Alþýðublaðið - 23.12.1988, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.12.1988, Blaðsíða 1
Föstudagur 23. desember 1988 Verndarar rikisstjórnarinnar, þeir Óli Þ. Guðbjartsson og Stefán Valgeirsson, slógu á létta strengi i gær á loka- degi þingsins. A mynd/Magnús Reynir. Forsœtisráðherra hyggst treysta stjórnina í sessi SAMSTARF RÆTT FLJÚTLEGA w w EFTIR ARAMOT Of snemmt að tala um nýja ráðherra „Þetta kom mér ekkert á óvart. Ég vissi að það væru ýmsir stjórnarandstæðingar á þingi sem vildu skoða mál- in efnisiega, en ekki einungis frá sjónarhóli stjórnarand- stæðingsins. Það kom í Ijós þegar á reyndi,“ sagði Stein- grimur Hermannsson forsæt- isráðherra við Alþýðublaðið i gær. Steingrímur sagði að rætt yrði við stjórnarandstöð- una um efnahagsmálin, sér- staklega atvinnumálin. „í tengslum við það geri ég ráð fyrir að rætt verði um hvernig hugsanlegt samstarf geti orðið. Það kemur væntanlega í Ijós fljótlega eftir áramót- in.“ Frá þvl Albert Guðmunds- son tók boði Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráð- herra um taka við starfi sendiherra íslands í Paris hafa mál þróast hratt á Al- þingi. Tveir þingmenn Borg- araflokksins, Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir og Óli Þ. Guðbjartsson, treystu ríkis- stjórnina I sessi með þv( að verja bráðabirgöalög falli I neðri deild þingsins með hjá- setu. Auk þess greiddi Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir at- kvæöi meö frumvörpum um tekju- og eignaskatt og vöru- gjald. „Borgaraflokkurinn hefur sýnt mestan vilja til að taka á þessu eftir málefnum," sagði Steingrlmur þegar blaðið spurði hann hvort hann myndi snúa sér beint aö Borgaraflokknum. Hann sagði þó engar sérstakar ákvarðanir hafa verið teknar um viðræður við Borgara- flokkinn eða aðra flokka. Jafnframt sagði hann allt of snemmt að ræða um hvort nýir menn tækju sæti I rlk- isstjórn. Stóru tekjuöflunarfrum- vörpin voru afgreidd frá Al- þingi I gær og lauk þar með þingstörfum á þessu ári. Þing kemur aftur saman 4. janúar og verða þar fjárlögin og bráðabirgðalögin á dag- skrá. Þingmenn fara slðan aftur f frl, út janúar. Afgreidd- ar voru greiðsluheimildir fyrir fjármálaráðherra I gær, þar sem fjárlög fá ekki afgreiöslu á þessu ári. 229. tbl. 69. árg. Óli Þ. Guðbjartsson Afstaðan til braða- birgðalaganna óháð næstu viðfangsefnum „Forystumenn Borgara- flokksins hafa margoft lýst því yfir að við séum reiöubú- in til viðræöna um stjórnar- samstarf, ef svo býður viö að horfa. Hvort þær aðstæður koma til með að skapast, skal ég ekkert um segja,“ sagði Oli Þ. Guðbjartsson þingmaður Borgaraflokksins þegar Alþýðublaðið spurði hann hvort til greina komi að Borgaraflokkurinn komi inn í stjórnarsamstarfið. Óli sagði jafnframt að afstaða hans til bráðabirgðalaganna væri ger- samlega óháð næstu við- fangsefnum. Við atkvæöagreiöslu I, neðri deild Alþingis sat Óli Þ. Guðbjartsson hjá, ásamt Að- alheiði Bjarnfreðsdóttur og tryggði rikisstjórninni þar með meirihluta í deildinni. Afstaða hans virtist koma ýmsum félögum hans á óvart og lýsti Albert Guðmundsson fráfarandi formaður flokksins yfir óánægju sinni. „Eins og ég sagði þegar ég gerði grein fyrir atkvæði mínu, fannst mérvera ábyrgðarhluti að koma í veg fyrir staðfestingu bráða- birgðalaganna. Þetta snýst einfaldlega um að fá ekki at- vinnulífið út um land í meira uppnám en orðið er. Auk þess stuðlar þetta að því að fá meiri festu I stjórnmála- ástandið, en ég tel það bráð- nauðsynlegt," sagði Óli. Þingmaðurinn sagði að af- staða hans til bráðabirgða- laganna væri sérmál. „Þetta var mál dagsins, en gersam- lega óháð næstu viðfangs- efnum, — á mínum vettvangi eða annarra." Búsetaréttur tryggður í kaupleigukerfinu Eftir breytingar sem Al- þingi hefur samþykkt að gera á lögum um Húsnæðisstofn- un rikisins er búseturéttur tryggður í kaupleigukerfinu, en nokkur óvissa hefur rikt um rétt manna i búsetakerf- inu. Eftir breytinguna fær húsnæðissamvinnufélagið Búseti úthlutað lánum á grundvelli félagslegra kaup- leiguibúða. ‘Það má segja að þær ibúðir sem Búseti hefur reist fái fjármagn á grundvelli þessara laga, þannig að hér er um að ræöa fyrstu félags- legu kaupieiguibúðirnar i Reykjavik,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð- herra við Alþýðublaðið í gær. Jóhanna sagði að með þessari breytingu hefði mikill árangur náðst. „Þetta mun koma mjög mörgum til góða, sérstaklega félagasamtökum eins og t.d. samtökum aldr- aðra og fatlaðra sem vilja byggja íbúðir á félagslegum grunni og tryggja þar með fé- lögum sínum búseturétt í ibúðum. Fólk þyrfti einungis að leggja fram 15% og síðan yrði um hóflega leigu að ræða.“ Félagsmálaráðherra benti á að þetta veitti sveitarfélög- um og öðrum aðilum heimild til að fá lán úr Byggingar- sjóði verkamanna fyrir 85% af kostnaði. Þeir sem vildu leigja íbúðirnar greiddu síðan 15% sem ávantar auk hóf- legrar leigu. Með þvl móti þyrftu t.d. sveitarfélögin ekk- ert að leggja fram. Með þessari síðustu breyt- ingu telur Jóhanna að félags- lega kaupleigukerfið feli í sér alla þá kosti sem er að finna I verkamannabústaðakerfinu og leiguibúðum sveitarfé- laga. „Þannig að ég teldi mjög til góðs ef menn vildu skoða það með jákvæðum hætti að einfalda félagslega kerfið og byggja á þessum lagagrunni sem nú hefur fengist," sagði Jóhanna Sig- urðardóttir. flukin kaupmáttur milli ára Kaupmáttur launa jókst um 3,2% frá 3. ársfjórðungi 1987 til 3. ársfjórðungs 1988. Þetta kom fram i könnun Kjara- rannsóknarnefndar. Greitt tlmakaup landverka- fólks á samningssviöi Al- þýðusambandsins hækkaði um 32,4% á þessu tlmabili meðan framfærsluvlsitalan hækkaði um 28,3%, og jókst þvf kaupmátturinn um 3,2%. Skrlfstofufólk hækkaöi mest f launum á þessu tfmabili, eöa um 40,2%.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.