stofnanir sem hafa með þessi mál að gera og starfsemi þeirra í því sambandi gerð skil. A-mynd: Róbert Fækkun undanþága — lækkun söluskatts: Aðgerðum frestað? Fjármálaráðherra segir að meta þurfi þensluástand um ára- mótin, áður en nokkuð verði hægt að fullyrða um lækkun söluskattsprósentu. Ef ekki hefur dregið úr þensluástandi um áramót kemur til greina að fresta að- gerðum ríkisstjórnarinnar um fækkun undanþága sölu- skatts og lækkun skattprós- entu, sem stefnt var að eftir áramótin. Að sögn Jóns Baldvins fjármálaráðherra þart að meta það í árslok, hvort kerf- ið hafi verið kælt niður og slegið hafi á þensluna. Lækk- un söluskattsprósentunnar mundi þýða lægra vöruverð og ýta undir þensluáhrif ef aðgerðir rfkisstjórnarinnar nú hafa ekki skilað árangri um áramót. Ekki er vitað hve fækkun undanþága geti leitt til mikill- ar lækkunar skattprósentu. Fjármálaráðherra sagði að talað hefði verið um sölu- skatt undir 20%, en sagði ógerlegt að fullyrða nokkuð um slíkt, að svo stöddu. Vilhjálmur Egilsson, Verslunarráði: „Þjóöarsáttinni sagt „Ég lít svo á aö með skattahækkununum sé ríkis- stjórnin að segja upp þjóðar- sáttinni og nánast að taka til baka allt þaö sem samið var um í febrúar og desember- samningunum,“ sagði Vil- hjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs íslands í samtali við Alþýðu- blaðið. Vilhjálmur telur þetta neikvæðasta þáttinn í fjárlög- um og efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Jákvæö- asti þátturinn er að mati Vil- hjálms viðleitni rikisstjórnar- innar til hallalausra fjárlaga. „Það er líka jákvætt aö leyfa innlendum aðilum að upp fjárfesta erlendis og þyrfti að halda áfram á sömu braut,“ sagði Vilhjálmur. Fleiri já- kvæð atriði nefndi hann ekki, en tíundaði hins vegar nei- kvæða punkta sem felast í hækkun einstakra skatta: „Áform um hækkun skatt- lagningar á sjávarútveg, er ekki til þess fallin að styrkja trú um að fastgengisstefnan haldi, vegna þess að útflutn- ingsgreinarnar eru þær sem þurfa að bera uppi þá stefnu," Vilhjálmur sagði ennfremur misráðið að hækka bílana á nýjan leik. „Það er enn eitt dæmið um það að almenningur geti ekki treyst stjórnvöldum." Björn Arnórsson hagfræðingur BSRB: „Verst fyrir þá verst settu“ „Við erum ákaflega þungir yfir þessu öllu saman. Þetta kemur verst niður á þeim sem búa við verstu kjörin," sagði Björn Arnórsson hag- fræðingur BSRB um efna- hagsaðgerðir og fjárlaga- frumvarp rikisstjórnarinnar. Björn segir að það verði erfitt að gera kjarasamninga í framtíðinni sem grípi inn í efnahagsiifið og miði að því að halda verðbólgu í skefjum. „Það verður nánast ógerlegt ef ekki er hægt að treysta samningsaðilunum." Björn sagðist vonast til að ríkisstjórnin bæri gæfu til að standa gegn þrýstingi um gengisfellingar. „Ef að þvf hjóli verður hreyft af stað, þá eigum við eftir að ganga í gegnum hroðalega erfitt ár, — og er þó nóg samt.“ Fjárlagafrumvarpið: Bremsur á erlend lán Allar lántökur ríkissjóös árofmaðar innanlands — Tekjur og gjöld í frum- varpinu nema tæpum 60 milljöröum — Fjárlögin hallalaus Rikissjóður tekur engin ný erlend lán á næsta ári, sam- kvæmt fjáriagafrumvarpi fyrir árið 1988, sem fjármálaráð- herra lagði fram á Alþingi í gær, Samkvæmt frumvarpinu nema tekjur og gjöld rikis- sjóðs um 59,6 milljörðum króna og eru fjárlögin því hallalaus. „Það er stór dagur í lífi hvers höfundar, þegar út kemur bók. Þessi bók er ekki mikið skemmtiefni en hún er heil náma af fróðleik og snertir hag allra í þjóðfélag- inu,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson þegar hann kynnti frumvarpið á blaða- mannafundi í gær. Samkvæmt frumvarpinu þarf ríkissjóður að taka að láni 4,2 milljarða króna til þess að standa undir afborgunum af lánum sem tekin hafa verið á liðnum árum og til þess að lána til ríkisfyrirtækja. Meðal nýbreytna i þessu frumvarpi er að allar lántökur eru áformaðar innanlands. í fyrsta skipti í áraraðir er er- lend lántaka opinberra aðila lægri en afborganir af erlend- um lánum. Lánsfjárráðstöfun lækkar um 3,6 milljarða frá yfirstandandi ári og grynnkað er á erlendum lánum þjóðar- búsins. Af innlendu lánunum er áætlað að afla 3 milljarða meö sölu spariskírteina og 1,2 milljarða króna með samningum við bankakerfið. Skuldastaða þjóðarbúsins er nú talin um 115 milljarðar eða um 70 prósent af landsfram- leiðslu. Gert er ráð fyrir að sjötta hver króna af útflutn- ingstekjum fari til greiðslu erlendra lána. Samkvæmt fjárlagafrum- varpinu er afnumin ríkis- ábyrgð á lántökum fjárfest- ingarlánasjóða og ríkisfram- lög til þeirra felld niður. Þetta er í samræmi við stefnu ríkis- stjórnarinnar um að bein af- skipti af atvinnulífinu séu sem minnstar. Nánar er fjallað um fjár- iagafrumvarpið í fréttaskýr- ingu í opnu blaðsins I dag. Ástralski píanóleikarinn Roger Woodward. Sinfóníuhljómsveit íslands heldur sína aðra áskriftartón- leika fimmtudaginn 15. októ- ber. Frumfluttur verður Píanó- konsert eftir Áskel Másson sem hann samdi sérstaklega fyrir ástralska píanóleikarann Roger Woodward en hann er einmitt einleikari þessara tónleika. Auk þess verða flutt Parlsarsinfónían eftir Mozart og „Myndir á sýningu" eftir Mussorgsky. Roger Woodward hefur getið sér gott orð sem túlk- andi sígildra og nýrra píanó- verka. Hann er talinn vera besti konsertpíanisti heims en þrátt fyrir það sþilar hann gjarnan í minni hljómsveitum Franski hljómsveitarstjórinn Diego Masson. og slær þá oft á léttari strengi. Stjórnandi á tónleikunum verður franski hljómsveitar- stjórinn Diego Masson. Hann var áður þekktur sem slag- hljóðfæraleikari en hefur nú snúið sér að stjórn hljóm- sveita þ.á.m. Fílharmóníu- hljómsveit Lundúnaog BBC Sinfóníuhljómsveitinni. Hann er einnig stofnandi og stjórn- andi Musique Vivante, sem einbeitir sér að flutningi nú- tímatónlistar. Eins og venjulega eru áskriftartónleikar Sinfóníu- hljómsveitarinnar haldnir í Háskólabíó og hefjast kl. 20:30. Gunnar J. Friðriks- son formaöur VSÍ: „Loksins tekið til hendi“ „Við hljótum að fagna því að loksins skuli vera tekið tii hendi og mörkuð einhver ákveðin stefna. Við sjáum a.m.k. hvaða rammi okkur er sniðinn,“ sagði Gunnar J. Friðriksson um efnahagsað- gerðir og fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Gunnar sagðist ekki hafa fengið tækifæri til að kynna séreinstakla liði, en augljós- lega væru menn óhressir með ýmsa skatta á atvinnu- vegina, sérstaklega auknar álögur á útflutningsgreinarn- ar. I þvi sambandi nefndi hann launaskattinn og þá ákvörðun að hætta að endur- greiða söluskattinn. Formaður Vinnuveitenda- sambandsins sagði að endur- greiðslan á söluskattinum og launaskatturinn gerði stöðu samkeþpnisiönaðar og út- flutningsgreinanna enn erfið- ari, miðað við að búið sé við fast gengi. PÍANÓKONSERT FRUMFLUTTUR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.