Alþýðublaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 25.06.1988, Blaðsíða 5
rLaugárdágiirr29" !jírfii'l988 5 ____________ÍRETTIR sfs OG KEA SKULDA LANDSBANKANUM Á ÞRIÐJA MILUARÐ Stórskuldir Sambandsins og KEA rekast a bankastjoraveitingu til Vals Arnþórssonar. Bankastjóramálið líklega borið upp á Á síðasta bankaráösfundi í Landsbanka íslands, í liðinni viku, var samkvæmt heimild- um Alþýðublaðsins lagt tram yfirlit um helstu skuldunauta bankans. Þar mun hafa kom- ið fram að skuldir Sambands- ins og KEA næmu samanlagt töluvert á þriðja milljarð króna. Á þessum sama fundi var lagt fram bréf frá Helga Bergs bankastjóra, þar sem hann segir starfi sínu lausu frá og með áramótum. Sam- kvæmt heimildum blaösins kom fram vilji á þessum fundi um að Valur Arnþórs- son stjórnarformaður Sam- bandsins tæki sæti Helga. Formleg tillaga um Val kom ekki fram, en útlit fyrir að fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vilji hraða málinu í gegn. Samkvæmt heimildum blaðsins munu fulltrúar hinna flokkanna, Al- þýðuflokks og Alþýðubanda- lags, hafa lýst þeirri skoðun sinni að í Ijósi kringum- stæðna væri hvorki heppilegt fyrir bankann né stjórnar- formann Sambandsins að ráðning bæri svo brátt að. Bankaráðsmenn sem Al- þýðublaðið náði tali af í gær vildu ekki staðfesta þessar nœsta fundi. upplýsingar. Alþýðublaðið bar undir Val Arnþórsson hvort skuldir KEA einar og sér næmu um milljarði. „Eg get ekki svarað því,“ sagði Valur, en KEA er eitt af stærstu fyrirtækjum landsins og er með mjög miklar birgð- ir af alls konar vörum til lands og sjávar. KEA hefur reglubundin afurðalán út á þær birgðir og það er öruggt að stærsta upþhæðin sem að KEA á i vióskipti við Landsbankann um eru af- urðalán — langstærsta upp- hæðin.“ Valur sagðist hins vegar ekki geta staðfest upphæð- ina, hvorki geta játað henni eða neitað. Hann sagði að allt væri í traustum skoröum hjá KEA, þótt vissulega fynd- ist fyrir þeim erfiðleikum sem væru í rekstri fyrirtækja almennt. Þannig nefndi hann aö KEA hafi átt sjöhundruð milljónir útistandandi á við- skiptareikningum um síðustu áramót. „Sú upphæð hefur ekki lækkað." Aðspurður um bankastjórastól, sagðist hann ekkert hafa að segja. Hann sagðist heldur ekkert vita um skuldir Sambandsins í bankanum. „Ég stjórna ekki Það gengur ekki hljóðalaust fyrir sig að koma „réttum“ mönnum að i Landsbankanum. Fyrst Sverrir, nú Valur. daglegum fjármálum Sam- bandsins. Stjórn Sambands- ins hefur ekki verið gerð grein fyrir sliku neitt nýlega.“ Ekki náðist í Guðjón B. Ólafsson forstjóra Sam- bandsins, en hann er staddur erlendis. Kjartan P. Kjartans- son framkvæmdastjóri fjár- hagsdeildar SÍS sagðist ekki gefa upp stöðu fyrirtækisins gagnvart einstaka lánastofn- unum. Samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins nema skuldir SÍS og KEA um 2,6 milljörð- um. Eru þá ekki reiknaðar með skuldir Oliufélagsins og annarra samstarfsfyrirtækja Sambandsins. Eiginfjárstaða Landsbankans var um 3,4 milljarðar um síðustu áramót. VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR- INN HELDUR ÓHAG- STÆÐARI EN í FYRRA Fyrstu tvo mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 5.365 millj. kr. en inn fyrir 7.184 millj. kr. fob. Vöruskipta- jöfnuður var á þessum tima þvi óhagstæður um 1.819 millj. kr. en á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 1.562 mill. kr. á sama gengi. Þá var verðmæti vöruút- flutnings 5% meira á föstu gengi en I fyrra. Sjávarafurðir voru 68% alls útflutnings og voru 2% minni en á sama tíma í fyrra. Úflutningur á áli var 27% meiri, en útflutning- ur kísiljárns var 22% minni en á síðastliðnu ári. Úflutn- ingsverðmæti annarrar vöru var 30% meira fyrstu tvo mánuði ársins en á sama tíma í fyrra reiknað á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutn- ingsins var 7% meira en á sama tima í fyrra. Verðmæti innflutningsins til stóriöju svo og olíuinnflutningur var samtals 20% minna en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Annar innflutn- ingur (89% af heildinni) reyndist um 13% meiri en í fyrra, reiknað á föstu gengi. Stuðningsmenn Vigdísar BJARTSÝN Á ÚRSLITIN Kosningastjóri Vigdísar, Svanhildur Halldórsdóttir var mjög bjartsýn á úrslit kosn- inganna. Hún sagói að mjög mikið væri um fyrirsþurnir og símar kosningaskrifstof- anna stoþpuðu ekki. Fólk kæmi til þeirra ef ekki næö- ist í þau I síma og væri mjög fúst til starfa. Kvaðst hún ekki trúa öðru en að kjörsókn yrði góð og vonaði hún að fólk myndi nota helgasta rétt allra, kosningaréttinn — þennan lykil að lýðræðinu. Forsetakosningarnar ALÞÝÐUFLOKKURINN TEKUR EKKI AFSTÖÐU Jón Baldvin Hannibalsson formaöur Alþýöuflokksins hefur sent svarbréf til stuön- ingsmanna Sigrúnar Þor- steinsdóttur, en þeir höföu spurt hann hvort stuðningur dr. Gylfa Þ. Gíslasonar fyrr- verandi formanns flokksins viö Vigdisi Finnbogadóttur væri í nafni Alþýðuflokksins. Svar Jóns Baldvins er á þessa leiö: „Sem svar við bréfi yðar skal það tekið fram að Al- þýðuflokkurinn býður ekki fram við þessar forsetakos.n- ingar og tekur ekki flokks- lega afstöðu til framboðs- aðila, þótt jafnaðarmenn taki nú sem fyrr mikið tillit til skoðana og málflutnings Gylfa Þ. Gíslasonar. Af bréfi yðar má ráða að frú Sigrún forsetaframbjóð- andi vilji, „koma á lýðræði", m.a. með því að gera forsta- embættið pólitískt. Ég vil því eindregið skora á frú Sigrúnu að bjóða sig fram til þings og freista þess þannig, á réttum vettvangi, að vinna skoðun- um sínum um breytingar á stjórnarskránni, framgang.“ Sauðárkrókur SÓTT UM BYGGINGU 20 KAUPLEIGUÍBÚÐA Stofnað hefur verði undir- búningsfélag um byggingu á 20 almennum kaupleiguíbúö- um á Sauðárkróki og taka flest stærstu fyrirtæki staö- arins þátt i því. Húsnæðis- ekla hefur staðið fyrirtækjum og bænum mjög fyrir þrifum aö sögn Elsu Jónsdóttur skrifstofustjóra Sauðárkróks- bæjar. „Það voru stærstu atvinnu- rekendurnir hérna á Sauðár- króki sem stofnuðu þetta undirbuningsfélag um bygg- ingu kaupleiguíbúða", sagði Elsa I samtali við Alþýðu- blaðiö. Af fyrirtækjum sem þátt í þessu taka má nefna kaupfélagið, Steinullarverk- smiðjuna, Trésmiðjuna Borg og Loðskinn, auk þæjarins. Umsóknimar hafa verið sendartil Húsnæðisstofnun- ar, og er því beðið eftir svari þaðan áður en hægt verður að hefjast handa. A næstu fimmtán mánuðum verða byggðar 8 verkamannabú- staðaíbúðir á Sauðárkróki. Frestur til að sækja um lán til byggingar kauþleiguíbúða á þessu ári rann út s.l. mið- vikudag. Samkvæmt heimild- um Alþýðublaðsins hafa við- brögð verið mjög góð. Sigrún Þorsteinsdóttir forsetaframbjóöandi veröur fjarri heimili sinu i dag, kjördag. Hún kaus því utankjör- staðar i Ármúlaskólanum i gær. A-mynd/Róbert. Stuðningsmenn Sigrúnar TILGANGINUM ÞEGAR NÁÐ Áshildur Jónsdóttir fjöl- miðlafulltrúi Sigrúnar sagði að kosningarnar legðust mjög vel I sig. Niðurstöður þeirra yrðu í senn fróðlegar og spennandi. Varöandi kjör- sókn kvaðst Áshildur merkja mikla breytingu nú síðustu daga, og taldi hún að fólk myndi almennt fara að kjósa. Sagði hún að stanslaust væri hringt til þeirra og sýndi fólk mjög mikinn áhuga. Fjöldi atkvæða Sigrúnar skipti ekki öllu máli því tilganginum með framboði hennar væri þegar náð því að fólk hefði vaknað til umhugsunar um forsetaembættið. Það hefði komið af stað bylgju sem myndi halda áfram. En að sjálfsögðu myndi öll þjóðin vinna ef Sigrún ynni því hún yrði einfaldlega betri forseti.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.