Alþýðublaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 8
Föstudagur 2. júní 1989
andmæla
Fossvogsbraut
Fulltrúafundur Húsfélags-
ins Kjarrhólma 2-38, Kópa-
vogi, (fulltrúar allra 19 stiga-
ganganna), haldinn 22. inaí
1989 skorar á Borgarstjórn
Reykjavíkur og Bæjarstjórn
Kópavogs artfinna lausu á
deilu sinni um framtirt Foss-
vogsdals.
Fundurinn lýsir yfir stuön-
ingi við Bæjarstjórn Kópa-
vogs gegn lagningu hrað-
brautar í Fossvogsdal.
Fundurinn fer eindregið
fram á það við Borgarstjórn
Reykjavíkúr og Bæjarstjórn
Kópavogs, áð þetta mál verði
vandlega athugað af fagleg-
um, hlutlausum aðila.
Norourlandaför
páfans hafin
Jóhannes Páll páfi og
föruneyti koma hingart til
lands á morgun mert þotu
Flugleirta. íerð páfa til
Norrturlanda hófst í gær
mert komu hans til Noregs.
Alls eru um 30 manns með
í för páfa, auk 50 blaða-
manna. Þotan lendir klukk-
an 13.00 á laugardag og tekur
þar fjöldi fyrirmanna á móti
trúarleiðtoganum. Strax eftir
móttökuna á flugvellinum
heldur páfi til Bessastaða, en
þar þiggur hann og föruneyti
léttar veitingar í boði Vigdís-
ar Finnbogadóttur, forseta
íslands.
Frá Bessastöðum liggur
leiðin í Landakotskirkju þar
sem um 500 manns úr kaþ-
ólska söfnuðinum taka á
móti páfa. Síðar um daginn,
klukkan 17.30 hefst sam-
kirkjuleg guðsþjónusta á
Þingvöllum. Skipuleggjend-
ur páfaheimsóknar búast við
um 10 þúsund manns á Þing-
völl.
Sjálf páfamessan verður
síðan á Landakotstúni að
morgni sunnudags og er gert
ráð fyrir að hún standi hátt á
þriðja tíma. Eftir messuna
heldur páfi til flugvallarins
og og þaðan til Finnlands um
klukkan 12 á hádegi.
Skilagjald
dósirnar
Irtnartarrártuneytirt gaf í
gær út reglugerð samkvæmt
lögum er samþykkt voru á
Alþingi, 16. maí sl., um rárt-
stafanir gegn umhverfis-
mengum af völdum einnota
umbúrta fyrirdrykkjarvörur.
Samkvæmt reglugerðinni var
Ríkisstjórnin
Viðræður við
Borgaraflokk
ekki komnar
á dagskrá
Steingríin tir Hermanns-
son forsætisráðherra segir
ekki ákvertirt hvenær af virt-
ræðum geti orrtirt milli
stjórnarflokkanna og Borg-
araflokksins uin hugsanlega
stjórnarartild borgaraflokks-
manna. Artspurrtur segist
liann gela lekirt undir orrt
Jóns Sigurrtssonar, virt-
skipta- og iðnaðarrártherra,
art bærti sé rétt og skynsam-
legt art nota sumarirt til slíkra
viðræðna.
í Tímanum var liaft eftir
Steingrími, a'ð ummæli Jóns
í Alþýðublaðinu, hefðu verið
ótímabær. Alþýðublaðið
spurði forsætisráðherra hvað
hann ætti við: „Ja, ég held að
þetta sé ótímabært, nema
hann sé byrjaður á einhverj-
um viðræðum. Það kann að
vera,“ sagði Steingrimur
Hermannsson.
komið á
frá og mert deginum í gær
lagt skilagjald á öl, gos-
drykki og artra slika drykki í
einnota umbúrtum úr málmi,
gleri, plasti erta sambærileg-
um efnum. Skilagjaldirt er 4
kr. á hverja umbúðaeiningu
og myndar stofn til sölu-
skatts hjá söluartilum og
nemur skilagjald mert sölu-
skatti 5 kr.
Þegar umbúðum er skilað
verður skilagjald og sölu-
skattur endurgreiddur og
verður þá greitt 5 kr. fyrir
hvérja umbúðaeiningu.
Sérstakt hlutafélag, End-
urvinnslan hf., verður stofn-
að i næstu viku og mun félag-
ið skipuleggja söfnunar- og
skilakerfi. Gert er ráð fyrir
að móttaka skilagjaldskyldra
umbúða geti hafist í lok júlí
eða byrjun ágúst.
5. fulltrúaþing Kennarasam-
bands íslands var sett i Borg-
artúni 6 i gær. Þingið sitja um
170 fulltrúar viðsvegar aö af
landinu. Helstu mál þingsins
eru kjaramál og kjarastefna,
og lögð veröa fram drög aö
kjarastefnu sambandsins.
Þá er fjallað um endurskoðun
á skólastefnu KÍ og teknar
fyrir margvíslegar tillögur í
þeim efnum. Ennfremur er á
þinginu fjallað sérstaklega
um samstarf KÍ og HÍK. Þing-
inu lýkur á morgun.
A-mynd/E.ÓL.
íbúar Kjarrhólma
ÍSLAND
Hitastig í nokkrum landshlutum kl. 12 í dag.
1 Kjara- og
skólamál
hitastig'
i borgum
Evrópu
kl. 12
i gær
að íslenskum
VEÐRIÐ
ÍDAG
I dag er útlit fyrir
hæga, breytilega átt
með dálítilli rigningu á
austanverðu landinu,
en suðvestan golu og
súld vestan lands.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Misskilningur
hjá Stoltenberg
I einu og öllu farið eftir reglum NATO við
kynningu á tillögu um afvopnun á og í höfun-
um.
Jón Baldvin Hannihals-
son utanríkisrártherra segir
á misskilningi byggt hjá
Thorvald Stoltenberg, ut-
anríkisráðherra Noregs, að
íslendingar hafi ekki fylgt
(ilteknum regium á leirt-
togafundi Nato í Brussel.
DV hefur eftir Stoltenberg
í gær, art enginn hafi vitart
art íslendingar ætluðu að
bera fram tillöguna um af:
vopnun á og í höfunum. í
slíkum málum segir Stol-
tenberg alvanalegt að þeir
sem beri fram tillögur leiti
sturtnings virt þær áður en
þær séu bornar fram.
Alþýðublaðið spurði
Jón Baldvin Hannibalsson
hvort það ætti við rök að
styðjast að íslendingar hafi
ekki leitað fylgis við tillögu
sína:
„Það er á misskilningi
byggt hjá hinum norska ut-
anríkisráðherra," sagði
Jón Baldvin. „Allt frá því
aö ég kynnti það fyrst, að
Jslendingar hygðust taka
sérstakt frumkvæði varð-
andi afvopnun í höfunum,
hef ég lagt á það áherslu að
það myndum við fyrst og
fremst gera innan Atlants-
hafsbandalagsins. Og það
gerðum við. Ég fól fasta-
nefndinni að leggja fram
tillögur fyrir hönd íslend-
inga í Atlantshafsráðinu
og í þeim sérstöku nefnd-
um sem undirbjuggu yfir-
lýsingu fundarins og
lokaskjalið um afvopnun-
armál. Þetta gerðum við
fyrir mörgum vikum.
Þannig að það er á mis-
skilningi byggt að við höf-
um ekki farið eftir reglum.
Staðreyndirnar eru þær, að
til undirbúnings afvopnun-
arviðræðunum í Vín var á
sínum tíma samkomulag
um að þar yrði eingöngu
fjallað um hefðbundin
vopn á meginlandi Evrópu.
Á það féllumst við á sínum
tíma. Tillöguflutningur
okkar nú var um það, að
innan Atlantshafsbanda-
lagsins yrði hafinn undir-
búningur að tillögugerð
um traustvekjandi aðgerð-
ir á og í höfunum, vígbún-
aðareftirlit og afvopnun.
Jafnframt því sem við lýst-
um þeim óskum okkar að
þetta yrði næsti stóri
áfanginn í gagnkvæmum
afvopnunarviðræðum á
milli bandalaganna. Við
höfum því í einu og öllu
farið eftir þeim reglum sem
um þetta gilda innan Atl-
antshafsbandalagsins,
enda hef ur það verið viður-
kennt, m.a. af fram-
kvæmdastjóra, að hann
væri ánægður með þann
framgangsmáta."
— í DV er haft eftir
Stoltenberg art í virttölum
við þig sírtustu vikurnar
hafi ekki verið minnst einu
orði á þessa tillögu ís-
lendinga?
„Ég vitna að sjálfsögðu
ekki í einkasamtöl. Við
rekum þetta mál ekki með
einkasamtölum, heldur
með formlegum hætti. Ég
hef átt þess kost að ræða
þessar tillögur í opinberri
heimsókn við utanríkis-
ráðherra Dana, en hef ekki
fengið sérstakt tækifæri til
þess, að því er varðar utan-
ríkisráðherra Norðmanna.
Þar töldum við okkur
mega treysta því, vegna áð-
ur kunnra yfirlýsinga varn-
armálaráðherrans, að
Norðmenn væru undir það
búnir að styðja tillögugerð
sem þessa. Hún er efnis-
lega mjög á þeim nótum
sem varnarmálaráðherra
Noregs hefursett fram. Og
vegna þess að við gerðum
þetta með formlegum
hætti innan Natoráðsins
þar sem fulltrúar norskra
stjórnvalda sitja að
sjálfsögðu.“
— Eru Norðmenn
kannski spældir vegna þess
að íslendingar hafa tekirt
frumkvæði í málinu?
„Það skal ég ekkert um
segja. Við fengum ekki
þann stuðning Norðmanna
sem við töldum okkur hafa
ástæðu til að búast við. Ég
held að kjarni málsins sé
sá, að tillögur okkar í þessu
efni eru á undan tímanum.
Hitt er jafnljóst að tíminn
vinnur með okkur í þessu
rnáli, eins og einn fúlltrúi
Kanadastjórnar orðaði
það við mig,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra.