Vísir - 09.06.1979, Blaðsíða 19

Vísir - 09.06.1979, Blaðsíða 19
Laugardagur 9. Júni, 1979 *' x <w%r m ■ Mjómplota vikunnar Ian Dury & The Blockheads — Dolt Yourself „Mömmu þinni myndi ekki Iika við hann,” hef- ur verið sagt um höfund hljómplötu vikunnar að þessu sinni, breska nýbylgjukónginn Ian Dury. Má satt vera. Hann er alla vega ekki sú mann- gerð, sem mæður óska sér fyrir tengdason. Ian Dury er óumdeilanlega einn af æöstu prestum breska nýbylgjurokksins, 37 ára gam- all, nokkru lægri en meðalmað- ur á hæð og hefur haft svæsna helti allt frá þvi hann fékk lömunarveikina sjö ára að aldri. Hann er sem sagt ekki háa, dökkhærða, þögla týpan, — sem vinsælust er. Þó þarf Ian Dury ekki að kvarta um skort á vinsældum. Að frádregnum Elvis Costello eru aðrir nýbylgjumenn ekki vinsælli. Fyrsta LP-plata Durys og félaga hans, Þverhaus- anna, (Blockheads) „NewBoots And Panties” hefur allt frá þvi hún kom út fyrir rösklega ári verið meðal söluhæstu platn- anna i Bretlandi og lög hans s.s. „What A Waste,” „Sex And Drugs And Rock’n’Roll”og „Hit Me With Your.Rhythm Stick” hafa orðiö glenni vinsæl. Ian Dury hefur verið lýst á marga vegu. Um hann hefur verið sagt að hann sé fyrsti pönkgrinarinn, einkennileg blanda af Johnny Rotten Charlie Chaplin og Hafnar- strætis-róna. Aðrir hafa sagt að hann sé blanda af Frankenstein og Max Wall. Allt um það eru ekki ýkja mörg ár frá þvi hann sneri sér að tónlistinni. Hann var þá 29 ára. „Áður var ég málari með nokkurra ára listnám að baki, og það ekki hjá skóla af lakara taginu. En þegar ég var 29. ára, ákvað ég að ég væri ekki góður málari og á þeim aldri er maður orðinn nógu gamall til að mynda sér sjálfstætt álit,” hefur Dury sagt. Ian Dury var tólf ár viðloð- andi myndlistina, málaði og myndskreytti. Hann vann m.a. á Sunday Times og timaritinu London Life, var i listaskóla og stundaði kennslustörf i faginu áður en hann sneri sér að tón- listinni og Kilburn And The Highroads birtust á sviðinu. „Þú getur ekki ásakað neinn fyrir að vera vanhæfan,” segir Dury, ,,þú verður að sætta þig við það. Eg býst við að það hafi mótað lif mitt, gert mig þolin- móðari, enda hafði ég ekki svo miklu að tapa,” segir hann um dvöl sina á skóla fyrir fötluð börn, en vegna heltinnar var Dury i æsku séndur i slikan skóla. DO IT YOURSELF Nýlega kom önnur LP-plata Ian Durys og Þverhausanna á markaðinn og heitir hún „Do It Yourself”. Ekki er hægt að segja að Dury sé afkastamikill ogfyrirvikið voru margir orðn- ir býsna óþreyjufullir. En sumir bara fullir. Fyrir ári síðan lét Dury þessi ágætu orð falla á siður blaðs: „Mig langar til þess að gera aðra plötu. Og það verður aö vera betri plata þvi ella gef ég ekki út neina plötu. Ég vil engan flýti. Núgildandi plötusamning- ur minn kveður svo á um að hljómplötufyrirtækið getur ekki sett á mig timapressu.” Ian Dury er kominn með nýja plötu. Hún varð að vera betrl ~n „New Boots And Panties.” I ún er það. — Ocal. eldhúsiö Sitrónu pie Sitrónupæ er ljúffengur eftir- réttur eða á kaffiboröið, boriö fram volgt eða kalt. Deig: 125 g hveiti 100 g smjörliki 2-3 msk. Iskalt vatn Sitrónukrem: 3 eggjarauður 50 — 75 g sykur 4 msk. sitrónusafi 1 eggjahvita Marengs: 2 eggjahvitur 4 msk. ljós púðursykur Deig: Myljið smjörllkið saman við hveitið, vætiö i með vatninu. Hnoðið deigiö og þekið smurt, lausbotna tertumót að innan með útflöttu deiginu. Pikkið kökuna með gaffli og geymið i isskáp um stund. Bakið við 200 gráður á C I 15-20 min. Sitrónukrem: Þeytið eggja- rauður og sykur I ljósa og létta froðu og bætið sitrónusafanum saman við. Hitiö við gufu þar til bráðin fer að þykkna. Hrærið stööugt I á meöan. Kælið krem- ið. Stifþeytiö eina eggjahvitu, blandið henni varlega saman viðoghellið kreminu I deigskel- ina. Marengs: Stifþeytið eggjahvit- urnar. Hræriö sykurinn smám saman út i. Setjið marengsinn i toppa eða smyrjið hann yfir sitrónukremiö. Setjið kökuna inn í 125 gráöa C heitan ofn i 15-20 min. eða þar til eggjahvit- urnar eru stifnaöar og hafa fengið fallegan ljðsbrúnan lit. "Umsjón: Þór- unn Jónatans- dóttir I TILEFNI HEIMSOKNAR Systur Peggy og systur Mary Ann 14-22 júní, hefur verið ákveðið að bjóða þeim til hádegis- verðar að Hótel Valhöll, Þingvöllum strax eft- ir AA fund að morgni sunnudags 17. júni. Lagt verður af stað frá AA-húsinu við Tjarnargötu strax að loknum fundinum og haldið beint á Þingvöll. Þeir sem hefðu áhuga á að borða með systrunum á Þingvöllum láti skrá sig í síma 82399 (Skrifstofa SÁÁ) fyrir miðviku- dagskvöld 13/679. Freeportklúbburinn 1 ------------------------ J BENELUX OG FRAKKLAND IjUll Leiðin liggur m.a. um Luxemburg, Koblenz, Rínar og Móseldali, Köln, Haag, Amsterdam, Briissel, Ostende, Dunkerque, Rousen, St. Malo, Paris. 13 Júlí FERÐASKRIFSTOFAN <WW(Vtl(( lönaðarhúsinu v/Hallveigarstíg Símar 28388 — 28580

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.