Vísir - 11.01.1980, Blaðsíða 5
5
Katrln Páls-
dóttir skrifar
VÍSIR
Föstudagurinn 11. janúar 1980
Engir
Óiymp-
íuleik-
ar
Varaforseti Banda-
rikjanna, Walter Mon-
dale, hefur lýst þeirri
skoðun sinni, að ekki
eigi að halda Ólympiu-
leikana i Moskvu á
þessu ári, eins og ráð-
gert er.
Hann sagði, að leikarnir ættu að
flytjast frá Sovétrikjunum i mót-
mælaskyni við útþenslustefnu
Rússa.
Mondale sagðist álita að rétt
væri að flytja leikana annað hvort
til Montreal eða Munchen. Báðar
þessar borgir hefðu frábæra að-
stöðu til að taka á móti iþrótta-
fólki og gestum.
Ólympiuleikarnir voru i Mon-
treal 1976, en i Munchen 1972.
Carterstjórnin hefur tekið undir
þessa skoðun varaforsetans. Þeg-
ar hefur Carter forseti tilkynnt
um niðurskurð á kornsölu til
Sovétrikjanna og einnig að
Bandarikjamenn muni að öllum
likindum hætta við þátttöku i
leikunum.
Kanadiskir embættismenn,
sem leitað var til i gær um skoðun
þeirra á að flytja ólympiuleik-
ana, voru ekki hrifnir af hug-
myndinni.
Vegna þróunar mála undanfar-
iðeru menn farnir aö efast um, að
nokkrir Ólympiuleikar verði
haldnir að þessu sinni. Ef ekkert
róttækt skeður á næstu vikum, er
óvist hvernig þetta vandræðamál
leysist.
Sýni andstæöing-
um umburðarlyndi
Óeirðir voru i borginni Tabriz i Iran i gær. Bilar voru brenndir á götuni úti og nienn réðust að liðsmönnum Khomeinis meö kylfum og bareflum.
Allar likur benda nú til
þess að Indira Gandhi
taki við stjórnartaum-
unum á Indlandi i dag
eftir mikinn kosninga-
sigur.
Indira hefur lýst þvi yfir, að
hún ætli ekki að hefna sin á þeim,
sem stuðluðu að þvl að hún hrakt-
ist úr embætti árið 1977. Hún
hygðist sýna andstæðingum sin-
um umburðarlyndi til að stuðla að
samstöðu i landinu.
Eftir að kosningaúrslitin voru
ljós og sigur Kongressflokksins i
höfn, ávarpaði Indira leiðtoga
flokks síns. Þá ræddi hún m.a.
einnig um að þyrma andstæðing-
um sinum. Hún ætlaði ekki að
hefna harma sinna.
Sonur Indiru, Sanjay, var kjör-
inn á þing i þessum kosningum.
Hanner sakborningur i einum tiu
málum, sem nú eru fyrir dóm-
stólum á Indlandi.
Indira Gandhi.
I krlngum Jörðlna á
44 klukkustundum
Hann var upp með sér
karlinn, sem steig út úr
flugvélinni I Los Angeles
i nótt. Enn eitt metið var
fallið. Hann hafði sett
met i þvi að fljúga
kringum hnöttinn með
áætlunarflugvélum.
Nýja metið er 44 klukku-
stundir og sex minútur.
Það gamla var 53
klukkustundir.
David Springbetts sem er rúm-
lega fertugur, segir að þessi ferð
hafi ekki kostaö hann túskilding.
Hann notaði nefnilega hið flókna
tryggingakerfi i Bandarikjunum
og lét það greiða ferðina sem
kostaði um 8 þúsund bandarikja-
dollara.
Þær borgir, sem Springbett
kom við i voru t.d. London,
Bahrain, Singapore, Bangkok,
Manila, Tókió og Honolulu.
Sovétstjórnln
skammar Norðmenn
Norðmenn hafa aukið herstyrk
við landamæri sin að Sovétrikjun-
um vegna atburöanna I Afghan-
istan. Sovétstjórnin hefur aldeilis
látið I sér heyra vegna þessara
ráðstafana Norðmanna. Stjórnin
hefur lýst þvi yfir, að Norðmenn
séu með þessu háttalagi að stefna
friði og öryggi Norður-Evrópu I
hættu.
Það var fréttastofa Sovétrikj-
anna Tass, sem birti fréttina um
þessa miklu synd. Þar segir, að
ráðstafanir Norðmanna séu að
undirlagi Bandarikjanna.
Litsj ónvarpstæld sem endast. endaj
^HITAOHI Vilberg&Þorsteinn
H “ 11 ■ ■■ Laugavegi 80 símar 10259 -12622