Alþýðublaðið - 15.11.1989, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.11.1989, Blaðsíða 1
Fyrirspurn Alfreðs Þorsteinssonar í borgarráöi: Er Júlíus Hafstein í siðlausu lóðabraski? Júlíus fékk lóö undir fyrirtæki sem hann hefur fyrir löngu selt. Þarf hann 700 fermetra húsnœdi undir einn sím- svara? Stendur Júlíus Haf- stein borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í siðlausu lóðabraski? Eða þarf hann 700 fer- metra húsnæði undir einn símsvara? Þetta er inntakið í fyrirspurn sem Alfreð Þorsteins- son, varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram í borgarráði í gær. Tilefni fyrirspurnar Al- freðs er frétt í Morgunblað- inu 5. nóvember um bygg- ingu skrifstofu- og verslun- arhúsnæðis við Lágmúla 6—8, þar sem fyrirtæki sem Júlíus átti fékk úthlut- aða lóð. Bendir Alfreð á að borgarfulltrúinn hafi fyrir löngu selt reksturinn og hafi því ekki lengur þörf fyrir lóðina. Borgarráð hafi markað skýra stefnu með fordæmum til að koma í veg fyrir lóðabrask. „það er á vitorði borgar- fulltrúa að lóðabrask með atvinnuhúsalóðir hefur aldrei verið meira en nú, samanber þá staðreynd að einungis einn aðili af þeim fjölmörgu sem fengið hafa úthlutun í austurhluta Skeifunnar er með atvinnu- rekstur á eigin lóðum. Hin- ar lóðirnar hafa gengið kaupum og sölum og millj- ónatugir runnið í vasa aðila fyrir það eitt að senda inn lóðaumsóknir og fá úthlut- un. Út fyrir allan þjófabálk tekur þegar kjörnir borgar- fulltrúar taka þátt í slíkum leik eins og reyndin sýnist vera með lóðina í Lágmúla. Forsendan fyrir uppruna- legri lóðaúthlutun til fyrir- tækis borgarfulltrúans er ósk um 700 fermetra hús- næði sem þörf var talin á. I dag virðist umrætt fyrir- tæki vera rekið í gegnum einn símsvara og án starfs- fólks. Þörf fyrir jafn stóra lóð undir símsvara er því út í hött. Fyrir viðkomandi að- ila er hér hins vegar um verslunarvarning að ræða sem skiptir milljónum króna. Af þessu tilefni er spurt: Ætla borgaryfirvöld að beita sér fyrir afturköll- un þessarar lóðarúthlutun- ar í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir?" Hœkkar ríkisstjórnin vexti Byggingarsjóds? Ríkisstjórnin verður að axla þessa óbyrgð — segir Jóhanna Sigurdardóttir: Eigid fé sjódsins aö öörum kosti uppuriö eftir Á flótta eins og rófulausir hundar Ólafur Þ. Þórðarson þingmaður Framsóknar- flokksins á Vestfjörðum snérist öndverður gegn stjórnarfrumvarpi sem Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra og samflokksþingmaður Ól- afs hefur lagt fram. Um er að ræða breytingu á lögum um hollustuhætti og heil- brigðiseftirlit sem gefur Hollustuvernd ríkisins sama vald og sömu þving- unarúrræði og heilbrigð- isnefndir sveitarfélag- anna hafa. Um frumvarpið hafði Ólaf- ur Þ. Þórðarson m.a. eftirfar- andi að segja: „Ég efast um að svona frumvörp komi fram í þingum hinnar svört- ustu Afríku. Það má vel vera að í einræðisríkjum Suð- ur-Ameríku detti mönnum í hug að koma með svona frumvörp inn í þingið. Þar sem mannréttindi skulu fót- um troðin. Frumréttur at- vinnulífs í landi, í samskiptum við opinbera aðila, að mega leita til dómstóla er af þeim tekinn." Ólafur taldi að hér væri vegið að mannréttindum sem tryggð ættu að vera sam- kvæmt stjórnarskránni þ.e. lögverndun eignarréttarins. Með þessu væri fram- kvæmdavaldið að taka sér dómsvald sem bryti í bága við þrískiptingu valdsins. Sakaði hann framkvæmda- valdið um að vera sífellt að reyna að sölsa undir sig meira vald, það vildi helst hafa lög- gjafarvaldið og dómsvaldið í sínum höndum einnig og líkti handhöfum þess við rófu- lausa hunda á flótta. Friðrik Sophusson Sjálfstæðisflokki sagði sinn flokk ekki hafa tek- ið afstöðu til málsins en þeir myndu hafa rök Ólafs í huga og skoða málið vandlega í nefnd. 2-3 ár. „Ég ætla ekki að horfa upp á það sem félagsmála- ráðherra að það verði eng- in ákvörðun tekin sem bjargar fjárhagi Bygging- arsjóðs. Það verður að taka á þessum málum, því að öðrum kosti þurrkast eigið fé sjóðsins upp á 2—3 árum, enda hefur gengið mjög hratt á það að undan- förnu“ sagði Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmála- ráðherra í samtali við Al- þýðublaðið í gær. Sem kunnugt er hefur fé- lagsmálaráðherra knúið á um að vextir Byggingarsjóðs rík- isins verði hækkaðir úr 3,5% í 4,5% vegna erfiðrar fjár- hagsstöðu sjóðsins. Undir þetta hafa meðal annars tek- ið Seðlabankinn og forsætis- ráðherra. Meirihluti stjórnar Húsnæðisstofnunar hefur hins vegar felit slíka tillögu og samþykkt aðra um óbreytta vexti. Það er hins vegar ríkis- stjórnin sem hefur ákvörðun- arvaldið um vextina. Að sögn Jóhönnu voru of fáir ráðherr- ar mættir á ríkisstjórnarfundi í gær til að afgreiða málið. „Það er viðurkennt innan ríkisstjórnarinnar að það þurfi að bregðast við ört versnandi stöðu sjóðsins. Ég hef sagt að annað hvort verði að hækka vextina eða auka rikisframlagið. Og ríkisstjórn- in verður að axla ábyrgð og taka á þessu máli fyrir hús- næðismálastjórn." Jóhanna kvaðst vera afar óánægð með afgreiðsluna innan stjórnar Húsnæðis- stofnunar. „Þar eru verulegir hagsmunaárekstrar • á ferð, þar sem fulltrúar verkalýðs- hreyfingar eru annars vegar að pína niður vextina hjá Byggingarsjóði, en hins veg- ar í samningum við ríkið á vegum lífeyrissjóða að heimta háa vexti og bjóða skjólstæðingum sínum upp á 8—10% raunvexti. Þarna er ekkert samræmi á milli" sagði félagsmálaráðherra. JONAS SKRIFAR IALÞÝÐUBLAÐIÐ Jónas Jónasson, hinn þekkti útvarpsmaður með meiru, mun skrifa fasta pistla í Alþýðublaðið á miðvikudögum. Pistlar Jónasar bera yfirskriftina „Mín skoðun" — og líkt og heitið ber með sér munu þeir fjalla um ýmis dægurmál og annað efni séð með augum Jónasar. Fyrsti pistill Jónasar birtist í Alþýðublaðinu í dag á bls. 3 og hefur yfir- skriftina „Tuddar í mann- heimi." Alþýðublaðið býður Jónas velkominn a síður Alþýðublaðsins. SJÁ BLS. 3 Jónas Jónasson

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.