Alþýðublaðið - 28.06.1989, Blaðsíða 1
Breytingar á bæiarstjórn Kópavogs:
Guðmundur forseti
bæjarstjórnar
Nœstum alger endurnýjun í
bœjarráði
Breytingar hafa nú átt sér
stað í bæjarstjórn Kópavogs.
Hulda Finnbogadóttir, bæj-
arf ulltrúi Alþýðuflokksins,
hefur látið af störfum og inn
kemur í staðinn Sigríður Ein-
arsdóttir. Einnig hafa miklar
breytingar orðið í bæjarráði,
og er þar nú einungis einn
inni sem starfað hefur í því
undanfarið ár.
Nýir koma inn í bæjarráð
Kristinn Ó. Magnússon og
Sigríður Einarsdóttir fyrir
Alþýðuflokkinn, Heimir
Pálsson, Alþýðubandalagi,
tekur við formennsku af
Guðmundi Oddssyni, Al-
þýðuflokki, sem tekur við
embætti forseta bæjarstjórn-
ar, og Ásthildur Pétursdóttir,
Sjálfstæðisflokki, kemur inn
fyrir Braga Michaelsson,
sama flokki. Richard Björg-
vinsson er sá sem áfram situr,
en hann er einnig fulltrúi
Sjálfstæðisflokks.
Hulda Finnbogadóttir,
sem lætur nú af störfum í
bæjarstjórn, er á leið til
Frakklands þar sem maður-
inn hennar starfar og þar
hyggst hún dvelja a.m.k.
næstu tvö árin. „Ég mun
nota tímann til að mennta
mig,“ sagði Hulda í samtali
við Alþýðublaðið og vildi
jafnframt koma á framfæri
kveðjum og þakklæti til alls
þess góða fólks sem hún hef-
ur kynnst þann tíma sem hún
hefur starfað í bæjarstjórn
Kópavogs.
Hagvirkismenn:
Úskuðu eftir
stuðningi
verkalýðsfélaga
Starfsmenn Hagvirkis
sem eru í Félagi járniðnað-
armanna óskuðu skriflega
eftir stuðningi frá félaginu
vegna aðgerða fjármála-
ráðherra til innheimtu
söluskatts. Óskað var eftir
stuðningsyfirlýsingu frá
félaginu eða öðrum að-
gerðum. Örn Friðriksson,
formaður félagsins og
varaforseti ASI, sagðist
hafa komið óskum félaga
sinna á framfæri til viðeig-
andi aðila. Hann vildi þó
engu svara þegar Alþýðu-
blaðið spurði hann hvort
hann hefði komið mót-
mælum á framfæri við Ól-
af Ragnar Grimsson
fjármálaráðherra. „Ég vil
ekki útskýra það nánar.“
Örn sagði skoðun fé-
lagsins í megindráttum að
öllum fyrirtækjum bæri að
skila gjöldum sínum, til
ríkis, stéttarfélaga og líf-
eyrissjóða. En þar sem um
væri að ræða ágreining
ætti að fá fram niðurstöðu.
Um 15—20 starfsmenn
Hagvirkis eru I Félagi járn-
iðnaðarmanna.
Sigurður T. Sigurðsson,
formaður Verkamannafé-
lagsins Hlífar I Hafnar-
firði, sagðist í
meginatriðum vera hlynnt-
ur skeleggum aðgerðum.
Hann sagði sjálfsagt að
láta ekki viðgangast að
innheimtuaðilar völsuðu
með fé almennings og
græddu á því. En þar sem
um væri að ræða beinan
ágreining og mál vegna
söluskatts horfðu málin
öðruvísi við. í slíkum til-
fellum sagðist Sigurður
telja eðlilegt að ríkið aflaði
sér trygginga á meðan mál
væru óútkljáð. „Við mun-
um biðja þessa menn að at-
huga sinn gang — hvort
eina réttlætið sé fólgið í
þessum hörðu aðgerðum."
Sigurður itrekaði að í
megindráttum væri hann
hlynntur hörðum aðgerð-
um til innheimtu. Hann
sagði að fyrir stjórnvöld
ætti að vera auðvelt að sjá
í gegnum einhver gervimál
sem fyrirtækin settu á svið.
Eins væri auðvelt fyrir rík-
ið að tryggja að fyrirtækin
skiptu ekki um nafn á með-
an unnið væri að lausn
ágreiningsefna. Slíkt
mætti fyrirbyggja með því
að fá tryggingu fyrir
greiðslum. Nokkrir tugir
starfsmanna Hagvirkis eru
félagar í Verkamannafé-
laginu Hlíf.
Fólkið sem óttaðist ekki
handtöku? — sjá bls. 3
Afvopnun á höfunum:
NATO kannar til-
lögur islendinga
„Ljóst að almenningur líður ekki að
beðið verði með hendur í skauti
þangað til staðið verður frammi fyrir
umhverfisslysi sem aldrei verður
bætt, “ segir Jón Baldvin utanríkis-
ráðherra.
Formaóur bandaríska
berráösins, William J. Cro-
we flotaforingi, vildi ekki
tjá sig um tillögur íslend-
inga um traustvekjandi aó-
gerðir og afvopnun á
höfunum þegar liann
átti stuttan fund með
blaðamönnum fyrir utan
Höfða í gær. Jón Baldvin
Hannibalsson og William
J. Crowe höfðu áður átt
eins og hálfs tíma viðræður
í Viðey, sem að sögn Jóns
Baldvins snerust að mestu
leyti um afvopnunarmál og
vígbúnaðareftirlit á höfun-
um. Utanríkisráðherra
notaði tækifæriö til að
skýra herráðsformannin-
um frá tillögum íslendinga
sem fram komu á ráðherra-
fundi NATO. Jón Baldvin
sagði Ijóst að NATO rann-
sakaði nú tillögur sem
fram hefðu komið um af-
vopnun á höfunum. Ef
niðurstöður yrðu jákvæð-
ar gerðu íslendingar tillög-
ur um gagnkvæmar
viðræður. Crowe hyggst
greina stjórnvöldum í
Washington frá sjónarmið-
um íslendinga.
Jón Baldvin sagðist m.a.
hafa borið fram ýmsar
spurningar um það hvort
ekki væri Ijóst að afstaða
vesturveldanna gæti ekki
til frambúðar verið „ósveigj-
anlegt „njet“ við áleitn-
um spurningum og til-
lögum um vígbúnaðar-
eftirlit og afvopnun á höf-
unum“. Jón Baldvin sagði
að þeir hefðu verið sam-
mála um að a.m.k. einn
fastur punktur væri í þess-
um viðræðum, þ.e. breyti-
leikinn.
Vonir eru bundnar við
að árangur náist í Vínar-
viðræðum innan hálfs til
eins árs, þótt skoðanir um
það séu vissulega skiptar. í
þeirn viðræðunt er afvopn-
un á höfunum ekki á dag-
skrá sem stendur. Jón
Baldvin sagðist hafa lýst
þeirri skoðun sinni, að
óhjákvæmilega myndu
kröfur aukast um afvopn-
un á höfunum þegar árang-
ur lægi fyrir i þeim
viðræðum sem nú eiga sér
stað. Þá sagðist hann m.a.
hafa lýst þeirri skoðun, að
það væri Vesturlöndum í
hag að taka upp viðræður
við Sovétmenn um vígbún-
aðareftirlit og afvopnun,
einmitt til að tryggja betur
öryggi samgönguleiða á
Atlantshafinu. Þetta varð-
aði m.a. takmörkun á
fjölda skammdrægra
kjarnavopna um borð i
skipum.
Jón Baldvin sagði að
vissulega hefði engin nið-
urstaða orðið á fundinum.
„Engu að síður er ég held-
ur bjartsýnni eftir þennan
fund en áður. Bæði er ljóst
að það er nú unnið að
rannsóknum til að meta
þessar tillögur sem fram
hafa komið, að því er varð-
Afvopnunarmál og vigbún-
aðareftirlitið á höfunum
var aðaiviðræðuefni Jóns
Baldvins utanríkisráöherra
og Williams J. Crowe á
fundi i Viöey í gær. Banda-
riski herráðsforinginn
ávarpaði blaðamenn fyrir
utan Höföa i gær, þar sem
hann var i boði Daviðs
Oddssonar borgarstjóra.
A-mynd/E.ÓI.
ar t.d. árásarkafbáta,
fjölda þeirra og skamm-
dræg kjarnavopn um borð
í skipum og sérstaklega
kafbátum. Það er jú meg-
inkjarninn í tillögum
okkar að NATO lýsi því
yfir að það sé reiðubúið að
kanna þessar tillögur og
rannsaka. Og ef niðurstöð-
ur verða jákvæðar, þannig
að afvopnun samrýmist ör-
yggishagsmunum Vestur-
íanda, þá er það okkar
tillaga að teknar verði upp
gagnkvæmar viðræður.
Það er nýtt í málinu að
slíkar rannsóknireru fram-
kvæmdar."
Jón Baldvin segir ljóst
að almenningur hér á landi
eða annars staðar líði ekki
að beðið verði með hendur
i skauti þangað til við
stöndum frammi fyrir af-
leiðingum af umhverfis-
slysi — sem aldrei verði
bíctt.
ísland var síðasti við-
komustaður flotaforingj-
ans fyrir heimkomu úr
opinberri heimsókn til
Sovétríkjanna, sem var
fyrsta heimsókn formanns
herráðs Bandaríkjanna til
Sovétríkjanna og endur-
gjald fyrir heimsókn yfir-
manns sovésku herjanna til
Bandaríkjanna.
Barist
gegn
lokun
- sjá baksíðu
EB oz EFTA:
Dragast
viðræður
á langinn?
Sögulegar yfirlýs-
ingar Rochards í
Alþýðublaðinu
benda til þess
Sjá fréttaskýr-
ingu á bls. 5.
«