Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.01.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2002 29 VANGAVELTUR Bergþóru Jónsdóttur um listsköpun kvenna í bæklingi þessarar nýju geislaplötu vekja mann til umhugsunar um stöðu konunnar í mannkynssögunni yfirleitt. Hin skráða mannkynssaga, sem ætti kannski frekar að nefna sögu karlmannsins, sneiðir rækilega hjá afrekum kvenna. Eða eru afrek kvenna í sögunni ekki þess verð að þeirra sé getið? Enginn vafi leikur á því að konur liðinna alda fengu sjaldan þau tækifæri til stórra verka sem karlarnir og þess vegna er fátt eitt um þær að segja þegar talað er um tímamótaatburði ver- aldarsögunnar. En það hefur ým- islegt gerst í sögunni annað en það sem veldur stríðum, misrétti þegn- anna, orsakar byltingar og veltir þjóðhöfðingjum úr sessi, fellir rík- isstjórnir o.s.frv. Sem betur fer hafa menn veitt þessum þætti at- hygli á undanförnum áratugum, þökk sé breyttum hugsunarhætti almennt og ekki síst áhuga nútíma- konunnar á gengnum kynsystrum sínum. Tónlistariðkun kvenna er áhuga- vert rannsóknarefni og ekki síst konur í tónskáldastétt. Það er skemmtilegt til þess að vita að eitt af fyrstu tónskáldunum sem við þekkjum skuli hafa verið kona og er þar átt við abbadísina Hildegard frá Bingen (1098–1179). Lítið bar á konum í tónskáldastétt fram til 20. aldarinnar en gjarnan eru nefndar til sögunnar tvær konur á 19. öld, þær Clara Schumann og Fanny Mendelssohn. Þeirra er getið í tón- listarsögunni vegna makans og bróðurins en ekki vegna þess að lista- frek þeirra hafi mark- að nokkur spor í sög- unni. Þær voru m.ö.o. aðeins merkilegar vegna þess að þær voru konur í starfs- stétt þar sem karlar voru og höfðu alltaf verið allsráðandi og eru því ekki góð dæmi um tónsmíðaafrek kvenna og sanna hvorki né afsanna hæfileika kvenna í tónsmíðum. Það sem máli skiptir er því að tónskáld batna ekki við það að vera konur og tónskáld verða ekki verri þótt þau séu konur. Kannski voru hæfileikar Clöru og Fannyar minni en þeirra Roberts og Felix, kannski voru afrekin minni vegna þess að þær fengu ekki sömu tækifæri og karlarnir. Hver veit? Tuttugasta öldin sýnir okkur allt aðra mynd. Um og upp úr miðri 20. öldinni fjölgaði konum í tónskálda- stétt svo að engum þykir lengur til- tökumál þótt kona láti að sér kveða í tónsmíðum. Fyrir utanaðkomandi lítur það út eins og að konur standi körlum jafnfætis, að tækifærin séu þau sömu og hjá körlunum, en vel getur verið að reynsla kvennanna sé önnur þegar að því kemur að koma verkum sínum á framfæri. Athyglisverð er sú athugasemd Bergþóru í fyrrnefndri grein að konur semji gjarnan í „eilífu formi sönglagsins“. Getur það verið vegna þess að slíkum tónsmíðum sé auð- veldara að koma á framfæri því þær séu t.d. ódýrari í flutningi? Og ekki vegna þess að sönglagaformið henti af einhverjum ástæðum konum bet- ur en önnur tónlistarform. Geisladiskur Ásgerðar Júníus- dóttur er stelpudiskur og strákarnir eru þar í miklum minnihluta. Hann ber konum í tónskáldastétt á Ís- landi ágætt vitni. Sönglögin eru flest prýðileg og grípandi en sum skara óneitanlega fram úr. Fyrst ber að nefna lög Jórunnar Viðar sem að mínu mati skera sig úr. Jór- unn er ótvírætt eitt merkasta tón- skáld Íslendinga og einkum eru sönglögin hennar miklar perlur. Hún hefur sinn eigin tón sem er engum líkur og til gamans má geta þess að við fyrsta „rennslið“ vakti strax athygli mína upphaf eins lags- ins. Aha! hugsaði ég, þetta hlýtur að vera Jórunn. Það sem heyrðist var upphafið á Vorljóði á ýli. Hið magnaða Kall sat undir kletti er svo þekkt að þar kemur engin ágiskun til greina. Í lagi Báru Grímsdóttur, Svo þú gætir óskað, sem samið er við texta Vilborgar Dagbjartsdótt- ur, kveður einnig við sérstakan tón. Þetta er fínlega ofin tónsmíð með hugmyndaríkum meðleik strengja og stuðningi kórradda. Lög þeirra kvenna sem hafa látið að sér kveða í dægurtónlist- inni koma þægilega á óvart. Hrædýrið eftir Margréti Örnólfsdótt- ur er ansi hnyttið lag sem fellur vel að kald- hæðnislegu ljóði Stein- unnar Sigurðardóttur. Móeiður Júníusdóttir er höfundur titillags plötunnar, Minn heim- ur og þinn. Lagið er ákaflega fallegt og útsetning Atla Heimis Sveins- sonar sömuleiðis. Næst ber að nefna hið hugljúfa og grípandi lag Sum orð eftir Margréti Kristínu Blöndal. Í lagi Bjarkar Guðmunds- dóttur, Verandi, kveður við óvænt- an þjóðlegan tón sem ef til vill má skrifa á skemmtilega útsetningu Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar. Ekki má gleyma elstu tónskáldun- um, þeim sem ómeðvitað ruddu brautina fyrir þær yngri. Í þeim hópi skara fram úr þær Ingunn Bjarnadóttir og Selma Kaldalóns, sem eiga hér hvor sitt lagið. Ásgerður Júníusdóttir hefur hér sett saman áhugaverða og afar fjöl- breytta efnisskrá sem ætti að gefa hlustendum nokkra innsýn í sköp- unarverk íslenskra kvenna á tónlist- arsviðinu. Hér má heyra allt frá rótgróinni sönglagahefð í lagi Selmu Kaldalóns til módernisma Karólínu Eiríksdóttur og allt þar á milli. Og ekki er annað að merkja en þetta allt falli vel hvert að öðru. Ásgerður hefur gert sér far um að gera hvert lag um sig einstakt, beit- ir óhikað mjög ólíkum túlkunarað- ferðum og blæbrigðum raddarinnar frá einu lagi til annars. Í þessu sam- bandi mætti t.d. benda hlustendum á að bera saman flutninginn á þremur síðustu lögunum á diskin- um: Verandi, Vorljóði á ýli og Spör- fuglinum. Ásgerður er á plötunni studd hópi úrvals hljóðfæraleikara og söngvara, útsetningar eru marg- breytilegar og unnar af smekkvísi. Og síðast en ekki síst er ánægjulegt að fá að kynnast svo miklu af tónlist sem svo sjaldan heyrist. Hljóðritun er prýðileg og umslag fallega unnið með athyglisverðum greinum Úlfhildar Dagsdóttur og Bergþóru Jónsdóttur. Hér er á ferðinni áhugaverð við- bót við óvenju fjölskrúðuga geisla- plötuútgáfu síðustu mánaða. Var einhver að tala um kreppu í útgáfumálum? Tónlist íslenskra kvenna TÓNLIST Geislaplötur Selma Kaldalóns: Draumurinn. Hildigunn- ur Rúnarsdóttir: Í ást sólar. Margrét Örn- ólfsdóttir: Hrædýrið. Jórunn Viðar: Kall sat undir kletti. Karólína Eiríksdóttir: Mánuðurinn mars. Móeiður Júníusdóttir: Minn heimur og þinn (úts. Atli Heimir Sveinsson). Þuríður Jónsdóttir: Ljóð. Ing- unn Bjarnadóttir: Óðum þagna æviþrár. Ragnhildur Gísladóttir: Væri ég kona (úts. Hlynur Aðils Vilmarsson). Elín Gunn- laugsdóttir: Rigning í Reykjavík. Mist Þorkelsdóttir: Þú ert átján. Bára Gríms- dóttir: Svo þú gætir óskað. Margrét Kristín Blöndal: Sum orð (úts. Marion Herrera). Þóra Marteinsdóttir: Hefnd. El- ísabet Jónsdóttir: Farfuglarnir. Björk Guðmundsdóttir: Verandi (úts. Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson). Jórunn Viðar: Vor- ljóð á ýli. María Brynjólfsdóttir: Spörfugl- inn. Söngur: Ásgerður Júníusdóttir (sópr- an) og kór fimm kvenna og tveggja karla. Hljóðfæraleikur: Steinunn Birna Ragn- arsdóttir (píanó), Bryndís Halla Gylfa- dóttir (selló), Auður Hafsteinsdóttir (fiðla), Þórunn Ósk Marínósdóttir (víóla), Áshildur Haraldsdóttir (flauta), Hörður Áskelsson (orgel), Reynir Jónasson (harmónika), Marion Herrera (harpa). Tónmeistari: Sveinn Kjartansson. Heild- arlengd: 44’50. Útgefandi: Smekkleysa. Útgáfuár: 2001. MINN HEIMUR OG ÞINN Ásgerður Júníusdóttir Valdemar Pálsson KRISTINN Pálmason opnar sýn- ingu á verkum eftir sig í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti á laug- ardag kl. 14. „Á sýningunni eru 10 til 13 verk sem hafa verið að malla allt frá 1998 til dagsins í dag. Nokkur uppáhalds- verk og önnur glæný,“ segir Krist- inn. „Annars vegar er um að ræða óhlutbundin málverk og hins vegar tölvuunnar sviðsettar ljósmyndir. Málverkin eru bæði unnin í olíu og akríl en auk þess nota ég loftpensil (airbrush). Einhvers staðar þarna á milli eru svo verk sem falla undir báða miðlana. Ekki er beinlínis eitt- hvert þema í verkunum, frekar margþættar og oft eðlislega óskyld- ar hugmyndir settar saman en vissu- lega tengjast verkin innbyrðis og þótt ég setji sýninguna upp sem eina heild er hvert verk sjálfstætt. Þar sem bæði málverkin og ljós- myndirnar eru að miklu leyti ferlis- tengd verk er ein hlið myndefnisins sjálf sköpun verkanna. Í ljósmynd- unum kem ég inn á gerð málverks án þess þó að um beina skráningu sé að ræða. Í málverkunum má svo finna vissan karakter ljósmyndunar, ekki ljósmyndaraunsæi, öllu heldur visst eðli ljósmyndarinnar sem slíkrar s.s. flassið, lit filmunnar og hlut tímans, án þess þó að um beinar tilvísanir sé að ræða,“ segir Kristinn. Sýningin stendur til 21. febrúar. Margþætt verk BREIÐFIRÐINGUR er elsta héraðsritið, sem út kemur á Íslandi. Það hóf göngu sína árið 1942 og hef- ur flutt geysimikið af fróðleik á tæp- um sex áratugum. Það er vissulega ómetanleg náma fyrir alla þá sem kynna sér sögu þessa merka og fagra héraðs. Að þessu sinni flytur Breiðfirð- ingur margvíslegt efni. Aðalefnis- þættir eru þó þrír, að því mér sýnist. Þar er fyrst að telja mikla ritgerð (um 50 bls.) eftir ritstjórann Einar G. Pétursson, er nefnist Gamlar heimildir um fjallskil í Dölum. Ný- lega kom í leitirnar fjallskilareglu- gerð frá árinu 1809, en hún var talin glötuð. Höfundur fjallar í upphafi ritgerðar um þessa reglugerð og birtir hana í heild sinni í ritgerð- arlok. Auk þess skýrir hann frá öðr- um fjallskilareglugerðum allt til þessa dags og gerir grein fyrir breytingum, sem á þeim hafa orðið. Þá er kafli um réttarstæði og býst ég við að mörgum þyki það fróðleg frásögn. Kristján Bersi Ólafsson á hér greinina Barnafræðsla í Suður- dalaþingum. En Suðurdalir munu vera Hörðudalur, Miðdalur og Haukadalur. Umfjöllunin tekur mið af fræðslulögunum frá 1908. Eftir að höfundur hefur gert grein fyrir kennsluskipulagi samkvæmt þeim lögum tekur hann fyrir kennslumál í Suðurdalaþingum fyrir daga fræðslulaganna. Þar segir frá kennslu og kennurum. Síðan kemur aðalhluti greinarinnar um fyrstu ár- in, sem kennt var eftir nýju lögun- um. Þar voru ýmsir byrjunarörðug- leikar, sem vel birtast í bréfaskipt- um. Þá er loks gerð grein fyrir kennsluháttum og kennurum. Marg- ar myndir eru af kennurunum. Þetta er vitaskuld nokkurt framlag til skólasögu og einkar fróðlegt að lesa. Þá kemur að þriðja aðalefnisþætt- inum. Hinn 4. júní árið 2000 var haldin minningarathöfn í Hafnar- firði um fræðimanninn og rithöfund- inn dr. Lúðvík Kristjánsson, en hann lést fyrr á því ári. Fimm fræði- menn fluttu erindi um Lúðvík og verk hans. Fjórir þeirra viku eink- um að breiðfirskum efnum og eru erindi þeirra birt hér. Einar Lax- ness nefnir sitt erindi Spjall um Lúðvík Kristjánsson. Árni Björns- son á erindið Frá Þjóðháttadeild. Jón Þ. Þór fjallar um Lúðvík og Ís- lenzka sjávarhætti og loks segir Orri Vésteinssson Af afa. Varla þarf að taka fram, að öll eru þessi erindi hin ágætustu og vel til sóma hinum ágæta fræðimanni. Auk þessara þriggja efnisþátta er margvíslegt annað efni í Breiðfirð- ingi, bæði í lausu máli og bundnu. Er það yfirleitt hinn notalegasti lestur og sumt af því prýðilega áhugavert. Breiðfirskur fróðleikur BÆKUR Tímarit Tímarit Breiðfirðingafélagsins, 58.– 59.árg., 2000–2001. Ritstjóri: Einar G. Pétursson. Reykjavík, 2001, 213 bls. BREIÐFIRÐINGUR Sigurjón Björnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.