Tíminn - 22.05.1968, Blaðsíða 1
OKEYPIS UMFERÐAR
TRYGGING TÍMANS!
Tilkynning Tímans um, aS
blaðið tryggi alla fasta kaup-
endur sína frá og með H-degi,
hefur að vonum vakið mikla at-
hygli. Fjölmargir hafa snúið
sér til Tímans og gerzt áskrif
endur til að verða aðnjótandi
hinnar fríu umferðartryggingar
blaðsins. Nýir áskrifendur geta
snúið sér til afgreiðslu Tímans
í Bankastræti 7, sími 12323. En
utan Reykjavíkur geta nýir
kaupendur snúið sér til umboðs
manna Tímans. Nöfn þeirra
eru birt á bls. 12 í blaðinu í
dag. Eins og áður hefur verið
skýrt frá, þá er umferðar-
trygging Tímans fyrst og
fremst hugsuð sem viðbót við
aðrar tryggingar. Tíminn álítur
að umferðartryggmgin geti
komið að góðu gagni á tímum
þegar gjörbylting verður í nm
ferð á íslandi. Hinir fjölmörgu
nýju áskrifendur síðustu daga
eru á sama máli.
KYNNIÐ YKKUR
UMFERÐATRYGGINGU
TÍMANS
ALLIR ÁSKRIFENDUR
FÁ ÓKEYPIS TRYGGINGU í
KAUPBÆTI
Mjog mikill
samdráttur
iönaöarvimiu á Suðurnesjum
103. tbl. — Miðvikudagur 22. maí 1968. — 52. árg.
BJJReykjavík, þriðjudag.
í fréttatilkynniu gu frá Iðnaðar-
mannafélagi Suðurnesja segir, að
mikill samdráttur hafi orðið á
allri iðnaðarvinnu á síðasta ári,
einkum í jámiðnaði og byggingar-
iðnaði, á Suðumcsjum. Mestur hef
ur samdrátturinn orðið í jámiðn-
aði, þar sem starfsmönnum I þeim
iðnaði hefur fækkað úr rúmlega
130 fyrír einu og hálfu ári síðan
í um 30 í dag.
Iðnaðarman nafélagið hélt aðal-
fund sinn 14. maí síðast l;ðinn í
Eelflavik, og fLoititi Eyiþór Þórðar-
son, vélvirki, formaður félagsins,
sösýrsiu stjómarinnar fyrir síðasta
sfcarfsár.
I fréttatil'kyniningunn; segir, að
f'élagið hafi haft veruleg afskipti
a'f „atvinnumálum iðn'aðarimanna á
Suðurncsjum, en mikill samdrátt-
ur hefur orðið á allri iðnaðarvinnu
á s. 1. st'arfsári, einkum í járniðn-
aði og einnig í byggingariðnaði.
Til atvinnuleysis. hefur þó ekki
komið af þessum ástæðum, þar
sem allir þeir iðnaðarmenn, sem
misst hafa störf sín, hafa fengið
önnur störtf, m. a. bæði í Straums-
vík og við Búrfellsvirkjun.
Afar mikill samdráttur hefur
orðið í j'árniðnaði. Hefur starfs-
mömnum í þeim ;ðnaði fæ'kkað úr
rúmlega 130 fyrir einu og hálfu
Framhald a bls. 14.
Saniningafundur
Fyrsti samningarfundurinn um kjör sjómanna á síldvelSum í sumar hófsf
kl. 14 í gær, og var þessi mynd tekln viS þaS tækifaeri. (Tímam.:—GE)
10 MILLJONIR
NU I VERKFALLI
Ný sjávarísvél
í fiskveiðiskip
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
4 fundi eð blaðamönnum
und af ísvél, til framleiðslu á mcnn þegar sýnt mikinn áhuga
ís úr sjó um borð í fiskiskipum.
aag var kynnt ný bandarísk teg Hafa nokkrir íslenzkir útgerðar
á vélinni, sem hefur verið til
reynslu hjá Rannsóknarstofnun
sjávarútvegsins síðan í vetur.
Verður vél þessi m. a- til sýnis
á sýningunni „íslcndingar og
hafið“, sem hefst eftir nokkra
daga í Laugardal.
Á blaðamannafundinum í
dag voru mættir forsvarsmenn
Ingólfs Árnasonar h. f., sem
hefur einkaumboð fyrir þessa
vél á Norðurlöndum, og eins
Gísli Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri vélsmiðjunnar
Klettur í Hafnarfirði, sem mun
ar.nast uppsetningu þessara
véla um borð í skipum og al'la
þjónustu varðandi þær.
f>að var í september s. 1. að
vél þessi var sett á markaðinn
í Bandaríkjunum, að undan-
gengnum lahgvarandi tilraun-
um og reynslutíma. Framleið-
andi er fyrirtækið Longwood
Industrios Ínír í Fiorida, sem
hefur margra ára reynslu í
framleiðslu margvíslegra ís-
véla. Vakti vélin athygli á
stórri sjávarútvegssýningu í
Fratnnah -> hls 14
Isvélin reynd hérlendis. Poul
Dinger, helzti höfundur vélarinn
ar. fylgist með.
NTB-París, þriðjudag.
í Frakklandi heldur ástandið áfram að versna, og eru nú
um tíu milljónir manna úr öllum síáttum í verkfalli, eSa
um helmingur vinnandi manna í Frakklandi. Franska stjórn-
in hélt í dag 15 mínútna skyndifund í Elysée höllinni, og
var þar samþykkt lagafrumvarp sem hefur í för með sér
náðun allra þeirra stúdenta, sem handteknir voru í götu-
bardögunum miklu í París fyrr í mánuSinum. Þetta er
fyrsti mótleikur de Gaulle við verkföllunum og óeirðunum
í Frakklandi, sem fylgdi í kjölfar stúdentaóeirðanna. Hann
vill sýnilega friða stúdentana fyrst, áður en hann snýr sér
að launþegunum, en nú hefur stjórnin með lagafrumvarp-
inu í dag gengið að öllum þeim skilyrðum er stúdentar
settu fyrir stöðvun óeirðanna af þeirra hálfu.
Kl. 4 í dag hófust umræður í
franska þinginu um vantrausts
tillögu þá, er stjórnarandstaða
vinstri flokkanna hefur lagt
fram á Pompidou og rí'kisstjórn
hans. Atkvæðagreiðsla um van-
trauststillöguna fer fram á mið-
vikudagskvöld, almennt er búizt
við að stjórnin haldi mjög naum
um meirihluta, en samt eru
vinstri menn vongóðir um að
takast megi að fella stjórnina.
Franski kommúnistaflokkurinn
hvatti í gærkvöld til sameiginlegr
ar sóknar til þess að fella stjórn
ina og koma í stað hennar á raun
verulegri lýðræðisstjórn, sem
ryddi brautina til „sósíalisma". í
yfirlýsingunni var verkalýðurinn
einnig hvattur tl þess að halda
tfast við kröfur sínar, hvernig svo
sem næsta stjórn verði sikipuð.
Talið er, að de Gaulle muni
gera miklar breytingar á stjórn
sinni jafnvel þó hann haldi meiri
hluta i atkvæðagreiðslunum á
miðvikudag. Fari svo, að stjórn
in falli, mun de Gaulle eiga milli
þess að velja, að mynda nýja
stjórn, efna til nýrra þingkosn-
inga eða grípa til neyðarástands-
laga, sem gefa fconum alræðis-
vald um skeið. Eftir áreiðanleg
um heimildum er haft, að de
Gaulle muni biðja Pompidou, að
mynda nýja stjórn nái vantrausts
tillagan fram að ganga.
Það hefur kvisazt út, að de
Gaulle velti nú fyrir sér
þeim möguleika að efna til þjóð
aratkvæðagreiðslu í júní, en það
hefur verið eitt helzta pólitíska
vopn de Gaulle á tímum kreppu
ástands, að snúa sér til þjóðar-
innar.
Búizt er við þvi, að í sjónvarps
og útvarpsávarpi á fimmtudag,
muni de Gaulle lofa verkamönn
um meira lýðræði á vinnustöð
um. Forsetinn hefur lengi verið
þeirrar skoðunar, að eftir því
sem launþegar fái meiri pólitísk
völd og stærri hluta af hagnaðl
Framhald a bls. 14