Morgunblaðið - 10.02.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 10. FEBRÚAR 2002
34. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sumarbæklingur
Heimsferða er
kominn út
Opið í dag frá 13 - 16
STOFNAÐ 1913
Sagt er að ekki sé auðvelt að vera unglingur nú til dags vegna þess að þjóðfélagið sé orðið svo flókið. Ung-
lingar alast nú upp við margmenningarleg áhrif, sem breytt hefur heimsmynd þeirra. Hildur Einarsdóttir
veltir fyrir sér því umhverfi sem þeir og foreldrar þeirra lifa í og hvað sé hugsanlega hægt að gera betur.
Ung og neysluglöð
Morgunblaðið/Goll
Sælkerar á sunnudegi
Valentínusardragbítur
Tíbetar kveðja
nú gamla árið
og fagna
árinu 2129
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
10. febrúar 2002
B
Spennan heldur
mér gangandi
20
Danmörk
lokar hliðunum
14
10
Höfum lyft Grettistaki í
leik- og grunnskólum
ÞEGAR 19. vetrarólympíuleikarnir
voru settir í Saltsjóborg í Banda-
ríkjunum í fyrrinótt að íslenskum
tíma héldu nokkrir bandarískir
keppendur á rifnum bandarískum
fána sem bjargað var úr rústum
World Trade Center í New York
eftir hryðjuverkin þar 11. sept-
ember. Menn úr lögreglu- og
slökkviliði New York fylgdu fán-
anum inn á Rice-Eccles-ólympíu-
leikvanginn, þar sem grafarþögn
ríkti á meðan fáninn var borinn inn.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti setti leikana, er standa
munu í 17 daga. Um 2.500 kepp-
endur frá 77 löndum taka þátt í
leikunum og etja þar kappi um 477
verðlaunapeninga. Öryggisgæsla
verður strangari en nokkurn tím-
ann áður og munu fimmtán þúsund
hermenn, leyniþjónustumenn, lög-
reglumenn og sjálfboðaliðar standa
vaktina.
Reuters
Til minningar um 11. september
RÍKISSTJÓRN Argentínu hefur
ákveðið að beita sér fyrir grund-
vallarbreytingum á stjórnskipan
landsins. Markmið þeirra umskipta
er að tryggja pólitískan og efna-
hagslegan stöðugleika í landinu.
Eduardo Duhalde, forseti Arg-
entínu, greindi frá áformum þess-
um í sjónvarpsávarpi aðfaranótt
laugardags, en mótmælum á götum
úti sökum efnahagsóreiðu linnti
ekki við þessi tíðindi.
Duhalde boðaði að forsetastjórn
yrði aflögð í landinu og þingræði
komið á þess í stað. Stefnt væri að
því að mynda annað lýðveldi Arg-
entínu. Þingmönnum og fulltrúum í
sveitarstjórnum yrði fækkað um
fjórðung. Þannig mætti spara fé og
verja því til þarfari verkefna. Þing-
ræðisfyrirkomulag væri aukinheld-
ur fallið til að auka ábyrgð stjórn-
málamanna gagnvart umbjóðend-
um sínum.
Talin ein helsta ástæða
landlægrar spillingar
Forsetaræði hefur verið við lýði í
Argentínu í tæp 150 ár. Því er
haldið fram að það fyrirkomulag
hafi ásamt stöðnuðu tveggja flokka
kerfi átt mestan þátt í að skapa þá
landlægu spillingu sem löngum
hefur þótt einkenna samfélag Arg-
entínumanna.
Þá er sú skoðun almenn í Arg-
entínu að kenna beri stjórnmála-
mönnum og stjórnkerfinu um þær
efnahagshörmungar sem riðið hafa
yfir að undanförnu.
Breytingar á stjórnkerfinu koma
í kjölfar neyðaráætlunar sem
stjórn forsetans hefur samið og
tekur gildi á morgun, mánudag.
Bankar hafa verið lokaðir í Argent-
ínu í vikunni af ótta við að á bresti
fjármagnsflótti og hefur almenn-
ingur því ekki getað tekið fé út af
reikningum sínum. Því ástandi
mála er nú mótmælt á degi hverj-
um í Argentínu. Þannig fóru nokk-
ur hundruð manna um götur höf-
uðborgarinnar, Buenos Aries, í
gær. Pönnur og pottar voru barin
líkt og plagsiður er þar syðra og
fólkið hrópaði í kór: „Þjófar! Skilið
okkur peningunum!“
Þingræði í stað forseta-
stjórnar í Argentínu
Buenos Aires. AFP. AP.
HINIR nýju valdhafar í Afganistan
sögðu í gær, að múllann Abdul Wakil
Muttawakil, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra í stjórn talibana í landinu,
væri stríðsglæpamaður og draga
bæri hann fyrir dómstóla. Muttaw-
akil gaf sig fram við bandaríska her-
inn í Suður-Afganistan á föstudags-
kvöldið. Þótt talið sé að hann hafi
ekki verið í innsta hring samstarfs-
manna æðsta leiðtoga talibana, múll-
ans Mohammads Omars, gæti Mutt-
awakil veitt upplýsingar um ferðir
Omars og Osama bin Ladens.
Muttawakil er hæst setti embætt-
ismaðurinn úr stjórn talibana sem
vitað er til að sé í haldi Bandaríkja-
manna. Hann var talinn vera tiltölu-
lega hófsamur miðað við aðra í
stjórninni. Eftir að hann gaf sig fram
var farið með hann til bandarísku
herstöðvarinnar í Kandahar til yfir-
heyrslu. Talsmaður bandaríska
hersins í stöðinni, A.C. Roper majór,
kvaðst ekkert geta sagt um kring-
umstæður handtöku Muttawakils.
Afganistan
Fyrrv. ráð-
herra gefur
sig fram
Kabúl, Kandahar. AFP, AP.
MARGRÉT prinsessa, yngri
systir Elísabetar Bretlands-
drottningar, lést í gær í kjölfar
heilablóðfalls,
að því er fram
kom í opinberri
yfirlýsingu frá
Buckingham-
höll. Margrét
var 71 árs. Hún
fékk heilablóð-
fall á föstudag-
inn, það fjórða
á jafnmörgum
árum.
Í fyrrinótt varð vart við trufl-
anir í hjartslætti prinsessunnar
og var hún flutt frá Kensington-
höll á Sjúkrahús Játvarðs kon-
ungs þar sem hún lést klukkan
6.30. Margrét lætur eftir sig tvö
uppkomin börn.
Líf Margrétar var enginn
dans á rósum. Í þrjá áratugi
fylgdust fjölmiðlar grannt með
henni og greindu samviskusam-
lega frá mönnunum í lífi hennar,
hjónabandi og skilnaði.
Bretland
Margrét
prinsessa
látin
Margrét
prinsessa.
London. AFP.
FORINGI GIA-uppreisnarsamtak-
anna, sem eru hin róttækustu sem
múslimar starfrækja í Alsír og myrt
hafa hundruð manna á undanliðnum
árum, var felldur í skotbardaga við
öryggissveitir skammt frá Algeirs-
borg, að því er ríkisfréttastofa lands-
ins, APS, greindi frá í gær.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
fregnir berast af því að Zouabri hafi
verið felldur, en það eykur á áreið-
anleika fréttarinnar nú, að hún skuli
koma frá opinberri fréttastofu Alsír.
Foringi
GIA felldur
Algeirsborg. AP.
♦ ♦ ♦