Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.04.2001, Blaðsíða 2
KÖRFUKNATTLEIKUR 2 B MIÐVIKUDAGUR 18. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ VALUR Ingimundarson verður að öllum líkindum áfram þjálfari körfuknattleiksliðs Tindastóls á næsta tímabili, sem verður þá hans fjórða í röð með liðið og átt- unda alls. Valur staðfesti þetta eftir fjórða og síðasta úrslitaleik- inn gegn Njarðvík í gærkvöld. „Ég var farinn að velta því fyrir mér að hætta en reikna með því að vera með liðið að minnsta kosti eitt ár til við- bótar,“ sagði Valur við Morgun- blaðið. Þá eru miklar líkur á að Tindastóll haldi útlendingunum þremur, þeim Shawn Myers, Michail Antropov og Adonis Pomones. „Það er ekki frágeng- ið en ég er bjartsýnn á að þeir verði allir hjá okkur áfram,“ sagði Halldór Halldórsson, for- maður körfuknattleiksdeildar Tindastóls. FRIÐRIK Ragnarsson lauk í gær-kvöld löngum og farsælum ferli sem leikmaður Njarðvíkurliðsins í körfuknattleik. Frið- rik sagði við Morg- unblaðið eftir að hafa tekið við Íslandsbik- arnum á Sauðár- króki að það væri alveg öruggt að hann myndi ekki spila áfram á næsta tímabili. Hann sagði að það væri vissulega freistandi kostur að halda áfram sem þjálfari eftir þann árang- ur sem náðst hefði í vetur en engin ákvörðun hefði verið tekin um það. Friðrik og Teitur Örlygsson voru báðir leikmenn og þjálfarar Njarð- víkinga í vetur en óvíst er með fram- haldið. Báðir sögðu þeir eftir leikinn að óljóst væri hvað tæki við. „Það gæti farið svo að ég hætti að spila en næsta mál hjá mér er að gifta mig, og síðan kemur í ljós hvort ég held áfram, sem leikmaður eða þjálfari, eða hvort tveggja,“ sagði Teitur. Friðrik Ragnarsson hefur leikið með Njarðvík samfleytt frá 1987, ef undanskilið er eitt ár þegar hann lék með KR. Hann fagnaði í gærkvöld sínum fimmta meistaratitli en hann var í meistaraliðum Njarð- víkur 1991, 1994, 1995 og 1998. Tíma- bilið 1986–87 spilaði Friðrik einn deildarleik með Njarðvík, sem varð meistari þá um vorið. Friðrik legg- ur skóna á hilluna Víðir Sigurðsson skrifar                                                                                              Fyrir leikinn heima á laugardag-inn voru menn byrjaðir að fagna titlinum og flagga í bænum áður en leikurinn hófst og okkur tókst ekki að berja það úr leikmönnunum þótt við reyndum. Það hefði verið gaman að tryggja titilinn á heimavelli en við áttum það ekki skilið. En það sýnir andlegan styrk liðsins að við komum hingað afslapp- aðir eftir tapleik á heimavelli, brost- um og hlógum í upphituninni og ákváðum að hafa gaman af þessu.“ Teitur fagnaði sínum níunda Ís- landsmeistaratitli með Njarðvík en sagði að það væri alltaf jafn gaman að vinna Íslandsmótið. „Ekki síst núna, maður kann að meta sigrana enn betur þegar maður þarf að hafa meira fyrir þeim, líkamlega, en áður. Það er líka nýtt fyrir mig að vinna sem þjálfari en við vorum með frá- bært lið í höndunum. Ég spilaði ekki vel í dag, sérstaklega ekki í sókn- inni, en það skipti ekki máli. Við er- um með svo marga góða leikmenn að hópurinn leysir öll vandamál. Logi og Brenton voru gífurlega sterkir í sóknarleiknum í dag og stóru menn- irnir voru öflugir alla keppnina. Ég er geysilega ánægður með þá, og með Halldór sem hvíldi þá þegar með þurfti,“ sagði Teitur Örlygsson. Á toppnum á hárréttu augnabliki „Það er afar ánægjulegt að ná að skila Íslandsmeistaratitli á fyrsta ári sem þjálfari en þetta var um leið erf- iðara en að vinna titilinn sem leik- maður, ég var mikið fyrir utan og horfði á, ábyrgðin var meiri og þetta tók meira á taugarnar,“ sagði Frið- rik Ragnarsson, annar þjálfara og leikmaður Njarðvíkur, sem hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna og lék því sinn síðasta leik í gærkvöld. „Ég er mjög ánægður með hvern- ig liðið small saman á réttum tíma og var á toppnum á hárréttu augna- bliki. Við vorum í lægð í lokaleikjum okkar í deildarkeppninni en eins og við vorum að vona tókst okkur að hífa liðið upp og spiluðum alla úr- slitakeppnina geysilega vel. Ég vil sérstaklega hrósa Sauðkrækingum fyrir þeirra hlut, þeir sýndu mikla elju og gáfust ekki upp á móti okkur þrátt fyrir erfiða stöðu og tókst með sigrinum í Njarðvík að hleypa spennu í einvígið,“ sagði Friðrik Ragnarsson. Liðsheildin er frábær „Ég get ekki útskýrt hvers vegna ég hrekk í gang hérna á Sauðárkróki en mér tókst að skora hátt í 70 stig í tveimur leikjum hérna. Ég er fyrst og fremst ánægður með að geta stig- ið fram þegar mest þarf á að halda. Það þurfa góðir leikmenn að geta, mér tókst það, Brenton gerði það, og Njarðvíkurliðið er samansafn af frá- bærum leikmönnum sem allir geta tekið af skarið. Þess vegna stöndum við núna uppi sem Íslandsmeistar- ar,“ sagði Logi Gunnarsson, sem skoraði 30 stig í gærkvöld og var að öðrum ólöstuðum bestur Njarðvík- inga. Hann gerði 36 stig í fyrri sig- urleik Njarðvíkinga á Sauðárkróki. „Við sýndum mikinn styrk í kvöld, komum hingað eftir áfall á heima- velli og unnum hér með meira en 20 stigum. Við tókum tapinu með réttu hugarfari, komum óðir hingað og spiluðum okkar besta leik í vetur. Ég get ekki lýst því hvernig mér líð- ur, þetta er ótrúlegt. Liðsheildin hjá okkur er frábær, allir passa inn í sín- ar stöður og skilja sín hlutverk.“ Logi var Íslandsmeistari í annað sinn í gærkvöld þótt hann sé aðeins 19 ára gamall en hann var í sigurliði Njarðvíkur árið 1998, þá 16 ára. Það er hins vegar ekki víst að Njarðvík- ingar njóti krafta hans á næsta tíma- bili. „Ég veit ekki hvernig framhaldið verður hjá mér og vissulega leitar hugurinn til Bandaríkjanna. Það er Mekka körfuboltans. Ég hef líka áhuga á að fara í atvinnumennsku í Evrópu og það eru ákveðnar þreif- ingar í gangi með báða þessa mögu- leika. Ég þarf að gefa mér góðan tíma, setjast niður með fjölskyldu minni og ákveða hvað best sé að gera,“ sagði Logi Gunnarsson. Morgunblaðið/Golli Brenton Birmingham, fyrirliði Njarðvíkinga, með Íslandsbikarinn. Sigurinn sýndi and- legan styrk okkar Eftir Víði Sigurðsson Teitur meistari í níunda skipti TEITUR Örlygsson varð Íslands- meistari í níunda skipti í gærkvöld. Hann var á sautjánda ári þegar hann fagnaði sínum fyrsta titli með liðinu, árið 1984, og varð síðan meistari með Njarðvík 1985, 1986, 1987, 1991, 1994, 1995 og 1998. Með titlinum sem Njarðvíkingar tryggðu sér í gær- kvöld komst Teitur einu skrefi fram fyrir Val Ingimundarson, núverandi þjálfara Tindastóls, sem varð átta sinnum meistari með Njarðvík, fyrst 1981 og síðast 1995. Njarðvík meistari í ell- efta sinn NJARÐVÍK varð Íslandsmeistari í ellefta skipti í gærkvöld og hefur þar með unnið titilinn næstoftast allra félaga frá upphafi. ÍR-ingar eru sem fyrr með langflesta titla, 15 talsins, en þeir hafa ekki unnið frá 1977. Njarðvík vann hins vegar sinn fyrsta titil 1981. KR-ingar eru í þriðja sæti með 10 meistaratitla og síðan koma Keflavík með 5, ÍKF (Íþróttafélag Keflavík- urflugvallar) með 4, Valur með 2 og ÍS, Ármann, Haukar og Grindavík hafa orðið Íslandsmeistarar einu sinni hvert félag frá því fyrst var keppt um Íslandsbikarinn árið 1952. Ber silfurverð- launin stoltur ÞAÐ voru okkur mikil vonbrigði að tapa þessum leik og við erum ekki sáttir við frammistöðu okkar í kvöld. Við getum hins vegar verið sáttir þegar við lítum á tímabilið í heild og ég ber þessi silf- urverðlaun mjög stoltur,“ sagði Valur Ingimundarson, þjálfari Tindastóls, við Morgunblaðið í gærkvöld. Undir hans stjórn náði félagið sínum besta árangri frá upphafi. Tindastóll hafði aldrei áður komist í fjögurra liða úrslitin um Ís- landsmeistaratitilinn en fór nú alla leið í úrslitaleikina. Valur sagði að kraftar sinna manna hefðu verið á þrotum um miðjan síðari hálfleik. „Mér fannst liðið vera orðið orkulaust um miðjan hálfleikinn og það er kannski engin furða eftir langt og strangt tímabil og mikið af ferðalögum. Menn voru einfaldlega búnir. En það þarf engar afsakanir eftir að hafa tapað gegn Njarðvík í leikjum um meistaratit- ilinn; Njarðvíkingar voru sterkari og eiga titilinn fyllilega skilið. Þeir eru með frábæra stóra menn sem erfitt er að spila á móti.“ Valur bætti því við að sínir leikmenn væru reynslunni ríkari eftir þessa úrslitaleiki. „Við vorum í úrslitum í fyrsta skipti en Njarðvík hefur verið þar margoft. Við vitum hins vegar núna margt sem við vissum ekki í haust. Okk- ur var spáð sjötta sæti en Njarðvík- ingum var spáð titlinum, og síðan fengu þeir Friðrik Stefánsson í sínar raðir. Það er aftur á móti ljóst að á góðum degi stenst ekkert íslenskt lið okkur snúning. Það kemur ár eftir þetta ár, við Tinda- stólsmenn erum alls ekki hættir,“ sagði Valur Ingimundarson. „VIÐ urðum fyrir áfalli í þriðja leiknum á heimavelli en það stóð ekki nema í nokkra klukkutíma. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að við værum með miklu betra lið en Tindastóll og mættum hingað á Sauðárkrók með sömu forsendur og síðast. Þá vorum við 1:0 yfir, núna 2:1, og ég fann fyrir leikinn að sjálfstraustið í liðinu var gott. Það var bara tímaspursmál hvenær við myndum hitta úr 2–3 skot- um í röð og ná 10–15 stiga forystu, og við vorum staðráðnir í að gefa slíka forystu ekki eftir í þetta skipti,“ sagði Teitur Örlygsson, annar þjálfara og leikmaður Njarðvíkur, við Morgunblaðið. Valur áfram með Tindastól

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.