Vísir - 30.08.1978, Blaðsíða 24

Vísir - 30.08.1978, Blaðsíða 24
VÍSIR Islensk fyrirsœta f bandarískri kvikmynd Anna 1$juriisdóttir leikur islenskan skiptinemu I Aineri ean (irafl'iti 2. Anna Björns- dóttir í Ameri- can Oratfíti Anna Björnsdóttir, fyrirsætan íslenska, sem starfar í Los Angeles, leikur um þessar mundir i kvikmyndinni American Graffiti 2, sem veriö er aö taka i San Francisco í Kali- forniu. Anna, sem á mikilli vel- gengni að fagna i íyrir- sætustörfum sinum, er i hlutverki islensks skipti- nema i myndinni. American Grafl'iti 2, er eins og nafnið gefur til kynna framhald af mynd- inni American Graffiti sem sýnd var við miklar vin- sældir um allan heim fyrir nokkrum árum. Það er leikstjórinn heimsfrægi, George Lucas (Star Wars), sem hefur yfirumsjón með gerðmyndarinnar, en hann leikstýrði einmitt hinni fyrri. „Nýja” myndin verður i i'jórum hlutum, og i hverj- um þeirra er greint frá af- drifum unglinganna. sem komu við sögu i fyrri myndinni. — GA Sólarlandaferðirnar: Hœkka um 19% „Viö erum háðir samn- ingum ierlendum gjaldeyri bæði hvað varðar flug og gistingu þannig að við urð- um að taka okkar trygg- ingu eins og bankar og flugfélög hafa gert”, sagði Steinn Lárusson hjá Úrvali i samtaii við Visi en Félag islenskra ferðaskrifstofa hefur ákveðið að hækka hópferðir um 19% þar til nýtt gengi veröur skráö. Steinn sagöi að feröa- skrifstofur fengju ekki gjaldeyrisyfirfærslu fyrr en 3 dögum fyrir brottför og það aðeins 60% af áætl- uöum kostnaði en 40% fengjust yfirfærð eftir á samkvæmt reikningi. Bindiskylda bankanna er nú 20% miðað viö gengiö þegar það var siðast skráð og verða ferðaskrifstofur aðhlita þvi sem aðrir. Hins vegar taka þær 19% trygg- ingarfé af farþegum og sagði Steinn að skýringin á þviværiað hlutikostnaöar- ins við ferðirnar væri innlendur. Agreiningur hefði verið um það hvort þeir hefðu átt að vera einu eða tveimur prósentum lægri, i bindiskyldu en bankarnir. „Ef þessi áætl- un okkar reynist of há þeg- ar nýtt gengi verður skráð verður fólki greitt til baka”, sagði Steinn. —KS. ■ Enn í skipaflofa Sambandsins MYTT OLIU- SKIP KEYPT Skipadeild SIS hefur gert samning við I sem á að afhendast um mitt næsta ár, skipasmiðastöð i Lauwenburg I Þýska- | samkvæmt heimildum Visis; landi um smiði á 2000 lesta oliuskipi, Axel Gislason, fram- kvæmdastjóri Skipa- deildar StS, er erlendis að ganga endanlega frá þessum samningum og mun hann væntanlegur til landsins i dag eöa á morgun. Að þvi er Visir hefur fregnað var búið að leita til um 30-40 aðila um smiði skipsins. Itarlegar viðræður fóru fram á milli viðsk iptaráðu- neytisins og forráða- manna StS til að kanna hvort ekki væri unnt að láta smiða skipiö i Portú- gal, en skipasmiöastöðv- ar þar reyndust ekki samkeppnisfærar. — KS Skotmalið á Þormóðsstöðum við Hafravatn: Réð konu sinni og sjélfum sér bana Hjónin að Þormóðsstöðum við Hafra- vatn fundust látin af skotsárum snemma i gærmorgun. Maðurinn hringdi til lögreglunnar i Reykjavik um klukkan sex og sagði að slys hefði orðið. Þegar lögreglan kom á staðinn voru þau bæði látin. Njörður Snæhólm, yfir- lögregluþjónn Rann- sóknarlögreglu rikisins, sagði i morgun, að allt benti til þess að maðurinn hefði fyrst orðið konunni að bana, siðan hringt til lögreglunnar og að þvi loknu banað sjálfum sér. Ekki er vitað um ástæð- ur þessa atburðar og ekki bendir neitt til þess að þarna hafi fleiri komið við sögu. Maðurinn hét Gisli Kristinsson og kona hans Sólveig Jóhannsdóttir. Gisli annaðist gæslu á hundum embættis veiði- stjóra, sem þarna eru geymdir. Var hann liö- lega fimmtugur að aldri, en Sólveig um fertugt. — SG Húsið að Þormóðsstöðum við Hafravatn, þar sem harmleikurinn átti sér stað. Vísis- mynd: GVA ■ SSaiSHiHIBBB ■ a ■ Stereóútvarp 9 og onnur rass ■ ■ Útvarpsstjóri hefur látiö kanna hvaö það kostar að hefja útvarpsútsendingar I stereó, uppsetningu stúdióa úti á landi, og hver kostnaðurinn yrði við að koma upp annarri bylgjulengd er sendi út tónlist og auglýsingar. Þá hefur útvarpsstjóri einnig látið kanna kostnað við gerð myndsegulbanda með völdu efni sjónvarps, til notkunar fyrir islensk skip á hafi úti. Þessar kostnaðaráætlanir hafa verið geröar vegna tillögu Ellerts B. Schram i útvarpsráði um að hraðað verði framkvæmdum við ofangreind atriði. Tæknimenn útvarpsins telja að koma megi fyrir tvirása stereó útsendingu i núverandi húsnæði út- varpsins. Stofnkostnaöur við stjórnborð og dreifi- kerfi er áætlaður 38 til 43 milljónir króna, en áætlað er að reksturkostnaður yrði um 35 milljónir á ári. Stofnkostnaður við upp- setningu þriggja stúdióa úti á landi er áætlaöur um 20 milljonir, en erfiðara er talið að áætla reksturs- kostnað. Þá telja starfsmenn Rikisútvarpsins erfitt að áætla hvað kosti að koma upp aukaútvarpsrás, en bent er á að ef til vill sé unnt að leysa þörfina á sliku útvarpi með leng- ingu dagskrárinnar upp i 17 klukkustundir á sólar- hring. Ekki liggur enn fyrir kostnaðaráætlun vegna gerðar myndsegulbanda fyrir sjómenn, og tekiö skal fram, að allar kostn- aðartölur sem hér að fráman eru, eru settar fram með fyrirvara. t samtali við Visi sagði útvarpsstjóri Andrés Björnsson, að hann vissi ekki hvenær þessi mál yrðu tekin fyrir i útvarps- ráði né hvert framhald yrði á málinu. —AH. ■ ■ ■ 1 ■ ■ ■ ■■■■■■■aaaa■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ SMAAUGLÝSINGASIMINN ER 86611 ;'Smáauglýsingamóttaka ,alla virka daga frá 9-22. Laugardaga frá 9-14 og sunnudaga frá 18-22.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.