Alþýðublaðið - 13.10.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 13.10.1988, Blaðsíða 1
AlÞTBVBUfilD EBI Fimmtudagur 13. október 1988 STOFNAÐ 1919 Neytendasamtökin með efasemdir um verðstöðvunina Hækkanir á landbúnaðarvör- um þrátt fyrir loforðin Jóhannes Gunnarsson for- maöur Neytendasamtakanna segir rangt aö nota oröiö verðstöðvun yfir þær aðgerö i verðlagsmálum sem tóku gildi um siðustu mánaöamót. „Eins og þetta er hugsað af hálfu ríkisstjórnarinnar heföi verið eðlilegra að kalla þetta „strangt verðlagseftirlit“. Það er því verið að nota rangt orð.“ Jóhannes bendir á að þrátt fyrir að rikisstjórnin hafi hækkað niðurgreiðslur með því fororði að kindakjöt ætti að lækka og yfirlýsingu um að nautakjötsverð ætti að vera óbreytt, þá hafi þaö ekki að fullu gengið eftir í land- búnaðarkerfinu. Með því að fært hafi verið til í flokkum nautakjöts segir Jóhannes, að nautakjötið hækki í verði. Þá segir hann Neytendasamtökin horfatil þess með kvíða ef sex- mannanefnd ákveði hækkanir á kjúklingum og eggjum. Ennfremur segir Jóhannes að viss ótti sé innan Neyt- endasamtakanna um að ein- hverjir innflytjendur taki upp þau ósæmilegu vinnubrögð, að ná sér i umboðslaun er- lendis og hækki innkaups- verðið á þann hátt. Sjá viðtal við Jóhannes á baksíðu. ,189. tbl. 69. árg. Jón Baldvin gerir upp við síðustu ríkisstjórn Engir samningar við Þorstein héldu — vegna þess að óagaður og sundurlyndur þing- flokkur Sjálfstœðisflokksins kom einatt í bakið á forsœtisráðherra Síldarvertíð komin í fullan gang Nýtt síldarverð er 17% hærra en það sem var fyrir. í gær var búið að salta 4000 tunnur á 13 sildarplönum. Síldarver- tíð er þvi komin i fullan gang, þótt enn sé ósamið við aðal- kaupendurna, Sovétmenn. Söltun er hafin á svæðinu frá Vopnafirði og suður að Höfn í Hornafirði hjá 13 söltunar- stöðvum af 18. í fyrradag var búið að salta í 4000 tunnur, en eins og Alþýðublaðið hefur greint frá, er búið að semja við Svía og Finna um kaup á 74 þúsund tunnum. Ekki hafa samningar náðst viö Sovétmenn ennþá. I gær voru um 5000 tunnur væntan- legar í land til viðbótar að sögn Kristins Jóhannessonar birgða- og söltunarstjóra hjá Síldarútvegsnefnd. Yfirnefnd verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur náð samkomulagi um nýtt sildar- verð, og var um 17% hækkun að ræða. Verð á síld yfir 33 cm er 8,90, á síld á bilinu 30 til 33 cm 7,50 og á síld á bil- inu 25 til 30 cm 4,20. Gert er ráð fyrir að kaupendur og seljendur komi sér saman um álag á verð á sfld sem fer til frystingar á Japans- markað. Það var nóg að gera hjá Pólarsíld á Fáskrúðsfirði í gær. Pólarsild hefur um arabil verið meðal stærstu söltunarstöðva. A-mynd/Helena Stefánsdóttir. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og formað- ur Alþýðuflokksins, gerir upp við siðustu ríkisstjórn í ítar- legu viðtali sem birtist i sér- stöku Reykjavíkurblaði Al- þýðublaðsins og dreift er með Alþýðublaðinu i dag. Jón Baldvin segir m.a. að ósættir Alþýðuflokks og Framsóknarflokks hafi lyft Þorsteini upp i forsætisráð- herrastólinn, að engir samn- ingar við fyrrum forsætisráð- herra hefðu haldið vegna þess að þingflokkur og ráö- herrar Sjálfstæðisflokksins hefðu einatt komið í bakið á Þorsteini Pálssyni, en aftur á móti hefðu samningar við Framsóknarflokkinn haldið. Jón Baldvin segir ennfrem- ur í viðtalinu, að Þorsteini Pálssyni, fyrrum forsætisráð- herra hafi ekki verið sýnt að bera klæði á vopnin eða leita lausna á málefnaágreiningi stjórnarflokkanna. Banamein síðustu ríkisstjórnar eru að mati formanns Alþýðuflokks- ins tillögur þær sem Þor- steinn Pálsson lagði fram í september til lausnar efna- hagsvandanum, sem að mati Jóns Baldvins voru bæði hroðvirknislega unnar og vit- laust reiknaðar. Jón Baldvin telur að aga- leysi og sundurlyndi í þing- flokki Sjálfstæðisflokksins hafi valdið því að samstarf Alþýðuflokksins og Sjálf- staeðisflokksins fór úrskeið- is. í viðtalinu i Reykjavíkur- blaði Alþýðublaðsins segir Jón Baldvin m.a.: „Ég viðurkenni að ég áttaði mig ekki á því hvílíkt brota- silfur þingflokkur Sjálfstæð- isflokksins var. Ég er ekki mikill „parlamentaríker"; ég er ekki mikið með í klúbbi þingsins. Ég hef ekki stund- að mikið að rækta þar kunn- ingja og fylgjast með slúðri um menn, velvild eða óvild manna, íhuga klikumyndanir og þess háttar í þingflokkum o.s.frv. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir brotalömum stærsta þingflokksins. Ég vissi í stórum dráttum af tog- streitu andstæðra fylkinga: Engeyjarættar og Thorodd- sena, framsóknarmanna og frjálslyndra, landsbyggöar og borgarríkis, fyrirgreiðslupot- ara og frjálshyggjumanna. í minni mæli er þessa tog- streitu aö finna í öllum flokk- um. En i þingflokki Sjálf- stæðisflokksins hafa próf- kjörin veikt svo stööu for- mannsins, að frjálslyndið hefur snúist upp í andhverfu sína: stjórnleysið. Ég áttaði mig ekki á því, til að byrja með, hvað hjörðin var agalaus og tvístruð. Og hvað það væri erfitt fyrir for- mann Sjálfstæðisflokksins að taka ákvarðanir og keyra þærgegnum þingflokkinn. Þótt við Þorsteinn handsöl- uðum lausn mála svo sem við afgreiðslu fjárlaga, þá var reynslan sú að menn komu í bakið á honum, bæði ráð- herrar flokksins og einstakir uppivöðsluseggir i þing- flokknum. Ég hef reyndar alltaf á tilfinningunni að þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins sé ekki rétt upp- lýstur um mál. Forysta flokksins á síðari árum er farin að líta á þessa menn sem vandræðagripi, sem ekki er trúandi fyrir málum. Þar fari ekki fram málefnaleg um- ræða sem leiði til niður- stööu. Forystumennirnir og trúnaðarmennirnir taka ákvarðanir; síðar kemur á daginn að það gleymdist að láta þingflokkinn vita. í þessum skilningi er þetta ekki þingflokkur, heldur ein- hvers konar málfundaklúbbur — eins konar Rotaryklúbb- ur,“ segir Jón Baldvin Hanni- balsson. SJÁ REYKJAVÍK — SÉRÚT- GÁFU ALÞÝÐUBLAÐSINS í DAG. Reykjavík — sérútgáfa Alþýðublaðsins PRENTAD í 40 ÞÚSUND EINTÖKUM Meðal efnis: Áform Jóns Sigurðssonar í iðnaðarráðuneytinu og uppgjör Jóns Baldvins við síðustu ríkisstjórn. Vegleg 24 bfaðsíðna sérút- gáfa um Reykjavik fylgir Al- þýðublaðinu í dag. Meðal efnis er ítarlegt viðtal rit- stjóra Alþýðublaðsins við Jón Baldvin Hannibalsson formann Alþýðuflokksins þar sem hann gerir upp við síð- ustu ríkisstjórn, leggur mat á störf hennar og einstakra ráðherra, lýsir samskiptum sinum viö forsætisráöherra og skiigreinir lif og banamein rikisstjórnar Þorsteins Páls- sonar. í Reykjavikurblaði Alþýðu- blaðsins ereinnig að finna efnismikið viötal við Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra um framtíðarverkefni (slend- inga á sviði iðnaðar og við- skipta. Kemur m.a. fram í máli ráðherra, að brýnasta verkefni iðnaðarráðuneytisins sé undirbúningur undir einn sameiginlegan markað Evrópubandalagsins 1992. Reykjavíkurblað Alþýðu- blaðsins inniheldur einnig greinar eftir Jóhönnu Sigurð- ardóttur félagsmálaráöherra um húsnæðismál, Láru V. Júlíusdóttur varaþingmann um dagvistunarmál, Bjarna P. Magnússon borgarfulltrúa um hugsanlegt bandalag minnihlutaflokkanna í borgar- stjórn, viðtal við Gest Ólafs- son fyrrum framkvæmda- stjóra á Skipulagsskrifstofu höfuðborgarsvæðisins um framtíðarskipulag borgarinn- ar og nágrennis, auk ítarlegra greina um mannfjöldasögu Reykjavikur og atvinnuskipt- ingu i höfuðborginni. Áskrifendur Alþýðublaðs- ins fá Reykjavíkurblaðið sjálf- krafa. Sérútgáfa Alþýðublaðs- ins, REYKJAVÍK, er auk þess borið út sérstaklega á heimili á höfuðborgarsvæðinu og prentað i 40 þúsund eintök- um. [ilMMMIII REYKJAVI HVaomrLAttJÚHUGUKOSSOHAOGSttAttDHHOMtR&OUt iU. ta rVAMUOfiRSKiPULAO HOritOBOHOARSV&mSI* Vto HVAÞ VtHHA RSYKVIKIHGAK? BtS. 33

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.