Morgunblaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.2002, Blaðsíða 1
55. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 7. MARS 2002 EVRÓPURÍKIN og önnur ríki víða um heim brugðust í gær mjög hart við þeirri ákvörðun Bandaríkja- stjórnar að setja verndartolla á inn- flutt stál. Hóta sum þeirra að grípa til eigin verndaraðgerða auk þess að kæra Bandaríkjastjórn fyrir Heims- viðskiptastofnuninni, WTO. Mikil reiði ríkir í Evrópusam- bandsríkjunum vegna ákvörðunar George W. Bush Bandaríkjaforseta en margir óttast, að holskefla inn- flutts stáls muni ríða yfir álfuna þeg- ar Bandaríkjamarkaður lokast. Pascal Lamy, sem fer með viðskipta- mál í framkvæmdastjórn ESB, sagði í gær, að sambandið myndi grípa til aðgerða til varnar sínum stáliðnaði og er búist við, að það verði ákveðið á utanríkisráðherrafundi þess í Bruss- el á mánudag. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær, að ákvörðun Bush væri „óviðunandi“ og hvatti hann til að gangast fyrir uppstokkun í bandarískum stáliðnaði fremur en að leita skjóls í verndaraðgerðum. Leif Pagrotsky, viðskiptaráðherra Svíþjóðar, sagði bandarísku vernd- artollana geta hrint af stað við- skiptastríði um allan heim. Minnti hann á, að Bandaríkjamenn hefðu ávallt messað yfir öðrum um kosti frjálsra viðskipta, en nú hljómaði það eins og hver önnur hræsni. Japanir, Kínverjar, Brasilíumenn, Suður-Kóreumenn og fleiri hafa tekið í sama streng og Rússar ætla að banna innflutning á bandarískum kjúklingum. Segja þeir raunar, að það sé gert vegna mikillar lyfjanotk- unar í bandarískri kjúklingarækt, en helmingurinn af útflutningi banda- rískra kjúklingaframleiðenda fer til Rússlands. Nýju tollarnir á mestallt innflutt stál í Bandaríkjunum taka gildi 20. mars nk. Hóta hörðum viðbrögð- um við stáltollunum Brussel. AP, AFP. Vaxandi ótti við víðtækt og alvarlegt viðskiptastríð  „Skelfilegt“/22 LÍTIÐ flugfélag, litlar flugvél- ar og litlar flugfreyjur. Þetta er lýsingin á Air Wales, sem er með áætlunarflug á milli Wales og Dyflinnar á Írlandi. Flugfélagið rekur nítján vél- ar af gerðinni Dornier 228 og vegna þess, að í þeim er hvorki hátt til lofts né vítt til veggja, mega flugfreyjurnar ekki vera hærri en 1,60 m, nánar tiltekið á bilinu 1,52 m til 1,60. Dornier-vélarnar taka aðeins tuttugu farþega og því er engin þörf lögum samkvæmt á að vera með flugfreyjur en í því skyni að auka þjónustuna við farþega var ákveðið að ráða sjö litlar flugfreyjur til starfa. Í fluginu almennt er þess krafist, að þær séu ekki lægri en 1,60 m og helst hærri. Sjö litlar flugfreyjur Cardiff. AP. HAMID Karzai, forsætisráðherra afgönsku bráðabirgðastjórnarinnar, sagði í gær, að bækistöðvar nokkur hundruð al-Qaeda-liða í Arma-fjöll- unum í Austur-Afganistan væru „síðasta vígi hryðjuverkamanna í Afganistan“. Harðir bardagar hafa staðið milli hersveita Bandaríkjanna og bandamanna þeirra og al-Qaeda- liða í Arma-fjöllunum síðustu daga en Bandaríkjamenn sögðu í gær að sigur væri í sjónmáli í átökunum. Frank Hagenbeck hershöfðingi, sem stýrir aðgerðum, sagði að um helmingur al-Qaeda-liðanna í Arma- fjöllum væri fallinn eða allt að 500 manns. Nokkrir Bandaríkjamenn liggja þó einnig í valnum en bardagarnir hafa verið þeir hörðustu frá því að Bandaríkjastjórn hóf hernaðar- aðgerðir sínar í Afganistan. Talið er að hörð mótspyrna al- Qaeda hafi komið á óvart en aðstæð- ur í Arma-fjöllum eru þannig að hernaðaryfirburðir Bandaríkja- manna nýtast ekki sem skyldi. Þrír danskir og tveir þýskir hermenn létu lífið Karzai viðurkenndi að al-Qaeda- liðarnir hefðu veitt öflugri mót- spyrnu en menn áttu von á. Hann hefði hins vegar sagt fulltrúum Bandaríkjastjórnar að taka sér nægan tíma til að sigrast á hryðju- verkamönnunum. Þrír danskir hermenn og tveir þýskir létu lífið í Kabúl þegar loft- varnaeldflaugar, sem þeir höfðu ver- ið að reyna að gera óvirkar, sprungu. Anders Fogh Rasmussen, forsætis- ráðherra Dana, sagði að þrátt fyrir þennan harmleik myndu Danir halda áfram að taka þátt í starfi alþjóðlegu friðargæslusveitanna í Afganistan.  Hundruð fallin/20 Sótt að síðasta vígi al-Qaeda Berlín, Kabúl. AFP. Yassers Arafats, leiðtoga Palest- ínumanna, og á skóla fyrir blinda. Enginn var staddur á heimili Ara- fats enda er hann sjálfur í eins konar stofufangelsi í Ramallah á Vesturbakkanum og kona hans og dóttir eru erlendis. Bannað að bjarga særðum mönnum Meðal þeirra, sem létust í gær, voru palestínsk kona, sem var skotin í bakið, og tveir óbreyttir borgarar. Voru þeir lífshættulega særðir en ísraelskir hermenn bönnuðu hjúkrunarfólki að nálgast TÍU Palestínumenn og tveir ísr- aelskir hermenn féllu í gær í ein- hverjum hörðustu árásum Ísraela frá því uppreisn Palestínumanna hófst fyrir sautján mánuðum. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær, að „ekkert lát“ yrði á árásunum, en Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi hann harðlega á fundi með einni nefnd fulltrúadeildar- innar. Ísraelar létu sprengjunum rigna yfir Gaza frá þyrlum, skriðdrekum og fallbyssubátum og unnu meðal annars miklar skemmdir á heimili þá. Létust mennirnir af sárum sín- um eftir þrjár klukkustundir. Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að Arafat yrði að gera meira til að koma í veg fyrir átök en fór síðan mjög hörðum orðum um Sharon. „Sá, sem lýsir yfir stríði gegn Palestínumönnum og heldur, að lausnin felist í því að drepa sem flesta, ætti að huga að afleiðing- unum,“ sagði Powell. Fréttaskýrendur segjast sjá þess merki, að Bandaríkjastjórn sé orðin þreytt á harðlínustefnu Sharons. Reuters Shimon Peres, utanríkisráð- herra Ísraels. Hann sagði í gær, að ekki væri unnt að slökkva eld með eldi, vopnahlé yrði ekki tryggt með auknum hernaði. Powell gagnrýnir Sharon harkalega Gaza-borg. AP, AFP. UM 2.000 manns söfnuðust saman í fyrrakvöld við styttu í Messina á Sikiley þegar það spurðist út, að hún væri farin að gráta blóðugum tárum. Var það meðal annars haft eftir presti í borginni, sem kvaðst hafa reynt að þurrka burt tárin en án árangurs. Er styttan af föður Pio, virtum munki, sem lést árið 1968, en sagt er, að á honum hafi birst hin fimm sár Krists. Til stendur að taka Pio í helgra manna tölu 16. júní nk. Erki- biskupinn á Sikiley hefur skipað fyrir um vísindalega rannsókn á tárunum og vörður hefur verið settur um styttuna til þess að hugs- anlegir prakkarar komist ekki að henni. „Krafta- verk“ í Messina Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.