Vísir - 29.08.1979, Blaðsíða 12

Vísir - 29.08.1979, Blaðsíða 12
vísm Miövikudaeur 29. áeúst 1979. 12 vísm MilSvikudaeur 29. áeúst 1979. 13 HROLLUR TEITUR AGCI VarskólastiórinnreiöurYEkiti eftir aö vegna þess aö viö byggöum sænskt MIKKI Birgðageymsla, dælistöð og ollugeymar Norðmanna upp af Engelskbugta á Jan Mayen. I fjörunni eru bátur og prammi, sem notaðir eru viðað ferja vörur, fólk og farartæki milli skips og lands. Ekki er hægt að segja, að mikið sé um skipa- komur til Jan Mayen, og svo sem ekki við þvi að búast þvi að þar er engin höfn. Eftir að flugbraut- in þar kom til sögunnar fara vistir, póstur og varahlutir flugleiðis milli eyjarinnar og Noregs, og eina árvissa skipsferðin til þessarar ishafs- eyjar er ferð oliuskipsins frá Noregi. Það kemur til Jan Mayen einu sinni á ári, og 1979-ferðin er núna um heigina. Þá verður olíu dælt i land stöð- ugt i 36 klukkustundir og eftir að áhöfn oliuskips- ins hefur kvatt verður ekki von á slikri heimsókn aftur til Jan Mayen fyrr en I ágúst 1980. Tækjabúnaöur lóranstöðvar og veöurathugunarstöðvar ásamt öðrum tækjabúnaði, sem nauðsynlegur er í rúmlega þrjátlu manna samfélagi á Jan Mayen þarf talsvert af raf- magni. Það er ekki hægt aö framleiða meö vatnsafli því að ekki er vitaö um nema einn læk á eynni og yfirleitt þornar hann upp yfir sumariö. 011 raforkuframleiðsla fer þvl fram með díselvélum og er nú verið að ljúka við að setja upp nýja og fullkomna diselvéla- samstæðu á Jan Mayen, sem annast rafmagnsframleiðsluna. Til þessarar diselvélakeyrslu allan sólarhringinn þarf gletti- lega mikiö af diselollu og hefur þvi reynst óhjákvæmilegt að koma upp allstórum oliugeym- um i birgðastöö Norömanna, sem er um það bil sjö kllómetra frá Olonkinbyen, bækistöðvum hersins. Landslagið islenskt Birgðastöðin er i Engelsk- bukta, Enskuvik, sem er vestanmegin á eynni. Þetta er skjólgóð vik og gott skipalægi, raunar hiö besta við Jan Mayen. Þarna var fyrr á öldum aösetur hvalveiðimanna frá Hollandi og meðal þess, sem minnir komu- menn á veru þeirra þarna eru grafir við fjallsrætur upp af vikinni, þar sem hugulsamir Norðmenn hafa komið upp ein- földum trékrossum og skorið I þá óljósar upplýsingar um að þar undir hvili menn af hol- lensku bergi brotnir. Þeir, sem tóku á móti leið- angri Visis á Jan Mayen töldu rétt að koma við I EsJnkuvík I skoðunarferðinni, sem fárin var um eyna. Þangað liggur vegur, sem varla er nema jeppafær á köflum, og minnti þvi ekki siður á Island en landslagiö, sem blasti við okkur, hvert sem litiö var. Þingmennirnir fjórir voru sammála um aö svipmót eyjar- innar væri mun likara þvi, sem geröist á Islandi en þeir hefðu átt von á og töldu þeir þvi aö við gætum lagt meiri áherslu á þaö gagnvart Norömönnum, en gert heföi veriö, að Jan Mayen væri hluti af islenska landgrunninu. Við hafnlausa strönd Rekaviður er allmikill á fjör- um við Jan Mayen og ekki siður á sendinni ströndinni við Ensku- vik en annars staðar. Uppi á sjávarkambinum þar eru tveir allstórir oliugeymar, dæluhús og birgðaskemma og I nánd viö þessi mannvirki eru farartæki og íleytur, sem koma að góðum notum viö aö flytja varning og vörur milli skips og lands. Meðal annars gat þarna að lita stóran álfleka, með viða- miklum flotbúnaði, sem notaöur hefur verið til þess aö selflytja bila og vinnuvélar frá skipshliö til lands og stálbát, sem helst minnti á nótabát frá sildarár- unum, en hann hefur komið að góöum notum við vöruflutning- ana. Norðmennirnir, sem fóru með okkur um svæðiö, sögöu aö báturinn hefði einnig verið notaður til þess aö koma I land slösuöum sjómanni frá norskum loðnubáti á dögunum, en hann var siðan sóttur til eyjarinnar með björgunarflugvél frá Kefla vikurflug velli. Henni tókst ekki að lenda fyrr en eftir að hún hafði sveimaö I rúma klukkustund yfir eynni vegna þess hve mikil þoka var á þessum slóðum, eins og oft er yfir sumarið. Norski sjómaðurinn komst þvi loks til tslands og hefur legið á sjúkrahúsi i Reykjavik siðustu daga. Hann reyndist hafa fengið slæmt botnlangakast og mun væntanlega fá aö fara heim til Noregs seinni hluta vikunnar. Hugmyndir voru uppi um hafnargerð á Jan Mayen bæði af hálfu Norðmanna og Islendinga um og eftir siöari heimsstyrj- öldina, en þær áætlanir hafa enn ekki orðið að veruleika. Ef af hafnargerö verður á eynni er talið liklegast, aö grafiö veröi sundur mjótt teiði milli sjávar og stöðuvatnsins Nordlaguna, sem er nokkrum kilómetrum norðar á vesturströnd eyjar- innar en Enskavikin. Þar telja menn að hægt yröi að gera góöa höfn, en alveg er óvist, hvort af þvi verður I náinni framtið. Á kortinu af Jan Mayen er strikað undir tvö nöfn: Olonkinbyen, er þar eru aðalstöðvar norska hersins á eynni og Kvalrossen, en I vikinni við þann höfða er olfu dælt f birgða- geyma og varningur, sem kemur sjóleiðis fluttur Iland. ' v-r ■ yi tslendingar höfðu á orði, þegar ekið var um eyjuna, að landslagi svipaði mjög til þess, sem gerðist á islandi. Hér eru Islensku leiðangursmennlrnir ásamt yfirmanni norsku bækistöðvanna á Jan Mayen . i baksýn er vikin.þar sem olia er tekin Hand og birgðageymar Norðmanna standa. í baksýn er hofðl', sem kallaður er Kvalrossen. i fjallshllðinni upp af Enskuvik er þessi kross á ieiði nokkurra Hollendinga, sem þarna voru grafnir á sautjándu öld. ólafur Ragnar Grimsson, Ingvar Gislason og Helgi Jóns- son sjást hér við krossinn. 0

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.