Morgunblaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HEILDARKOSTNAÐUR Reykjavíkurborgar
af aðkeyptri sérfræðiaðstoð, skráningu og öðr-
um kostnaði af breytingu á rekstraformi og
sölu fyrirtækja í eigu borgarinnar á árabilinu
1994–2001 var tæpar 43 milljónir króna á verð-
lagi í febrúar í ár. Við bætist kostnaður vegna
utanlandsferða vegna þessara verkefna sam-
tals að fjárhæð rúmlega 2,5 milljónir kr. Sam-
anlagt er um tæpar 45,5 milljónir kr. að ræða
án virðisaukaskatts, en að meðtöldum virðis-
aukaskatti er upphæðin tæpar 54 milljónir kr.
Þetta kemur fram í svari Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgarstjóra við fyrirspurn
frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni borgarfulltrúa um
kostnað af breytingu á rekstrarformi og sölu
borgarfyrirtækja. Guðlaugur Þór sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að það væri gagnrýnivert
að einn og sami aðilinn hafi fengið 19,2 milljónir
kr. að meðtöldum vsk. af þessari upphæð.
Fram kemur í svarinu að kostnaður af
skýrslu starfshóps um sölu borgarfyrirtækja
hafi verið 2,2 milljónir kr., en í starfshópnum
áttu sæti Sigurður Kr. Friðriksson viðskipta-
fræðingur, Skúli Bjarnason hrl. og Sveinn
Andri Sveinsson hrl.
Þá segir að greiðslur til sérfræðinga vegna
undirbúnings við sölu Pípugerðar Reykjavíkur
hf. var tæpar 1.300 þúsund kr. og Landsbréf
sem önnuðust sölu hlutabréfanna fengu greidd-
ar 1.271 þúsund kr. Söluverð var tæpar 120
milljónir króna.
Söluverð Húsatrygginga Reykjavíkur var
rúmar 168 milljónir króna, en útlagður kostn-
aður borgarinnar til endurskoðenda og annarra
sérfræðinga vegna sölunnar nam 2,2 milljón-
um.
Þá var rekstrarformi Malbikunarstöðvar
Reykjavíkur og Grjótnáms breytt í Malbikun-
arstöðina Höfða hf. og nema útgjöld borgar-
sjóðs til sérfræðinga auk kostnaðar af stofnun
félagsins 2,1 milljón kr., en fyrirtækið tekur
þátt í samkeppni á markaði og hefur hlutfall ár-
legra tekna félagsins af viðskiptum við Reykja-
víkurborg verið 20–30% af heildartekjum, að
því er fram kemur í svarinu.
Söluverð hlutabréfa borgarinnar í Skýrr hf.
var tæpar 230 milljónir kr. en kostnaður til sér-
fræðinga, Landsbréfa og Kaupþings nam 1.405
þúsund kr.
Fram kemur að greiðslur til sérfræðinga
vegna undirbúnings að stofnun Félagsbústaða
hf., m.a. skráning úttekt og verðmat á öllum
íbúðum borgarinnar nam tæpum 8,6 milljónum
króna og er þá skráning félagsins hjá Hagstof-
unni meðtalin.
Einnig kemur fram að kostnaður Reykjavík-
urborgar af vinnu sérfræðinga vegna samein-
ingar Hitaveitur, Rafmagnsveitu og Vatnsveitu
Reykjavíkur nam tæpum 9,4 millljónum króna.
Þá segir að kostnaður við sérfræðiaðstoð
vegna Bústaða hf. nemi tæpum 7,4 milljónum
kr. Afgreiðslu tillögu um stofnun Bústaða var
frestað í borgarráði, en stuðst er við þessa
vinnu í endurskipulagningu fasteignarekstrar
borgarinnar með stofnun Fasteignastofu á
þessu ári.
Sérfræðikostnaður vegna Strætó bs. nam
rúmlega 6,3 milljónum og vegna Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins bs. rúmum 870 þúsund-
um kr.
Fram kemur að ofangreindar tölur taki ekki
til vinnuframlags borgarstarfsmanna vegna
sölu eða formbreytingar fyrirtækjanna, sem í
mörgum tilfellum sé verulegt.
Þá kemur fram í svari borgarstjóra að
ástæða sé til að leggja áherslu á að farsællega
hafi tekist um þessi verkefni og breytingar hafi
náðst fram í góðri sátt við starfsmenn og
stjórnendur hjá borginni, auk þess sem um
framkvæmdina var pólitísk sátt milli meirihluta
og minnihluta og tillögur unnar í samvinnu
beggja fylkinga. Ekkert bendi til annars en að
þeim markmiðum sem sett voru við endur-
skipulagningu ofangreinds rekstrar hafi náðst
bæði hvað snerti þjónustu og fjárhagslegan
ávinning. Er vísað í skýrslu PriceWaterhouse-
Coopers í því sambandi en fyrirtækinu var falið
að leggja mat á árangurinn af sameiningu
veitustofnana. Þar komi fram að fjárhagslegur
ávinningur af sameiningu Rafmagnsveitu og
Hitaveitu var 240 millj. kr. á verðlagi í október í
haust og 165 milljónir kr. af sameiningu Orku-
veitunnar og Vatnsveitunnar.
Í yfirliti og sundurliðun vegna kostnaðar við
sölu eða formbreytingu einstakra fyrirtækja
kemur fram að Skúli Bjarnason hrl. hefur feng-
ið hæstar greiðslur fyrir sérfræðiaðstoð á tíma-
bilinu eða rúmar 16,3 milljónir kr. án vsk. en
hann hefur fengið greiðslur fyrir öll ofangreind
verkefni nema vegna Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins bs. Þar af nema greiðslur vegna sam-
einingar orkufyrirtækjanna tæpum 5,4 milljón-
um kr. og greiðslur vegna Strætós bs., þar sem
að hluta til er um greiðslu vegna frumskýrslu
að ræða, tæpum 5,2 milljónum kr.
Meðal annarra sem fengið hafa greiðslur á
ofangreindu tímabili vegna sérfræðiaðstoðar
má nefna Þórarin Magnússon, verkfræðing,
sem fengið hefur tæpar 6,8 milljónir kr., en
tæpar 5 milljónir kr. þar af eru vegna Bústaða
hf., Svein Andra Sveinsson, hrl., sem fengið
hefur rúmar 4,9 milljónir kr. og Sigurð Kr.
Friðriksson viðskiptafræðing sem fengið hefur
tæpar 3,5 milljónir kr., en allar ofangreindar
upphæðir eru án virðisaukaskatts.
Virðast vera áskrifendur
að sérfræðiverkefnum
Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi
sagði í samtali við Morgunblaðið það gagnrýni-
vert að einn aðili, Skúli Bjarnason hrl. fengi frá
borginni 19,2 milljónir kr. með vsk. fyrir níu
verkefni og það yrði ekki séð að það væri verið
að sækja til hans neina sérfræðiþekkingu sem
ekki væri innan Ráðhússins. Í þessum tölum sé
ekki greiðsla vegna sölu Áburðarverksmiðj-
unnar sem hann einhverra hluta vegna hafi
einnig séð um en ekki embættismenn borgar-
innar.
Hann bætti því við að almennt talað væri
eðlilegt að kaupa sérfræðiþekkingu að þegar
hún væri ekki fyrir hendi hjá Reykjavíkurborg
sjálfri, en það væri ekkert sem benti til þess að
um það væri að ræða í þessum tilfellum. Þarna
virtist um það að ræða að menn væru áskrif-
endur að sérfræðiverkefnum hjá borginni og
það væri það sem stæði upp úr þegar þessar
tölur væru skoðaðar og hvað stæði að baki
þeim. „Maður spyr sig þess vegna hvað það sé
sem ráði þessu. Af hverju í ósköpunum gera
menn þetta, því alla vega fara menn ekki vel
með peninga almennings í þessum tilvikum,“
sagði Guðlaugur Þór.
Hann benti á að sérstök lögfræðideild starf-
aði hjá borginni, sem gæti sinnt þessum verk-
efnum, auk þess sem þar störfuðu borgarritari
og aðrir embættismenn sem hefðu unnið sam-
bærileg verkefni og ekki fengið neitt aukreitis
fyrir það. Í því sambandi væri mjög athygl-
isvert að bera saman Strætó bs. og kostnað við
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. Í fyrr-
nefnda tilvikinu væri kostnaður borgarinnar
7,3 milljónir kr. út af því að það væri verið að
kalla til sérfræðinga á sama tíma og kostnaður
vegna slökkviliðsins væri tæp 800 þúsund.
Hann bætti því við að það hefði tekið mjög
langan tíma að fá svar við fyrirspurninni eða
um fjóra mánuði.
Aðkeypt sérfræðiaðstoð Reykjavíkurborgar vegna sölu og breytinga á rekstrarformi fyrirtækja
Heildar-
kostnaðurinn
45,5 milljónir
Sjálfstæðismenn gagnrýna að einn aðili hafi
fengið 16,3 milljónir kr. í greiðslur á tímabilinu
NEMENDUR fjórða bekkjar Ár-
túnsskóla hafa undanfarið verið að
vinna með dagblöð í skólanum sín-
um. Þeim lék forvitni á að vita
hvernig dagblöð verða til og þess
vegna heimsóttu þau Morgunblaðið
í gær. Börnin skoðuðu m.a. prent-
smiðjuna og þótti mikið til koma
um stærð hennar. Þau fengu einnig
að kynnast því hvernig fréttir
verða til og gátu m.a. sagt blaða-
manni Morgunblaðsins þær fréttir
að framkvæmdir við viðbyggingu
Ártúnsskóla gengju vel.
Morgunblaðið/Golli
Ártúnsskóli í heimsókn
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA,
Páll Pétursson, hefur ákveðið að
óska eftir viðbótarfjárheimild í
fjáraukalögum ársins 2002 til að
mæta rekstrarvanda Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar ríkisins á yf-
irstandandi ári og frá síðasta ári. Í
tilkynningu frá félagsmálaráðu-
neytinu segir að verði fjárauka-
lagatillaga ársins ekki samþykkt
að öllu leyti muni ráðuneytið leita
allra leiða til lausna á rekstrar-
vanda stöðvarinnar í samráði við
forsvarsmenn hennar, þannig að
þjónustan verði ekki skert.
Í rekstraráætlun stöðvarinnar
fyrir þetta ár er reiknað með
skerðingu á þjónustu við greiningu
6 ára og eldri barna. Að mati full-
trúa Greiningarstöðvarinnar hefur
slík sparnaðaraðgerð í för með sér
10 milljóna króna útgjaldalækkun
fyrir stöðina.
Stefnt að breyttum lögum um
starfsemi stöðvarinnar
Á fundi fulltrúa félagsmálaráðu-
neytins og stöðvarinnar nýlega var
farið rækilega yfir rekstraráætl-
unina og segir ráðuneytið að eind-
rægur vilji sé til þess að leysa
vandann. Í því sambandi lagði
ráðuneytið til að fyrirætluð skerð-
ing á þjónustu á þessu ári verði
dregin til baka nú þegar, enda
segir félagsmálaráðherra að slík
þjónustuskerðing sé ekki í takt við
sínar áherslur.
Samfara þessari vinnu eru ýmsir
þættir til umfjöllunar í félagsmála-
ráðuneytinu sem tengjast Grein-
ingarstöðinni. Í nýlegu svari ráð-
herra við fyrirspurn á Alþingi kom
t.d. fram að algengi einhverfu
muni fjölga mikið á næstu árum.
Ráðherra segist hafa brugðist
strax við með því að óska eftir við-
bótarframlagi til stöðvarinnar fyr-
ir árið 2003. Þá stefnir ráðherra að
því að leggja fram frumvarp til
laga um breytingu á lögum um
Greiningarstöðina á hausti kom-
anda. Áður en það gerist á að fara
fram fagleg og fjárhagsleg skoðun
á starfsemi stöðvarinnar. Það er
mat ráðuneytisins að marka þurfi
stöðinni enn skýrari framtíðarsýn
þar sem starfsrammi og áherslur
komi glöggt fram. Þá hefur Stjórn-
arnefnd málefna fatlaðra sam-
þykkt fyrir sitt leyti framlag til
stöðvarinnar vegna búnaðarkaupa.
„Félagsmálaráðuneytið fagnar
umræðu um Greiningar- og ráð-
gjafarstöð ríkisins og lýsir yfir
einlægum vilja sínum til að skapa
stöðinni gott og vænlegt rekstr-
arumhverfi til framtíðar,“ segir að
endingu í tilkynningu félagsmála-
ráðuneytisins.
Rekstrarvandi Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar ríkisins
Félagsmálaráð-
herra óskar
eftir viðbótar-
fjárheimild
„FÉLAGIÐ Ísland-Palestína
fordæmir þá hryðjuverkastjórn
sem situr við völd í Ísrael. Ísr-
aelsríki hefur um áratugaskeið
ofsótt Palestínumenn á grund-
velli trúarbragða og þjóðernis
og svipt þá grundvallarréttind-
um sínum.
Félagið lýsir furðu sinni á
þeirri bíræfni ferðamálaskrif-
stofu ríkisstjórnar Ísraels að
efna til kynningar á skemmti-
og sólarlandaferðum til lands-
ins á sama tíma og heimurinn
stendur á öndinni vegna fram-
ferðis Ísraelshers,“ segir í
fréttatilkynningu frá Félaginu
Ísland-Palestína.
Mótmælastaða
við Grand hótel
Félagið Ísland-Palestína ætl-
ar að standa fyrir mótmæla-
stöðu í dag, fimmtudag, fyrir
framan Grand hótel, þar sem
kynning Ísraelsstjórnar fer
fram.
Félagið hvetur borgarbúa til
að fjölmenna og sýna samhug
sinn með þjáningum Palestínu-
manna og stuðning við baráttu
þeirra gegn hernámi. Kynning-
in hefst klukkan 18:00 og mun
mótmælastaðan hefjast klukk-
an 17:30.
Nýskipaður sendiherra Ísr-
aels gagnvart Íslandi mun að
öllum líkindum verða viðstadd-
ur kynninguna, að því er segir í
tilkynningu frá félaginu.
Félagið Ísland –
Palestína
Mótmæla
ferðakynn-
ingu Ísra-
elsstjórnar