Alþýðublaðið - 24.08.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.08.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 24. ágúst 1988 STOFNÁÐ | 1919 [ 159. tbl. 69. árg. Ráðgjafarnefndin leggur til róttœkar aðhaldsaðgerðir RÍKISSTARFSHIÖNNUM FÆKKI UM 1000 Ábyrgð ríkisins afnumin á launum hjá ríkisstofnunum með sjálfstœðan fjárhag, t.d. hjá Pósti og síma og Ríkisútvarpinu. Dregið verði úr erlendum lántökum. Bannað að taka hærri lán en 3 milljarða króna, eða sem samsvarar afborgun erlendra lána. Erlend skuldbreytingarlán upp á 2 miiljarða króna til viðbótar til fyrirtækja i út- flutningsgreinum. Tekjuaf- gangur af rikissjóði á næsta ári. Starfsmönnum rikisstofn- ana fækkað um 5%, eða um 1.000 manns, og ábyrgð ríkis- ins afnumin á launum hjá rik- isstofnunum með sjálfstæð- an fjárhag, t.d. hjá Pósti og síma og Rikisútvarpinu. Af- borgunarsamningar með greiðslukortum afnumdir. Skattar á hátekjumenn, um 10% á tekjur yfir 200 þúsund krónur. Vextir hækkaðir á húsnæðislánum, um 1—1,5%. Laun og launa- tengdir liðir lækkuð um 9% jafnframt því sem verð á vöru og þjónustu verði lækkað. Gert er ráð fyrir að aðgerðirn- ar feli í sér 15% lækkun nafnvaxta 1. september og 10% 1. október. Samkvæmt heimildum Al- þýóublaösins er þetta meðal hugmynda sem fram komu í skýrslu ráðgjafarnefndar sem afhent var forsætisráðherra í gær og kynnt ríkisstjórninni. Tillögur nefndarinnar, sem dregnar eru saman á 11 síðna plaggi, eiga að miða að því að kveða niður verðbólgu, ná jafnvægi í rikisfjármálum, á vinnumarkaði og á lánamark- aði. í skýrslunni er ekki um neina nákvæma útreikninga að ræða, heldur fyrst og fremst fjallað um niður- færsluhugmyndir ásamt öör- um aðgerðum i grófum drátt- um, til nánari útfærslu hjá stjórnarflokkunum. Það vekur nokkra athygli að nefndin leggur til 9% launalækkun en treystir sér ekki til að ákveóa lækkun á vöru og þjónustu, einungis munu þeir liðir nánar skil- greindir sem almenn þjón- usta, búvara, farmgjöld, þjón- usta sveitarfélaga, vátrygg- ingar og útseld vinna. Þingflokkarnir fjalla um til- lögurnar á fundum sínum i dag, en svo virðist sem ríkis- stjórnin hafi sett sér að kanna þessar leiðir til þraut- ar. Sjá einnig viðbrögö við „niðurfærslunni“ á baksíðu blaðsins í dag. Jón Baldvin: Erum tilbuin ef engum veröur sleppt. A-mynd/Magnús Reynir. Steingrimur Hermannsson: Kemur til greina, enda veröi hún útfærð í gegnum allt kerfiö. A- mynd/Magnús Reynir. Ríkisstjórnin NIÐURFÆRSLULEIDIN K0NNUÐ TIL ÞRAUTAR „Ég held að i mínum flokki séum við tilbúin að fara þessa leið, að því tilskildu aö það verði fullkomin sam- staða, engum sleppt eða hiift eða einhverjir komi til með aö njóta forréttinda,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra við blaða- menn eftir ríkisstjórnarfund- inn í gær, þar sem ræddar voru tillögur ráögjafarnefnd- arinnar um aðgeröir i efna- hagsmálum. „Eg tel niður- færsluleiðina koma til greina, enda verði hún útfærö í gegnum allt kerfiö,“ sagði Steingrimur Hermannsson. „Það er alls ekki hægt að taka afstöðu til nióurfærsl- unnar út frá orðinu einu sam- an. Það er að vísu rétt, að í upphafi var orðið, en síðan fylgdi mjög margt á eftir,“ sagði Jón Sigurðsson við- skiptaráðherra sposkur á svip, þegar hann var spurður hvort hann teldi niðurfærslu- leiöina framkvæmanlega. Hjá ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum er mikið verk framundan að vinna úr þeim tillögum sem komu frá forstjóránefndinni. Enn á eftir aö reikna út ýmsar forsendur og er ólíklegt að afstaða ein- stakra þingmanna liggi fyrir áður en slíkt hefur verið gert. ; Þá hefur ríkisstjórnin ekki sett sér nein ákveöin tíma- mörk um hvenær þeirri vinnu verði lokið. „Það má með engum hætti blekkja menn með því, að þetta séu tillögur sem hægt verði að hrinda í framkvæmd fyrir 1. sept- ember,“ sagði Jón Baldvin, en hingað til hefur verið álit- ið að ríkisstjórnin þyrfti að vera búin að ganga frá efna- hagspakkanum fyrir þann tíma vegna samningsbund- inna launahækkana og bú- vöruverðshækkana 1. sept. „Það væri mjög skynsamlegt ef framkvæmdum á þessu yrði slegið á frest,“ sagði fjármálaráðherra. Ýmsir hafa dregið i efa að hægt verði að færa verðlag niður með skipun frá ríkis- stjórninni. Jón Baldvin telur aö-til skamms tíma megi ná verulegum árangril þeim efn- um með lagasetningu og við- urlögum. Það sama segir hann aðspuröur um launin, — hvort niðurfærslan muni ekki fyrst og fremst bitna á þeim sem vinna hjá riki og þeim sem annars eru á strip- uðum töxtum: „Ef menn hafa til þess einbeittan vilja og skirrast ekki við að beita ströngum viðurlögum, þá er hægt að tryggja að menn fái ekki neinn sjálftökurétt." Jón Baldvin bendir á að stundum ræði menn niður- færsluleiðina fyrst og fremst varðandi launin, verðlagið og vextina. „Þetta er aö mínu viti misskilningur. Kjarninn í niðurfærsluleiðinni er sam- dráttur í fjármálum ríkissjóðs og i fjárfestingum hins opin- bera og atvinnuveganna.“ Hann segir miðað að því að veita fjármagn til að Ijúka verkinu, en ekkert til nýfram- kvæmda. Ráðgjafarnefndin leggur til að settir verði markaðsvextir á húsnæðislán. „Það er ekki stórt mál í þessu dærni," sagði Jón Baldvin aðspurður hvort kratar gætu samþykkt slikt. Hann sagði að menn yrðu að átta sig á því að ef „gengiskollsteypuleiðin“ yrði farin þýddi það hækkun láns- kjaravísitölunnar og aukna greiðslubyrði, sem trúlega yrði mun minni en samsvar- aði 1—1,5% vaxtahækkun.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.