Vísir - 01.07.1978, Blaðsíða 15

Vísir - 01.07.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 1. júll 1978 15 Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá nein- um sem fylgist með popptónlist, að mikil deyfð hefur ríkt í þeim málum alls staðar í heiminum undanfarin ár. Ekkert nýtt hefur komið fram og vélræn tilf inningaiaus diskóíekf ramleiðsla ráðið ríkjum. Við hér norður undir Dumbshafi höfum ekki farið varhluta af þessari stöðnun sem sést best á því hve popphljómsveitum hefur farið stöðugt fækkandi og stemmning á dansleikjum ber meiri keim af brennivíni og ófullnægju en áður. Jafnframt hefur aðstaða þess aldurshóps sem mest hefur af poppinu að segja, — þ.e. auð- vitaðunglinganna, til að skemmta sér sennilega ekki verið eins slæm frá striðslokum. En sem betur fer eru alltaf til menn sem reyna að klóra í bakkann og finna uppá einhverju skemmtilegu til þess að hrista uppí hinu gráa hversdagslifi og i dag kynnir Helgarblaðið enskt hljómplötufyrirtæki, og nokkra þá tónlistarmenn sem það hefur á snærum sínum, sem nýtur mikilla vinsælda i heimalandi sínu og er um þessar mundir einnig að kveða sér hljóðs annars staðar í veröldinni t.d. i Bandaríkjunum og eftil- vill hér heima á Fróni: STIFF RECORDS. „Cry like a baby” með hljóm- sveitinni Box Tops Og flestar þessar endurútgáfur eru seldar á mun ódýrara verði en gerist og gengur með plötur. Nýby Igjutónlist Það fyrirbæri sem svo mikið hefur verið rætt og ritað um að undanförnu, „new wave” eðá nýbylgjutónlist eins og það kallast hérlendis, er einmitt sú skilgreining sem breskir blaða- menn hafa gefið þeirri tónlist sem Stiff Records sendir frá sér og þeir taldir frumherjar á þessu sviði. Hinsvegar hefur hugtakið fengið ákaflega vill- andi merkingu hérlendis. Sú tónlist sem hér er rætt um er nefnilega langt frá þvi að vera eitthvað nýtt i sögunni. Hér e gamla góða rokkið enn á ferð- inni i friskum og kröftugum búningi og hugtakið „new wave” i Englandi þýðir alveg nákvæmlega það sama og „Lummustuð” á tslandi. Hér eru ekki á ferðinni öskrandi apakettir að syngja um ælu og öskuhauga eins og svo margir virðast halda, heldur hressilegir rokkarar eins og Lónli blú bojs, Lúdó og Dúmbó og Steini, sem eru fyrst og fremst að hugsa um að koma sjálfum sér og öðrum i gott skap. —pp. Elvis Costello er tölvufræðingur að mennt og starfaði sem sllkur þar til á slðasta ári, er frami hans innan poppheimsins var orðinnaugljós. Hann var einn af stofnendum Stiff Records og fyrsta platan sem fyrir- tækið gaf út var einmitt með honum („Radio Sweetheart”). í byrjun þessa árs yfirgaf hann Stiff ásamt Nick Lowe og Jake Riveria og stofn- aði með þeim Radar Records. STIFfí Hljómsveitin the Damned, skipuö þeim Dave Vanian,söngur, Brian James, gitar, Captain Sensible, bassi, og Rat Scabies, trommur, var stofnuð sumariö ’75. Þaö gekk hvorki né rak hjá þeim þar til Stiff gaf út með þeim lagið „New Rose” sem var fyrsta „nýbyigjulagiö” sem komst á vinsældarlista. En þrátt fyrir vinsældirnar, virðist hafa hlaupið snurða á samstarfið, þvi nýjustu fregnir herina að þcir séu hættir. Ian Dury, sem af mörgum er tcl- inn 1 jótasti poppari heimsins, var búinn að vera ákaflega lengi i „bransanum” og hafði aldrei gengið nokkurn skapaðan hlut þar til hann gekk til liös við Stiff. i dag er hann ein skærasta stjarna Bretlands og er farinn að hasla sér völl einnig i U.S.A. Lag hans „Sex + Drugs+Rock + RollH-- Chaos” er einskonar þjóðsöngur „nýbylgjumanna”. Nick Lowe stjórnaði upptökum á flestum plölum Stiff I byrjun s.s. Elvis Costello, Dainned, Gramham Parker o.fL, auk þess sem hann gerði margar sjálfur. Eftir að hann hætti hjá Stiff gaf hann út breiðskifuna „Jesus of Cool” sein var ein mest selda platan i Englandi i vor. Hann þykir mjög frjálslyndur og skemmtilegur rokkari og átti mikinn þátt i að skapa hiö sérstaka andrúmsloft innan Stiff records og vinnur enn mikið fyrir' það fyrirtæki, þó svo að hann sjálfur út plötur slnar hjá Radar records. Dave Edmunds, sem er einn þeirra mörgu listamanna sem hafa starfað með Stiff, þó svo að þeir séu á samning annars staðar, kom fyrst fram á sjónar- og heyrnarsviðið 1967 sem gitarleik- ari I Love Sculpture og sló I gegn með „Sverödansinum ” eftir Khatchaturian. 1970 gaf hann út' lagið „I hear you knocking” seni varö m.a. mjög vinsælt hérlendis.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.