Morgunblaðið - 13.12.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.12.2001, Blaðsíða 1
286. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 13. DESEMBER 2001 VONIR um friðarsamninga milli Ísraela og Palest- ínumanna urðu að engu í gær þegar palestínskir öfgamenn réðust með sprengjum og vélbyssum á ísraelskan fólksflutningabíl og myrtu tíu manns. Á sama tíma gerðu tveir Palestínumenn sjálfsmorðs- árás á Gazasvæðinu og særðu fjóra. Ísraelskar herþotur gerðu í gærkvöldi sprengju- árás á öryggisgæslustöð Palestínumanna skammt frá skrifstofum Yassers Arafats, forseta heima- stjórnarinnar, á Gaza. Einnig var gerð loftárás á stöðvar palestínsku lögreglunnar í Nablus. Ísraelar kenndu heimastjórninni um að hafa látið undir höf- uð leggjast að ná tökum á herskáum múslimum. Ekki var fyllilega ljóst í gær hverjir bæru ábyrgð á tilræðinu á Vesturbakkanum, en sjónvarpsstöð Hezbollah-samtakanna í Líbanon greindi frá því að þangað hefði hringt maður er hefði sagst vera fulltrúi palestínsku öfgasamtakanna Hamas og lýst þau ábyrg. Tilræðin í gær auka enn þrýstinginn á Arafat að fangelsa alla öfgamenn svo sem Vesturlönd og Ísr- aelar hafa krafist af honum síðan Palestínumenn gerðu mannskæðar sjálfsmorðsárásir í byrjun mán- aðarins. Bandaríkjastjórn krafðist þess í gær, að Arafat „gerði allt sem hann mögulega gæti“ til að stöðva ofbeldisaðgerðirnar, sem færu sífellt versn- andi. Ísraelarnir tíu féllu, og allt að 30 særðust, þar af margir lífshættulega, þegar Palestínumennirnir sprengdu tvær sprengjur við veginn skammt fyrir utan landnemabyggð gyðinga nærri Nablus. Þegar fólksflutningabifreiðin hægði á sér eftir sprenging- arnar lét einn byssumaður kúlnahríð dynja á henni. Hann féll síðan sjálfur eftir stuttan bardaga við ísr- aelska landamæraverði er þustu á vettvang. Tveir aðrir öfgamenn héldu áfram að skjóta á sjúkrabíla sem komu til að flytja særða á brott. Um svipað leyti og árásin var gerð á Vesturbakk- anum sprengdu tveir Palestínumenn sjálfa sig í loft upp við hótel í landnemabyggð gyðinga syðst á Gazasvæðinu. Fjórir aðrir særðust. Stjórn Arafats neitar ábyrgð Heimastjórn Palestínumanna gaf út yfirlýsingu í gærkvöldi og neitaði því afdráttarlaust að bera nokkra ábyrgð á tilræðunum. Lét heimastjórnin jafnframt loka skrifstofum samtakanna Hamas og Jihad, sem hafa lýst ábyrgð á nokkrum tilræðum gegn Ísraelum að undanförnu. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, kallaði öryggisráð sitt til neyðarfundar í gærkvöldi til að ræða viðbrögð Ísraela við tilræðunum. Undanfarið hafa Ísraelar brugðist hart við tilræðum Palest- ínumanna og gert harðar loftárásir á palestínskar lögreglustöðvar og byggingar heimastjórnarinnar. Fregnir hermdu í gærkvöldi að öryggisgæslustöðv- ar Palestínumanna í Ramallah hefðu verið yfirgefn- ar, þar eð búist væri við hefndaraðgerðum Ísraela. Áður en tilræðin á Vesturbakkanum og Gaza voru framin í gær höfðu bandarískir embættismenn greint frá því að Anthony Zinni, sáttafulltrúi Banda- ríkjastjórnar í Miðausturlöndum, hefði talið Ísraela á að gera ekki frekari árásir á palestínsk skotmörk, ef palestínska lögreglan gerði alvarlega tilraun til að koma höndum yfir öfgamenn. En með tilræð- unum fór þessi málaleitan út um þúfur, og hætta er talin á að Zinni geri alvöru úr þeim hótunum sínum að hætta sáttatilraunum ef mannskæðum hryðju- verkum linnir ekki. Palestínumenn fella tíu Ísraela nálægt Nablus Ísraelskar herþotur varpa sprengjum skammt frá skrifstofum Arafats á Gaza Jerúsalem, Gazaborg, Washington, Nablus. AFP, AP. AP Lögreglumenn og sjúkraliðar að störfum við fólksflutningabílinn sem ráðist var á í gær. FORSVARSMENN Blockbust- er-myndbandaleigukeðjunnar í Bretlandi tilkynntu í gær að til- raun yrði gerð með notkun ilm- efna til að hjálpa viðskiptavinum að velja myndbönd. Þrjár ilmtegundir hafa verið þróaðar í þessum tilgangi: byssupúðurslykt á að vekja áhuga á spennumyndum, rósa- ilmur á að beina athyglinni að rómantískum myndum og ban- anaangan er ætlað að minna á gamanmyndir. Ilmtegundirnar verða í hylkjum sem komið verð- ur fyrir í loftræstikerfi mynd- bandaleignanna. Fjórða ilmin- um, af vanillu, á svo að úða út í loftið í sælgætissölunni, í því skyni að hvetja viðskiptavinina til að kaupa eitthvert góðgæti. Blockbuster hyggst til að byrja með prófa notkun ilm- efnanna í nokkrum myndbanda- leigum í London, Birmingham og víðar. „Lykt leikur stórt hlut- verk í því hvernig við vinnum úr hugsunum, minningum og myndum, þannig að tenging ilms við hina sjónrænu og hljóð- rænu þætti kvikmynda ... ætti að fullkomna skemmtunina,“ sagði talsmaður keðjunnar. Ilmur til að auðvelda myndavalið London. AP. AFGANSKAR hersveitir við Tora Bora fram- lengdu í gær frest liðsmanna al-Qaeda-hreyfing- arinnar til uppgjafar þar til í nótt. Foringjar sveita andstæðinga talibana hvöttu óbreytta al-Qaeda- liða til að framselja 22 yfirmenn í hreyfingunni í skiptum fyrir frelsi. Afgönskum sveitum hafði á þriðjudag tekist að ná flestum hellunum í Tora Bora á sitt vald og um- kringja stóran hluta liðsmanna al-Qaeda, sem var gefinn frestur þar til í fyrrinótt til að gefast upp. Al-Qaeda-liðarnir höfðu frestinn þá að engu. Bandarískar sprengjuflugvélar héldu uppi hörðum árásum á fjöllin á Tora Bora-svæðinu í gær, þar sem líklegt er talið að hryðjuverkaforing- inn Osama bin Laden hafist við. Árásir voru einnig gerðar á skotmörk nærri borginni Kandahar. Bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni B-1 hrapaði í Indlandshaf skömmu eftir flugtak frá herstöð á eyjunni Diego Garcia síðdegis í gær. Fjórir voru í áhöfn vélarinnar og var þeim öllum bjargað. Ekki var ljóst hvað olli því að vélin hrap- aði. Burhanuddin Rabbani, forseti Afganistans frá 1992–1996, sagði við fréttamenn í Kabúl í gær að hann styddi bráðabirgðastjórnina sem tekur við völdum í landinu 22. desember. Hann fullyrti þó að samkomulagið um stjórnarmyndunina, sem náðist á fundi afganskra fylkinga í Bonn í síðustu viku, hefði verið undirritað undir þrýstingi frá erlend- um ríkjum og sagði slík afskipti af innanríkismál- um Afganistans einungis til þess fallin að auka á vanda landsins. Bandarískur talibani segir fleiri hryðjuverk í undirbúningi Bandaríkjamaðurinn John Walker, sem barðist með herliði talibana en náðist við Mazar-e-Sharif, mun hafa sagt við yfirheyrslur að al-Qaeda-sam- tökin hygðu á frekari hryðjuverk í Bandaríkjunum fyrir lok föstumánaðar múslima nk. sunnudag. Er hann sagður hafa fullyrt að sýklavopn yrðu þá not- uð. Bandarískir embættismenn drógu í efa að full- yrðingar Walkers væru á rökum reistar. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði að ólík- legt hlyti að teljast að svo lágt settur maður í liði talibana hefði haft vitneskju um hryðjuverka- áform al-Qaeda. Frestur al-Qaeda- liða framlengdur Tora Bora, Washington. AFP, AP. Bandarísk sprengjuflugvél fórst í Indlandshafi en áhöfninni bjargað AP Hermaður úr liði andstæðinga talibana við Tora Bora lítur á úr sitt eftir að frestur al- Qaeda-liða til uppgjafar rann út í gærmorgun. GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti tjáði leiðtogum Bandaríkjaþings í gær að hann hefði ákveðið að rifta Gagneldflaugasáttmálanum sem Bandaríkjamenn og Sovétmenn undirrituðu árið 1972. Búist var við að forsetinn tilkynnti ákvörðun sína formlega í dag og nýtti sér þar með ákvæði sáttmálans um að honum megi segja upp með sex mánaða fyr- irvara. Tom Daschle, meirihlutaleiðtogi demókrata í öldungadeildinni, stað- festi í gær að Bush hefði kunngert sér og þremur öðrum þingleiðtogum ákvörðun sína á vikulegum fundi þeirra í Hvíta húsinu í gærmorgun. Forsetinn hefur margoft lýst sátt- málanum sem úreltum leifum frá dögum kalda stríðsins. Ákvörðun Bush þýðir að Banda- ríkjamenn geta ótrauðir haldið áfram tilraunum sínum með eld- flaugavarnakerfi, en uppbygging slíks kerfis brýtur í bága við ákvæði sáttmálans. Rússar hafa ráðið Bandaríkjastjórn frá því að rifta sáttmálanum einhliða og segja það munu grafa undan þeim árangri sem náðst hafi í afvopnunarmálum á und- anförnum þremur áratugum. Bush stað- ráðinn í að rifta sáttmála Washington. AFP, AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.