Alþýðublaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 8
Félag íréttamanna: Verkstjórn ekkií verkahring Útvarpsróðs Félag fréttamanna mót- mælir afskiptum Utvarps- ráðs af störfum þingfrétta- ritara sjónvarpsins. Félag- ið sendi formanni útvarps- ráðs, Ingu Jónu Þórðar- dóttur, bréf þessa efnis í gær. Útvarpsráð sam- þykkti einróma fyrir nokkrum vikum tilmæli til fréttastjóra sjónvarpsins þess efnis, að annar frétta- maður yrði settur við hlið Ingimars Ingimarssonar í fréttaflutningi af Alþingi. Bogi Ágústsson, frétta- stjóri, sjónvarpsins, sendi út- varpsráði þau skilaboð til baka að hann bæri fullt traust til Ingimars. Tveir fulltrúar í ráðinu, þeir Magnús Erlends- son, Sjálfstæðisflokki og Rún- ar Birgisson, Borgaraflokki, létu þá bóka að þeir teldu „óviðunandi" að Ingimar Ingimarsson sæi áfram einn um þingfréttir sjónvarpsins. Yfirlýsing sú sem stjórn Fé- lags fréttamanna sendi for- manni Útvarpsráðs í gær var svohljóðandi: „Vegna afskipta útvarps- ráðs af störfum þingfréttarit- ara sjónvarps vill stjórn Fé- lags fréttamanna taka fram: Stjórnin telur það ekki í verkahring Útvarpsráðs að hlutast til um verkstjórn í ein- stökum deildum Ríkisút- varpsins. Stjórn FF mótmælir framgöngu Útvarpsráðs í þessu máli og varar við for- dæmi sem með henni er sett.“ Þriðjudagur 24. okt. 1989 Fólk Eggjakvóti leigður út Norðurlandaráð hefur gefið út bókina „Mamma fer á þing“ eftir Steinunni Jóhannesdóttur og er hún þessa dagana að fara í dreifingu, en hana ann- ast hér á landi Bjallan hf. í bókinni er að finna teikningar eftir Ib Rab- hek Clausen. ★ Ný plata er komin út frá Lýö Ægissyni, hans þriðja plata til þessa. Að vanda fjalla lögin um hin ýmsu efni. T.d. fjallar lagið „Landið mitt“ um íslend- ing sem Lýður hitti og hafði verið víða erlendis að leita að iífshamingj- unni en það var ekki fyrr en hann kom heim aftur að hann áttaði sig á að „við byggjum besta, fal- legasta og Ijúfasta land í heimi“, eins og hann orð- aði það. Annað lag er t.d. Bjórdagurinn, sem fjallar um einn af ölkunum sem sprakk á B-daginn, „en eins og oft vill verða með okkur alkana sér hann ekkert athugavert við ástandið og því síður tek- ur hann eftir því að hann er kominn með buxurnar á hælana." Þeir félagar Fridrik Þór Fridriksson kvikmynda- gerðarmaður og Ivar Gissurarson, hafa nýlokið við gerð heimildarmynd: ar um Reykjavíkurhöfn. í stuttu spjalli við Alþýðu- blaðið sagði lvar að þessi mynd hefði verið nokkuð lengi í smíðum, hug- myndina hefðu þeir félag- ar fengið fyrir einu og hálfu ári og borið undir hafnarstjórn sem sam- þykkti hana. Myndin seg- ir sögu gömlu hafnarinn- ar allt frá landnámi, reyndar segir ívar að hratt sé farið yfir sögu þar til eiginleg hafnargerð hafi hafist í Reykjavík. Myndin einskorðar sig að mestu við görmlu höfn- ina en einnig er nokkur grein gerð fyrir nýrri höfnum sem heyra undir hafnarstjórn. Myndin er 40 mínútur að lengd og byggir töluvert á gömlum teikningum, ljósmyndum og kvikmyndum. Einnig eru í myndinni viðtöl við nokkrar aldnar kempur sem ívar sagði að verið hefðu hafsjór af fróðleik. ívar Gissurarson skrifaði handrit og texta að mynd- inni en Friðrik Þór stjórn- aði kvikmyndatöku, klippingu og öðrum tækniatriðum. EFTA-EB: Aðilar sammála um jákvæðan árangur A fundi stjórnarnefnda EFTA og EB sl. föstudag náðist sameiginleg niður- staða um jákvætt mat á að vinna undirnefnda hefð'v náð árangri og haldið áætlun í þeim könnunar- viðræðum sem staðið hafa yfir að undanförnu. Nefndarálitiö hefur verið þýtt á íslensku og sent ríkis- stjórninni og utanríkismála- nefnd Alþingis. Um nefndar- álitið verður fjallað á ríkis- stjórnarfundi næstkomandi sunnudag. „Þessi fundur markaði ákveðin þáttaskil eftir alla þá vinnu sem á undan hefur gengið, því báðir urðu sam- mála um að árangur hefði náðst og um að halda áfram þessum könnunarviðræðum um hvort taka eigi upp form- legar samningaviðræður á næsta ári. Þá má ljóst vera að ríki EFTA lala einni röddu frammi fyrir EB“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson í sam- tali við Alþýðublaðið. Þriöja stœrsta eggja- búid hœtt fram- leiöslu og rekur nú bara leigustarfsemi. Tvö hænsnabú, Nesbúið og búið á Vallá á Kjalarnesi, hafa á leigu eggjakvóta hins þriðja, Holtabúsins á Ásmundarstöðum. Á Ás- mundarstöðum er nú ekki í gangi nein framleiðsla á vegum Holtabúsins en hús- in eru að hluta til leigð kjúklingafyrirtækinu Reykjagarði. Ekki hefur fengist upp gefið hversu há leiga greiðist fyrir eggja- kvótann. Jón Jóhannsson, einn Ásmundarstaða- bræðra staðfesti í samtali við Alþýðubiaðið að Holta- búið hefði ekki rekið neina framleiðslu síðan seinni-partinn i vetur en vildi ekki gefa frekari upp- lýsingar. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasam- takanna, sagðist í samtali við Alþýðublaðið sjálfur hafa fengið það staðfest að Vallárbúið og Nesbúið leigðu eggjakvóta Holta- búsins. Hann bætti því við að það sýndi afar vel fárán- leika kvótakerfis í fram- leiðslunni að menn sem ekki væru í framleiðslu skyldu samt geta fengið peninga út úr henni. Upplýsingar um þetta Leigugjald eggjakvóta fæst ekki gefið upp, en ef gengið er út frá leigu framl eiðslurettar í hefö- bundnum búgreinum, má reikna með að leigugjaldið kunni aö vera 25—30 krónur fyrir kílóið eða um tiundi hiuti heildsöluverðs. mál liggja raunar alls ekki á lausu og engu líkara en mikill þagnarmúr hafi ver- ið reistur kringum fram- leiðslurétt eggjabænda yf- irleitt. Þannig er t.d. bann- að samkvæmt úrskurði tölvunefndar að birta upp- lýsingar um framleiðslurétt einstakra eggjabænda. Holtabúið mun hins vegar hafa verið þriðji stærsti eggjaframleiðandinn og samkvæmt heimildum Al- þýðublaðsins mun ekki allt- of fjarri lagi að áætla að kvóti Holtabúsins sé á bil- inu 250—350 tonn á ári. Félag eggjabænda er um þessar mundir að velta fyr- ir sér að kaupa upp 120 tonna framleiðslurétt Reykjagarðs í Mosfellsbæ og hefur verðið 30 milljónir króna verið nefnt í því sam- bandi. Ef reiknað er með að svipuð hlutföll milli sölu og leigu gildi um eggjakvóta og í gildi eru í hinum hefð- bundnu búgreinum mun láta nærri að leigugjaldið sé á bilinu 25—30 krónur fyrir hvert kíló framleiðslu- réttar. Þetta er nálægt því að vera tíundi hluti heild- söluverðs en það er nú 275,70 kr. Þessar tölur hafa vissu- lega ekki fengist staðfestar, en munu þó samkvæmt heimildum blaðsins ekki vera mjög fjarri réttu lagi. Samkvæmt þessu gæti heildarleigugjald fyrir eggjaframleiðslurétt Holta- búsins verið á bilinu 6—10 milljónir króna. ÍSLAND Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag Hitastig iborgum Evrópu kl. 12 i gær að islenskum tíma.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.