Alþýðublaðið - 20.02.1988, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 20.02.1988, Blaðsíða 5
Laugardagur 20. febrúar 1988 5 FRÉTTIR Ríkisstjórnin TITRINGUR VEGNA RÁÐHÚSS Forsœtisráðherra vill rœða við Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra áður en hún tilkyhnir borgarstjóra afstöðu sína. Pólitískur þrýstingur? „Ég held að Þorsteinn Pálsson œtti sjálfur að svara þeirri spurningu, “ segir Jóhanna Sigurðardóttir. Þorsteinn Pálsson, for- sætisráöherra, óskad eftir þvi í gær viö Jóhönnu Siguröar- dóttur, félagsmálarádherra, að hún biði með að tilkynna borgarstjóra afstöðu sína til skipulags Kvosarinnar og byggingu ráðhúss. Jóhanna ætlaði að tilkynna afstöðu sína í gær og sagði í samtali við Alþýðublaðið að hún lægi Ijós fyrir. Hún sagðist hins vegar hafa talið rétt að veröa við þessari ósk forsætisráð- herra og munu þau ræðast við í dag. Jóhanna sagðist vonandi geta tilkynnt sína afstöðu um helgina. Eru þetta óeðlileg afskipti forsætisráöherra af þessari niöurstööu? „Ég ætla aö láta öörum eftir aö svara því, a.m.k. í bili.“ — Er ekki veriö aö beita þig pólitískum þrýstingi? „Eg held aö Þorsteinn Pálsson ætti sjálfur aö svara þeirri spurningu.“ — Er þetta mál sem snertir ríkisstjórnin? „Þetta er ekki mál sem snertir ríkisstjórnina. Það er félagsmálaráöherra sem á að staðfesta þetta deiliskipulag, en ekki ríkisstjórnin.“ — Hefur verið hótaö óróa í stjórnarsamstarfinu vegna þinnar afstööu? „Ég vil ekkert ræöa meira um þetta aö sinni. Ég mun eiga þetta viðtal viö forsætis- ráöherra vegna þess aö ég taldi rétt aö verða við ósk hans þess efnis." Jóhanna Sigurðardóttir: „Þetta er ekki mál sem snertir rikisstjórn- ina. Jón Baldvin Hannibalsson um viðskipti íslands og EB: VARNARSAMSTARF FREKAR EN AÐGANG Afl FISKVEIÐILÖGSÖGU Jón Baldvin: „Við höfum ekki efni á að borga uppsett verð fyrir aðgöngumiðann: Að- ganginn að auðlindinni. “ Jón Baldvin Hannibaisson fjármálaráðherra, formaður Alþýðuflokksins, segir að að- göngumiðinn að Evrópu- bandalaginu sé of dýr íslend- ingum ef hann kosti veiðirétt- indi í ísienskri fiskveiðilög- sögu. Þeirri einu auðlind sem íslenska þjóðin lifir af. Hann segir að Norðmenn gætu gengið að sliku vegna þess að þeir lifi á oliu fremur en fiski. Ef íslendingar gengju að slíkum skilmálum, væri að mati Jóns Baldvins hætta á að ísland yrði aftur hráefnis- aflendur fyrir fiskiðnaðinn í Bretlandi og Norður— Evrópu, eins og á fyrstu tug- um aldarinnar. En hvað hafa íslendingar að bjóða i stað- inn? Aö mati formanns Al- þýðuflokksins þurfa þeir toll- frjálsan aðgang að mörkuð- um stórveldanna beggja vegna Atlantshafsins, Banda- ríkjanna og komandi banda- ríkja Evrópu. Svarið er aö mati Jóns Baldvins samstarf i öryggis- og varnarmálum. Þessi sjónarmið rakti Jón Baldvin Hannibalsson I ræðu sem hann flutti á fundi SAMAK, samstarfsnefndar norrænna jafnaðarmanna- flokka, sem haldinn var f Stokkhólmi í Svíþjóð. Á fund- inum voru leiðtogar jafnaðar- mannaflokka á Noröurlönd- unum. Fundurinn hófst á fimmtudag og lauk í gær meö umfjöllun um Norður- löndin og Evrópubandalagiö. Að undanförnu hefur sú spurning gerst ágengari hvort íslendingar geti staðiö utan viö Evrópubandalagiö, vegna þeirra hagsmuna sem I viö eigum að gæta á Evrópu- mörkuðum með sjávarafurðir. Ríkisstjórnir innan EB ræða um þessar mundir um hindr- unarlausan innri markað, sem stefnt er að 1992. Á sama tíma virðist flest benda til þess aö Noregur gangi til liðs viö bandalagiö. Þar meö heföu íslendingar glatað bandamanni í samningum viö EB um aö tryggja fríverslun meö fiskafuröir; auk þess stæðumst viö eftir það ekki samkeppni viö EB—markað- inn, þar sem ytri tollar á fisk- afurðir yröu of háir. í ræöu sinni sagöi Jón Baldvin aö „hið nýja EB“ væri ekki bara um niður- greiddan fisk og landbúnað eöa egg og beikon. „Þaö er líka um pólitík. Og pólitík er lika um samstarf á sviöi öryggis- og varnarmála. Þarf hið nýja EB, meö Skandi- Jón Baldvin Hannibalsson. navfu innan dyra, ekki aö fylgjast meö gangi mála á Atlantshafinu? Þá þarf þaö aö tala við Norömenn og okk- ur, um annað en fisk.“ Jón Baldvin ftrekaöi í ræöu sinni aö samningsstaða ís- lendinga, sérstaklega ef Norömenn gengju til liðs viö bandalagiö, væri ekki allt of góö. „Viö höfum ekki efni á að borga uppsett verö fyrir aögöngumiðann: Aöganginn að auðlindinni. Aö þessu leyti erum viö fámenn þjóö meö einhæft atvinnulíf, í ann- arri og verri stööu en megin- landsþjóðir Evróþu, þar með talin önnur Norðurlönd." Jón Baldvin sagöi aö samningar um fækkun kjarnavopna á meginlandi Evrópu kölluöu á aukið póli- tískt samstarf Evrópuríkja um varnar- og öryggismál. Sennilega kallaði þaö líka á breytta varnarstefnu NATO. EB og NATO yröu því nánast eitt og hiö sama. Bandarfkin myndu draga úr nærveru sinni f Evrópu. Þau heföu öörum hnöppum aö hneppa á Kyrrahafssvæðinu, þar sem stórveldi næstu aldar eru að vakna til vitundar um mátt sinn og megin. Evrópa yrði því aö beina sjónum sínum í auknum mæli aö hafinu sem tengdi stórveldin saman. „Þar erum viö,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. íslandi hefur veriö Ifkt viö fljótandi flugvélamóöurskip og birgöastöö. Jón Baldvin minnti á ummæli Jósep Lunch, fyrrum framkvæmda- stjóra NATO, þess efnis. Hann benti ennfremur á aö flugvélamóðurskip og fylgi- floti væru dýr í rekstri. Þaö kostaöi margfalda þjóöar- framleiðslu Islendinga. Jón Baldvin sagöi að tollfrjáls aðgangur aö fiskmkörkuðum hlyti aö vera lágt verð fyrir svo ómetanlega aöstööu, sem skipti sköpum fyrir varn- arsamstarf og öryggi bæöi Bandaríkjanna og Norður— Evrópu. Þórarinn V: OFSAGT UM GANG VIÐRÆÐNA Þórarinn V. Þórarinsson segist vona að farið verði að ræða úrslit i kjaraviðræðum um eða upp úr helgi. Hann segir ummæli sin rangtúlkuð i Alþýðublaðinu i gær, þar sem haft er eftir honum að ekki sé óliklegt að um eða Upp úr helgi náist saman. Þórarinn segist hafa átt viö aðra liði samningamálanna, en launaliöinn. „Ég heföi gjarnan viljaö að svo væri, en þetta er stórlega ýkt,“ sagöi Þórarinn í samtali við blaðiö f gær. UTSALA - U1SALA - UTSALA Síðus+u dagar útsölunnar Rúllukragabolirnir komnir affur á kr. 695.00 Laugavegi 76 Hverfisgötu 26 VINNUWTABUÐIN Laugavegi 76 Hverfisgötu 26

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.