Alþýðublaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 14.11.1989, Blaðsíða 2
2 Þriðjudagur 14. nóv. 1989 MnMI11)D) Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blað hf. Flákon Flákonarson Ingólfur Margeirsson Kristján Þorvaldsson Sigurður Jónsson Leturval, Ármúla 36 Blaðaprent hf. Áskriftarsíminn er 6Ö1866 Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 75 kr. eintakið. ELDHUGAR OG HÆLBITAR Ríkissjónvarpið sýndi nýverið fróðlega heimildarmynd í tveim- ur hlutum um Jónas Jónsson frá Hriflu. Eins og öllum áhuga- mönnum um stjórnmál og þjóðmálasögu er kunnungt, þá spunnust miklar og harðvítugar deilur um þennan mikla stjórn- málaskörung og hugsjónamann er líða tók á ævi hans. Deilurnar og átökin urðu ekki minnst innan Framsóknarflokksins sjálfs og að lokum var Jónas, mesti leiðtogi og hugsuður flokkins á þess- ari öld, hrakinn í pólitíska útlegð. Heimildarmynd Sjónvarpsins kastar lítilsháttar Ijósi á þær ógeðugu aðferðir sem notaðir voru í þessu pólitíska stríði þar sem öllum brögðum var beitt og ekki síst rógburður og ærumeiðingar hafðar frammi. Annar mikill hugsjónamaður á þessari öld, Einar Benediktsson skáld og umsvifamaður, lenti líkt og Jónas frá Hriflu, um tíma í hinni miklu rógsmaskínu landa sinna. Jónas og Einar voru um margt svipaðir; miklir hugsjónamenn og eldhugar, menn sem unnu ættjörð sinni og vildu hag hennar og þjóðarinnar sem mestan. Hinn stórhuga vilji þessara tveggja manna kom ekki síst fram í miklum hugmyndum og framkvæmdum sem samtíma- menn þeirra með minni hjörtu áttu stundum erfitt með að kyngja. Jónas og Einar voru því á undan sínum tíma. En margar hugmyndir sem þeir mörkuðu og voru oft hæddir fyrir, hafa reynst réttar og eru nú á borði ráðamanna. Hvern hefði órað fyrir að hugmyndir Einars Benediktssonar fyrir 70 árum um orkuvirkj- un séu nú að fá byr undir báða vængi meðal þjóðarinnar? Og þannig má áfram upp telja. IVIeðal verstu lasta í lundarfari íslendinga eru smámunasemi, meinfýsi, vanþekking og þröngsýni. Einar Benediktsson og Jón- as frá Hriflu voru andstæður þessara lasta. Þeir voru stórhuga og djarfir heimsborgarar sem höfðu víðan skilning og þekkingu á þeim verkefnum sem þeirtóku sér fyrir hendur. Þegar pólitísk at- laga var gerð gegn hugmyndum þeirra og framkvæmdum, gripu andstæðingar þeirra til sömu vopna; rógburðar um persónu þeirra sem féll í góðan jarðveg vanþekkingar, meinfýsi og öfund- ar. Hað er athyglisvert að enn skulu þessar aðstæður vera fyrir hendi í íslensku þjóðfélagi. Þótt við séum nú senn að ganga inn í síðasta áratug tuttugustu aldarinnar, hika ekki ýmsir stjórnmála- menn við að ganga aftur á bak í tíma og rúmi og grípa til hinna siðlausu bragða sem beitt var á Einar og Jónas forðum. í dag blasa við heillandi verkefni fyrir land og þjóð í nýrri og aukinni samvinnu við erlend ríki og einkum nýja Evrópu. Við eygjum nú nauðsynlega heilaruppstokkun á íslenskum atvinnuvegum og ísland á meiri möguleika en nokkru sinni fyrr að tengjast atvinnu- og viðskiptamarkaði alheimsins. Að þessum málum vinna nú margir af ráðherrum ríkisstjórnarinnar af stórhug og atorku. Á þessum tímum, þegar saman fara miklir erfiðleikar í íslensku at- vinnulífi þar sem hið lokaða hagkerfi er að renna sitt skeið á enda og nýir möguleikar opnast á erlendum mörkuðum sem aldrei fyrr, er það krafa þjóðarinnar að stjórnmálaflokkar sýni ábyrgð og festu um þjóðarheill. Stærsti stjórnmálaflokkur landsins, Sjálf- stæðisflokkurinn, hefur brugðist í þessum efnum. Réttara er þó að segja að forysta flokksins hafi brugöist. Forysta Sjálfstæðis- flokksins með formann, varaformann og þingflokkinn í broddi fylkingar beitir nú öllum kröftum sínum til að beita pólitíska and- stæðinga sína svo lágkúrulegum brögðum að menn þurfa að leita aftur til andstæðinga Einars Benediktssonar og Jónasar frá Hriflu til að finna hliðstæður. Þessi siðlausa herferð sjálfstæðis- manna er undir formerkjum siðbótar. Og enn er spilað á lægstu strengi þjóðarsálarinnar; meinfýsi, öfund, vanþekkingu og þröngsýni. Fjölmiðlar virðast stjórnast af sömu lágkúrunni. Þeir bregðast hins vegar hraplega upplýsingaskyldu sinni þegar hin stóru hagsmunamál þjóðarinnar eru annars vegar. Fólkið í land- inu veit allt um kjóla Guðrúnar Helgadóttur forseta sameinaðs þings, en ekkert um EFTA eða Evrópubandalagið. í þessu and- rúmslofti vanþekkingar, þröngsýni og meinfýsi þrífast dagfarar þessa lands og forysta Sjálfstæðisflokksins, líkt og hælbítar eld- huganna Einars og Jónasar frá Hriflu forðum. í rás sögunnar er nöfnum eldhuganna þó ætíð haldið hærra á loft en hælbítanna. ÖNNUR SJONARMIÐ BLESSAÐUR veri bókaskatturinn segir í fyrirsögn í DV í gær yfir grein ritaðri af Guðbergi Bergssyni rithöf- undi. Listamenn líkt og bændur hafa löngum talið það ósvinnu að vera skattlagðir eins og aðrir þegn- ar þjóðfélagsins. Nú þegar fyrir dyr- um stendur að taka upp virðisauka- skatt blossar en upp umræðan um hver og af hverju skuli greiða skatt. Væntanlega verður enginn skattur greiddur af bókum sem eru einskis virði en þær sem einhvers virði eru verði skattlagðar. En lítum á hvað Guðbergur hefur um bókaskattinn að segja: „I staðinn fyrir þá reiði, sem kveinstafir í blaðagreinum und- an bókaskattinum eiga að vekja, hlýtur hann að vekja gleði hvers frjáls og hugsandi rithöfundar. Þeir kunna að vera fáir eftir ■ heiminum. Vegna þess að sökum „þróunar" í list, landsmálum og heimsmálunum, stunda þeir orð- ið fremur bókhald en bókmennt- ir, af ótta við Skattstofuna, í þeim reyfara réttlætisins sem þjóðfé- lagið er orðið. Eða þeir stússast í eilífri markaðskönnun, hvað varðar efni væntanlegrar skáld- sögu. Hvað sem nýfrjálshyggju líður og kennimönnum hennar, voru íslenskar bókmenntir farnar að „stíla upp á markað“ löngu á undan þeim; með jólabókamark- aðnum. Islenskar bækur seljast ekki nema á útsölum og mörkuðum. Bómenntirnar lifa aðeins í nokkrar vikur f yrir jól. Og það er alltaf verið að „þétta“ mark- aðstímann fyrir helgihaldið. Nú vita rithöfundar að þrjár vikur eru nóg, og starfa eftir kjörorð- inu: Bókin á að hitta beint á budduna og bragðlauka lesand- ans. Skelfing held ég að þessi kenning mundi gleðja Margrétu Thatcher. Gildi bóka í flugstöðvum Það kemur út mikið af bókum eftir „markaðshæfa“ rithöf- unda, salan er í svo góðu lagi, ef marka má það sem í dagblaða- greinum stendur gegn bóka- skattinum, að fyrir tekjur ríkis- ins af honum væri hægt að reisa eina Þjóðarbókhlöðu fimmta hvert ár og Leifsstöð á heldur fleirum. Á þetta hafa ýmsir rit- höfundar bent. Eg veit ekkert um fagurfræði eða bókmennta- legt gildi þessarar kenningar, en hún sannar það, að rithöfundar eru orðnir færir í bókhaldi. Getur rithöfundur þá annað en glaðst yfir „áþreifanlegu“ gildi sínu? Hvar í „vestrænum menn- ingarlöndum", annars staðar en hér, hefur gildi bóka verið reikn- að í byggingu flugstöðva? Munu hinir skörpu íslensku gagnrýn- endur fara að ræða héðan í frá um „byggingarvísitölu innviða verksin8“? Mér finnst útreikningurinn vera afar skáldlegur. Það að skáld spyrði saman skatt á bók- um, flug og bókhlöður, merkir að þau róa á sannkölluð andleg mið. EKKI líta allir sömu augum þá þró- un mála sem hefur og er að eiga sér stað í Austur-Evrópu. I þjóðviljanum á laugardaginn birtist viðtal við Ólaf Þ. Jónsson vitavörð norður á Horn- bjargi sem er betur þekktur undir nafninu Óli kommi. í viðtalinu kem- ur fram að honum þætti ekki slæm býtti að flytja frá Horn til Aust- ur-Þýskalands en látum Óla komma fá orðið: „Eg vil nú meina það að þetta fólk sem er að fara frá Austur- Þýskalandi að það skili sér að mestu leyti aftur til baka, alla- vega það sem einhver slægur er í þegar glýjan er farin úr augun- um. Austur-Þjóðverjar fara brátt að átta sig á því að þetta frelsi sem allir eru að kjafta um er minna þarna vestur frá en heima hjá því. Jú, jú menn hafa frelsi til að vera atvinnulausir í Vestur- Þýskalandi sem þeir hafa ekki í Austur-Þýskalandi. En það getur vel verið að einhverju fólki þyki það ákjósanlegt. Ég er þó sann- færður um það að þegar þetta fólk fer að sjá og fær samanburð við vestrið miðað við það sem er fyrir austan og sem því stendur þar til boða, þá er hætt við að ansi margir Austur-Þjóðverjar snúi aftur til baka til síns heima. Enda hafa þeir gert það undan- farin ár því landið væri fyrir löngu orðið íbúalaust ef eitthvað væri að marka þessar tölur um þá sem þaðan hafa farið.“ AUK þess hafa það bara verið bölv- aðir kratar sem hafa stjórnað þarna fyrir austan. „Þá er það auðvitað víðsfjarri eins og klifað er sífellt á í frétt- um að skipulagið þarna eystra sé kommúnískt og svo er einnig alltaf verið að tala um Kommún- istaflokkinn þarna sem aldrei hefur verið til þar í landi, heldur er þarna um að ræða sameining- arflokk krata og kommúnista sem meira að segja Jón Baldvin utanríkisráðherra og formaður íslenska krataflokksins virðist ekkert vita af. En þessu ríki hafa flokksbræður hans stjórnað að vissu leyti þó það skipti ekki öllu máli. Svo virðist sem aðalmálið sé þetta svokallaða ferðafrelsi sem er jú slæmt þegar það er ekki fyrir hendi. Gallinn er líka sá og það sem haldið hefur aftur af þeim er að þeir hafa ekki haft gjaldeyri til að láta menn hafa. Það er jú náttúrlega alveg gagns- laust að láta menn fá ferðaleyfi alveg peningalausa. Það segir sig sjálft." Einn með kaffinu — Maðurinn minn er svo feitur, að þegar við förum til útlanda, þá fæ ég alltaf hópafslátt! DAGATAL Raggi raubi fagnar umbótum Raggi rauöi var að gramsa i kilj- unum í bókabúðinni minni. Ég lít oft inn í bókabúðina mína þegar ég er á röltinu í miðbænum. Og það bregst aldrei; alltaf hitti ég ein- hverja kunningja. Vel á minnst, Raggi rauði er kall- aður svo vegna þess að hann hefur verið svo afskaplega langt til vinstri alla tíð. Hann fordæmdi uppreisn Ungverja á sinni tíð, skrifaði greinar til stuðnings inn- rás Rúusa i Tékkóslóvakíu og er mikill fylgismaður rauðu kner- anna í Kambódíu. Raggi rauði var að skoða ævi- sögu einhverrar Hollywood- stjörnu þegar ég klappaði á öxlina á honum. — Nei, blessaður! þrumaði Raggi dálítið í fáti, þegar hann sneri sér við. Og sagði svo afsak- andi: Maður verður að kynna sér lifskjör þessa kapítalista í Amer- íku. Hann lagði hratt frá sér bókina og dró Information samanvöðlað upp úr úlpunni. — Jæja, Raggi minn, sagði ég, Þá er Berlínarmúrinn fallinn. Hvað segirðu um þetta allt saman? — Það var löngu kominn tími til, sagði Raggi. Ég man þegar maður var á ferðalögum þarna eystra og var stundum tekinn í eftirlitsstöð- unum af því að maður ætlaði að ganga austur yfir með þýskt dag- blað í vasanum! Nei, þetta er mjög góð þróun. Ég fagna mjög breyttu andrúmslofti eystra. — En þú skrifaðir nú grein á sín- um tíma í málgagnið ykkar sem hét „Nauðsyn Berlínarmúrsins," sagði ég og glotti. — Jáááá, sú grein, sagði Raggi og dró seiminn. Það voru allt öðru- vísi aðstæður þá. Kalda stríðið í al- gleymingi og íhaldsöflin mjög fjandsamleg friði. Það var nauö- synlegt að skrifa þannig í þá daga. Ragga leið greinilega ekki alltof vel í þessum umræðum. Hann fór að tala um glæpaölduna í Amer- íku. En ég sleppti honum ekki svp auðveldlega. — Þú studdir nú dyggilega inn- rás Rússa í Ungverjaland á sínum tíma. Nú eru Ungverjar búnir að leggja niður Kommúnistaflokkinn og koma á lýðræði í landinu, sagði ég- — Já, já, sagði Raggi rauði. Það er hið besta mál. — Finnst þér það? — Já.já. Það var löngu kominn tími á lýðræðislegar breytingar í anda Leníns, sagði Raggi og fór að skoða bílablöð. — En það að leggja niður kommúnistaflokk er varia í anda Leníns. Og sennilega hefur hann ekki ætlast til þess að efnt væri til frjálsra kosninga í landi kommún- ista? sagði ég og leit á Ragga. — Menn túlka söguna svo mis- jafnlega, sagði Raggi og gerðist gáfulegur. Sjáðu til, hverjir eru þess umkomnir að túlka orð mikil- menna eins og Leníns? Stalín reyndist slæmur túlkandi. Krúsjoff misskildi hreinlega Lenín enda ómenntaöur bóndadurgur. Gor- batsjov ku skilja Lenín. Kannski skilur hann ekki Lenín. Kannski vildi Lenín alltaf lýðræði, fjöl- flokkakerfi pg frjálsar kosningar. Hver veit? Ég fagna hverri nýrri túlkun á Lenín. — En Lenín barðist fyrir alræði öreiganna og heimskommúnism- anum, andmælti ég. — Er ekki lýðræðið og fjölmiðl- ar nútímans alræði öreiganna? spurði Raggi. Hvað er heims- kommúnismi? Er ekki hin mikla fjöldaneysla heimskommúnismi? Hvar eru mörkin? Ég fagna um- breytingunum í heiminum, eink- umíSovétríkjunum. Kommúnismi er framþróun. Ég sá að Ragga var vart þokað. Hann lagði frá sér bílablaðið og teygði sig eftir þýsku vikuriti um leið og hann sagði: — Ég er ekkert einn um þessa skoðun. Ólafur Ragnar, Svavar, Hjörleifur, Hjalti Kristgeirs og Ás- mundur eru allir sammála í þessu máli. Við fögnum allir umbótun- um fyrir austan. Og Guðrún Helga er farin að dressa sig eins og Raisa. Við fögnum því einnig. Sagði Raggi rauði og sneri í mig bakinu án þess að kveðja.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.