Morgunblaðið - 29.12.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.12.2001, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 B LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EFTIRTALDIR 52 íþróttamenn voru valdir íþróttamenn ársins hjá sérsamböndum innan Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, ÍSÍ, og fengu af því tilefni afhentar við- urkenningar í sameiginlegu hófi Samtaka íþróttafréttamanna og ÍSÍ á Grand hóteli í fyrrakvöld. Hér á myndinni til hliðar er glæsi- legur hópur íþróttamanna sem tók við viðurkenningum sínum í hóf- inu. Badminton: Tómas Viborg og Brynja Pétursdóttir. Blak: Valur Guðjón Valsson og Hulda Elma Eysteinsdóttir. Borðtennis: Guðmundur E. Stephensen og Lilja Rós Jóhannesdóttir. Dans: Ísak Nguyen Halldórsson og Helga Dögg Helgadóttir. Frjálsíþróttir: Jón Arnar Magnússon og Þórey Edda Elísdóttir. Fimleikar: Halldór B. Jóhannsson og Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir. Glíma: Pétur Eyþórsson og Hildigunnur Káradóttir. Golf: Örn Ævar Hjartarson og Herborg Arnarsdóttir. Hjólreiðar: Steinar Þorbjörnsson. Handknattleikur: Ólafur Stefánsson og Harpa Melsteð. Íþróttir fatlaðra: Bjarki Birgisson og Kristín Rós Hákonardóttir. Skautar: Ingvar Þór Jónsson og Linda Viðarsdóttir. Júdó: Vernharð Þorleifsson og Gígja Guðbrandsdóttir. Karate: Ingólfur Snorrason og Sólveig Sigurðardóttir. Körfuknattleikur: Logi Gunnarsson og Kristín Jónsdóttir. Keila: Magnús Magnússon og Elín Óskarsdóttir. Knattspyrna: Eiður Smári Guðjohnsen og Olga Færseth. Taekwondo: Trausti Már Gunnarsson og Magnea Kristín Ómarsdóttir. Hestaíþróttir: Vignir Jónasson og Hugrún Jóhannsdóttir. Ólympískar lyftingar: Gísli Kristjánsson. Siglingar: Hafsteinn Ægir Geirsson. Róður: Eiður Ágústsson. Skíði: Björgvin Björgvinsson og Dagný Linda Kristjánsdóttir. Skylmingar: Ragnar Ingi Sigurðsson og Guðrún Jóhannsdóttir. Sund: Örn Arnarson og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir. Skotfimi: Guðmundur Kr. Gíslason og Kristína Sigurðardóttir. Tennis: Arnar Sigurðsson og Íris Staub. Skvass: Róbert Fannar Halldórsson og Rósa Jónsdóttir. ÍSÍ heiðrar fimmtíu og tvo íþrótta- menn KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Leikið í fyrrinótt: Indiana - Washington .........................108:81 Detroit - New Jersey ............................75:88 Phoenix - Boston ...................................84:82 Seattle - LA Clippers ..........................101:90 Atlanta - Miami....................................100:96 Dallas - Chicago.....................................89:74 Portland - Utah......................................87:99 Leikið aðfaranótt fimmtudags: Cleveland - New Jersey........................89:91 Orlando - Indiana ..................................82:89 San Antonio - Dallas..........................123:126  Tim Duncan gerði 53 stig fyrir Spurs og er það persónulegt met hjá honum. Houston - Phoenix.................................91:97 Utah - Boston.........................................99:86 LA Clippers - Philadelphia.................86:100 Charlotte - Washington ........................99:93 Milwaukee - Atlanta............................107:97 Memphis - Chicago..............................107:85 Denver - Minnesota ..............................91:94 Sacramento - Portland..........................89:74 Golden State - LA Lakers ..................101:90 Leikið annan í jólum: LA Lakers - Philadelphia .....................88:82 Toronto - New York ............................94:102 Leikið á Þorláksmessu: Sacramento - Phoenix.......................133:101 San Antonio - Milwaukee....................91:101 Boston - Memphis .................................85:80 Toronto - Miami.....................................83:76 Leikið aðfaranótt sunnudags: LA Clippers - Sacramento .................101:85 Seattle - Detroit...................................117:89 Phoenix - Portland ..............................102:90 Denver - Golden State ......................101:105 Houston - Milwaukee ........................115:110 Dallas - Orlando...................................102:80 Chicago - Minnesota .............................74:95 New Jersey - Utah ..............................90:104 Cleveland - Indiana ...........................103:109 New York - Washington .......................86:87 Atlanta - Charlotte ..............................101:88 ÚRSLIT Einherjar hittast EINHERJAR, þeir sem farið hafa holu í höggi í golfi, ætla að hittast á Hótel Holti í dag klukkan fimm. Þar verða þeir sem fóru holu í höggi á árinu teknir inn í félagsskap- inn og fá viðurkenningu fyrir árangurinn. FÉLAGSLÍF Það má segja að leikirnir sem framundan eru hjá Newcastle séu prófsteinn á það hvort lærisveinar Bobby Robsons ætla að vera með í bar- áttunni um Englandsmeistaratitilinn en mikill skriður hefur verið á liðinu í undanförnum leikjum. Newcastle hef- ur unnið fimm leiki í röð svo það bíður Eiðs Smára Guðjohnsens og félaga hans hjá Chelsea erfitt verkefni þegar þeir mæta toppliðinu í dag. „Við verðskuldum að vera í toppsæt- inu en við verðum að halda áfram að leggja hart að okkur, ef ekki, er hætt við að þetta góða gengi liðsins haldi ekki áfram,“ segir Craig Bellamy, velski framherjinn hjá Newcastle sem leikið hefur sérlega vel á leiktíðinni. Þó svo að Chelsea hafi beðið lægri hlut fyrir Arsenal í síðasta leik sínum er of snemmt að afskrifa Lundúnaliðið í baráttunni um titilinn. „Við ræðum ekki um það innan hópsins að vinna titilinn en við verðum samt að hafa trú á því að við höfum lið og leikmenn til að fara alla leið. Við höfum gert allt of mörg jafntefli á tímabilinu svo það ríður á fyrir okkur að La Ch tve A þre mu en mó fjó og er var fék trú að lok he Liv næ rey de ek síð tán Tvær umfer Nú re Reuters Halda þeir Gary Speed og Craig Bellamy, leikmenn Newcastle, áfram að fagna mörkum og sigrum um áramótin? NEWCASTLE, liðið sem óvænt er í efsta knattspyrnu, þarf að takast á við erfitt v fara að venju fram tvær umferðir í deild móti Chelsea á St. James Park og á öðru meistara Manchester United heim á Old

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.