Alþýðublaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 22.05.1992, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 22. maí 1992 Garðyrkjubœndur fylgjandi frjálsri samkeppni „ ÓTTAST EINOKUNAR- STIMPIUNN" — segir Pálmi Haraldsson framkvœmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna Sölufélag garðyrkjumanna er elsta dreifingarfyrirtæki grænmetis og ávaxta hér á landi, stofnað árið 1940. Það var fyrst á þessari öld sem garðyrkja hófst sem búgrein á íslandi, en það gerðist þegar mönnum varð ljóst að nýta mætti jarðvarmann á háhi- tasvæðum landsins til ræktunar græn- metis í stórum stfi. I gegnum árin hefur dreifingaraðilunum fjölgað og Sölufél- agið hefur gengið t gegnum marga hreinsunarelda. Á síðasta ári tók nýr framkvæmdastjóri, Páimi Haraldsson viðskiptafræðingur, við fyrirtækinu og beitti sér fyrir nokkurri endurskipu- lagningu. Alþýðublaðið spurði Pálma fyrst út í þá ímynd sem oft hefur verið dregin upp af íslenskum bændum, þar sem þeir eru sagðir lifa við vemdaðar markaðsaðstæður. ,í>að er alveg ljóst að þessi ímynd á að nokkru leyti við um bændur í hinum hefðbundnu búgreinum, en garðyrkju- bændur eru mjög markaðssinnaðir og óttast verulega einokunarstimpilinn sem verið hefurá bændastéttinni í heild sinni. Garðyrkjubændur hafa starfað mjög lengi á forsendum frjálsrar sam- keppni og ég er ekki í nokkrum vafa um að hin innlenda framleiðsla geti staðið af sér aukinn innflutning er- lendis frá. íslenskt grænmeti hefur auk þess ótyíræða kosti fram yfir það inn- fiutta. í fyrsta lagi er það ferskara, t.d. vatnsmeiri gúrkur og í öðru lagi um- hvetfisvænna sökum þess að eituref- nanotkun er í algjöru lágmarki. Gæði innlendrar framleiðslu em líka miklu meiri vegna þeirrar staðreyndar að aðflutt grænmeti er oft orðið viku gamalt þegar það kemur í verslanir hér. Reynslan sýnir einnig að verð á græn- meti lækkar þegar íslenska fram- leiðslan kemur á markað, auk þess sem neyslan eykst stórlega yfir sumarið1*. - Hvað með áhrif alþjóðlegra við- skiptasamninga, EES og GATT? „Garðyrkjubændur em ágætlega undir það búnir að takast á við aukna erlenda samkeppni og í raun fagna ég svona samningum sem stuðla að fijál- sum viðskiptaháttum. Greinin nýtur eingöngu árstíðabundinnar innflut- ningsvemdar og stuðningur opinberra aðila hefur verið mjög lítill. Það er géri ráð fyrir ákveðnum fyrirvömm og aðlögun í EES hvað varðar grænmetis- og blómaframleiðendur og em það ákvæði sem gilda einnig um mörg nnur lönd. En við þurfum vissulega að auka fmynd íslenskrar framleiðslu og láta neytandann vita meira af okkur. Það sem við leggjum hins vegar áherslu á er að geta nýtt þá miklu fjár- festingu sem til staðar er til þess að framleiða grænmeti allt árið. Þar setur myrkrið strik í reikninginn frá október og fram í mars, og okkar hugmynd er því að nýta þá miklu umframorku sem til staðar er í landinu til þess að auka raflýsinguna í gróðurhúsunum yfir dimmustu mánuðina. Til þess að þetta sé hægt er nauðsynlegt að garðyrkju- bændur fái hagstæðara raforkuverð. Það er verið að skoða þessa hluti í samvinnu við stjómvöld, en það væri vel þess virði að gera tilraun með eina gróðrarstöð strax í haust'*. - Er ekki hœtt við að fleiri fari út í þessa rœktun og offramleiðsla verði ef farið verður að greiða niður raf- magn? „Nei ég held að svo verði ekki. enda er garðyrkjan bundin við ákveðin háhi- tasvæði á landinu og þar er næg fjár- festing til þess að anna allri innanlands- framleiðslu og vel það þegar fram- leiðslan er í hámarki. - Má búast við útflutningi á íslen- sku grœnmeti? „Sölufélagið flutti út íslenska tómata á Evrópumarkað hér fyrir nokkrum árum og gekk það sæmilega. en þar var fyrst og fremst um tilraun að ræða. Við erum þessa dagana að þreifa fyrir okkur í Færeyjum og það mun skýrast á næstunni hvort útflutningur þangað er raunhæfur möguleiki. Færeyingar eru áhugasamir um að fá góðar vörur á góðu verði og erum við þá að hugsa um þann tíma þegar framleiðslan er sem mest hér. Við h'tum vissulega til markaðarins á meginlandi Evrópu í framtíðinni og þar ættum við að geta auglýst íslenskt grænmeti sem umhverfisvæna gæða- vöru, vegna vatnsins, jarðvegsins og þeirrar staðreyndar að eiturefni eru hér notuð í algjöru lágmarki**. Feitt hrossakjöt JAPANIR VIUA MEIRA OG MEIRA - og hafa keypt dilkakjöt ájjórföldu verði miðað við það sem aðrar þjóðir hafa borgað JAPANIR sækjast mjög eftir hrossakjöti frá íslandi - og þeir vilja að það sé feitt. Tómas Kristinsson, kjöt- iðnaðarmaður og framkvæmdastjóri í Kjötsölunni í Kópavogi segir að pant- anir frá Japan séu upp á 1500 hross, eða þá hluta sem Japanir vilja leggja sér til munns. Gallinn er sá að það vantar um 500 til að fylla upp í pöntunina. Tómas freistar því að ná í 500 hross til viðbótar, 6-7 vetra, í góðum holdum. Tómas og hans menn hafa frá áramótum unnið hörðum höndum við að úrbeina og vinna kjöt. 150 skrokka, eftir ströngustu japönskum hefðum. Japanir eru miklir matmenn og vand- látir neytendur. Þeir fylgjast vel með verkun kjötsins, senda frá sér lit- skrúðug litakort sem sýna hvemig kjötið á að líta út. Þeir vilja að kjötið sé feitt innan frá og með miklum mögu- leikum til fitusprengingar. Þó hafa þeir eilftið slakað á kröfum sínum um fitu að undanfömu, þegar Ijóst varð að erfitt er að útvega nóg af feitu kjöti. „Bændur fá 120 krónur fyrir kfióið hjá okkur, 15% meira en verið hefur á almennum markaði. Þetta er kannski lágt verð, en þó skárra en verið hefur. Hinsvegar getur málið þróast til betri vegar, ef okkur tekst að nýta skrokkana fyrir innanlandsmarkaðinn. Japanir vilja aðeins lærin“, sagði Tómas. Kjötsalan hefur gert tilraunir ti! að nýta það sem til leggst eftir að Japanir hafakeypt það sem þeir vilja. Ymislegt hefur verið framleitt og má þar nefna hrossahakk, sem líkað hefur vel, snit- sel, álegg, pylsur - og jafnvel hamborg- TÓMAS KRISTINSSON, - hann var að úrbcina hrossaskrokka fyrir Japani þegar við hittum hann að máli í gær. A-mynd E.Ól. ara. Þessa vöm þarf að kynna hér innanlands, en þeir sem reynt hafa segja þetta bragðgóða vöru. Hinsvegar em ótrúlega margir íslendingar sem aldrei leggja sér til munns hrossakjöt. Japanir gera kröfur um að varan komi á markað hjá þeim ekki síðar en viku eftir slátmn. Menn þurfa því að hafa fijót handtök. Varan fer með Flug- leiðavél til London, og þaðan umsvifa- laust til Tokyo þar sem það fer á mark- aðinn. Tómas sagði að hann ætti von á aus- turrískum kryddsérfræðingi í heim- sókn í haust. Sérfræðingur þessi hefur sérstakan áhuga á hrossakjöti og kryddun jsess. Hann vill gera tilraunir með ýmsa framleiðslu úr íslensku hrossakjöti, - til dæmis pepperoní. - og líka á ýmsu dýrafóðri. hundamat og öðm slíku. Japanir hafa líka sýnt áhuga á ís- lensku kindakjöti. Send var tilrau- nasending frá Kjötsöiunni og líkaði hún vel hjá gestum veitingahúsa sem keyptu kjötið. Japanir vildu borga 280 krónur á kfióið fyrir kjötið hér á landi. Þá komst landbúnaðarráðherra Japans í málið. komst að raun um að aðrar þjóðir vom að kaupa kjöt frá Goða fyrir 59 krónur kfióið. niðurgreitt um 450 krónur af skattgreiðendum. Þetta þótti honum ekki góð latfna. og þarmeð var sá markaður lokaður. Tómas Kristinsson sagði að afskaplega erfitt væri að hækka verð á mörkuðum ytra eftir þá gjafastarfsemi sem stunduð hefði verið. markaðimir væm nánast eyðilagðir.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.