Alþýðublaðið - 06.05.1989, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.05.1989, Blaðsíða 3
Laugardagur 6. maí 1989 3 Líkur á málamiðlun innan NATO um frestun á endurnýjun skammdrœgra kjarnavopna í Evrópu: Mjög ásættanleg niður- staða fyrir íslendinga segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra. Bœgir frá hœttunni á fjölgun slíkra vopna á og í hafinu í kjölfar fœkkunar á landi. „Seinustu fregnir herma að vaxandi líkur séu é að samkomulag takist um þetta mál sem verði endanlega staðfest á leiðtogafundi NATO í lok mánaðarins. Það samkomulag felur sér að ákvörðun um endurnýjun skammdrægra kjarna- vopna verði frestað þangað til betur verði séð fyrir endann á niðurstöðum afvopnunarvið- ræðna í Vín um hefðbundin vopn. Og á hinn á bóginn, að í miilitiðinni verði ekki gengið til samninga við Sovétmenn um fækkun skamm- drægra,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson utan- rikisráðherra í samtali við Alþýðublaðið. Þær deilur sem risið hafa innan NATO um þá stefnu þjóðverja að þegar verði tekin ákvörðun um að endurnýja ekki skamm- dræg kjarnavopn í Evrópu. Jón Baldvin segir að mála- miðlunin, sem virðist ætla að takast, sé fyllilega á - sættanlegfyrir íslendinga, ekki síst vegna þess að hún bægi frá hættunni á frekari fjölgun slíkra vopna í haf- inu í kjölfar afnáms eða fækkunar á landi. Um þau sjónarmið sem hvíla á bak við í umræð- unni um skammdræg vopn i Evrópu, segir Jón Bald- vin: „ í fyrsta lagi er þetta einn af þeim þáttum vig- búnaðarkerfisins þar sem yfirburðir Sovétrikjanna eru yfirgnæfandi. Þeir liafa á að skipa skamm- drægum eldflaugum, 15 á móti einni af hálfu Atl- antshafsbandalagsins, og eru þegar á veg komnir með endurnýjun á sínum flaugum. í öðru lagi eru augljós tengsl á milli stöð- unnar að því er varðar venjulegan herafla og venjuleg vopn og spurning- arinnar um tilvist og end- urnýjun skammdrægra kjarnavopna." Óumdeildir yfirburðir Sovétmanna „Bæði Atlantshafs- bandalag og Varsjár- bandalag hafa gert hreint fyrir sínum dyrum í upp- hafi samningaviðræðna í Vín um jafnvægisleysið að því er varðar venjulegan herafla og vopn. Þar er það staðfest, án ágreinings, að yfirburðir Sovétmanna eru verulegir. Þetta á sérstak- lega við um mannafla und- ir vopnum, skriðdreka og svokallaðar brynvarðar sóknarsveitir, þar sem yfir- burðir Sovétmanna eru miklir. Jafnframt hefur það verið ríkjandi kenning á vegum Varsjárbandalags- ins, að þeirra herafli væri sniðinn að árásarþörfum, þ.e.a.s. að hann væri undir það búinn að hefja leiftur- sókn með það að mark- miði að hernema land og halda því. Nú hefur því verið lýst yfir af hálfu Sovétmanna, að þeir hafi fallið frá þess- ari herfræðilegu hugsun. Þeir hafa í staðinn sett fram kenningu um varnar- kerfi og að vopnabúnaður skuli miðast við eðlilegar varnarþarfir. í þeim tillög- um um afvopnum sem báðir aðilar, Atlantshafs- bandalagið og Varsjár- bandalagið, hafa sett fram er kominn nokkuð góður grundvöllur fyrir samning- um, því að ágreiningur um tölu vopna er ekki lengur fyrir hendi og tillögur beggja aðila ganga mjög í svipaða átt. Hvatning um betri árangur á sviði_______ hefðbundinna vopna Þriðji punkturinn er síð- an sá, að tilvist kjarna- vopna af hálfu Atlants- hafsbandalagsins hefur frá upphafi vega verið rök- studdur með því að yfir- burðir Sovétmanna á sviði hefðbundinna vopna væru svo yfirþyrmandi. Ef þeim yfirburðunt er eytt og sam- komulag tekst um jafn- vægi á sviði hefðbundinna vopna og herafla, sam- komulag tekst um að ekk- ert ríki í álfunni hafi á að skipa herafla og venju- bundnum vopnum sem dugi til skyndiárása eða hernáms, þá hefur það augljós áhrif á spurningar um endurnýjun kjarna- vopna. Það er að segja: Takist að eyða þessari meg- inundirrót tortryggni í samskiptum austurs og vesturs, sent falist hefur í yfirburðum Sovétmanna á sviði venjulegra vopna, þá hefur það auðvitað áhrif á það þegar Atlantshafs- bandalagið þarl' að taka til ákvörðunar spurninguna um endurnýjun kjarna- vopna eða ekki, Þetta er allt rökstuðn- ingur fyrir því, að skyn- samlegt sé að fresta þessari ákvörðun. í þvi felst líka ákveðin hvatning til Var- sjárbandalagsins, að þeim mun skjótvirkari og betri sem árangurinn verður á sviði hefðbundinna vopna, þeim mun meiri líkur eru á því að ekki þurfi að koma til ákvörðunar um endur- nýjun skammdrægra kjarnavopna af hálfu Atl- antshafsbandalagsins, allavega mundi slík niður- staða greiða mjög fyrir gagnkvæmum samningum um verulega fækkun þeirra. Sú fækkun þyrfti hins vegar að vera mun meiri af hálfu Varsjár- bandalagsins vegna fimm- tánfaldra yfirburða þeirra að þvi er varðar skamm- dræg kjarnavopn.“ Minni likur á fjölgun vopna á og í höfun um — Hver er afstaða ís- lendinga i þessu máli? „í skýrslu utanríkisráð- herra til Alþingis kom fram, að út frá okkar bæj- ardyrum séð, væri ekki úti- lokað að taka ákvörðun nú um endurnýjun, en við vildum tengja það spurn- ingunni um árangur í hefð- bundnum vopnum. Mér sýnist því að þessi mála- miðlun sem viröist vera að takast sé mjög ásættanleg út frá okkar sjónarmiðum. Vegna þess að þar eru þessi tengsl viðurkennd og lögð til grundvallar. Einn þáttur þessa máls varðar sérstaklega hags- muni okkar íslendinga, þ.e. spurninga um næsta áfanga afvopnunarmála, sem að okkar mati á að l'jalla um afvopnun á og í höfunum. Það er mjög margt sem bendir til þess, að ef þýska línan yrði ofan á, þ.e.a.s. ef ákvörðun hefði verið tekin nú þegar um að endurnýja ekki skamm- dræg kjarnavopn í kjölfar samningsins frá því í des- ember ’87 um að útrýma meðaldrægum flaugum, þá hefði hættan aukist á því að stórveldin brygðust við með því að fjölga kjarnavopnum á og i höf- unum. Út frá þeim bæjar- dyrum séð hefði verið ó- heppilegt fyrir okkur ef ein- hver ákvörðun hefði verið tekin nú. Ég hygg því að málamiðlunin sem líklega verði ofan á sé í samræmi við það sem við getum skil- greint sem íslenska hags- muni. Hún niyndi a.m.k. bægja frá hættunni á því, að um verði að ræða frek- ari fjölgun kjarnavopna i hafinu í kjölfar ákvörðun- ar um afnám eða fækkun slíkra vopna á landi,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra við Al- þýðublaðið. Ekki er lengur deilt um gifurlega yfirburöi Sovétmanna i skammdrægum vopnum í Evrópu. Þeir hafa á að skipa 15 skammdrægum eldflaugum á móti hverri einni af hálfu NATO. Myglað kjöt á markað: w w FRETTASKYRING Fridrik Þór Guömundsson ----------------- skrifar I óþéttum bílum og óhreinum gámum Hagsmunagœslan í landbúnaðinum tryggir að sjónarmið framleiðenda eru allsráðandi en neyt- endur standa varnarlausir. Frétt Alþýðublaðsins um að miklu magni af óneysluhæfu og jafnvel mygluðu nautakjöti hafi verið hleypt á markaðinn hefur að vonum vakið nckkra athygli. Ekki hefur fengist staðfest hversu nékvæmlega mikið af óneysluhæfu kjöti komst alla leið til neytenda, í gegnum verslanir, mötuneyti eða veitingastaði. Margir kaupmenn og aðstandendur matstaða munu eftir innbyrðis könnun hafa skilað sínum skömmtum umsvifa- laust, enda sást myglan i einhverjum tilvika mjög greinilega, þrátt fyrir að verstu bitarnir hafi verið skornir af hjá SÍS eftir mat kjötmats- formanns. Það er fátt nýtt við það að matvæli greinist nteð of mikinn gerlafjölda. Fræg eru algeng og nýleg dæmi um óhóflega hatt hlutfall gerla í kjöthakki og farsi og þykir þá einkum óhugn- anlegt hversu mikið af saurkóligerlum mælist í þessum afurðum. Á ári hverju berast Holl- ustuvernd talsvert magn af matvælasýnum til gerla- rannsókna. Taka má sem dæmi árið 1986, þegar alls 2.106 sýni bárust, en lang stærsti hlutinn var sendur af heilbrigðisnefndum víðs vegar af landinu. Alls 476 sýni bárust af kjötfarsi og hakki. Alls 227 sýni bárust sem sýndu fram á ósölu- hæfa vöru eða 47,7%. Með öðrum orðum var helming- ur sýnanna með þeim hætti að lögum samkvæmt mátti ekki bjóða neytendum upp á vöruna. 52 sýni til viðbót- ar eða 10,9% bentu til gall- aðrar vöru og var því minnihlutinn flokkaður sem söluhæfur. Ófullkomnir bilar — óhreinir gámar Sem betur fer sjást slíkar tölur vart þegar unt önnur matvæli ræðir. Til að mynda mældist aðeins 2,7% sýna af kinda- og lambakjöti ósöluhæft og 3,1% af nauta- og kálfa- kjöti. 20% sýna af ali- fuglakjöti mældist ósölu- hæft og nær helmingur sýna af hráum bjúgum. Þessi nær 500 sýni greindust ósöluhæf af fjór- um aðal ástæðum, sem stundum skarast. í 288 til- vikum (61,4%) reyndist um of mikinn heildargerla- fjölda að ræða. í 218 tilvik- um (46,5%) var of mikið af kólígerlum að ræða. í 99 tilvikum (21,1%) var fjöldi saurkólígerla aðfinnsluat- riði og í 27 tilvikum var of mikið af svo kölluðum stafylokokkum. Þeim afurðum sem hættast er við of miklum heildargerlafjölda eru hrá- ar kjötvörur, unnar soðnar kjötvörur, álegg, samlok- ur, tilbúinn matur og salöt. Of mikill kólígerlafjöldi einkennir helst hráar kjöt- vörur, hráar fiskvörur, samlokur og salöt, en saurkólígerlarnir fyrir- finnast mest i farsi og hakki. Á vorfundi heilbrigðis- fulltrúa 1987 fjallaði Sig- urður Ö. Hansson dýra- læknir, forstöðumaður rannsóknarstofu búvöru- deildar SÍS, um kjötflutn- inga, dreifingu og eftirlit. Hann greindi frá því að ástandið færi batnandi og að hjá stærri sláturleyfis- höfum væri ástandið’ al- mennt gott. Af orðum hans má ráða að helsta vandamálið sé flutningur á kjöti langar leiðir í ófull- komnum bifreiðum. „Hins vegar er ástandið verra þegar flytja þarf kjöt með skipum hér innanlands. „Gámar eru oft óhreinir, þeir virðast notaðir til að flytja ýmiss konar varning út á land og eru ekki hreinsaðir og þvegnir áður en kjöt er sett í þá til flutn- ings til Reykjavikur.“ Pólitisk_____________ hagsmunagæsla________ Greinilegt er á öllu að of mikið af gerlamenguðum mat er í umferð. Myglaða nautakjötið sem Alþýðu- blaðið greindi frá er því miður ekki einsdæmi, en sem betur fer sjaldgæfur atburður. Það virðist ger- ast endrum og eins að hæpnu kjöti er hleypt í gegn, kannski eftir „hreinsun“. Einn viðmæl- andi okkar taldi einsýnt að pólitík spilaði þar inn i, nánar tiltekið landbúnað- arpólitíkin og byggðastef n- an. Hæpið kjöt kemur einkum frá hinunt fámenn- ustu byggðalögum og þeim sem eru lengst frá höfuð- borgarsvæðinu, þangað sem allt kjöt fer. Annar viðmælandi okkar benti á að sums staðar væru menn það samviskulausir að senda með kjöt af heima- slátruðu og þá gjarnan illa meðhöndluðu. Með öðrum orðum gæt- ir hagsmuna framleiðenda og SÍS-veldisins i heild i öllu ferlinu, meðan neyt- endur og aðrir kaupendur vörunnar eru varnarlausir. Hagsmunagæslan á þess- um vettvangi ríður ekki við einteyming, eins og berlega kom frant í skýrslu Rikis- endurskoðunar, sem hefur sent frá sér þá niðurstöðu að Jón Helgason hafi breytt reglum um búvöru- samninga. Þessar breyting- ar hafi aukið ríkisútgjöld og hafi ekki átt sér lagastoð! / /

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.