Vísir - 02.04.1976, Blaðsíða 12
Föstudagur 2. april 1976. visra
/' Fyrirgefðu hr>,
Brodie, ég hef
alveg brugöist J
Finch er úti aö
aka Alli, við j
veröum aö taka
^ hann útaf!
strax Bob —
mftr----—( ég ætla að tala
^J/ \ viö hann I
/ ^hálfleik! y
Skíðaskólinn
í Kerlingarfjöllum
Bókanir hjá Zoéga.
Sími:25544
Venjulega er körfuknattleikur ekki leikinn svona, en þaðkom þó fyrir i öilum látunum i úrslitaleiknum I
bikarkeppninni i gærkvöldi. Það er Stefán Bjarkason sem er meö boltann —Jón Sigurðsson „situr” viö
hliðina á honum, en Jimmy Kogers fer um á fjórum fótum. Ljósmynd Einar....
verðlaun!
Hinn stórbrotni körfuknattleiks-
visra Föstudagur 2. april 1976.
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal
Njarðvíkingum
tókst það ekki!
Voru tveim stigum undir þegar tvœr mínútur voru eftir af
úrslitaleiknum við Ármann en töpuðu með 10 stiga mun
,,Ég verð að viðurkenna að ár-
menningarnir eru aðeins betri en
við, þvi þeir unnu okkur þrátt
fyrir að minir strákar hafi leikið
einn sinn besta leik í vetur” sagði
Ililmar Hafsteinsson, þjáifari
körfuknattleiksiiðs Njarðvikur,
er við spjölluðum við hann eftir
að lið hans hafði tapað fyrir Ar-
mannii æsispennandi úrslitaieik i
bikarkeppni KKÍ i Laugardais-
höllinni i gærkvöldi.
,,En við hefðum saltað þá ef
þeir hefðu ekki verið með Jimmy
Rogers — hann var þeirra aðal-
vopm i þessum leik. Við erum
samt ánægðir með að ná þetta
langt i mótinu — það gefur okkur
rétt til að leika i Evrópukeppni
bikarmeistara næsta ár, og við
erum staðráðnir i að fara i hana”
Njarðvikingar áttu virkilega
góðan leik i gærkvöldi. Þeir byrj-
uðu vel — sérstaklega þo Brynjar
Sigmundsson sem skoraði 15 af 23
fystu stigum liðsins i leiknum. 1
hálfleik höfðu njarðvikingarnir
forystu — 43:42 — og lengst af i
siðari hálfleik voru þeir 1-2 stig-
um yfir eða 1-2 stigum undir.
Siðast var jafnt 83:83 er 3
minútur voru eftir af leiknum, en
þegar innan við 2 minútur voru
eftir var staðan 88:86 fyrir Ar-
mann. Þá var eins og allt loft læki
úr njarðvikingunum og þeir skor-
uðu ekki nema 2 stig það sem eftir
var. Ármenningarnir skoruðu
aftur a móti lOstig á þessum tima
og sigruðu þar með i leiknum —
og í bikarkeppninni — með 98
stigum gegn 88.
Þessi leikur var „ofsa leikur”
eins og krakkarnir segja, og
spennan mikil frá upphafi til
enda. Leikmenn beggja liða
sýndu allar sinar bestu hliðar og
kunnu áhorfendur, sem voru mun
fleiri en verið hafa á siðustu stór-
leikjum i handbolta, vel að meta
það sem þeir sáu.
Þeir Stefan Bjarkason og
Brynjar Sigmundsson voru stiga-
hæstu menn Njarðvikur — báðir
með 24 stig, en siðan kom Gunnar
Þorvarðarson með 18 stig. Jón
Sigurðsson átti mjög góðan leik
með Armanni og skoraði 30 stig
enHaraldur Haukssonvar með 16
stig. Besti maður liðsins var samt
án efa bandarikjamaðurinn
Jimmy Rogers, sem skoraði 32
stig.
Hann var að vonum mjög
ánægður er við töluðum við hann
eftir leikinn. Þetta er annar titill-
inn sem hann fær með Ármanni á
skömmum tima, og sfðan hann
byrjaði að leika með liðinu i
haust, hefur Ármann aðéins tap-
að 3 leikjum fyrir islenskum lið-
um — 1R tvisvar og KR einu sinni
— en sigrað i 21 leik.
,,Ég er ákveðinn i þvi að vera
með Ármanni aftur næsta vetur”
sagði hann. „Það er vafamál
hvort ég fer nokkuð heim i sumar,
þvi ég hef mikinn áhuga á að
dvelja hér, og sjá meira af land-
inu en ég hef gert.
Ég hef kunnað mjög vel við mig
hérna — félagarnir i Armanni al-
veg sérstaklega góðir, og fólkið
verið mér gott. Ég held að það sé
ekki hægt að finna betri stað að
vera á en ísland.” — klp —
Dankersen
mœtir
Granollers
— í úrslitaleiknum í
Evrópukeppni
bikarmeistara
Dankersen, lið þeirra Axels Axels-
sonar og Óiafs H. Jónssonar, leikur
gegn Granollers frá Spáni i úrsiitum
Evrópukeppni bikarmeistara í hand-
knattleik.
Granollers tryggöi sér réttinn tii
að leika i úrslitum keppninnar með
þvi að slá norska liðiö Oppsal út i
undanúrslitunum. Spánverjarnir
sigruðu mjög óvænt i Osló 15:13 og i
siðari leiknum á Spáni náðu norð-
mennirnir aðeins jafntefli 13:13.
Kom þessi frammistaða spánverj-
anna mjög á óvart og ekki sist aö
þeir skyldu sigra i Noregi, því að
leikmenn Oppsal eru þekktir fyrir
allt annað en að tapa á lieimavelli
einsog þeir Fll-ingar muna sjálfsagt
eftir.
Úrslitaleikurinn á milli Dankersen
og Granollers verður leikinn i Vest-
ur-Þýskalandi og má telja nokkuð
víst að þeir Axel og ólafur verði þar
með fyrstu islendingarnir sem verða
Evrópumeistarar i handknattleik.
— BB
Trukkurinn
með tvenn
maður KR, Curtiss „trukkur” Cart-
er, gekk út úr Laugardalshöllinni i
gærkvöldi, með tvo bikara undir
höndunum.
Annan fékk hann fyrir að sigra i
lirmakeppninni, þar sem einn lék á
móti einum, en sú keppni hefur stað-
iðyfir i vetur. Þar keppti „Trukkur-
| inn” fyrir körfuknattleiksblaðið
IKörfuna, og sigraði auðveldlega —
ÞóriMagnússon Val i undanúrslitum
ogsiðan Stefán Bjarkason Njarðvik i
úrslitaleiknum.
Ilinn bikarinn fékk hann fyrir að
vera stigahæsti maður islandsmóts-
ins i vetur — skoraði 451 stig í 13
leikjum, eða að meðaltali um 35 stig i
leik, sem er frábært afrek. Hann fer
heirn aftur i næstu viku, og ekki er
vitað hvort hann kemur hingað aftur
i haust, en sjálfur segist hann liafa
áhuga á þvi.
æ Jón Jörundsson ÍR fékk bikar fyrir
aö vera með bestu vftanýtingu i is-
j landsmótinu — skoraöi úr yfir 80% af
þeim vitaköstum sem liann tók.
Þá fékk Jón Sigurðsson, Ármanni
3 einnig bikar, en hann var kjörinn af
þjálfurum 1. deildarliðanna, „Besti
leikmaður islandsmótsins 1976” og
var hann vel að þvi sæmdarheiti
kominn.
— klp —
— sagði Jón Árni Rúnarsson fyrirliði unglinga
landsliðsins í handbolta, sem keppir ú
Norðurlandamótinu um helgina
Mobilgirgi Vareses frá italiu sigr-
aði Real Madrid frá Spáni i úrslita-
leiknum i Evrópukcppni meistara-
liða i körfuknattleik i gærkvöldi með
81 stigi gegn 74.
Þetta er i fjórða sinn sem Vareses
sigrar i þessari keppni — siðast var
það i fyrra — en Real Madrid hefur
liniin sinnum orðið sigurvegari.
Ilafa þessi lið sigrað i Evrópukeppn-
inni i niu skipti nú s.l. tólf ár.
Vareses hafði yfir i hálfleik —
43:42 — og þegar 10 mínútur voru
eftir höfðu italarnir enn tveggja
stiga forystu. Þá fóru Real Madrid
að gefa eftir og Vareses sigldi i
örugga höfn.
Bandarikjamennirnir í liðunum
báðum báru af — tveir hjá Vareses
og fjórir hjá Real. — klp—
Fengu ekki
bikarinn!
KR-stúlkurnar urðu bikarmeistar-
ar kvenna i körfuknattleik i gær-
kvöldi, er þær sigruðu 1R i úrslitaleik
mótsins með 46 stigum gegn 42.
IR-stúlkurnar voru lengst af yfir i
leiknum — cða fram I miðjan siðari
hálfleikinn. Þá byrjuðu þær að fjúka
útaf hver af annarri með fimm villur
— og náðu þá KR-stúlkurnar að kom-
ast yfir og sigra.
Þær fengu samt ekki bikarinn með
sér, því að hann er enn I fórum bikar-
meistaranna frá í fyrra — Þór frá
Akureyri. Hafði gleymst að skila
honum til réttra aöila, og eru þvi
þórsstúlkurnar með tvobikara I fór-
um sinum þessa dagana — bikarinn
úr bikarkeppninni, sem biður eftir að
fara upp á hillu i félagsheimili KR,
og islandsbikarinn, sem þær fengu i
siöasta mánuði.
— klp —
Spörkuðu
di Stefano
Sá frægi knattspy rnum aöur
Alfredo di Stefano frá Argentinu sem
gerði garðinn frægan sem leikmaður
með Real Madrid virðist ekki ná jafn
góðum árangri sem þjálfari og hann
gerði sem leikmaður. Hann hefur aö
undanförnu verið þjálfari 1. deildar-
liðsins Atletico Bilbao, en árangur
liðsins hefur ekki verið til að hreykja
sér af og nú hefur di Stefano — seni
er 49 ára — veriö sparkað.
— BB.
■JL
„Við vitum litiö um styrkleika
hinna liðanna þvi að þau eru nær
eingöngu skipuð nýliðum, þannig
að við teijum okkur eiga nokkuð
góða möguleika á að ná langt ef
vel tekst til” sagði Jón Arni
Rúnarsson fyrirliði unglinga-
landsliðsins scm tekur þátt I
Norðurlandamóti pilta 18 ára og
yngri i Laugardalshöllinni um
helgina.
Jón Rúnar er einn af leikreynd-
ustu leikmönnum islenska liðsins
með 8 unglingalandsleiki að baki
og er þetta þriðja Norðurlanda-
mótið sem hann verður meðal
keppenda.
Fyrstu leikirnir i mótinu verða i
kvöld, þá leikur islenska liðið við
það norska og strax á eftir leika
Sviþjóð og Danmörk — leikur Is-
lands og Noregs hefst kl. 20:00.
Mótinu verðursvo fram haldið i
fyrramálið kl. 10:00, þá leika
Noregur—Island og siðan Is-
land—Sviþjóð. Siðar um daginn
eða kl. 15:00 leika Dan-
mörk—Noregur og tsland—Finn-
land. Á sunnudag verður sami
háttur hafður á, um morguninn
leika Danmörk—Finnland og
Sviþjóð—Noregur og siðar um
daginn leika Finnland—Sviþjóð
og mótinu lýkur með leik tslands
og Danmerkur.
Það veröa ekki bara piltarnir
Reykjavikurmótið og Litla-bikarkeppnin i knattspyrnu hefjast
á morgun. Sú nýbreytni verður höfð á i Reykjavfkurmótinu að
það lið sem skorar þrjú mörk eða fleiri I leik fær eitt aukastig.
Þetta fyrirkomulag hefur viöa verið reynt erlendis við góöa
raun, liðin leika sóknarknattspyrnu og skora fleiri mörk — og
það hefur þýtt fleiri áhorfendur á leikina. Fyrsti leikurinn á
Reykjavikurmótinu verður á morgun kl. 14:00 á Melavellinum.
Þá leika Valur og Ármann — og á sama tima leikur Breiðablik
við Akranes í Litlu-bikarkeppninni i Kópavogi. Myndina tók Ein-
ar Karlsson i leik Fram og Akraness I Meistarakeppni KSÍ um
siðustu helgi...
„Það er þegar orðið Ijóst hvaða
liöleika til úrslita i öllum flokkum
nema i 3. deild karla, þar eru
kærur i gangi, svo við vitum ekki
hvaða liö það verða sem þar
koma til með að leika til úrslita”
sagði ólafur Jónsson, formaður
mótanefndar Handknattleiks-
sambandsins, i viðtali við VIsi i
morgun. Þegar við spurðum hann
um hvaöa flokkar væru komnir i
úrslit i einstaka aldursflokkum i
tslandsmótinu og hvenær þvi lýki
— sagði hann:
„Við stefnum að þvi að mótinu
ljúki um aðra helgi. 1 kvöld hefj-
ast t.d. úrslitaleikirnir i 3. flokki
kvenna og i 4. og 5. flokki karla og
verður leikið i Hagaskólanum. A
morgun og á sunnudag verður svo
leikiði Laugardalshöllinni, þess á
milli sem ekki verður leikið i
Norðurlandamótinu eða kl. 12:30,
báða dagana.
1 3.flokki kvenna eru það Val-
ur’.Haukar, IBK og Völsungur
sem eru i úrslitum, i 4. flokki
karlar eru það Haukar, Fram, Kr
og KA og i 5. flokki karla eru það
1R, KR, Fram og KA.
Svo við höldum áfram með
karlaflokkinn, þá eru það KR og
Valur sem leika til úrslita i 1.
flokki og verður sá leikur senni-
sem verða i eldlinunni um helg-
ina, Norðurlandamót stúlkna 23
ára og yngri er á dagskrá i Karl-
stad i Sviþjóö og er islenska liðið
þegar farið utan. Islensku stúlk-
urnar hafa æft sig mjög vel að
undanförnu og náð athyglisverð-
um árangri i undirbúningsleikj-
um sinum. Fyrsti. leikur þeirra
verður i fyrramálið. Þá leika þær
gegn svium.
— BB.
lega núna á sunnudagskvöldið á
undan leik Vals og Vikings i
bikarkeppninni. í 2. flokki eru það
Ármann, 1R, Vikingur og Þór og i
3. flokki, Þróttur, Vikingur, Ar-
mann og Völsungur sem leika til
úrslita. úrslitaleikirnir i þessum
flokkum fara fram um aðra helgi,
á Akranesi og i Hafnarfirði.
í 2. deild kvenna leika UMFN,
Haukar og Þór frá Akureyri um
lausa sætið i 1. deild og fara úr-
slitaleikirnir fram á Akureyri um
aðra helgi.
Keppni i 1. flokki kvenna er
þegar lokið. Þar voru aðeins tvö
lið — Valur og Fram — og urðu
valsstúlkurnar íslandsmeistarar.
í 2. flokki kvenna eru það Ár-
mann, Valur, Fram og Völsungur
sem eru i úrslitum. Þessir leikir
eiga að fara fram um aðra helgi,
en ekki hefur verið ákveðið hvar
leikirnir verða.” — BB.
Best er
byrjaður
Þá er George Best byrjað-
ur að skora mörk i Ameriku.
Á miövikudagskvöldið lék lið
hans, Los Angeies Aztecs,
viö Seattle Sounders i Norð-
ur-Ameríku deildarkeppn-
inni i knattspyrnu Los
Angeles Aztacs sigraði i
leiknum 2:0 — og skoraði
George Best bæjði mörkin.
Það fyrra úr vitaspyrnu I
fyrri hálfieik, en siðara
markið i siðari hálfieik með
þrumuskoti beint úr auka-
spyrnu af 25 metra færi.
— BB.
^hann hefur átt) en á augnabliki
^slakan leik! Jsem þessu er oft go
^að fá sálfræðilegan
\stuðning~ og men
, fá sjálfstraustiö,
aftur.
Þetta er'
|P* allt i lagi
/ drengur,
veröu aöeins
ákveönari —
það er allt og
sumt, þá verö
\ég ánægð ur
„Ég vona að þetta mót verði
vatn á myllu þess mikla áhuga á
badminton sem hér er rikjandi nú
eftir að við fengum nýja iþrótta-
húsið” sagði Hörður Ragnarsson,
formaður badmintonráðs Akra-
ness er við ræddum við hann um
tsiandsmótið i badminton, sem
háð verður á Akranesi nú um
helgina.
„Þetta er mesti viðburður i
badminton, sem hér hefur farið
fram” sagði Hörður, sem verður
meðal um 100 keppenda á mótinu,
en hann og knattspyrnukappinn
Jóhannes Guðjónsson eru meðal
þeirra sem liklegir eru taldir til
sigurs i tviliðaleik karla á mótinu.
„Það verður leikið á sjö völlum
samtimis. Mótið hefst klukkan tiu
fyrir hádegi á laugardaginn og þá
leikið fram i undanúrslit i
meistaraflokki og a-flokki.
Undanúrslitin verða svo á sunnu-
dagsmorguninn, en úrslitin hefj-
ast klukkan tvö eftir hádegi.”
Þetta er i fyrsta sinn um langt
árabil, sem Islandsmót i
badminton er haldið utan Reykja-
vikur — eða allt siðan á „gullöld”
iþróttarinnar i Stykkishólmi,
en þá var það haldið þar.
Akurnesingarnir hafa vandað
mjög til þessa móts — gefa m.a.
út 32 siðna blað — og er almennt
búist við mikilli keppni og
skemmtilegu móti á Skipa-
skaganum um helgina.— saj/klp
Gulismiðurinn Haraldur
Korneliusson sankaði að sér
gulli i síöasta tsiandsmóti i bad-
minton. Leikur hann sama ieik-
inn I mótinu á Akranesi um
helgina?...
Farið að líða að lokum
handknattleiksvertíðar
flEigum góða
möguleika"
„Eplið"
sigraði
I í Sviss!
Irena Apple (Epli) frá Vest-
ur-Þýskalandi sigraði i stórsvigi I
Evrópubikarkeppni kvenna i alpa
greinum sem fram fór i Laax i Sviss í
gær. Sigur Applesem þykir mjög góð
í i bruni byggðist fyrst og fremst á
hversu vel henni tókst upp I neöri
. hluta brautarinnar i siöari ferðinni.
Hún fékk timann 1:16.40 minútur.
únnur varð Ursula Konsett frá
j Leichtenstein á 1:16.89 minútum,
hún var 4/10 úr sekúndu á undan
j Apple i miðri brautinni, en tókst illa
I1': upp i neðri hlutanum og missti þar
með af fyrsta sætinu. Þriðja varð
i Wilma Gatta frá ttaliu á 1:17.15
minútum og fjórða varð Claudia
i Giordani frá italiu. Hún hlaut silfur á
ólympiuleikunum i svigi.
Gabi Hauser frá Austurriki er
! stigahæst i keppninni með 85 stig,
■ önnur er Thea Gamper frá ítaiíu
með 77 stig og i þriðja sæti eru Ingrid
Eberle og Brigitte Schroll — báðar
! frá Austurriki — með 76 stig.
— BB.
.
L ítalarnir
| Evrópu-
meistarar
ALLT ÞAÐ BESTA I BAD-
MINTON Á SKIPASKAGA!