Alþýðublaðið - 05.11.1987, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 05.11.1987, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 5. nóvember 1987 STOFNAÐ 1919 212. tbl. 68. árg. Jón Baldvin í fjárlagarœðu í gœr: „FJÁRLÖGIN ERU GRUNNUR SEM BYGGJA VERDUR Á“ Samrœming fjölmargra þátta skiptir sköpum fyrir afkomu þjóðarbúsins og lífskjör hvers og eins. METTAÐUR GRÁSLEPPU- MARKAÐUR Grásleppumarkaðurinn er mettadur. Heimsframleiöslan er yfir 50 þúsund tunnur. Verksmiðjur innan Sölustofn- unar lagmetis þurfa engin hrogn að kaupa á vertíðinni 1988 og þvi munu islenskar verksmiöjur eiga á lager um 8—10 þúsund tunnur. Sævar Einarsson, hjá Landssambandi smábátaeig- enda, sagði í samtali við Al- þýðublaðið að ástandið væri mjög alvarlegt. Markaðurinn er alveg mettaður og við sjá- um fram á að rúmlega 23. þúsund tunnur fari forgörð- um. Kanadamenn eiga óseld- ar 800 tunnur í Danmörku og mjög mikið í Kanada, nokkur þúsund. Það eina sem hægt er að gera er að takmarka veiðina. Ef það yrði ekki myndi verð falla niður úr öllu valdi og þvi viljum við vara grásleppuveiðimenn við þessari alvarlegu stöðu. Ekki hefja veiðar á vertið 1988 nema að það sé alveg tryggt að hrognin verði hægt að selja á góðu verði.. Veiði- menn eiga það annars á hættu að sitja uppi með nokkur hundruð tunnur sem yrðu síðan seldar fyrir sama og ekki neitt. Sævar varar sérstaklega við þvi að fara út í fjárfestingar á veiðarfærum eða öðru sem tengist grá- sleppuveiðum meðan mark- aðurinn er svona ótryggur. NAMSMENN BÍÐA SPENNTIR — Stjórn LÍN afgreiðir í dag tillögu um „að skerðing lána frá tíð Sverris verði leiðrétt. “ í dag mun stjórn Lána- sjóðs íslenskra námsmanna fjalla um tillögu fulltrúa námsmanna, sem felur í sér hækkun námslána. Náms- menn biöa spenntir eftir af- greiðslunni og ætla að fjöl- menna á skrifstofu LÍN um klukkan fimm i dag, þegar til- lagan verður tekin til af- greiðslu. Að mati hagsmunasamtaka námsmanna felur tillagan í sér að leiðrétt verði skerðing námslána frá tíð Sverris Her- mannssonar I menntamála- ráðuneytinu. Samtökin segja Sverri hafa fryst vísitölu- hækkun lánanna I sex mán- uði. Ef tillaga fulltrúa náms- manna nær fram að ganga hækkar lán til narhsmanns I leiguhúsnæði um tæpar þrjú þúsund krónur, úr 25.950 I 29.903 krónur. „Engum, — allra síst fjár- málaráðherra, — kemur til hugar að þessar aðgerðir skapi mönnum vinsældir. Einar og sér skipta þær held- ur ekki sköpum. Með þeim er lagður grunnur sem byggja verður á i komandi kjara- samningum.“ Kristján Pétursson deildar- stjóri hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli segir að gerðar verði tíðari stikkpruf- ur hjá farþegum á næstunni, vegna þessa mikla fjölda fólks sem þessa dagana fer í innkaupaferðir til útlanda. Vegna harðnandi samkeppni er talið að fatakaupmenn not- færi sér „innkaupaferðirnar" i vaxandi mæli til þess að sleppa við tolla. Kristján seg- Þetta sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráð- herra m.a. I fjárlagaræðunni sem hann flutti á Alþingi I gær. Hann lagði þunga áherslu á, að fjárlögin og efnahagsaðgerðir ríkisstjórn- arinnar dygðu ekki einar sér til að nájafnvægi I þjóðar- ist nins vegar ekki hafa orðið var við slíkt „svo neinu nemi.“ „Við fylgjumst sérstaklega vel með þvl fólki sem flytur inn með sér fatnað sem virð- ist ekki eingöngu til eigin nota,“ sagði Kristján I sam- tali við Alþýðublaðið I gær. Mikið virðist vanta á að al- menningur geri sér grein fyrir því hve mikið verðmæti megi flytja inn ótollað. Ákvæði búskapnum, og ítrekaði að ríkisstjórnin vænti þess að geta átt samleið með verka- lýðshreyfingu og atvinnurek- endum. „Ákvarðanir á vettvangi vinnumarkaðarins, á heimil- um I fyrirtækjum skipta ekki reglugerðar þar að lútandi eru aðeins kynnt I Stjórnar- tíðindum og Lögbirtingar- blaðinu, sem nátil aðeins um eins prósents þjóöarinn- ar. Fyrir nokkrum árum gaf fjármálaráðuneytið út upplýs- ingabækling sem dreift var til farþega I flugvélunum. Engu slíku hefur verið til að dreifa I nokkur ár. Kristján sagðist telja að vitneskja al- síður máli. Þá veltur á þróun ytri skilyrða. Samræming allra þessara þátta skiptir sköpum fyrir afkomu þjóðar- búsins og lifskjör hvers og eins I þessu þjóðfélagi," sagði fjármálaráðherra. I ræðu sinni sagði fjár- málaráðherra ennfremur að þrátt fyrir að nýir starfshætt- ir, þjóðarsáttin, hefði skilað miklum árangri, væri Ijóst aó mikið misgengi hefði orðið I launaþróun. Þannig hefðu einstakir hópar launafólks I litlum mæli notið launa- skriös eða sérsamninga. Fjár- málaráðherra sagði mikiu skipta, að I komandi kjara- samningum takist að rétta hlut þessara hópa, en jafn- framt tryggja að launahækk- anir skríði ekki upp allan stigann. Jón Baldvin sagói að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar hefði verið sjálfsögð, að verða við eindregnum tilmæl- um um að fresta aukinni skattheimtu á matvæli nú um mánaðamót, til þess að greiða fyrir þeim samningum sem standa fyrir dyrum. Hann sagði rlkisstjórnina reiðubúna til samstarfs við aðila vinnumarkaðarins um mörkun raunhæfrar launa- stefnu, sem tryggt geti kaup- mátt en ekki verðlausar krón- mennings hefði vegna þessa, minnkað frá því sem áður var. Farþegar mega aðeins flytja með sér vöru að verð- mæti 1400 krónur. Þar af má einn hlutur ekki vera meira en 7000 króna virði. Sem fyrr segir þekkir aðeins hluti far- þega þessar reglur og oft koma upp vandamál af þeim sökum við græna hliðið. „Þetta eru erfið mál og auð- vitað þarf stundum að nota brjóstvitið," sagöi Kristján. Landsig við tjörnina? Sjá bls. 3. mmm ■ ur. Fatainnflutningur með ferðatöskum: TOLLEFTIRLITIÐ HERT — Vegna harðnandi samkeppni milli fataverslana er talið að kaupmenn notfœri sér „inn- kaupaferðirnar“ í vaxandi mœli. — Tollgœslan hefur ekki orðið vör við slíkt „svo neinu nemi. “ — Almenningur virðist lítið vita um lög og reglur varðandi innflutninginn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.