Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.02.2001, Blaðsíða 1
2001  MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A SKÍÐI: MAÐKUR Í MYSUNNI HJÁ FINNUM? / C4 ÞÓREY Edda Elísdóttir, stang- arstökkvari úr FH, reyndi að bæta Íslands- og Norðurlandamet Völu Flosadóttur, ÍR, í stang- arstökki kvenna á meistaramóti suðurríkjanna á sunnudaginn. Eftir að hafa stokkið yfir 4,40 m var ráin hækkuð í 4,46, einum sentímetra hærra en met Völu er. „Ég var nálægt því að fara yfir í tveimur fyrstu tilraununum,“ sagði Þórey Edda í samtali við Morgunblaðið. Um leið og Þórey stökk yfir 4,40 m lyfti hún sér upp í 8. sæti heimsafrekslista árs- ins innanhúss í stangarstökki. Sem kunnugt er bætti Þórey sinni persónulega árangur á mótinu um 3 sentímetra, þegar hún lyfti sér yfir 4,40 metra. Fór hún yfir þá hæð í fyrstu tilaun. Á meistaramótinu sem fram fór í Lexington í Kentucky fór Þórey fyrst yfir 3,82 í annarri umferð, þá 4,02, síðan 4,16, og 4,31, allt í fyrstu tilraun. Þórey er byrjuð á annarri gerð stanga en áður auk þess þær eru lengri en þær sem hún notaði áð- ur. Þórey segir það hafa verið ánægjulegt að lyfta sér yfir 4,31 og brjóta ákveðinn múr, sem er 4,30 metrar og hefur nokkuð vaf- ist fyrir henni. „Það var meiri- háttar tilfinning að fara yfir og mikill sálfræðilegur styrkur. Ég er því mjög jákvæð gagnvart þessum nýju stöngum og bjartsýn á framhaldið,“ segir Þórey sem ekki reiknað með að keppa aftur fyrr en á bandaríska háskóla- meistaramótinu um aðra helgi. Þórey Edda reyndi við Íslandsmet Jóna Gunnarsdóttir, Íslandsmeistarinn Elín Óskarsdóttir og Dagný Edda Þórisdóttir með verðlaun sín. Elín meistari og fer til Moskvu GARY Megson, knattspyrnustjóri WBA, hrósar Lárusi Orra Sigurðs- syni fyrir frammistöðuna gegn Portsmouth um síðustu helgi en Lár- us Orri fékk loksins að spreyta sig í byrjunarliðinu. „Lárus lék mjög vel og gerði allt sem við væntum af hon- um. Hann var sérlega grimmur í tæklingunum og gerði sóknarmönn- um Portsmouth erfitt fyrir,“ segir Megson, sem virðist því enn hafa trú á Lárusi því á dögunum neitaði knatt- spyrnustjórinn enska 2. deildarliðinu Luton um að fá Lárus að láni. Megson hrós- ar Lárusi Orra SVEN Göran Eriksson, landsliðs- einvaldur Englendinga í knatt- spyrnu, útnefndi í gær David Beckham fyrirliða enska lands- liðsins og kom sú ákvörðun Sví- ans svo sem ekkert á óvart þar sem hann hafði látið að því liggja í nokkurn tíma. Það var alltaf ætlunin að Beck- ham héldi fyrirliðabandinu enda sé ég ekki ástæðu til að breyta þar sem hann stóð sig vel í leikn- um á móti Ítalíu,“ sagði Eriksson þegar hann tilkynnti þetta í gær. Beckham, sem er 25 ára miðju- maður Manchester United, var með fyrirliðabandið í fyrsta sinn 15. nóvember þegar England tap- aði 1:0 fyrir Ítalíu. Beckham sagði á mánudaginn að hann liti ekki á sig sem sjálf- sagðan kost þegar kæmi að vali á fyrirliða landsliðsins. „Beckahm er fyrst og fremst mjög góður leikmaður sem ég tel að geti orð- ið góður leiðtogi og við skulum vona að þetta sé upphafið af löngum og farsælum fyrirliðaferli hans. Ég sagði honum af ákvörð- un minni seint á mánudagskvöld- ið og hann var mjög ánægður með að halda fyrirliðastöðunni.“ sagði Eriksson. Sænski þjálfarinn sagði einnig við það tækifæri að hann vonaðist eftir að Paul Scholes, félagi Beck- ham hjá United, yrði orðinn góð- ur fyrir leikinn í kvöld en hann hefur verið slæmur í maganum að undanförnu. Scholes gat ekkert æft á mánudaginn en mætti á æf- ingu í gær þó hann væri fyllilega búinn að ná sér. „Svona eiga at- vinnumenn að vera. Ég er ánægður með Scholes og þetta sýnir áhuga hans á að leika með og verði hann góður í fyrramálið er líklegt að hann verði í byrj- unarliðinu,“ sagði Ericksson sem sagðist eiga von á hörkuleik á móti Spánverjum enda væru þeir með gott lið. Beckham fyrirliði JÓHANN Birnir Guðmundsson,knattspyrnumaður úr Keflavík, er kominn heim frá Noregi þar sem hann skoðaði aðstæður hjá norska úrvalsdeildarliðinu Lyn. Norðmenn- irnir hafa gert honum tilboð og því eru talsverðar líkur á að Jóhann fari til Noregs án þess að leika með Keflavík á Íslandsmótinu í ár. Mér leist vel á allar aðstæður hjá félaginu og er með tilboð frá því. Það ber í rauninni ekki mikið á milli þess tilboðs og því sem ég er með í huga og því tel ég afskaplega líklegt að við náum saman en það er þó alls ekki búið að ganga frá einu né neinu,“ sagði Jóhann í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Ef það gengur eftir og Jóhann og Lyn ná samkomulagi er næsta skref í málinu að norska félagið hefur samband við við Keflvíkinga því Jó- hann er samningsbundinn þeim. Hann gekk til liðs við sitt gamla félag um áramótin og samdi til þriggja ára, eftir að hafa leikið með enska félaginu Watford í hálft þriðja ár. Dvöl hans hjá Keflvíkingum gæti því orðið styttri en efni stóðu til því ef svo heldur fram sem horfir verður Jóhann Birnir kominn til Noregs innan tíðar. Forráðamenn Lyn hafa fylgst í nokkurn tíma með Jóhanni Birni, sáu hann síðast í Reykjaneshöllinni þar sem hann gerði þrjú mörk fyrir Keflvíkinga í leik við ÍBV í deildabik- arkeppninni, en þeir höfðu einnig augastað á honum meðan hann lék með Watford. Lyn vann sig upp úr 1. deild í haust og ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili. Jóhann Birnir skoðar tilboð frá Lyn Í 40 ÁRA afmælishófi Körfuknattleiks- sambands Íslands, KKÍ, sem haldið var á laugardag, afhenti Ólafur Rafnsson formaður KKÍ þeim Einari Ólafssyni og Einar Bollasyni heiðurskrossa sambandsins. Aðeins einum heiðurskrossi hafði áður verið úthlutað til Boga Þorsteinssonar sem var fyrsti formaður KKÍ . Nafnarnir Einar Ólafsson og Einar Bolla- son eru kunnir fyrir störf sín að uppbyggingu íþróttarinnar á undanförnum áratugum. Ein- ar Ólafsson er oftast nefndur sem faðir körfu- knattleiksdeildar ÍR, auk þess sem hann þjálf- aði A-landslið karla og kvenna á sínum tíma. Einar Bollason hefur komið víða við á sín- um þjálfaraferli með landsliðum Íslands og félagsliðum auk setu í stjórn KKÍ þar sem hann var formaður um tveggja ára skeið. Nafnar fengu heiðurskrossa KKÍ ELÍN Óskarsdóttir varð um helgina Íslandsmeistari kvenna í keilu. Hún sigraði Jónu Gunnarsdóttur í úr- slitaleiknum í Keilu í Mjódd en Dagný Edda Þórisdóttir hafnaði í þriðja sæti. Þar með tryggði Elín sér þátttökurétt í Evrópubikarkeppni landsmeistara sem haldin verður í Moskvu í haust. Íslandsmótið í karlaflokki hefst á fimmtudaginn og lýkur á sunnudaginn og sigurveg- arinn þar kemst líka til Moskvu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.