Alþýðublaðið - 21.10.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 21.10.1987, Blaðsíða 1
Húsnæðislánakerfið: Þeir verst settu látnir ganga fyrir Stjórnarfrumvarp lagt fram um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins — Heimild veitt til þess að skerða eða synja um lán ef ríkar ástæður þykja fyrir. í dag veröur lagt fram stjórnarfrumvarp um breyt- ingar á lögum um Húsnæðis- stofnun rikisins. Samkvæmt frumvarpinu verdur húsnæð- isstjórn heimilt að skerða eða synja um lán ef rikar ástæður þykja fyrir hendi. Þannig að þeim sem eru í brýnni þörf verði tryggður forgangur umfram þá sem betur eru settir. í samtali við Alþýðublaðið i gær sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra að húsnæðisstjórn yrði veitt heimild til þess að skerða eða synja um lán ef umsækj- andi á fyrir fleiri en eina íbúð. Ennfremur hjá þeim sem eiga fyrir stórar skuldlausar eignir og eru að minnka við sig. Húsnæðisstofnun verður einnig veittur aukinn sveigj- anleiki við afgreiðslu lánatil þeirra sem eiga íbúð fyrir. Þannig megi t.d. setja þann í forgang sem á fyrir litla skuld,umhlaðna íbúð og er að stæk'ka við sig, umfram þann sem á stóra íbúð og hefur að einhverjum ástæðum lagt fram sína umsókn á undan hinum. Jóhanna sagði að í frum- varpinu væri gert ráð fyrir því að umsækjandi fái vitneskju um það hvenær hann fái lán einu ári áður en að til af- greiðslu á láninu kemur. . í frumvarpinu er síðan veitt heimild fyrir ríkisstjórnina að beita breytilegum vöxtum eða endurgreiða vexti. Að sögn Jóhönnu hefur ekki endanlega verið ákveðið hvernig að því verður staðið. „Með þessu frumvarpi er verið að stíga á bremsurnar og forða því að húsnæðis- kerfið lendi í ógöngum, og stöðvist á næsta ári eins og fyrirsjáanlegt er ef breyting- arnar koma ekki til,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir. Hún sagði ennfremur að með frumvarpinu væri verið að koma í veg fyrir miklar verð- hækkanir á (búðum. Frá því að Húsnæðiskerfið tók gildi 1. september ’86 hafa húsnæðisstjórn borist á milli 10—11000 umsóknir, samanborið við þær forsend- ur laganna, að umsókir yrðu um 3800. Þessar umsóknir kosta að sögn Jóhönnu um 15 milljarða króna. „Ég óttast það að ef um- sóknir sem nú liggja óaf- greiddar verði samþykktar án breytinga á lögunum, muni stefna í óefni og það muni þurfa að loka húsnæðiskerf- „Með frumvarpinu er verið að forða því að húsnæðiskerfið lendi í ógöngum og stöðvist á næsta ári t-ins og fvrirsjáanlegt er ef breytingarnar koma ekki til,“ segir Jóhanna Sigurðar- dótt ir. inu á nýjan leik á miðju næsta ári.“ Jóhanna sagði ennfremur að án breytinganna væri hætta á því, að fjármagni upp á 20 milljarða sem samið var um við lífeyrissjóðina á dög- unum yrði ráðstafað á ör- skömmum tíma. „Þetta eru kannski meginástæöur fyrir þvl að þetta frumvarp er flutt, fyrir utan það að tryggja bet- ur forgang þeirra sem eru í brýnni þörf, — umfram þá sem betur eru settir,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir fé- lagsmálaráðherra. Ríkisstjórnin samþykkti frumvarpið á fundi í gær- morgun, en vitað er um and- stöðu einstakra þingmanna Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks. Einkum mun andstað- an vera I Sjálfstæðisflokkn- um. Tillögur 8 almannasamtaka: Breytingar á félags- lega lánakerfinu Frá blaðamannaf undinum i gær þar sem tillögur 8 almannasamtaka um breytingar i húsnæðismál- um voru kynntar. A-mynd: Róbert Ríkisstjórnin: Matarskattur til frekari umfjöllunar Sex sérstakir lánaflokkar stofnaðir innan Byggingar- sjóðs verkamanna, stjórnkerf- islegar breytingar á hinu fé- lagslega íbúðalánakerfi nái fram að ganga, lánstími til íbúða fyrir námsmenn, fatlaða og aldraðra lengdur og vextir þar á móti hækkaðir. Þetta er hluti af tillögum sem hafa ver- ið útfærðar í sérstökum drög- um að frumvarpi til laga um fé- lagsíbúðasjóð. Það eru átta al- mannasamtök með um 40 þús- und félagsmenn sem að standa á bak við tillögurnar. Þrátt fyrir það að sérstök milliþinganefnd hafi verið skipuð, þegar hið almenna húsnæðislánakerfi var endur- skoðað i febrúar 1986, til þess að endurskoða lánveit- ingar til félagslegra ibúða- bygginga hefur engra breyt- inga orðið vart. Á meðan al- menn íbúðalán allt að þre- földuðust og lánstími þeirra lengdist í 40 ár, hélt sú óeðli- lega staða áfram að lán til byggingar leiguíbúða á veg- um sveitarfélaga og félaga- samtaka voru aðeins veitt til 30 ára. Langt er siðan að stjórnvöld settu sér það mark.. að þriðjungur opinberra fjár- veitinga til byggingar íbúðar- húsnæðis skyldu renna til íbúða í félagslegri eign en ekkert hefur gengið í þeim efnum. Þetta varð kveikjan að því að átta almannasamtök hófu viðræður sín á milli um fram- tíðarþróun í húsnæðismðál- um hinna ýmsu þjóðfélags- hópa. Húsnæðisþörf aldr- aðra, öryrkja, námsmanna ofl er svo brýn að sumsstaðar ríkir hálfgert neyðarástand. Um allt land eru langir bið- listar eftir húsnæði en ein- ungis fást u.þ.b. 15—17 pláss á ári. Höfuðmarkmiö þessa sam- starfs er að stuðla að jafn- rétti í húsnæðismálum milli þjóðfélagshópa og valfrelsi, þannig að leigjendum og eig- endum ibúðarhúsnæðis sé gert jafnhátt undir höfði. Ennfremur að jafna hlutfallið á milli landshluta, þannig að unnt verði að draga úr fólks- flóttaaf landsbyggðinni. Hópurinn hefur látið gera tillögur að lagafrumvarpi um félagslegar íbúðarbyggingar. Tillögurnar verða kynntar á ráðstefnu sem haldin verður 23. október. Þær fela m.a. það í sér að lengja lánstim- ann en hafa vextina þá að- eins hærri. Á rikisstjórnarfundi i gær var m.a. rætt um söluskatt á matvæli og greindi fjármála- ráðherra frá viðræðum sinum viö ýmsa forystumenn í at- vinnulífi og verkalýðshreyf- ingu. Málið verður rætt frekar i rikisstjórninni. „Málið er með formlegum hætti í höndum forsætisráð- herra og ráðherranefndar sem fjallar um efnahagsmál. Það þarfnast umfjöllunar og það var ekki tilefni til neinnar skyndiákvörðunar á þessum fundi," sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra í samtali við Alþýðu- blaðið eftir ríkisstjórnarfund- inn i gær. Forsætisráðherra og fjár- málaráðherra hafa báðir lýst þeirri skoðun sinni að þeir séu tilbúnir til viðræðna við aðila vinnumarkaðarins um 10% söluskatt á matvæli sem taka á gildi um næstu mánaðamót, greiði það fyrir samkomulagi um launa- stefnu á næsta ári. Forseti Alþýðusambands- ins, Ásmundur Stefánsson, telur að frestun eða afnám skattsins geti átt þátt í því að liðka fyrir samningum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.