Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 42
UMRÆÐAN 42 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Í DAG, laugardag, fer fram í Víðistaða- skóla prófkjör Sjálf- stæðisflokksins í Hafn- arfirði. Til þátttöku í prófkjörinu hafa gefið kost á sér 16 einstak- lingar, stuðningsmönn- um sjálfstæðismanna gefst því gott tækifæri í dag til að hafa áhrif á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins fyrir komandi bæjarstjórn- arkosningar sem fram fara 25. maí nk. Kröftugt bæjarfélag Sjálfstæðismenn tóku við stjórn bæjarfélagsins eftir góðan sigur í síðustu bæjarstjórnar- kosningum vorið 1998. Síðan þá hefur flokkurinn ásamt samstarfsflokki unnið ötullega að styrkri stjórn bæj- arfélagsins og bættri þjónustu við bæjarbúa. Í ört vaxandi bæjarfélagi er nauð- synlegt að bjóða upp á góða þjónustu til handa bæjarbúum og þrátt fyrir samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, ber bæjar- félaginu að bjóða sem flesta þjónustu heima. Lögð er rík áhersla á menntun, ungra sem og þeirra er eldi eru, með kröftugu átaki í skóla- málum og endurmennt- un. Ný heilsugæslustöð er verkefni sem unnið er vel að og er okkur hér nauðsyn að verði að veruleika fyrr en síðar. Unga fólkið Unga fólkið í Hafn- arfirði á að geta notið æskuárana hér á sem farsælastan hátt. Æskulýðs- og íþróttastarf er hér fjölskrúðugt og blómlegt, uppbyggjandi og skemmti- legt, en því miður er oft vá fyrir dyr- um sem fer illa með líf ungs fólks og fjölskyldna þeirra, sem veldur okkur öllum miklum áhyggjum, sorg og kvíða. Forvarnaráætlun hefur verið samþykkt og er horft til hennar í framkvæmd sem öflugu mótvægi gegn hinum mikla vágesti sem herjað getur á unga fólkið okkar. Félag eldri borgara sér nú fram á nýja og stærri félagsaðstöðu innan tíðar. Með þeirri framkvæmd er ver- ið að efla enn frekar félagsandann og samveru sem er ein sú besta heilsu- gæsla sem til er. Uppbygging Sú hugmynd, sem fram er komin um byggingu íbúða á Rafhasvæðinu við Lækjargötu, sem ætluð er fyrir 50 ára og eldri, á eftir að þjóna íbúun- um vel vegna nálægðar við miðbæ. Með því að þétta byggð sem næst miðbænum eflist öll sú verslun og þjónusta sem þar er, en það er eitt sem miðbænum í Hafnarfirði er nauðsynlegt. Aðstaða til uppbyggingar atvinnu- húsnæðis er hér með besta móti, Hellnahraun er í örri uppbyggingu, þar sem svæðið er miðsvæðis hvað vegtengingar og hafnaraðstöðu varð- ar. Höfnin Hafnarfjarðarhöfn sér nú fram á samninga um fyrstu lóðirnar á nýju svæði utan Suðurgarðs, en það svæði verður tilbúið að mestu næsta haust. Höfnin er grunnforsenda byggðar hér í Hafnarfirði, margfeldisáhrif þeirra fyrirtækja sem við hana starfa og þeirra sem njóta þjónustu hennar eru mikil. Tenging hennar við nátt- úruminjar og byggð er því vandasöm og þarf að standa vel að öllum þeim þáttum sem að henni koma á sem far- sælastan hátt fyrir bæjarfélagið. Lokaorð Hafnarfjörður, fallegi bærinn þar sem menning og mannlíf er gott, sem ferðamönnum þykir svo einstakur, með alla sína leyndardóma í hrauni og holti. Með lokaorðum mínum vil ég hvetja alla til að koma og taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Með því hefur þú áhrif á mótun málefna- stefnu bæjarins til bættra lífskjara og betra mannlífs. Framfarabærinn Valgerður Sigurðardóttir Hafnarfjörður Í ört vaxandi bæjar- félagi, segir Valgerður Sigurðardóttir, er nauðsynlegt að bjóða upp á góða þjónustu. Höfundur er forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Frambjóðandi í 2. sæti. VÁGESTIR 21. ald- ar verða fyrst og fremst þau efni og það hugarfar sem hefur neikvæð áhrif á sjálfs- mynd og sjálfsstjórn manna. Hér á ég ekki síst við fíkniefni af ýmsu tagi og margvís- leg áhrif fjöl- og marg- miðlunar sem með nei- kvæðum formerkjum getur sundrað heil- brigðum einstakling- um og fjölskyldum. Það er skylda okkar, sem viljum hafa já- kvæð áhrif á samfélag- ið, að berjast gegn slíkum vágestum. Til þess höfum við næg verkfæri. Ég hef áður í skrifum mínum lagt áherslu á skólakerfið og gildi íþrótta til að byggja upp heilbrigða einstaklinga með jákvæða lífssýn og þroska. En önnur verkfæri ber að nefna sem skipta höfuðmáli. Æskulýðs- og tómstundamálin eru hér veigamikið atriði. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa lagt ríka áherslu á að ung- lingar hafi aðstöðu til að koma saman undir jákvæðum formerkj- um. Þar er starfað í uppbyggilegum anda og góð áhrif höfð á hafnfirska æsku. Það góða starf vil ég efla. Ég vil einnig að dyggi- lega sé stutt við bakið á starfsemi Götuvitans, þar sem starfsmenn ÆTH fara um bæinn á helgarkvöldum með forvarnastarf að leið- arljósi. Með starfi Götuvitans er stuðlað að því að ná til unglinganna áður en þeir lenda illilega á ref- ilstigum neyslusamfélagsins. Það góða starf verður einnig að efla. Ég legg hins vegar ríka áherslu á samþættingu allra þeirra mikilvægu þátta sem mynda starfsemi á vegum Hafnarfjarðarbæjar á sviði æsku- lýðs-, íþrótta- og tómstundamála. Með náinni samvinnu eftir mark- vissri stefnu tel ég að við munum ná enn betri árangri við að efla hafn- firska æsku til dáða og halda ung- lingum frá heljartökum fíkniefna og afbrota. Fyrir því mun ég beita mér nái ég góðu kjöri á lista sjálfstæð- ismanna í Hafnarfirði í prófkjöri flokksins í Víðistaðaskóla í dag. Þar set ég stefnuna á 4.–6. sætið. Allir, sem á annað borð hafa kosningarétt og búsetu í Hafnarfirði, geta kosið í prófkjörinu. Ég hvet Hafnfirðinga til þess að nýta sér þennan lýðræð- islega rétt sinn til áhrifa í samfélag- inu og taka þátt í prófkjörinu. Barátta við vágesti Leifur S. Garðarsson Höfundur er aðstoðarskólastjóri og stefnir á 4.–6. sætið í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins. Hafnarfjörður Ég legg áherslu á skóla- kerfið og gildi íþrótta, segir Leifur S. Garð- arsson, til að byggja upp heilbrigða ein- staklinga með jákvæða lífssýn og þroska. MEÐ því að taka þátt í prófkjöri Samfylking- arinnar nýtur þú þeirra sjálfsögðu réttinda að velja þá sem þú treystir best til að þjóna Reykjavík. Þannig tryggir þú þá forystu sem við höfum náð í borgarmálum fyrir komandi kosningar. Sem forseti borgar- stjórnar hef ég notið þeirra forréttinda að vinna með Reykvíking- um að betri borg. Við höfum breytt valda- stofnun í þjónustufyrir- tæki. Við höfum ekki reist minnis- varða heldur byggt leikskóla, einsett grunnskólann, virkjað í þágu atvinnu- lífs í sátt við náttúruna, lagt upplýs- ingahraðbraut, hreins- að strandlengjuna og fjárfest í menningar- og íþróttalífi borgarinnar. Við höfum ekki leyst hvers manns vanda, en samstaðan hefur fært okkur árangur. Framundan eru krefjandi verkefni. Verkefnið nú er ekki síst að þróa lýðræði í þjónustu okkar með opnara stjórnkerfi, al- mennum atkvæða- greiðslum, könnunum og hverfisráðum. Með því að spyrja og hlusta getum við eflt samráð við Reykvíkinga og aðhald þeirra að störfum okkar. Virkt aðhald frá Reykvíkingum er mikilvægt. Slíkt aðhald skapar líka prófkjör Samfylkingarinnar. Þar geta stuðningsmenn hennar í borginni, flokksbundnir og óflokksbundnir, lagt dóm á frammistöðu okkar og val- ið sína fulltrúa. Ég hvet þig til að taka þátt í því til þess að efla Reykjavík- urlistann og sýna íhaldsflokknum að fólk vill sjálft velja sína fulltrúa. Forystan í borgar- málum er okkar Helgi Hjörvar Höfundur er forseti borgarstjórnar. Reykjavík Við, segir Helgi Hjörvar, höfum breytt valdastofnun í þjónustufyrirtæki. Í DAG fer fram prófkjör sjálf- stæðismanna í Hafnarfirði. Fram- bjóðendur eru 16 talsins, úrvalslið hæfra einstaklinga sem allir hafa reynslu, metnað og hugsjónir til að halda áfram kröftugri upp- byggingu í þessu góða sveitarfé- lagi. Undanfarin 4 ár hefur gott sam- starf verið á milli Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks sem leitt hefur til þess að Hafnarfjörð- ur er á ný í framvarðasveit þeirra sveitarfélaga sem bjóða upp á fjöl- breytt og blómlegt mannlíf. Það er ánægjulegt að vera íbúi í Hafnarfirði og fylgjast með þeim framkvæmdum sem nú einkenna bæinn og þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á nýjum sem gömlum íbúasvæðum. Við þurfum að tryggja að svo verði áfram. Ég vil hvetja Hafnfirðinga til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins en kosið verður í Víð- istaðaskóla. Með því eigum við þátt í að móta öflugan og sigur- stranglegan lista í væntanlegum bæjarstjórnarkosningum. Bæj- arbúar hafa hér tækifæri til að tryggja áframhaldandi framfarir á öllum sviðum. Litróf lífsins verð- ur fyrir vikið fjölbreyttara en slíkt eflir Hafnarfjörð, sérstöðu hans og sérkenni. Hafnfirðingar – mótum sigur- stranglegan lista Höfundur er þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Þorgerður K. Gunnarsdóttir TRAUST er lykilatriði í stjórn- málum. Stjórnmálamenn fara með almannahagsmuni, almannafé og við verðum að geta treyst þeim. Heið- arleika þeirra, dómgreind og að þeir séu líklegir til að koma málum áfram. Þeir hlusti á fólk, þótt þeir verði síðan að hafa hug- rekki til að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Ég hef þekkt Stefán Jón lengi og oft hvatt hann til þátttöku í stjórn- málum. Hann er nútíma jafn- aðarmaður, með hjartað á réttum stað. Það er oft sagt að erfitt sé að fá nýtt hæfileikaríkt fólk til að taka þátt í pólitík. Hún sé miskunnarlaus, oft skammlíf og launin lág. Ekki eigi aðrir möguleika en þeir sem hafi frá unga aldri „klifið“ metorðastiga flokkanna. Nú gefst Reykvíkingum tækifæri til að styðja mann, sem er hæfi- leikaríkur og hefur víðtæka reynslu, er heiðarlegur og hugrakkur. Stefán Jón er maður sem okkur munar um í baráttu fyrir sanngjarnara og heið- arlegra samfélagi. Ég hvet alla til að kjósa hann í fyrsta sæti. Stefán Jón í fyrsta sæti Margrét S. Björnsdóttir, félagi í Samfylkingunni, skrifar: Margrét S. Björnsdóttir UM helgina lýkur prófkjöri Samfylking- arinnar í Reykjavík. Samfylkingin heldur einn flokka prófkjör til að velja frambjóðend- ur fyrir borgarstjórn- arkosningarnar. Með því er almennum stuðningsmönnum gefið tækifæri til að móta þann lista sem fara mun fram í vor og velja þá einstaklinga sem þeir treysta best til verka í borgar- stjórn Reykjavíkur. Frá því Reykjavíkur- listinn vann eftir- minnilegan sigur í kosningunum 1994 hefur orðið bylting hvað varð- ar þjónustu við fjöl- skyldur í borginni. Lyft hefur verið grett- istaki í skóla- og leik- skólamálum og hreins- un strandlengjunnar hefur verið okkar metnaðarmál. Við höf- um byggt góðan grunn til framtíðar og því er mikilvægt að Reykja- víkurlistinn fái endur- nýjað umboð í vor til að halda áfram. Veljum vinningsliðið Reykjavíkurlistinn varð til sem svar fólks- ins gegn Flokknum og með stofnun Reykjavíkurlistans gerðist galdur í stjórnmálum. Hreyfing okkar hefur alla tíð síðan starfað með hagsmuni fjöldans að leiðarljósi. Við höfum starfað af heilindum og metnaði að því að byggja hér betri borg. Við höfum forgangsraðað og fram- kvæmt miðað við þá framtíðarsýn okkar að þróa hér lífsgæði eins og best gerast í heiminum. Til að vinna að þeirri framtíðarsýn þarf öflugan hóp fólks, við þurfum að velja það fólk sem við teljum sigurstrangleg- ast í kosningunum í vor. Það skiptir máli að borgarstjórinn, Ingibörg Sólrún, hafi öflugt fólk í sínu liði þegar Sjálfstæðisflokknum verður mætt í þriðja sinn í borgarstjórn- arkosningum. Ég er tilbúin í þann slag. Ég treysti fólki til að velja þá fulltrúa sem sterkast er fyrir Sam- fylkinguna. Mótum framtíðina sam- an og tökum öll þátt í prókjörinu um helgina. Mótum framtíð- ina saman Steinunn Valdís Óskarsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og tekur þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Reykjavík Mótum framtíðina sam- an, segir Steinunn Val- dís Óskarsdóttir, og tökum öll þátt í próf- kjörinu um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.