Vísir - 31.10.1979, Blaðsíða 7

Vísir - 31.10.1979, Blaðsíða 7
VÍSIR Miðvikudagur 31. október 1979 Umsjón: Gylfi Kristjánsson Kjartan L. Pálsson „Kvlöi ekki leiknum i Frakklandi” „Ég er hæstánægður með þessa útkomu og ég tel að við höfum sannað, aö þegar við náum sam- an, þá stöndum við i bestu liðum Evrópu eins og þetta franska lið er”, sagöi Jón Sigurðsson KR- ingur eftir aö frönsku bikarhaf- ar Caen höföu sigraö KR i fyrra leik liöanna i Evrópukeppn- inni með 104 stigum gegn 84 i Laugardalshöll i gærkvöldi. „Við náðum aö minnka muninn úr 22 stigum og niður i 9 stig og þaö þótt Jackson væri farinn útaf með 5 villum”, sagði Jón. „En villuvandræði komu illa við okk- ur, þegar við vorum að jafna metin og það hjálpaði Frökkun- um til að siga framúr. Annars er ég mjög óánægður meö dómar- ana, eöa það, að þeir skuli dæma svona ólikt þvi sem við eigum að venjast. Þeir dæma miklu meira Hjónin í efstu sætunum Siðasta golfkeppni Islend- ingaáþessu ári fór fram um helgina. Var hún háð á Torrequebrada- vellinum á Costa del Sol á Spáni, en þar var þá staddur hópur is- lenskra kylfinga i golfferð á vegum útsýnar. Var þetta önnur haustferð kylfinga á þessar slóðir, en öllu færri voru með nú en i fyrri feröinni i fyrra. Þá voru öllu fleiri konur með i mótinu i þetta sinn en þá. Kristin Pálsdóttir GK sigr- aði án forgjafar i kvenna- flokki, en eiginmaður hennar, Sveinbjörn Björns- son sigráöi i karlaflokknum án forgjafar. Með forgjöf i kvennaflokki sigraði Kristine E. Kristjánsson NK og Hannes Hall NK sigraöi með forgjöf i karlaflokki. I öðrum verðlaunasætum á þessu íslendingagolfmóti á Spáni urðu Karolina Guð- mundsdóttir GA og Hanna Aðalsteinsdóttir GK i kvennaflokki, og þeir Pétur Auðunsson GR, Frimann Gunnlaugsson GA, Kjartan L. Pálsson NK og Sverrir Guðmundsson GR, i keppni karlanna... Leikjum KR var irestað Vegna leika KR i Evrópu- keppninni i körfuknattleik hefur orðið að fresta tveimur leikjum liðsins i lirvalsdeild- inni. KR og Valur áttu aö leika á morgun, en leikur þeirra hefur veriö fluttur til 12. nóv- ember. Þá var leik KR og UMFN, sem fram átti að fara 5. nóvember, frestað til 20. nóvember vegna þess aö KR-ingarnir verða erlendis, þegar leikurinn á að fara fram. á allar snertingar en viö erum vanir og þaö kostaði okkur marg- ar villur”. — Hræddur við siðari leikinn i Frakklandi? „Nei, ég kviði honum ekki. Viö vitum á hverju við eigum von og að við getum staðiö i hvaða liði sem er, ef okkur tekst vel upp”, sagði Jón Sigurðsson og var greinilega hvergi smeykur. -gk IkRÍT hátíða- skapl Fer Dakarsta Webster til Borgarness? „Ég vil ekkert segja um leik- inn, fyrirgefðu , en ég er bara ekki i stuði til að segja nokkurn hlut,” sagði Marvin Jackson, KR- ingur, eftir leik KR gegn Caen i gærkvöldi. Við þaö sat, og við snérum okkur að Dakarsta Webster, hinum Bandarikja- manninum i KR-liðinu. „Ég hata alltaf aö tapa og er þvi ekki i góðu skapi. En dómar- arnir voru hroðalega lélegir,” var það sem Webster vildi leggja til málanna og ekki meira. Það er þvi ekki hægt aö segja. aö þeir félagar háfi veriö i hátiðarskapi eftir leikinn i gærkvöldi. Miklar likur er nú taldar á þvi, að Dakarsta Webster gerist leik- maður og þjálfari I Borgarnesi. Vitað er að mikill áhugi er þar á að fá hann, og hann mun vera laus allra mála hjá KR á næst- unni, eða eftir að KR hefur leikið siöari leik sinn gegn Caen i næstu viku. — gk Marvin Jackson lék sinn fyrsta leik með KR I gærkvöldi og átti stórleik. Hér sést hann skora eina af mörgum körfum sinum i leiknum. Visismynd: Friöþjófur VILLUVAHDRÆBIH SETTU STRIK IREIKNINOINNI - og KR-ingar töpuðu með 20 stiga mun fyrlr franska liðinu Caen „KR-liðiö kom mér verulega á óvart með getu sinni og er mun betra liö en ég reiknaöi með”, sagði Frakkinn Daniel Badache, formaöur franska körfuknatt- leiksliðsins Caeneftir 104:84 sigur sinna manna gegn KR i Laugar- dalshöll i gær, en þar fór þá fram fyrri leikur liöanna í Evrópu- keppni bikarhafa. „Byrjun I síð- ari hálfleik hjá KR var mjög góö og ég var farinn að hafa áhyggjur af að þeir myndu vinna upp allt forskot okkar. En til allrar ham- ingjumisstu þeir Marvin Jackson og Jón Sigurðsson útaf með 5 vill- ur, og þá var sigurinn I öruggri höfn hjá okkur”, bætti hann viö. Frakkarnir, sem eru greinilega með gífurlega gott liö- tóku strax forustuna i leiknum og varð for- skotþeirra Ifyrrihálfleik mest 20 stig, 46:26. En KR minnkaði mun- inn og i hálfleik var staðan 54:40 fyrir Caen. KR-ingar mættu i siðari hálf- leikinn án nokkurrar minnimátt- arkenndar og þegar komið var framundir miðjan hálfleikinn var munurinn kominn niður i 10 stig 62:72 og allt virtist geta gerst. En þá fékk Marvin Jackson sina fimmtu villu og stuttu siöar Jón Sigurðsson, og meö yfirburða- menn sina utan vallar áttu KR-ingarnir ekki möguleika á sigri, heldur juku Frakkarnir muninn og sigruöu meö 20 stiga mun. Það haföi verið beðiö með mik- illi eftirvæntingu eftir þvi aö sjá Marvin Jackson leika með KR, en hann er nú oröinn löglegur leik- maöur meö liðinu og mun leika með þvi í vetur. Ekki er hægt að segja annað en að hann hafi upp- fylit þær vonir, sem KR-ingar bundu við hann, og i leiknum sýndi hann oft snilldartakta. En hanngat ekki beittsér sem skyldi i vörninni, fékk fljótlega þrjár villur. Þaö er ekkert vafamál að meö hann og Jón Sigurðsson verður KR-liöiö ekki árennilegt I vetur. Jón Sigurösson var fremur seinn i gang, en þegar komiö var út I siðari hálfleikinn var hann óstöövandi og réðu frönsku lands- liösbakveröirnir ekkert viö hann. Dakarsta Webster kom illa frá þessum leik, var ekki meö I sókn- inni lengst af og hitti illa. Þá var hann ekkert afgerandi I vörninni, þótt þar væri hann sterkur á stundum. Um aðra leikmenn KR erþaðaðsegja.aöþeir slógu ekk- ert i gegn og geta flestir leikið betur. Þetta franska liö er geysilega sterkt, enda komst það i undanúr- siit Evrópukeppni bikarhafa í fyrra. I liöinu er Bandarikjamaö- urinn Bog Miller- 2.08 metrar á hæð, landi hans Robert Riley, sem hefur reyndar verið meö franskt vegabréf frá 1973 og veriö fastur maöur í landsliði Frakka siöan og bakvörðurinn N’Diaye Abdou frá Senegal. Allt frábærir leikmenn, en besti maöur liðsins var þó Dobbels Didier, stórkost- leg langskytta og afar sterkur varnarmaður. Stighæstir KR-inganna voru Jackson með 30, Jón 20, Webster 15, en hjá Caen Didier 32 og Miller 15. Dómarar komu frá Skotlandi og Wales og voru þeir slakir og s jálf- um sér ósamkvæmir, þótt það bitnaði ekki á öðru liöinu fremur en hinu. gk —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.