Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 30
30 C ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir H ÚSIÐ Túnsberg var áður skráð við Þormóðsstaða- veg, en Þormóðsstaðir voru býli sem byggt var úr landi Skildinganess og var í ná- munda við Lambhól og Garðana. Húsin þrjú, sem skráð voru við Þor- móðsstaðaveg, eru vel byggð og reisuleg timburhús sem njóta sín vel þar sem þau standa efst í stóru túni. Árið 1994 var ákveðið að skrá þau við Starhaga. Í þessari grein verður fjallað um húsið Túnsberg, Starhaga 5. Fiskveiðifélagið Alliance átti Þor- móðsstaði og hafði þar mikil umsvif. Ásamt því að reka þar kúabú var þar á öðrum og þriðja áratug tuttugustu aldar umfangsmikil fiskverkun og lifrarbræðsla. Þar var stunduð salt- fiskverkun áfram eftir að togarar Alliance tóku að bræða lifrina um borð. Þormóðsstaðir tilheyrðu Sel- tjarnarneshreppi til ársins 1932 en voru þá ásamt Skildinganesi lagðir undir Reykjavík. Þegar Alliance hóf lifrarbræðslu á Þormóðsstöðum var fenginn til landsins ungur maður frá Noregi, Jentofte Olsen, fæddur 22. apríl 1877, til að stjórna lifrarbræðslunni. Jentofte Olsen var frá Skarsvaag sem er eyja stutt frá Tromsö. Hann var fyrst í norska hernum en lærði síðan lifrarbræðslu, lýsisgerð og annað sem viðkemur því að nýta sjávarafla sem best. Hann var einnig beykir að mennt. Jentofte Olsen giftist íslenskri konu, Ingiríði Lýðsdóttur, fæddri 28. maí 1888 á Hjallanesi í Land- sveit. Foreldrar hennar voru Lýður Árnason og Sigríður Sigurðardóttir sem þar bjuggu. Ungu hjónin byrjuðu búskap í húsinu á Þormóðsstöðum og þar fæddust fimm af börnum þeirra. Þegar Jón Ólafsson, bankastjóri og eigandi Alliance, vissi að hugur ungu hjónanna stefndi að því að eignast sitt eigið hús bauð hann þeim land úr túni Þormóðsstaða undir bygg- inguna. Húsið byggt 1925 Árið 1925 var húsið Túnsberg byggt. Ekki hefur tekist að finna fyrstu brunavirðinguna á húsinu en eins og áður segir tilheyrði það Sel- tjarnarneshreppi. Hinn 21. mars 1932 var gerð brunavirðing á því, þar segir m.a. að hús J. Olsen Túns- berg við Þormóðsstaðaveg sé 8,2 m x 7,6 m að grunnfleti, einlyft íbúðar- hús með porti, kvisti, risi og kjallara, byggt af bindingi, klætt utan með borðum, pappa, listum og járni yfir á veggjum og þaki. Í útveggjabinding er pappi og sementssteypa er í milli bita yfir kjallara. Í kjallara eru skilveggir og gólf úr steinsteypu. Bæði aðalhæð og rishæð eru þiljaðar innan, striga- lagðar, veggfóðraðar og málaðar. Í aðalhæðinni eru fjögur íbúðar- herbergi, eldhús og gangur. Í rishæð eru fimm íbúðarherbergi, eldhús og gangur. Í kjallara er þvottahús, mið- stöðvarklefi, fjórir geymsluklefar, vatnssalerni og gangur. Inngangur er í skúr við norðurhlið hússins byggður eins og það. Grunnflötur er 2,5 m x 2,8 m. Í húsinu eru vatns- og skólpleiðslur, rafmagnsleiðslur og þvottapottur í kjallara. Fyrstu árin eftir að húsið var byggt var risið leigt út og bjuggu þar stundum tvær fjölskyldur. Sam- kvæmt íbúaskrá frá árinu 1935 búa í húsinu Jentofte Olsen og Ingiríður kona hans ásamt börnum sínum; Sigríði, Kristni, Ólafíu, Gerhard, Olaf, Ernu, Alfred og Kristínu. Á öðru heimili í húsinu voru hús- bændur, Þórður Ólafsson og kona hans Sigríður Pálsdóttir. Einnig Ólafur Þórðarson og Sesselja Þórð- ardóttir. Hjónin á Túnsbergi eignuðust níu börn en sonurinn Edvarð Jóhann lést ungur. Tveir af bræðrunum lærðu flug og tveir flugvirkjun og eru þekktir þjóðfélagsþegnar, einn af þeim er Kristinn Olsen flugstjóri sem lést fyrir rúmu ári. Gestrisið heimili Heimilið á Túnsbergi var rómað fyrir glaðværð og gestrisni. Fjöl- skyldan var afar samhent og mörg af börnunum byrjuðu sinn búskap í húsinu. Jentofte Olsen var í mörg sumur við laxveiði í Þjórsá fyrir Allianse. Við skúrinn sem laxveiðimaðurinn hafði aðsetur í var jarðhýsi. Þar var laxinn settur í ís þar til hann var sóttur á bíl á vegum fyrirtækisins. Talsverð vegalengd var frá ánni út á þjóðveginn en þangað varð að flytja laxinn í handvagni. Verkið var erfitt og varla fyrir aðra en þá sem voru vel að manni. Börnin fengu oft að vera með föður sínum við Þjórsá á sumrin og þó að húsnæðið væri ekki á nútímamælikvarða var staðurinn afar vinsæll hjá þeim. Jentofte Olsen lést 16. desember 1958. Ingiríður bjó áfram í húsinu með Kristínu yngstu dóttur sinni. Ingiríður Lýðsdóttir Olsen lést 9. september 1974. Árið 1957 var byggður 48,2 ferm skúr úr steinsteypu við húsið. Ólafía, ein af systrunum giftist breskum manni Robert Robertssyni að nafni. Þau áttu fyrst heima í Englandi en fluttu til Íslands í kringum 1960 og bjuggu fyrst í risíbúðinni á Túns- bergi. Fljótlega eftir heimkomuna stofn- uðu þau vélaleigu sem talið er að hafi verið fyrsta vélaleiga í Reykjavík, sem leigði út litlar steypuhrærivél- ar, múrhamra og ýmis önnur verk- færi sem hinn almenni borgari gat fengið á leigu í lengri eða skemmri tíma. Vélarnar voru geymdar í bíl- skúrnum og þar var dyttað að þeim. Robert vann hjá vélaverkstæði Þór- is Jónssonar jafnframt því að að- stoða konu sína við útleigu og við- hald vélanna. Bergur Felixson framkvæmda- stjóri og kona hans, Ingibjörg S. Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðing- ur, keyptu húsið af dánarbúi Ingiríð- ar Olsen árið 1975. Nokkru eftir að þau eignuðust húsið létu þau breyta innganginum. Skipt var um glugga og þeim komið sem næst upprunalegu horfi, með krosspóstum, en búið var að taka gluggapósta úr eins og á mörgum húsum sem byggð voru á svipuðum tíma. Árið 1986 var húsinu breytt í einbýli, en áður hafði verið séríbúð í risi. Þar eru núna fjögur svefnher- bergi, baðherbergi og gangur. Í kjallara er lítil einstaklingsíbúð. Hæðin endurnýjuð Bergur og Ingibjörg eru búin að gera mikið fyrir húsið. Hæðin var öll endurnýjuð, þannig að strigi og pappi á veggjum og loftum var tek- inn og panillinn undir látinn njóta sín. Gólfin voru með teppum og dúk- um sem var tekið af og gólffjalirnar slípaðar upp. Þar er nú stofa, borð- stofa sem opið er í milli, rúmgott eld- hús, gangur og snyrting. Fyrir nokkru var skipt um á þaki og á það sett innbrennt stál frá Garðastáli. Að mestu leyti er búið að skipta um járn á hliðum hússins. Sólpallur var gerður suðvestan við húsið og glugga breytt í dyr sem gengt er frá stofu út á pallinn. Húsið stendur í stóru vel grónu túni og er syðsta húsið af húsunum þremur sem öll voru byggð um svip- að leyti. Aðkeyrsla að húsinu var frá Suðurgötu þar til fyrir nokkrum ár- um, en núna er komið að húsinu frá Starhaga. Húsið er stílhreint og set- ur svip á umhverfið. Starhagi 5, Túnsberg Morgunblaðið/Þorkell Húsin þrjú sem skráð voru við Þormóðsstaðaveg eru vel byggð og reisuleg timburhús sem njóta sín vel þar sem þau standa efst í stóru túni. Árið 1994 var ákveðið að skrá þau við Starhaga. Túnsberg er húsið yst til hægri. Húsið var byggt 1925, en á því hafa verið gerðar endurbætur. Aðkeyrsla að húsinu var frá Suðurgötu þar til fyrir nokkrum árum, en núna er kom- ið að húsinu frá Starhaga. Einstök mynd. Loftfarið Graf Zeppelin svífur yfir húsum Lýsisbræðslustöðvarinnar á Þormóðsstöðum árið 1930. Bræðurnir frá Túnsbergi, frá vinstri: Kristinn, Alfred, Olaf og Gerhard. Hjónin á Túnsbergi, Ingiríður Lýðsdóttir og Jentofte Olsen, með fyrsta barnabarnið, Ingu. Húsið er stílhreint og setur svip á umhverfið, segir Freyja Jónsdóttir. Það stendur í stóru, vel grónu túni og er syðsta húsið af húsunum þremur, sem öll voru byggð um svipað leyti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.