Tíminn - 25.05.1968, Blaðsíða 1
Sýningin íslendingar og hafið opnuð í gær
Hannes Hafstein, fulltrúi Slysavarnarfélagslns sýnir ungum sýningargest i deiid félagsins á sýningunni íslendingar og hafiS. Tímamynd: &E.
De Gaulle í útvarpi og sjónvarpi í gærkvöldi:
LEGGUR UMBOTAAÆTLUN SÍNA
UNDIR A TKVÆDIÞJÓDARINNAR
NTB-París, föstudag. I kringunistæðurnar neytt hann á | hrifsa völdin gegn vilja hennar. I yrði það skoðað sem stuðning-
★ De Gaulle ávarpaði frönsku hættutímum til þess að ta'ka völd- Segðu Frakkar „nei“ í þjóðarat- ur við umlbötaáætluu stjórnarinu
þjóðina í sjónvarpi í dag kl. 7 in og framkvæma vilja þjóðar- kvæðagreiðslunni myndi hann ar. „Ég þarfnast fyrst og fremst,
og talaði hann í sjö mmútur. Pc I iunar, þegar aðrir hefðu ætlað að I fara frá, en fengi hann „stórt já“ I Framhalo a bls. 14.
Gaulle sagði, að efnt yrði til
þjóðaratkvæðisgreiðslu í júní, þa.r
sem atkvæði verða greidd um
þjóðfélagslega umbótaáætlun rik-
isstjómarinnar. Fari svo, að kjós-
endur hafni þessarri áætlun, seg-
ist forsetinn vera reiðubúinn til
þess að láta af embætti þegar að
lokinni atkvæðagreiðslunni.
★ Áætlun sú, sem lögð verður
fram til þjóðaratkvæðagreiðs'uiin
ar hefur í för með sér endurskipu-
lagningu háskólakerfisins sam-
kvæmt kröfum nútímans, veitir
verkamönnnm meiri hlutdeild í
stjórn og hagnaði fyrirtækja, og
miðar að bættum lífskjörum laun
þega í opinberri þjónustu og að
betri skipulagningu iðn og verka
lýðsfélaga auk þess sem hún á
að stuðla að bættri almennri
menntun.
De Gaulle sagði í ávarpinu, að
á síðastliðnum 30 árum hefðu
Gufugos á hvera-
svæði Kverkfjalla
EJ-Eeykjavík, föstudag.
Gufugos mun nú eiga sér
stað í Kverkfjöllum í Vatna-
jökli nyrztum. Flugmaður, cr
fór þar yfir í dag, sá greinileg
merki um slíkt gos, bæði gufu
strók og sig í jöklinum kring-
um hann.
Mikið hverasvæði er 1 Kverk
fjölium, og þvi ekki óeðlilegt
að slíkt gos eigi sér stað.
Hversu mikið þetta gos er,
verður ekki sagt með vissu,
þar sem jarðfræðingar hafa
ekki haft tækifæri til að at-
huga það.
Guðmundur Kjartansson,
jarðfræðingur, sagði blaðinu,
að oft yrðu breytingar á hvera
svæðum, nú síðast á Reykja
nessvæðinu eins og menn
muna. Mætti ætla, að í Kverk
fjöllum væri um svipaðar breyt
ingar að ræða.
Ferðamenn, sem komu í
Kverkfjöll fvrir nokkrum ár-
um, sáu þar ummerki, er
benti til umbrots á hverasvæð
inu. svo þetta virðist ekki
vera óalgengt fyrirbæri þar.
OÓ-Reykjavfk, föstudag-
Sýningin islendingar og hafið
var opnuð í sýningarhöllinni í
Laugardal í dag. Meðal gesta sem
viðstaddir voru opnunarathöfnina
voru forseti íslands, ráðherrar og
fjölmargir forystumenn sjómanna
samtakanna og útgerðarfyrirtækja.
Ræður fluttu Pétur Sigurðsson,
formaður stiórnar sýningarinnar
og Eggert; G. Þorsteinsson, sjávar
útvegsmálaráðherra, sem opnaði
sýningnna.
Sýningin verður opnuð abnenn-
ingi kl. 10 í fyrramálið, Iaugar-
dag. Verður hún siðan opin dag-
lega kl. 14 til 22 til 12. júní n. k.
Alls taka 80 sýningaraðilar þátt
í sýningunni. Reiknað er með að
40 til 50 þúsund gestir skoði sýn
inguna. í sambandi við hana verða
haldin nokkur skemmtikvöld og
meðal annars munu nokkrir kaup
staðir hafa þar sérstaka dagskrá.
Þá daga sem sýningin stendur yfir
verða sýndar sjávarmyndir í Laug
arásbíói. Gilda aðgöngumiðar sýn
ingarinnar einnig í kvikmyndahús
ið. Þá hefur verið komið á fót
sérstöku skyndi'happdrætti og eru
miðar seldir á sýningunni og einn
ig eru vinningarnir sýndir þar.
Veiíirgasalur, sem tekur 200
manns í sæti, verður starfræktur
meðan á sýningunin stendur.
Einkunnarorð sýningarinnar
eru Brimrúnar skalt kunna, em
þau tekin úr Sigurdrífumálum í
Sæmundar-Eddu. Er gerð grein
fyrir einkunnarorðunum í sýning
arskrá. Eins og fyrr segir eru um
80 aðilar sem taka þátt í sýning
unni. Er hér um að ræða ýmsar
stofnanir hins opinbera, félaga-
samtök og einstök fyrirtæki. Er
sýningin mjög fjölbreytt. Gefur
að líta sýnishorn af veiðarfsérum
alls konar og sjósókn fyrri alda,
en aðaláherzla er lögð á nútíma
sjósókn og þær nytjar sem fs-
lendingar hafa af hafinu og auð
lindum þess í dag.
í anddyri sýningarhallarinnar er
komið fyrir nokkurs konar sögu-
sýningu um sjósókn og fiskvinnslu
fyrri alda. Gefur þar að líta
líköu af fiskiskipum, gömuí veiði-
tæki, fiskvinnslutæki, sjóklæði og
ýmislegt annað sem notað var í
samband við sjósókn. Þarna eru
nokkrir vistmenn á Hrafnistu sem
sýna gerð og uppsetningu veiðar-
færa. í kjallara og í aðaisal er
sýningarsvæðinu skipt í bása og
hefur hver sýningaraðili séð um
uppsetningu á sínum bási.
Vönduð sýningarskrá hefur ver
ið gefin út. í ávarpi sem sjávarút
vegsmálaráðherra ritar þar segir
m.a.: „Engin þjóð á jafnmikið und
ir einni grein atvinnuvegar, eins
og fslendingar eiga og munu eiga
Framhald á bls. 14.
MUNIÐ UMFERÐARTRYGGINGU TÍMANS