Tíminn - 10.05.1968, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.05.1968, Blaðsíða 1
Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323 93. tbl. — Föstudagur 10. maí 1968. — 52. árg. MORÐ BRAUZT INN OG SKAUT HÚSRÁÐANDA TIL BANA OÓ-Reykjavik, íimmtudag. Jóhann Gíslason, deildarsljóri flugrekstursdeildar og tæknideild- ar Flugfélags íslands, var skotinn til bana á heimilj sínu s. 1. nótt. Morðinginn er Gunnar V. Freder iksen, fyrrverandi flugstjóri og unðinnaður Jóhanns. Gunnar brauzt inn á heimili Jóhanns og skaut á hann fjórum skammbyssu ekotum og flúði síðan. Jóhann lézt af sárum sínum skömmu eftir að hann var fluttur á Slysavarðstof- una. Lögreglan handtók Gunnar í flugstöðvarbyggingu FÍ á Reykja víkurflugvelli. Hann segist hafa borið ofsahatur til Jóhanns og hafi það verið orsök verknaðarins. Kl.. 4.35 var hringt á lögreglu- varðstofuna frá Tómasarihaga 25 og beðið um aðstoð vegna vopnaðs manns, sem kominn var inn í hús ið. Margir lögreglumenn fóru þeg ar á staðinn og þegar þangað kom, lá húsbóndinn á efri hæð hússins, Jóhann Gíslason, í blóði sínu í innri fonstofu íbúðarinnar. Eiginkona Jóhanns og þrjú stálp uð börn þeirra, skýrðu lögreglu- mönnum svo frá að Gunnar Frederiksen, fyrrverandi flugstj., hefði brotizt inn í íbúðina og haft skamiwbyssu meðferðis. Hafi hann skotið nokkrum skotum á Jóhann. Á Jóhanni voru fiórir áverkar eftir skotin. Tvö lentu í andliti hans, eitt á öxl og eitt í baki. Morðvopnið lá á götunni utan við húsið. Er það 9 skota skammbyssa, cal. 22. Var búið að skjóta úit fjórum skotum en fimm voru enn eftir í byssunni. Hattur Gunn- ar-s, sem var merktur með nafni hans lá í eldihúsinu. Húsráð;ndi á neðri hæð hússins vaknaði þegar brotizt var inn i húsið. Kom hann út í dyr og sá Sléttanesið skömmu eftir árekst- urinm. Skemmdimar á brúnni sjást greinilega. Ljósm. Valdimar hvar Gunnar kastaði frá sér byss unni á götuna og snaraðist upp í bíl sinn og ók á brott. Lögreglan hóf þegar leit að Gunnari. Kl. 4.49 var hringt á lögregluvarðstof- una frá flugstöðvarbyggingu FÍ á Rvíkurflugivelli og tilkynnti vaktmaður þar, Helgi Kristjánsson, að Gunnar væri þar staddur, blóð ugur og í undariegu ástandi. Nokk ur orðaskipti urðu milli vakt- mannsins og Gunnars og hafði sá síðarnefndi orð á því að hann hefði kannski nýverið myrt mann. Þegar lögreglumenn komu í flugstöðvarbygginguna fundu þeir Gunnar inni í lítilli geymslu og hafði hann veitt sér áverka vinstra megin á brjósti með litlum vasahníf og stóð hnífurinn í súr- inu þegar lögreglan kom að hon um. Gunnar veitti enga mót- spjrnu og var hann fiuttur á Slysavarðstofuna, og var þar gert að sári hans, sem varla er nema skeina, og tekin af honum blóð prufa. Síðan var hann færður í varðhald. Enn hefur ekki verið tekin skýrsla af eiginkonu eða börnum Jóhanns, en samkvæmt því, sem þau sögðu lögreglumönnunum, sem fyrst komu á vettvang, vökn uðu tvær dætur þeirra hjóna fyrst við að dyrabjöllunni var hringt. Síðan var rúða í útidyrahurð brot in og notaði Gúnnar byssuskeptið til þess. Vöknuðu þá flestir íbúar hússins. Jóhann fór fram og MorSvopnið (Tímamynd: GE). mætti Gunnari í innri forstofu í- búðarinnar. Heyrðust þá skotihveli ir og virðist sem Gunnar hafi skot ið á Jóhann strax og þeir hittust. Þá hefur Jóhann ráðizt á árásar- manninn og bárust átökin inn í eldhúsið og fram á ganginn aftur. Allt bendir tii að Jóhann hafi reynt að ná vopninu af Gunnari eða reynt að koma honum út úr íbúðinni. Ekki er fuliljóst hvort öll skotin riðu af áður en átökin hófust. Húsráðandi á neðri hæðinni ber að hann hafi heyrt hróp og að beðið hafi verið um að hxingt yrði á lögreglu. Hljóp hann að síma sínum, en hann reyndist þá bilað ur. Fór þá maðurinn úrt og sá hvar Gunnar hljóp út úr húsinu og í bíl sinn. Gunnar Frederiksen var í gær- kvöldi við drykkju ásamt kunningj um sínum. Óku þeir honum heim og skildu leiðir þar. Gunnar hafði stutta viðdvöl á heimdli sínu en tók þar byssuna og ók á Tómasar haga. Byssuna segist hann hjfa tekið híá tilteknum manni í Reykjavdk í janúarmánuði s. 1. voru allir þeir sem áttu skamm byssur í fórum sínum beðnir að gera grein fyrir vopnunum. Kom þá fram talsvert magn af þess- um verkfærum, en þessi byssa var ekki meðal þeirra. Þegar lögreglu menn handtóku Gunnar sagði hann þeim, að hann hafi borið harturs- hug til Jóhanns fyrir þá sök að Framhald á bls. 14 Jóhann Gíslason Gunnar Frederiksen Jónsson. Brezki togarinn Ross Rodney í árekstri við Sléttanes frá Þingeyri: SIGLDI INN f VÉL- ARRUM VÉLBÁTSINS j? • . . SE-Þingeyri og EJ-Reykjiaivdk, fiimmtudag. Um klukkan 13,30 í dag sigldi brezki togarinn Ross Rodney á vb. Sléttanes frá Þimgeyri. Lenti stefni togarans aftan til á Sléttanesi bakborðsmegin og fór alveg inn I vélarrúm. Mikill sjór komst þegar inn í vélar- rúmið, en vatnsþétt skilrúm vörntiðu því að sjórinn kæmist inn í lest bátsins. í kvöld var björgunarskipið Goðinn komið að Sléttanesinu og var að dæla sjónum úr káetunni. Var ætlunin að reyna að hag- ræða vélbátnum þannig í sjó, að hann kæmist til Reykjavík- ur til viðgerðar, en í kvöld voru skipin í Beruvík undan Svörtuloftum. « Sléttanesið, sem er rúmlega eins árs gamalt stálskip, smið- að í Austur-Þýzkalandi, var statt út af Svörtulofrtum, um 15 sjómilur uindarn Snæfells- nesi er árekstur varð. Sléttanesið mun hafa verið að lóna á hægri ferð, þegar togarinn sigldi inn í það á fullri ferð, en bjartviðri var. Vélarrúmið fyRtist fijótlega af sjó og nokkur sjór komst inn í káertu gegnum nið- urfai'l á vös'kum þar, en skil- rúm komu í veg fyrir að sjiór- inn kæmist að öðru leyti inm í káetuna eða í lest skdpsins. Um .náiuleytið í kvöld höfðu skemmdir verið kanmaðar nán- ar, m. a. kafari sendur til að athuga þær. Kom í ljós, að hástefnið á togaranum hefur gengið hálifa leið inn að brúnní eða svo til að bnúargluggunum og er bi-úin sjálf talsvert mikið skemmd. Neðan við sjólínu er Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.