Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isFyrsta mark Helga Vals gulls ígildi
fyrir Peterborough / B5
Óskað eftir gjaldþrotaskiptum hjá
knattspyrnudeild Leifturs / B1
12 SÍÐUR40 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
ÚRSKURÐARNEFND um upp-
lýsingamál hefur vísað frá kæru
blaðamanns Morgunblaðsins vegna
synjunar lögreglustjórans í
Reykjavík og dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins um að veita honum
aðgang að bréfi ríkislögreglustjóra
til lögreglustjórans í Reykjavík um
framkvæmd ákveðinnar húsleitar.
Telur meirihluti nefndarinnar, Ei-
ríkur Tómasson og Valtýr Sigurðs-
son, málið utan verksviðs síns en
Elín Hirst skilar séráliti og telur
að taka hefði átt kæruna til efnis-
legrar meðferðar.
Úrskurðarnefndin telur umrætt
bréf fyrst og fremst lúta að rann-
sókn tiltekins opinbers máls og
samkvæmt fyrstu málsgrein 2. gr.
upplýsingalaga verði synjun um að-
gang að því ekki kærð til nefnd-
arinnar. Beri því að vísa kærunni
frá. Í umræddri lagagrein segir
m.a. að lögin gildi ekki um þinglýs-
ingu, lögbann, nauðungarsölu og
fleira „né heldur um rannsókn eða
saksókn í opinberu máli“. Í séráliti
Elínar Hirst kveðst hún ósammála
þeirri niðurstöðu meirihluta nefnd-
arinnar að vísa málinu frá. Telur
hún að í hinu umbeðna bréfi sé
m.a. að finna almennar leiðbein-
ingar um undirbúning og fram-
kvæmd húsleitar og hefði því átt að
taka kæruna til efnislegrar með-
ferðar.
Málsatvik eru þau að blaðamað-
ur Morgunblaðsins fór fram á það
15. nóvember sl. við lögreglustjór-
ann í Reykjavík og dóms- og
kirkjumálaráðuneytið að fá aðgang
að umræddu bréfi ríkislögreglu-
stjóra. Varðar það framkvæmd
húsleitar að kvöldi 23. apríl 2001 en
samkvæmt gögnum málsins svipti
húsráðandi, rúmlega fertugur karl-
maður, sig lífi með skotvopni með-
an á húsleitinni stóð. Báðir aðilar
synja beiðninni og vísa til þeirrar
greinar upplýsingalaganna að gögn
um rannsókn eða saksókn séu und-
anskilin gildissviði laganna. Einnig
er bent á að málið varði sjálfsvíg
manns og aðgangur að gögnum
kunni því að varða einkahagsmuni
fjölskyldu hans. Einnig komi fram í
bréfinu atriði er varði starfsmann
eða starfsmenn lögreglunnar og
geti það því einnig varðað einka-
hagsmuni þeirra. Þau atriði séu
enn til skoðunar, að því er fram
komi hjá lögreglustjóranum í
Reykjavík.
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar
segir að þótt í umræddu bréfi sé
vikið að verklagi lögreglu og vinnu-
aðferðum við húsleit almennt séð
snúist það fyrst og fremst um
framkvæmd umræddrar húsleitar
sem gripið hafi verið til í þágu
rannsóknar opinbers máls. Því sé
það álit úrskurðarnefndar að um sé
að ræða skjal sem lúti fyrst og
fremst að rannsókn tiltekins op-
inbers máls.
Ekki staðið rétt að undirbún-
ingi og framkvæmd húsleitar
Ríkissaksóknari telur ekki
ástæðu til að rannsaka frekar
vinnubrögð lögreglu varðandi hús-
leitina. Hún tengdist rannsókn lög-
reglu á fíkniefnamáli en grunur lék
á að fíkniefni væru framleidd í íbúð
mannsins.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri segir að embættið hafi
gert úttekt á umræddri húsleit.
Niðurstaða hennar var sú að ekki
hefði verið staðið rétt að undirbún-
ingi og framkvæmd húsleitarinnar
í ýmsum veigamiklum atriðum. At-
hugasemdir sem ríkislögreglustjóri
gerði við húsleitina voru raktar í
sjö liðum í bréfi til lögreglustjór-
ans í Reykjavík. Haraldur vildi
ekki gefa frekari efnislegar upplýs-
ingar um athugasemdirnar en vís-
aði á lögreglustjórann í Reykjavík.
Meirihluti telur mál-
ið utan sviðs laganna
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál klofnar
í afstöðu til kæru um afhendingu bréfs
ÞEGAR björgunarsveitarmenn úr
björgunarsveitinni Víkverja í Vík
og Lífgjöf í Álftaveri gengu
fjörur vegna leitar að skipverj-
anum sem saknað er af Ófeigi,
rákust þeir á heldur óskemmti-
legan reka á fjörunum. Tölu-
verðu magni af sláturúrgangi, þ.e
mör, gor og öðrum úrgangi í
stórum klumpum, hefur skolað á
land á Höfðabrekkufjöru austan
við Múlakvísl og allt austur á
Mýrnafjöru í Álftaveri.
Að sögn Birgis Þórissonar hjá
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
hafa áður borist kvartanir út af
þessu. Hann telur líklegast að
sjórinn sé farinn að brjóta fram-
an af gömlum gryfjum þar sem
sláturúrgangur frá sláturhús-
unum sem voru í Vík í Mýrdal
var grafinn en í þeim var hætt að
slátra fyrir nokkrum árum. Ekki
er ljóst á þessu stigi málsins hvað
gert verður í málinu en Birgir
segir mjög slæmt að láta varg-
fugl dreifa þessu út um allt og
því nauðsynlegt að grípa til að-
gerða sem fyrst. Hyggst hann
ræða við yfirdýralækni og sveit-
arstjórn.
Sláturúrgangur urðaður í
fjörunni fyrir 20 árum
Hafsteinn Jóhannesson sveit-
arstjóri í Vík segir að slát-
urúrgangur hafi verið urðaður
frammi í sandi, þ.e. niðri í meln-
um við fjöruborðið, fyrir meira
en 20 árum og landbrot hafi gert
það að verkum að úrgangurinn
hafi farið út í sjó og þannig ein-
hvern veginn eftir fjörunni en
hann hafi ekki heyrt um það í
nokkur ár. Fyrir mörgum árum
hafi úrgangur verið hreinsaður
upp fyrir framan Vík, en í mikl-
um sjógangi hverfi þetta mjög
fljótt. Hann segist ekki eiga von á
sérstökum aðgerðum vegna þessa
nema heilbrigðiseftirlitið geri
eitthvað í málinu.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Andrés Pálmason björgunarsveitarmaður við einn úrgangsklumpinn.
Sláturúrgangur
um allar fjörur
Fagradal. Morgunblaðið.
ÞRÍR menn lentu í sjónum þeg-
ar Svanborg SH fórst við Önd-
verðarnes á föstudagskvöld. Lík
Sæbjörns Vignis Ásgeirssonar
skipstjóra fannst á sunnudags-
kvöld. Sæbjörn var fæddur 6.
september 1961. Hann bjó að
Ennisbraut 21 í Ólafsvík. Sæ-
björn lætur eftir sig eiginkonu
og fjögur börn.
Tveggja skipverja af Svan-
borgu er enn saknað. Þeir eru
Vigfús Elvan Friðriksson stýri-
maður og Héðinn Magnússon
sem var fóstursonur hans. Vigfús
var búsettur að Brúarholti 51 í
Ólafsvík. Hann var fæddur 5.
október 1953. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og fimm börn.
Héðinn Magnússon var búsettur
að Vallholti 7 í Ólafsvík. Hann
var fæddur 9. maí 1970. Héðinn
lætur eftir sig eiginkonu og tvö
börn.
Vigfús Elvan
Friðriksson
Héðinn
Magnússon
Sæbjörn Vignir
Ásgeirsson
Nöfn skipverja
á Svanborgu
VÍÐTÆK leit að tveimur skipverj-
um, sem hefur verið saknað síðan á
föstudag er Svanborg SH 404 fórst
við Skálasnagavita á Snæfellsnesi,
hefur ekki borið árangur. Síðdegis á
laugardag fannst lík eins skipverja.
Allt að 100 björgunarsveitarmenn
af Vesturlandi og höfuðborgarsvæð-
inu hafa verið við leit á landi, auk
björgunarskipsins Bjargar. Leitar-
svæðið nær frá Arnarstapa inn fyrir
Ólafsvík. Allir bátar á sjó frá Rifi og
Ólafsvík hafa tekið þátt í leitinni, en
leit á sjó gat ekki farið fram í gær
vegna veðurs. Rok og rigning gerði
leitarmönnum erfitt fyrir í gær, auk
þess sem leitarlandið er erfitt yfir-
ferðar. Á sunnudag var send kafara-
sveit frá Slysavarnafélaginu Lands-
björg sem ætlaði að freista þess að
kafa við flakið en vegna veðurs hefur
það ekki verið hægt. Um tugur
björgunarsveitarmanna átti að halda
áfram að ganga fjörur á leitarsvæð-
inu í nótt. Landhelgisgæslan leitaði
úr lofti og sjó um helgina.
Svanborg SH
Leitað
við erfið
skilyrði