Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 7
ritum og erum við frumkvöðlar að því leyti. Við lögðum mikla áherslu á hvað við værum fámenn þjóð og landfræðilega einangruð. Því vær- um við í raun eins og einn lítill há- skóli í Bandaríkjunum. Þannig reyndum við að nota okkur smæð- ina, sem var mjög erfitt í fyrstu en okkur tókst loks að semja um að- gang að Britannica Online. Þeir voru ótrúlega jákvæðir og vildu taka þátt í þessu með okkur sem tilraunaverkefni í tvö ár. Það var mjög gott fyrir okkur að geta bent á þennan samning þegar við rædd- um við aðra eins og t.d. ProQuest. Þeir höfðu samband við fulltrúa Britannica Online til þess að full- vissa sig um að landsaðgangur væri mögulegur á Íslandi. Við reyndum einnig að höfða til smæð- arinnar þegar við vorum að semja við Web of Science um leið og við bentum þeim á að við gætum ekki greitt þann háa aðgangseyri, sem upp var settur í upphafi en fengum þau svör að það væri þeim óvið- komandi. Ef menn vildu fá það besta yrði að greiða fyrir það. En okkur tókst að lokum að semja um mun lægri aðgangseyri og munar þar háum fjárhæðum miðað við það sem aðrir greiða. Eftir á að hyggja þá held ég að það hafi einnig haft áhrif hvað við Íslend- ingar stöndum framarlega á tæknisviðinu.“ Áætlaður kostnaður við Lands- aðganginn er um 50 milljónir á ári fyrir utan kynningu og laun eins starfsmanns en ef vel ætti að vera þyrfti að fjölga starfsmönnum um tvo að mati Sólveigar. „Landsað- gangurinn og vefurinn hvar.is hafa fengið góðar viðtökur en það verð- ur að finna traustan fjárhags- grundvöll ef ætlunin er að end- urnýja samninga sem flestir renna út nú í árslok,“ sagði hún. „Semjendur gagnasafnanna líta á samningana við okkur, sem til- raunaverkefni, sem styðjast má við í framtíðinni þegar samið verður við þjóðir sem eru skemmra á veg komnar en við,“ sagði Þóra Gylfa- dóttir. „Það er í raun mjög gaman að fylgjast með hvernig sagt er frá þessum samningum við okkur í fréttabréfum gagnasafnanna. Þar er fjallað um þá, sem meiriháttar áfanga í markaðssetningu.“ Þar sem um landssamning er að ræða hefur Verkefnisstjórnin leit- ast við að semja um aðgang að fjölbreyttu efni, sem höfðar til sem flestra og að þar sé að finna efni fyrir fræðimenn, námsmenn, al- menning, bókasöfn, listamenn, stofnanir og fyrirtæki. Auk Brit- annicu Online, Web of Science og ProQuest með allar þær upplýs- ingar sem þar eru, er einnig að finna tímarit eins og Better Hom- es & Garden, Country Living og Sport. „Það má eiginlega skipta efninu í landsaðganginum í tvo hluta,“ sagði Þóra. „Annars vegar er að- gangur að rúmlega 30 tilvísana- söfnum og hins vegar aðgangur að sjö tímaritasöfnum sem í eru rúm- lega 6.700 tímarit. Gagnasöfn tímaritanna bjóða upp á fjöl- breytta og persónulega þjónustu. Ef þess er óskað lætur tímarita- safn t.d. vita þegar nýtt efni bæt- ist í safnið á áhugasviði viðkom- andi.“ Fjarnám og fjarvinna Eins og fram hefur komið er landsaðgangur að gagnasöfnum og fræðiritum mjög mikilvægur fyrir fjarnám og fjarvinnu. Á það sér- staklega við um þá sem búa og starfa víðsfjarri bókasöfnum. „Á vefnum eru til dæmis nýjustu út- gáfur af sautján textabókum, sem kenndar eru í læknisfræði og hjúkrun,“ sagði Sólveig. „Við vit- um að þeir sem stunda fjarnám í hjúkrun og þeir eru þó nokkrir nýta sér þennan möguleika. Segja má að eini gallinn við vefinn sé að mest af efninu er á ensku þannig að grunnskólanemendur geta ekki nýtt sér hann jafnvel og fram- haldsskólanemar. En það eru ekki eingöngu nemendur sem geta nýtt sér möguleika landsaðgangsins. Kennarar geta undirbúið kennslu morgundagsins og fræðimenn unn- ið að sínum verkefnum heima á kvöldin í ró og næði.“ Þær Sóveig og Þóra segja að merkjanlegur munur sé á heim- sóknum inn á hvar.is þegar verk- efnavinna fer í gang í skólum og próf nálgast. Einnig hafi mátti sjá kipp upp á við í kjölfar málþings um rafræn tímarit, sem haldið var í nóvember sl. Mikið um afþreyingarefni „Því miður hefur kynning á landsaðganginum ekki verið eins öflug og við hefðum viljað,“ sagði Sólveig. „Við finnum að almennt gerir fólk sér ekki nægilega vel grein fyrir hvaða möguleikar eru í boði og hvernig hægt er að nýta sér þennan aðgang,“ sagði Þóra. „Ein leið sem bókasafnsfræðingar geta notað til að vekja áhuga á lands- aðgangi er að benda á allt það af- þreyingarefni, sem þar er í boði, bæði í tímaritum og eins inn á GROVE music&opera, GROVE art eða inni í Literature Online. Mikill áhugi er á listum og í GROVE mu- sic&opera er hægt að lesa um tón- list, sjá umfjöllun um tónverk og tónskáld. Sama á við um myndlist- armenn og myndhöggvara í GROVE art. Í Literature Online er að finna öll bókmenntaverk sem komið hafa út á engilsaxneska tungu frá upphafi til ársins 1903, með bókmenntafræðilegri umfjöll- un og ritdómum. Þar eru einnig fræðigreinar um rithöfunda og skáld, umfjöllun um verk þeirra og gagnrýni á þá. Ekki má gleyma Shakespeare eins og hann leggur sig en á mun meira en 97 mínútum! Við höfum kynnst breskum kenn- urum sem eru fullir öfundar yfir þessum aðgangi að Literature On- line sem við erum með.“ „Landsaðgangurinn og allt sem í honum er að finna er stærsta bókasafn sem við höfum nokkru sinni haft aðgang að og mun stærra en okkur gat nokkurn tíma dreymt um að koma upp,“ sagði Sólveig. „Það má segja að almenn- ingsbókasafnið, skólabókasafnið og fræðabókasafnið sé þar með komið inn á heimili til fólks.“ krgu@mbl.is og tónlistarmennt. Gjaldfrjáls að- gangur er að Caplex, sem er norskt alfræðisafn og ENCARTA, alfræði- safni Microsoft Corporation. Orðasöfn Gjaldfrjáls aðgangur er að ensk- íslenskri og íslensk-enskri orðabók, á ordabok.is, orðabanka Íslenskrar málstöðvar og að Orðabók Háskól- ans. Vefgáttir Samningurinn við Alacra felur í sér aðgang að 40.000 völdum vefjum á sviði viðskipta og markaðsfræða. Auk þess veitir vefgáttin leitarað- gang að 50 gagnasöfnum og er hægt að hlaða upplýsingum beint inn í tölvureikna svo sem Excel en þá gegn gjaldi. Gjaldfrjáls aðgangur er að þrem- ur vefgáttum, ADAM, en þar er að finna upplýsingar um listir, hönnun, arkitektúr og fjölmiðlun, NOVA- Gate, með upplýsingum um land- búnað og umhverfismál og WebStat en þar er að finna hagtölur á Netinu. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 B 7 Á mbl.is finnur þú allt um strákana okkar og Evrópumeistaramótið í handbolta í Sví- þjóð. Ljósmyndari og blaðamenn eru á staðnum og senda heim fréttir og myndir af öllu því sem þú vilt vita um keppnina. Úrslit leikja, staðan, keppnisstaðirnir, myndasyrpur og auðvitað allar fréttirnar eru á mbl.is FYLGSTU MEÐ ÞVÍ NÝJASTA EM í handbolta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.