Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 1
26. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 1. FEBRÚAR 2002 ÓNAFNGREIND kona lét í gær óánægju sína í ljósi við embætt- ismenn vegna matarins sem dreift var í tjaldbúðum er komið var upp fyrir fólk sem varð að yf- irgefa heimili sín vegna spreng- inganna í Lagos í Nígeríu fyrr í vikunni. Að minnsta kosti sjö hundruð manns fórust þegar sprenging varð í vopnageymslu hersins og mikið öngþveiti fylgdi í kjölfarið. Flestir þeirra sem fór- ust voru börn. Mörg þúsund manns hafa orðið heimilislaus í kjölfar harmleiksins, og hefur Rauði krossinn í Nígeríu brugðist við og dreift til fólksins mat, lyfj- um og ýmsum öðrum hjálp- argögnum. AP Reiði í garð yfirvalda  Fólk er þungbúið/23 ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, kveðst iðrast þess að hafa ekki látið myrða Yasser Arafat fyrir tuttugu árum í stríðinu í Líbanon. Ísraelska blaðið Maariv hafði þetta eftir Sharon í gær. Sagði forsætis- ráðherrann að hann hefði átt að gefa fyrirmæli um „upprætingu“ Arafats þegar Ísraelar réðust inn í Líbanon árið 1982 til þess að hrekja á brott þaðan Frelsissamtök Palestínu (PLO). „Í Líbanon var samkomulag sem kvað á um að ekki mæti uppræta hann, og eftir á að hyggja iðrast ég þess,“ hafði Maariv eftir Sharon. Hann var varnarmálaráðherra þegar Ísraelar létu til sín taka í borgara- stríðinu í Líbanon. Arafat, forseti PLO, hafði bækistöðvar í Beirút. Palestínski ráðherrann Saed Erekat sagði að orð Sharons merktu að Sharon væri „enn þeirrar hyggju að drepa Arafat, og er til marks um hugarfar mafíósa og skæruliða frem- ur en forsætisráðherra“. Sagði Erek- at að Palestínumenn fordæmdu yf- irlýsingu Sharons og bæðu Bandaríkjamenn þess lengstra orða að „stöðva Sharon áður en það verð- ur of seint“. Erekat sagði ennfremur að Bandaríkjastjórn yrði að hætta að koma fram við stjórn Sharons og Ísrael eins og ríki sem væri hafið yfir lög og rétt. Jose Maria Aznar, forsætisráð- herra Spánar, sem er nú í forsæti Evrópusambandsins, sagðist vera „mjög svartsýnn“ á ástandið í Mið- Austurlöndum og varaði við því að það gæti versnað til muna. Josep Piq- ue, utanríkisráðherra Spánar, tók dýpra í árinni og sagði: „Ef þessi orð eru rétt eftir höfð harma ég þau og krefst þess að þau verði tekin til baka.“ Bandaríkjamenn fámálir Bandaríkjamenn voru tregir til að segja nokkuð um orð Sharons. „Ég hef ekkert sérstakt að segja um yfir- lýsingar sem sífellt fljúga þarna fram og til baka,“ sagði Richard Boucher, talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins. Þegar fréttamenn gengu á hann og sögðu honum frá viðbrögðum Evrópusambandsins sagði Boucher einungis að yfirlýsing- ar sem ykju á spennuna væru ekki til bóta við að draga úr ofbeldi og auka traust. Þegar fréttamenn ítrekuðu spurn- ingar sínar virtist Boucher verða pirraður. „Ég sagði að þetta væri ekki til bóta, ég skal glaður segja það ef það er það sem þið viljið, en kjarni málsins er þessi: Hver er kjarni málsins?“ Á mánudaginn hafði Boucher atyrt Arafat fyrir ræðu, sem Arafat hélt í Ramallah um helgina, og skírskotaði til heilags stríðs. Arafat hefur dvalið í bækistöðvum heimastjórnar Palestínumanna í Ramallah síðan í desember og halda Ísraelar honum þar eiginlega í herkví, í kjölfar fjölda blóðugra árása Palestínumanna á ísraelsk skotmörk. Sharon hefur sagt að Arafat fái hvergi að fara fyrr en hann tekst á við palestínska vígamenn með þeim hætti sem Ísraelar sætta sig við. Einkum hafa Ísraelar áhuga á að handteknir verði menn sem réðu af dögum ísraelskan ráðherra í október síðastliðinn. Sharon kveðst iðrast þess að hafa ekki fellt Arafat Jerúsalem. Washington. AFP. Reuters Yasser Arafat á fundi með stuðningsmönnum sínum í Ram- allah fyrr í vikunni.  Palestínsk svæði/22 Aftöku blaðamanns frestað Karachi. AFP. ÍSLÖMSK öfgasamtök frestuðu í gær um einn dag að taka af lífi bandarískan blaðamann, sem þau rændu fyrir níu dögum. Kom það fram í tölvupósti, sem þau sendu pakistönskum dagblöðum. „Við gefum honum einn dag enn. Verði Bandaríkjastjórn ekki við kröfum okkar mun það sama henda alla bandaríska blaðamenn í Pakist- an. Allah sé með okkur,“ sagði í skeytinu. Daniel Pearl, blaðamaður hjá Wall Street Journal, hvarf í borginni Kar- achi fyrir níu dögum en þá var hann að reyna að ná tali af leiðtogum ísl- amskra harðlínumanna. Segjast ókunn samtök, sem kalla sig Þjóð- arhreyfinguna fyrir endurheimt pakistansks fullveldis, hafa Pearl á valdi sínu og þau krefjast þess, að afganskir og pakistanskir fangar Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu verði sendir heim. Ekki orðið við kröfunum Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að ekki yrði farið að kröfum ræningjanna. Bandaríkjamenn gerðu allt sem þeir gætu til að hafa uppi á Pearl, og sagðist Powell hafa rætt við Pervez Musharraf, forseta Pakistans, um málið. Mubarak Ali Shah Gilandi, leið- togi herskárra samtaka, sem Pearl ætlaði að ræða við, var handtekinn í fyrradag og húsleit hefur farið fram á ýmsum stöðum, sem honum tengj- ast. Að sögn pakistanskra embættis- manna hefur „nokkuð miðað“ í rann- sókninni. Íslamskir öfga- menn í Pakistan BANDARÍSKI spennusagna- höfundurinn Stephen King ætl- ar að hætta að senda frá sér skáldsögur er hann lýkur þeim verkefn- um sem hann er nú að vinna, vegna þess að hann vill „hætta á toppnum“, að sögn BBC. King er 54 ára og einhver vinsælasti rithöf- undur heims og meðal þekktari verka hans má nefna „The Shining“ og „Green Mile“, sem báðar hafa verið kvikmyndað- ar. Verkefnin sem King er nú að vinna að eru þrjár síðustu sögurnar í bókaröðinni „Dark Tower“ og handrit að sjón- varpsþáttum um draugagang á hæli. „Svo er ég hættur,“ sagði hann. „Hættur að skrifa bæk- ur.“ Hann útilokar þó ekki að hann haldi áfram að skrifa fyrir sjálfan sig. King segist hafa óttast að fara myndi fyrir sér eins og spennusagnahöfundinum Har- old Robbins sem hélt áfram að skrifa fram eftir aldri, en sala bóka hans minnkaði verulega og orðstírinn beið hnekki Umboðsmaður Kings kvaðst hafa sínar efasemdir um yfir- lýsingar rithöfundarins. „Hann hefur svo oft talað um að hætta. Ég held að það sé mjög ólíklegt að hann hætti að vinna.“ King Stephen King vill „hætta á toppnum“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.