Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 41 Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669 Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989 Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Unnur Ingólfsdóttir 467 3149 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343 Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469 Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Agnieszka Szczodrowska 465 1399 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574 Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815 Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281 Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni HUGVEKJA DAGAR ársins 2001 hafa gengið burt einn af öðrum, og hinir síð- ustu eru nú á förum. Á tímamót- um sem þessum læsir jafnan ein- kennileg tilfinning sig um hug minn. Ég sakna alltaf þess árs, sem er að kveðja, sakna þess eins og gamals vinar, sem ég veit að kemur aldrei aftur. Báran litla, sem fæddist á síð- asta nýársmorgni og óx og dafn- aði, hnígur senn. Margt ber hún í faðmi sínum, eðli málsins sam- kvæmt, flest af því gleymt að ei- lífu; öðru skolar ef til vill á fjörur hins nýja árs, þegar öldufaldurinn loks hrynur um miðnættið á gaml- árskvöld, og þessi háa alda, sem eitt sinn var lítil bára, fellur í hið mikla djúp, eins og þær allar hafa gert um síðir. Og svo vaknar önn- ur á árinu 2002, rís og hækkar, eftir því sem dagar líða, og verður gömul og fellur að lokum að ári. Og þannig berumst við áfram á tímans eilífu bylgju. Áður fyrr tóku íslenskir sjófar- endur ofan og gjörðu bæn, áður en haldið skyldi frá landi. Þótt hugur væri djarfur og til í flest, var báturinn nefnilega lítill, en hafið stórt, og ferðin þar af leið- andi mjög svo óviss. En hönd al- mættisins þótti örugg og traust. „Guð í hjarta, Guð í stafni, gefur fararheill,“ var sannfæring þeirrar tíðar. Og í þeirri bjargföstu trú ýttu menn úr vör. Árið 1947 komst Árni Sigurðs- son, þáverandi prestur Fríkirkju- safnaðarins í Reykjavík, svo að orði í hugvekju: „Ævi mannanna er stundum líkt við sjóferð. Allt er óvíst um lengd þeirrar ferðar, árafjölda ævinnar, og allt ókunn- ugt um það, sem að getur borið á slíkri ferð, áður en komist er í höfn. En segja mætti líka, að hvert ár ævinnar sé ferð út á haf, för sem farin er í því skyni að vinna og drýgja dáðir og draga að aflaföng og björg úr djúpmiðum lífsreynslunnar, sálarþroska og sívaxandi manngildi. Allt er óvíst um þá för, nema það, að erf- iðleikar munu þar rísa sem háar holskeflur umhverfis hið veika far, stormar munu einatt blása og andstreymt verða. En þá fer kristinn maður líkt að og forfeður vorir, er þeir hrundu veiku fleyi á flot. Hann leggur út á djúp í Drottins nafni, og verður óveill og öruggur í huga fyrir það, að hann veit af vini þeim með sér í för, sem getur „bundið bylgjur og bugað stormaher“ og vísað rétta leið til hafnar... En hjá ágjöfum verður aldrei komizt, og engum manni hefir verið heitið stöðugum blíðu- byr á langferðinni um lífsins haf.“ Hér er viturlega mælt. Tími konungur hefur, eins og jafnan fyrrum, stigið misfast nið- ur á göngu sinni á árinu. Sums staðar fór hann léttilega og brosti til þeirra sem á vegi hans urðu, en annars staðar steig hann fastar til jarðar og þau spor urðu örlagarík. En hversu þrautafullir sem dagar og vikur hins liðna árs hafa verið, þá megnar Guð að sefa kvíða og órósemi. Meðan sorgin er ný, finnst okkur dagarnir líða seint og andvökunæturnar vera enn þung- bærari. En vita skaltu, að hinn mikli læknir og græðari særðra hjartna er með þér. Og hann situr ekki hjá aðgerðarlaus, heldur ryð- ur smyrslum huggunarinnar í sár þín. Ástæðan fyrir því, að hann virðist stundum fjarri, er sú, að verkið er framið í hljóði, án allrar sýndarmennsku og fyrirgangs. Mundu það og gleymdu aldrei. Já, ýmislegt höfum við upplifað á þessu ári, sem nú er bráðum á enda runnið. Sumt af því gott, annað verra. Og nú er enn eitt árið innan seilingar og með því ný tækifæri. Enginn veit samt nákvæmlega yf- ir hverju það kann að búa, hvað aldan nýja mun taka í fang sitt. En það er víst að hún verður göm- ul eins og forverar hennar, og brotnar síðan um áramótin 2002– 2003. Þannig er lífsins saga. Þá er gott að hafa sjóferðabæn forfeðra okkar og -mæðra í huga, að vita og muna að einn sá er til, sem gengið hefur á vatninu án þess að sökkva í djúpið. Höldum okkur fast í þennan mann, Jesú Krist, sem við um þessi jól höfum verið að fagna í mynd lítils barns í jötu, og þá mun aldan, sem að lokum hnígur í jarðnesku lífi okkar, ald- an hæsta og mesta, skila okkur heilum á land. Andspænis myrkri og kulda þessa heims er orð hans okkur nauðsynlegt. Í því er nefni- lega að finna bæði ljós og hlýju. Gömul og reynd fararblessun, ættuð úr grísk-kaþólsku kirkj- unni, eða m.ö.o. hinni svonefndu austurkirkju, verður kveðja mín hér á gömlu ári og jafnframt veganesti til þín, lesandi minn, yf- ir á hið nýja, 2002. Þá blessun er að finna í hirðisbréfi Karls Sig- urbjörnssonar, biskups, til ís- lensku kirkjunnar, sem út kom á prenti 2. febrúar síðastliðinn. Hún er svona: Drottinn gangi undan þér og vísi þér rétta leið. Drottinn gangi við hlið þér svo hann geti tekið þig sér í fang og verndað gegn hætt- um til hægri og vinstri. Drottinn gangi eftir þér og varðveiti þig fyrir falsi vondra manna. Drottinn veri undir þér og lyfti þér er þú hrasar. Drottinn veri í þér til að hughreysta þig er þú missir kjarkinn. Drottinn veri umhverfis þig til að vernda þig gegn árásum. Drottinn veri yfir þér og blessi þig, já, náðugur Guð blessi þig í dag og á morgun. Gleðilegt nýár! Morgunblaðið/RAX Guð í stafni Mikil alda er í þann mund að brjóta fald sinn og deyja; gamalt ár kveður senn og nýtt heilsar. Sigurður Ægisson horfir um öxl og leiðir hugann að tímans eilífu bylgju. saeson@islandia.is KVENFÉLAG Eyrarbakka hefur enn á ný fært Dvalarheimili aldraðra, Sólvöllum á Eyrarbakka, rausnarlega gjöf. Nú síðast færðu konurnar stjórn heimilisins 150.000 kr., sem varið verður til kaupa á stólum í setustofu á efri hæð heimilisins. Áður hafa þær kostað að mestu samskonar stóla í setustofuna á neðri hæðinni. Kvenfélagskonurnar eru duglegar að afla fjár til margs konar starfsemi og hafa styrkt bæði leikskólann og grunnskólann, auk margs annars. Þær eru afar þakklátar fyrir þann stuðning sem fyrirtæki og einstak- lingar í Árborg hafa veitt þeim á liðn- um árum. Dvalarheimilið Sólvellir getur hýst 17 heimilismenn og er jafnan fullsetið. Þar er heimilislegur bragur á öllu. Þess er vert að geta að 20. desember sl. bauð Jóhann Jóhannsson útgerð- armaður öllum heimilismönnum og starfsliði til jólahlaðborðs í Rauða húsinu. Morgunblaðið/Óskar Frá vinstri: Inga Lára Baldvinsdóttir í stjórn Sólvalla, María Gestsdóttir í stjórn kvenfélagsins, Ási Markús Þórðarson, stjórnarformaður Sól- valla, og Herborg Pálsdóttir, formaður kvenfélagsins. Gáfu Sólvöllum stóla Eyrarbakka. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.