Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 12.05.1990, Blaðsíða 16
MÞBUBUBIB Laugardagur 12. maí 1990 esægaBaaaaim RITSTJÓRN Q* 681866 - 83320 FAX 82019 •••• •••• • • ••••••••• •••• ••• •••• •• •••• •••• • • • •••• •••• • •• •••• •• • • •••• ••• • •••• • • MOSKVA — Ráðamenn í Lithaui>alancii sögðust í gaer halda áfram af auknum krafti tilraunum sínum til að rjúfa ofíubann Sovétmanna. í höfnum landsins er unnið að und- irbúningi þess aö taka á móti olíuskipum og í fyrsta sinn er farið að eyða af neyðarbirgðum í landinu. Leonas As- mantas orkuráöherra sagöi í gær að viöræöur stæðu yfir viö olíufélög í Saudi Arabíu, Danmörku og Norður Amer- íku. í dag hittast forsætisráherrar Kystrasaltsríkjanna þriggja í Tallin, höfuðborg Eistlands, til að samræma bar- áttuna gegn yfirráðum Sovétmanna. CARPENTRAS — Frakklandi — Franskur rabbí minntist helfarar nasista viö athöfn sem fram fór í kirkjugaröi gyö- inga þar sem skemmdarverk voru framin á leiöum og leg- steinum. TUXTLA GUTIERREZ — Mexíko — Jóhannes Páll páfi breytti ferðaáætlun sinni um suöurhluta Mex- íko eftir flugslysið sem varð 21 manni að bana þar á meöal biskupi sem ætlaði að hitta páfa. AÞENA — Konstantin Mitsotakis, forsætisráðherra (Irikk- lands, sagði eftir fund meö F.W. de Klerk, forseta Suður-Afr- iku, að Evrópuríki ættu að endurskoða andstöðu sína gegn kynþáttaaðskilnaöi og eru þetta ákveönasta vísbendingin til þessa um að lát kunni að veröa á efnhagsþvingunum. JERUSALEM — Yitzhak Rabin, fyrrverandi varnar- málaráöherra ísraels.skoraði í gær á Simon Peres.leiðtoga Verkamannaflokksins að segja af sér vegna deiina i flokks- forystunni. JERUSALEM — Óeirðir brutust út á hernumdu svæðun- um á Vesturbakkanum eftir að herbíll ók á fimm ára gamla telpu með þeim afleiðingum að hún lést. Tveir Palistinu- menn biðu bana í mótmælaaögerðum gegn lsrael. BUKAREST — Vestrænir stjórnarerindrekar sögðu í gær að ríkisstjórn Rúmeniu væri reiö út í stjórnina í Washing- ton vegna þess að hún kallaði heim sendiherra sinn í Búk- arest níu dögum fyrir fyrstu frjálsu þingkosningarnar í landinu. AUSTUR-BERLIN — Mongolia ráðgerir aö halda fyrstu fjölflokkakosningar landsins seint í júlí, að sögn heimilda hinnar opinberu fréttastofu Austur-Pýskalands i Ulan Bat- or. L0ND0N — Verðbólga í Bretlandi mælist 9,4%, hin mesta í átta ár og hefur rik- isstjórn Thatcher vindinn í fangiö um þessar mundir. SRINAGARJNDLANDI — Stríðsmenn múslima í Kashmir skutu pólitískan andstæöing til bana í gær er hann var á heimleið frá mosku. Vopnuö frelsisbarátta held- ur áfram. MOSKVA — Sovétríkin og Evrópubandalagið luku í gær tveggja daga viöræðum um viðskipti og fjárfestingar milli bandalagsríkjanna 12 og Sovét. BERGEN — Umhverfisverndarsinnar á ráðstefnu fulltrúa 24 ríkja í Noregi um mengun andrúmsloftsins hafa ásakað Bandaríkjamenn og Breta um að standa gegn hertum að- gerðum. ERLENDAR FRÉTTIR Umsjón: Laufey E. Löve Bush hugsar út í geiminn: TIL MARSINNAN ÞRJÁTlU ÁRA (TEXAS,Reuter) Georg Bush Bandaríkjaforseti boðaði í ræðu I gær að Bandaríkjamenn kæmu mönnum til Mars innan 30 ára. Forsetinn hafði lagt til' í fyrra að menn yrðu send- ir aftur til tunglsins sem yrði notað sem áfanga- staður á leið til Mars. Forsetinn minnti á að Geimferðastofnun Bandaríkj- anna, NASA, hefði verið komið á fót fyrir 30 árum og kapphlaupið í geimnum haf- ist. Hann sagðist trúa því að eftir önnur 30 ár muni menn verða á annarri plánetu. Bandaríkjaforseti sagðist ekki aðeins vera að kynna markmið heldur einnig tíma- áætlun. Eg trúi því að áður en minnst verður 50 ára afmælis lendingar Apollo á tunglinu muni bandaríska fánanum verða flaggað á Mars,“ sagði Georg Bush. Appolo 11 var geimferjan sem flutti fyrstu bandarísku geimfaranna til tunglsins i júlí árið 1969. I ræðu forsetans kom fram að á næsta ári verður framlag til Geimferða- stofnunarinnar aukið um 24% og nemur það þá 15,2 milljörðum dollara. Er hér um að ræða mestu aukningu á einstökum liðum ríkisút- gjalda. Byggingu geimstöðv- arinnar Frelsi hefur dregist mjög en áætlaður kostnaður við hana er 30 milljarðar doll- ara. Forsetinn sagði að mönn- uð geimstöð árið 2000 væri framtíðar fjárfesting Banda- rikjanna sem hefði í för með sér nýja tækni, iðnað og ný störf. Myntsameining þýsku ríkjanna: DRÖG AÐ SAMKOMU- LAGIUM HELGINA (BONN, Reuter) Þýsku rík- in tvö hófu í gær loka- samningafund sinn um myntsameiningu Þýska- lands sem framkvæmd verður 2. júlí nk. Útlit er fyrir að drög að samkomu- iagi liggi fyrir á morgun, sunnudag. Uppkastið að samkomulaginu gerir ráð fyrir að vestur-þýsk mörk og lögmál hins frjálsa markaðar nái til alls Aust- ur-Þýskalands. Drögin að samkomulaginu eru unnin í minnstu smáatriði en enn er eftir að semja um einstakar kröfur Aust- ur-Þýskalands, m.a. að fast- eignir í A-Þýskalandi fái ákveðna lögvernd fyrir kaup- um vestur-þýskra fasteigna- braskara. Austur-Þýskaland fer einnig fram á aukagreiðsl- ur til handa eldri borgurum og lágtekjufólki sem óttast er um að verði undir þegar verðlag á matvörum og öðr- um nauðsynjavörum ásamt leigukostnaði rýkur upp eftir Dauöaslys i sovéskri umferö: 58 þúsund lét- ustífyrra (MOSKVA, Reuter) Rúm- lega 58 þúsund Sovétmenn létu lífið í bifreiðaslysum á fyrra ári. Það er 20 % hærri tala en árið á undan. Sovéska blaðið Rabochaya Tribuna sagði í gær að tveir þriðju bifreiðaslysannaættu rætur sínar að rekja til van- hæfni ökumanna og lítillar ögunar undir stýri. Um þriðj- ungur dauðaslysanna má rekja til öviunar við akstur sem er 7 % hækkun frá 1988. mynteiningu þýsku ríkjanna í byrjun júlí nk. Fjármálaráð- herrar þýsku ríkjanna tveggja munu funda um sam- komulagsdrögin nk. mánu- dag og leggja fram tillögur hvernig myntsameining ríkj- anna verði fjármögnuð og framkvæmd. Berlinarbúar fagna hruni Berlinarmúrsins. Þann 2. júlí nk. munu þeir fagna myntsameiningu þýsku rikjanna. Vilja kveikja í ferjunni aftur (OSLÓ, Reuter) Norræna rannsóknarnefndin sem rannsakar brunann um borð í ferjunni Scandinavi- an Star, vill nú fá að kveikja í ferjunni aftur tii að komast að raun um hvers vegna eldurinn breiddist svo hratt út. Nefndin hefur snúið sér til norsku ríkisstjórnarinnar með beiðni um að hún ábyrg- ist þann kostnað sem af þessu kann að hljótast. Ábyrgð norskra stjórnvalda er sögð nauðsynleg vegna þess að danska tryggingafélagið, sem tryggði skipið, leggst gegn því að kveikt verði í því á nýj- an leik. Tryggingafélagið metur verðmæti ferjunnar á um 10 milljónir dollara, eða um 600 milljónir króna. Sérfræðingar nefndarinnar segjast ennfremur vilja fá að vita hvers vegna svo mikið varð til af eitruðu gasi í göng- um skipsins. Norska lögreglan rannsak- ar einnig brunann í ferjunni og þar eru menn þeirrar skoðunar að kveikt hafi verið i. Grunsemdir lögreglunnar beinast þó ekki að neinum sérstökum aðila.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.